Fleiri fréttir

Viðbeinsbrotnaði í umferðaróhappi á Akureyri

Tíu ára stúlka viðbeinsbrotnaði á Akureyri í klukkan eitt í dag þegar hún hjólaði inn í hlið bíls sem var á ferð. Stúlkan var með hjálm og er hann talinn hafa komið í veg fyrir að ekki fór verr.

Ráðherra kynni áform stóriðjufyrirtækja fyrir almenningi

Fulltrúar Sólar í Straumi, Sólar á Suðurnesjum og Sólar á Suðurlandi afhentu Þórunni Sveinbjarnardóttur, nýjum umhverfisráðherra, sameiginlega áskorun um að fela stofnunum ráðuneytisins að kynna fyrir almenningi heildarmynd áforma stóriðjufyrirtækja, orkufyrirtækja og orkuflutningafyrirtækja á Suður- og Suðvesturlandi.

Forsætisráðherra Dana ver tjáningarfrelsið

Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, varði einstaklingsfrelsið í ræðu sem hann hélt í tilefni af Grundlovsdag, sem er í dag. Hann sagði að það væri óverjandi þegar öfgakennd trú og öfgafull þjóðerniskennd bitnaði á einstaklingfrelsi, gerði konur undirgefnar karlmönnum og hindraði framþróun í efnahags-, þjóðfélags-, og menntamálum.

Vandi sjávarbyggða til umræðu á Alþingi

Vandi sjávarbyggðanna var til umræðu utan dagskrár á Alþingi í dag. Málshefjandi var varaþingmaður Vinstri grænna norðvesturkjördæmi og sjávarútvegsráðherra var til andsvara. Fleiri þingmenn fylgdu svo í kjölfarið.

Fiskimálasetur opnað í Mósambík

Fiskimálasetur var nýlega tekið í notkun í norðanverðri Mósambík. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) lagði ásamt Þróunarsamvinnustofnun Breta (DIFID) til fjármagn til byggingar á nýju húsnæði undir setrið í hafnarborginni Quelimane.

Íkveikja í Vestmannaeyjum

Í dagbók lögreglunnar í Vestmannaeyjum kemur fram að um kvöldmatarleytið í gærkvöldi var tilkynnt um að eldur væri í búnaði þjóðhátíðarnefndar sem geymdur er á svæði þjónustumiðstöðvar bæjarins.

Dæmdur fyrir að ætla að selja yfir 400 e-töflur

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 22 mánaða fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum hátt í 420 e-töflur sem ætlaðar voru til sölu. Töflurnar fundust á heimili foreldra mannsins í fyrrasumar.

Reiðhjól í búðum ólögleg

Meira en þriðjungur nýrra reiðhjóla í verslunum á Höfuðborgarsvæðinu hafa ekki nægilegan öryggisbúnað, eða 38%. Þau eru því ólögleg samkvæmt reglugerð.

Ætla að sýna Díönu deyja

Breska sjónvarpsstöðin Channel 4 mun ekki að verða við beiðni prinsanna Williams og Harrys um að sleppa myndum af síðustu augnablikunum í lífi móður þeirra, í sjónvarpsþætti um lát Díönu prinsessu.

Tveir dæmdir og tveir sýknaðir af morðinu á Jóni Þór

Dómstóll í El Salvador hefur dæmt tvo menn í sjötíu ára fangelsi hvorn fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Salinas fyrir tæpu einu og hálfu ári. Réttað var yfir fjórum mönnum og voru tveir sýknaðir.

Bush róar Rússa út af eldflaugakerfi

George Bush Bandaríkjaforseti reynir nú að bera klæði á vopnin gangvart Vladimír Pútín Rússlandsforseta og fullvissa hann um að óþarfi sé að að óttast fyrirhugað eldflaugarkerfi í Austur-Evrópu.

Með samúðarkveðjum -bin Laden

Bróðir talibanaforingja sem féll í Afganistan í maí, segist hafa fengið samúðarbréf frá Osama bin Laden. Mullah Dadullah féll í árás Bandaríkjamanna. Fall hans er talið mesta áfall sem talibanar hafa orðið fyrir síðan þeim var steypt af stóli árið 2001.

Biðlistum eytt, fæðingarorlof lengt og barnabætur hækkaðar

Ríkisstjórnin hyggst eyða biðlistum hjá Barna og unglingageðdeild Landspítalans og Greiningarstöð ríkisins, lengja fæðingarorlofið í áföngum og hækka barnabætur til tekjulágra. Þá munu atvinnutekjur ellilífeyrisþega og vistmanna 70 ára og eldri ekki hafa áhrif á fjárhæð ellilífeyris og almannatryggingar.

Þorskkvóti á norðurslóð gæti dregist saman um 100 þúsund tonn

Alþjóðahafrannsóknaráðið ICES leggur til að að þorskveiðar í Barentshafi verði skornar niður um 15 þúsund tonn á næsta ári og að aflinn verði 409 þúsund tonn. Þá leggur ráðið til að að þorkveiðar verði bannaðar með öllu í Norðursjó á næsta ári, en áætlaður afli þar í ár verður 20 þúsund tonn.

Aðstoðarforstjóri segir húsleitarheimild byggja á veikum grunni

Magnús Ólafsson, aðstoðarforstjóri MS, segir að dómur héraðsdóms frá því í gær sem heimilaði Samkeppniseftirlitinu að gera húsleit í höfuðstöðvum MS í morgun, byggi á afskaplega veikum grunni. Hann segir fyrirtækið ávallt hafa upplýst samkeppniseftirlitið um stöðu mála á hverjum tíma, og að Mjólkursamsalan hafi ekkert að fela.

Kínverjar lofa aðgerðum í umhverfismálum

Ríkisstjórn Kína hefur opinberað skýrslu þar sem fram kemur stefna þeirra og áætlaðar aðgerðir gegn loftlagsbreytingum. Í skýrslunni heitir stjórnin því að láta ekki sitt eftir liggja í baráttunni. Þó er tekið skýrt fram að ekkert verði aðhafst, ógni það örum vexti efnahagskerfis landsins.

Fjársjóðsskip vekur deilur

Spænsk stjórnvöld hafa lagt fram kæru hjá dómstól í Bandaríkjunum vegna skipsflaks sem bandaríska fyrirtækið Odyssey Marine Exploration hefur fundið og hirt fjársjóð úr. Fjársjóðurinn er sagður vera rúmlega þrjátíu milljarða króna virði.

Krónan lækkar enn

Krónan hélt áfram að lækka í morgun eftir að hafa lækkað um rúm tvö prósent í gær, sem er mesta lækkun á einum degi um langt skeið.

Móta stefnu í málefnum barna af erlendum uppruna

Efla á íslensku- og móðurmálskennslu fyrir börn af erlendum uppruna í grunnskólum Reykjavíkur, skýra verklagsreglur við innritun slíkra barna í skóla og koma á laggirnar vinafjölskyldum fyrir fjölskyldur barna af erlendum uppruna til þess að bæta aðlögun og virkni barnanna í reykvískum skólum.

Megum flytja inn ótakmarkað vín

Sænskum stjórnvöldum er óheimilt að banna einstaklingum að flytja inn áfengi samkvæmt niðurstöðu Evrópudómstólsins í Lúxemborg. Það stríðir gegn frjálsu vöruflæði innan Evrópska efnahagssvæðisins. Hér á landi er innflutningur til einkaneyslu frjáls, og ekkert þak á leyfilegu magni.

Húsleit vegna gruns um samkeppnisbrot

Fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu stormuðu inn á skriftstofur Mjólkursamsölunnar, Auðhumlu og Osta- og smjörsölunnar á Bitruhálsi í morgun vegna gruns um að fyrirtækin hefðu brotið samkeppnislög.

Hikk hikk húrra

Margir Svíar eru ærir af gleði yfir því að Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að sænska ríkið hefði ekki heimild til þess að banna einstaklingum að kaupa áfengi á netinu. Einni klukkustund eftir að fregnirnar bárust höfðu yfir 13000 manns tekið þátt í skoðanakönnun sænska Aftenposten um hvort þetta væru góðar eða slæmar fréttir. Um 75 prósent sögðust mundu versla á netinu.

Rætt um vanda sjávarbyggðanna á þingfundi í dag

Utandagskrárumræða um vanda sjávarbyggðanna fer fram við upphaf þingfundar í dag klukkan hálftvö. Það er Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, sem er málshefjandi en til andsvara verður Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.

Svandís segir grímulausa stóriðjustefnu ríkja áfram

Á fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í gær var samþykktur samningur um sölu á raforku til álvers í Helguvík. Svandís Svararsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, greiddi atkvæði gegn samningnum. Hún segir tillögu um samninginn óásættanlega.

Fundu þrjátíu nýjar plánetur

Tuttugu og átta plánetur hafa fundist á braut um aðrar stjörnur undanfarið ár. Samtals er nú vitað um 236 plánetur utan okkar sólkerfis. Vísindamenn segja milljarða byggilegra pláneta geta verið til, samkvæmt fréttavef Reuters.

Elsta melóna í heimi fundin

Fornleifafræðingar í Vestur-Japan grófu á dögunum upp lítinn skífulaga hlut sem þeir telja vera elstu óröskuðu leifar af melónu sem fundist hafa.

Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá MS

Fulltrúar frá Samkeppnieftirlitinu komu fyrir stundu í húsnæði Mjólkursamsölunnar á Bitruhálsi. Þetta fékkst staðfest á skrifstofu forstjóra Mjólkursamsöllunnar. Frekari upplýsingar er ekki að fá að svo stöddu hjá Mjólkursamsölunni og Samkeppniseftirlitinu en von er á tilkynningu frá MS innan stundar.

Bæjarráð Bolungarvíkur vonsvikið með skýrslu Hafró

Í ályktun Bæjarráðs Bolungarvíkur sem samþykkt var nú í morgun er lýst miklum vonbrigðum með nýúkomna skýrslu Hafrannsóknarstofnunar. Bæjarráðið segir að verði farið að ráðum stofnunarinnar muni það þýða 1200 tonna skerðingu í aflaheimildum á slægðum þorski í Bolungarvík og að útflutningsverðmæti frá bænum dragist saman um 300 milljónir króna á ársgrundvelli.

Bráðnun íss hraðar hlýnun

Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna segir að bráðnun jökla, íss og snjós geti haft áhrif á allt að 40 prósent jarðarbúa, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá stofnuninni.

Lygalaupur afhjúpaður á lögreglustöð

Piltur á tvítugsaldri reyndi að blekkja lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gær til að komast hjá því að hljóta sekt vegna ölvunarakstur. Pilturinn hafði kvöldið áður keyrt ölvaður inn í garð í Kópavogi og flúið af vettvang. Daginn eftir mætti hann svo á lögreglustöðina og tilkynnti að bíl sínum hefði verið stolið. Upp komst um ungan mann sem reyndi að blekkja lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að sleppa við sekt. Pilturinn, sem er 17 ára, tilkynnti lögreglunni að bíl sínum hefði verið stolið daginn eftir að hann

Réttað yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan í Bandaríkjunum

Réttarhöld yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan hófust í Atlanta í Bandaríkjunum í dag. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa myrt tvo svarta unglingspilta árið 1964. Málið er í hópi fjölmargra annarra mála sem tengjast kynþáttaofbeldi á 6. og 7. áratug síðustu aldar sem tekin hafa verið upp að nýju í Bandaríkjunum á undanförnum árum.

Tilkynnt um reyk á Laugavegi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hálf áttaleytið í kvöld eftir að tilkynning barst um reyk í lyftugöngum í húsi við Laugaveg 120.

Létu lífið þegar bananakassar hrundu yfir þá

Sex létu lífið þegar stæður af bananakössum hrundi yfir þá í flutningabíl við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó í dag. Mennirnir voru að reyna smygla sér ásamt öðrum yfir landamærin til Bandaríkjanna þegar slysið átti sér stað. Tíu aðrir slösuðust.

Tekinn á 148 kílómetra hraða

Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á 148 kílómetra kílómetra hraða á Suðurlandsvegi um þrjúleytið í dag. Ökumaðurinn, sem er karlmaður á fertugsaldri, var undir áhrifum fíkniefna.

Kalla eftir samstöðu til að draga úr mengun

Kanadamenn hafa kallað eftir samstöðu meðal átta stærstu iðnríkja heims um að draga verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda. Þetta kom fram í máli Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, á fundi átta stærstu iðnríkja heims í Berlín í dag. Hann telur þó ólíklegt að Kanada nái að draga úr mengun í samræmi við Kyoto bókunina.

Vill lögreglurannsókn á mögulegum mannréttindabrotum á Goldfinger

Mögulegt er að eigandi súlustaðarins Goldfinger í Kópavogi brjóti á mannréttindum starfsmanna sinna með því að meina þeim að yfirgefa vinnustað í allt að átta klukkutíma eftir að vinnu þeirra lýkur. Þetta kom fram í máli Guðríðar Arnardóttur, oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, í viðtali í Íslandi í dag. Hún segir þetta kalla á lögreglurannsókn og vill að lögreglan hafi frumkvæði í málinu.

Pálmi ógnar plönturíki Noregs

Suðrænn nýbúi í plönturíki Noregs stefnir nú innlendum gróðri í hættu með því að breiðast út á ógnarhraða. Hlýnun jarðar í kjölfar loftslagsbreytinga hefur valdið því að plantan, sem kallast Tromsö pálmi, hefur þrifist óvenjulega vel á þessum norðlægum slóðum. Yfirvöld í Tromsö hafa skorið upp herör gegn pálmanum.

Tveir dæmdir fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni

Tveir menn hafa verið dæmdir í 70 ára fangelsi fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Salinas í El Salvador í fyrra samkvæmt frétt Ríkissjónvarpsins. Fjórir voru ákærðir fyrir morðið en tveir voru sýknaðir.

Líffæragjafi nema annað sé tekið fram

Yfirlæknir hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi telur mikilvægt að breyta löggjöf um líffæragjafir. Þá verði gengið út frá því að látnir hafi viljað gefa líffæri sín hafi þeir ekki tekið annað fram fyrir andlátið.

Rannsóknir sýna að bólusetningar ungbarna valda ekki einhverfu

Greina má einkenni einhverfu hjá börnum strax á fyrstu tveimur árunum. Fyrstu einkennin geta verið, að þau svara hvorki nafni né horfa í augu fólks. Getgátur hafa verið uppi um að ungbarnabólusetningar valdi einhverfu en því vísar franskur geðlæknir alfarið á bug.

Íslenski fáninn á barnafötum á Spáni

Verslanakeðjan, C&A hefur í sumar selt barnaflíkur á Spáni með eftirlíkingu af íslenska fánanum. Samkvæmt íslenskum lögum er óheimilt að bjóða útlendar vörur með myndum af þjóðfánanum. Þórhallur Vilhjálmsson, lögfræðingur hjá forsætisráðuneytinu, segir að lögreglunni beri að taka málið til meðferðar.

Sjá næstu 50 fréttir