Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lygalaupur afhjúpaður á lögreglustöð Piltur á tvítugsaldri reyndi að blekkja lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gær til að komast hjá því að hljóta sekt vegna ölvunarakstur. Pilturinn hafði kvöldið áður keyrt ölvaður inn í garð í Kópavogi og flúið af vettvang. Daginn eftir mætti hann svo á lögreglustöðina og tilkynnti að bíl sínum hefði verið stolið. Upp komst um ungan mann sem reyndi að blekkja lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að sleppa við sekt. Pilturinn, sem er 17 ára, tilkynnti lögreglunni að bíl sínum hefði verið stolið daginn eftir að hann 4.6.2007 23:42
Réttað yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan í Bandaríkjunum Réttarhöld yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan hófust í Atlanta í Bandaríkjunum í dag. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa myrt tvo svarta unglingspilta árið 1964. Málið er í hópi fjölmargra annarra mála sem tengjast kynþáttaofbeldi á 6. og 7. áratug síðustu aldar sem tekin hafa verið upp að nýju í Bandaríkjunum á undanförnum árum. 4.6.2007 23:28
Tilkynnt um reyk á Laugavegi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hálf áttaleytið í kvöld eftir að tilkynning barst um reyk í lyftugöngum í húsi við Laugaveg 120. 4.6.2007 23:02
Létu lífið þegar bananakassar hrundu yfir þá Sex létu lífið þegar stæður af bananakössum hrundi yfir þá í flutningabíl við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó í dag. Mennirnir voru að reyna smygla sér ásamt öðrum yfir landamærin til Bandaríkjanna þegar slysið átti sér stað. Tíu aðrir slösuðust. 4.6.2007 22:28
Tekinn á 148 kílómetra hraða Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á 148 kílómetra kílómetra hraða á Suðurlandsvegi um þrjúleytið í dag. Ökumaðurinn, sem er karlmaður á fertugsaldri, var undir áhrifum fíkniefna. 4.6.2007 21:59
Kalla eftir samstöðu til að draga úr mengun Kanadamenn hafa kallað eftir samstöðu meðal átta stærstu iðnríkja heims um að draga verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda. Þetta kom fram í máli Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, á fundi átta stærstu iðnríkja heims í Berlín í dag. Hann telur þó ólíklegt að Kanada nái að draga úr mengun í samræmi við Kyoto bókunina. 4.6.2007 21:39
Vill lögreglurannsókn á mögulegum mannréttindabrotum á Goldfinger Mögulegt er að eigandi súlustaðarins Goldfinger í Kópavogi brjóti á mannréttindum starfsmanna sinna með því að meina þeim að yfirgefa vinnustað í allt að átta klukkutíma eftir að vinnu þeirra lýkur. Þetta kom fram í máli Guðríðar Arnardóttur, oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, í viðtali í Íslandi í dag. Hún segir þetta kalla á lögreglurannsókn og vill að lögreglan hafi frumkvæði í málinu. 4.6.2007 20:56
Pálmi ógnar plönturíki Noregs Suðrænn nýbúi í plönturíki Noregs stefnir nú innlendum gróðri í hættu með því að breiðast út á ógnarhraða. Hlýnun jarðar í kjölfar loftslagsbreytinga hefur valdið því að plantan, sem kallast Tromsö pálmi, hefur þrifist óvenjulega vel á þessum norðlægum slóðum. Yfirvöld í Tromsö hafa skorið upp herör gegn pálmanum. 4.6.2007 20:25
Tveir dæmdir fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni Tveir menn hafa verið dæmdir í 70 ára fangelsi fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Salinas í El Salvador í fyrra samkvæmt frétt Ríkissjónvarpsins. Fjórir voru ákærðir fyrir morðið en tveir voru sýknaðir. 4.6.2007 20:00
Líffæragjafi nema annað sé tekið fram Yfirlæknir hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi telur mikilvægt að breyta löggjöf um líffæragjafir. Þá verði gengið út frá því að látnir hafi viljað gefa líffæri sín hafi þeir ekki tekið annað fram fyrir andlátið. 4.6.2007 19:15
Rannsóknir sýna að bólusetningar ungbarna valda ekki einhverfu Greina má einkenni einhverfu hjá börnum strax á fyrstu tveimur árunum. Fyrstu einkennin geta verið, að þau svara hvorki nafni né horfa í augu fólks. Getgátur hafa verið uppi um að ungbarnabólusetningar valdi einhverfu en því vísar franskur geðlæknir alfarið á bug. 4.6.2007 19:14
Íslenski fáninn á barnafötum á Spáni Verslanakeðjan, C&A hefur í sumar selt barnaflíkur á Spáni með eftirlíkingu af íslenska fánanum. Samkvæmt íslenskum lögum er óheimilt að bjóða útlendar vörur með myndum af þjóðfánanum. Þórhallur Vilhjálmsson, lögfræðingur hjá forsætisráðuneytinu, segir að lögreglunni beri að taka málið til meðferðar. 4.6.2007 19:14
Krónan veiktist eftir að skýrsla Hafró var birt Krónan veiktist um rúm tvö prósent í dag þegar markaðir voru opnaðir á ný eftir að Hafrannsóknarstofnun kynnti dökka skýrslu sína um stöðu þorskkvótans. 4.6.2007 19:06
Vilja nota risabor til að bora veggöng á Austurlandi Verið er að kanna hvort einn risaboranna, sem nú borar göng að Kárahnjúkum, verði notaður til að bora veggöng á Austurlandi. Slíkt gæti dregið verulega úr kostnaði við gangagerð á svæðinu. 4.6.2007 19:03
Ólíklegt að ákært verði Ólíklegt er talið að hægt verði að fá opinbert mál höfðað á Íslandi gegn meintum morðingja Ashley Turner, flugliða sem myrt var á varnarsvæðinu á Miðnesheiði fyrir tæpum tveimur árum. Slíkt væri líkast til brot á ákvæðum marréttindasáttmála að mati íslenskra lögspekinga. 4.6.2007 19:00
Sýndi snör handtök þegar klórgasslanga gaf sig Verksmiðja Mjallar-Friggjar á Akureyri var rýmd í morgun eftir að klórgasleki kom upp í kjallara byggingarinnar. Að sögn slökkviliðsstjórans á Akureyri, gaf klórgasslanga sig með þeim afleiðingum að klórgas lak út en starfsmaður verksmiðjunnar sýndi snör handtök og náði að skrúfa fyrir gasið. Hann mun hafa orðið fyrir lítils háttar eitrun og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. 4.6.2007 18:59
Varað við Yasmín pillunni í Danmörku Læknar í Danmörku vara við notkun Yasmin getnaðarvarnarpillunnar vegna hættu á blóðtappa. Rekja má tvö dauðsföll ungra kvenna þar í landi beint til pillunnar. Um 1700 íslenskar konur nota hana sem getnaðarvörn. 4.6.2007 18:55
Stjórn peningamála komin í ógöngur Stjórn peningamála er komin í ógöngur að mati Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnin þarf að bregaðst við. Forsvarsmenn samtakanna funduðu með forsætisráðherra og utanríkisráðherra í morgun. 4.6.2007 18:44
Brotist inn í nýbyggingu í Njarðvík Brotist var inn í nýbygginu í Njarðvík í morgun og handverkfærum stolið. Enn liggur ekki fyrir hver eða hverjir voru þar að verki enn málið er enn í rannsókn. 4.6.2007 18:41
Samherji boðar samdrátt vegna erfiðrar stöðu í sjávarútvegi Fyrirhuguðum framkvæmdum útgerðarfyrirtækisins Samherja hf. við uppbyggingu landvinnslunnar á Dalvík verður frestað um eitt ár. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja. Hann segir erfiðleikar í íslenskum sjávarútvegi vegna óhagstæðrar gengisþróunar, hárra vaxta og niðurstöður Hafrannsóknarstofnunar um ástand þorskstofnsins gera það að verkum að fresta verði framkvæmdunum. 4.6.2007 18:34
Miðar á Evrópu verði ekki hætt við Pútín Rússlandsforseti hótar hefndaraðgerðum láti Bandaríkjamenn verða af því að byggja eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. Hann segir að eldflaugum, búnum kjarnaoddum, verði miðað á Evrópuríki verði ekki hætt við þau áform. Svör frá Evrópuríkjum eru varfærin. Talsmaður Atlantshafsbandalagsins segir yfirlýsingu Pútíns ógagnlega. 4.6.2007 18:30
Krefjast 150 milljarða í skaðabætur frá lyfjafyrirtæki Dómstóll í Nígeríu ákvað í dag að fresta réttarhöldum yfir lyfjafyrirtækinu Pfizer til júlímánaðar. Fyrirtækið er meðal annars sakað um að hafa valdið dauða margra nígerískra barna eftir að þau voru notuð í tilraunaskyni fyrir ósamþykkt lyf. Fyrirtækið hefur vísað ákærunum á bug. 4.6.2007 18:17
Frakkar herða tökin á ólöglegum innflytjendum Frönsk stjórnvöld lýstu því yfir í dag að þau hyggðust senda að minnsta kosti 25 þúsund ólöglega innflytjendur til baka til heimalands síns fyrir árslok. Eru þetta mun stærri hópur en áður stóð til að vísa úr landi. Þetta í samræmi við fyrri yfirlýsingar franskra stjórnvalda um hertari aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum þar í landi. 4.6.2007 17:58
Þingmaður ákærður fyrir spillingu Reiknað er með því að bandarísk yfirvöld gefi út ákæru á hendur bandaríska þingmanninum William Jefferson í dag fyrir spillingu og mútuþægni. Þingmaðurinn hefur hingað til neitað öllum sakargiftum. 4.6.2007 17:31
Konungsskipið bjargaði ungum Svíum Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að allt fór í háaloft í knattspyrnuleik Dana og Svía á föstudaginn, mátti sjá hina hliðina á samskiptum landanna. Danska konungsskipið Dannebrog bjargaði tveim ungum Svíum úr sjávarháska. 4.6.2007 16:51
Talsmaður danskra neytenda kærir Sterling Flugfélagið Sterling, sem er í eigu íslenskra aðila, hefur verið kært til lögreglu í Danmörku fyrir verðauglýsingar félagsins á Netinu. Á heimasíðu félagsins var gefið upp verð án skatta og það var ekki fyrr en viðskiptavinurinn var kominn lengra í bókunarferlinu að hið raunverulega verð var gefið upp. Frá þessu er greint á heimasíðu Neytendasamtakanna. 4.6.2007 16:47
Máli vísað frá í Gvantanamo Bandarískur yfirdómari herdómstóls í Gvantanamo fangabúðunum á Kúbu, hefur vísað frá öllum ákærum á hendur ungum Kanadamanni. Dómarinn sagði að Kanadamaðurinn, Omar Khadr félli ekki undir hans lögsögu. 4.6.2007 16:29
Íranar borga ekki kjarnorkuverið Rússar segja að Íranar hafi ekki borgað nema brot af því sem þeir eigi að inna af hendi fyrir aðstoð Rússa við smíði Bushehr kjarnorkuversins. Íranar neita þessu og segja að Rússar seinki verkinu vegna þrýstings frá Vesturlöndum. 4.6.2007 16:15
Forsætisráðherra skili skýrslu um loforð ráðherra fyrir kosningar Alþingi samþykkti í dag beiðni frá þinmönnum vinstri grænna þess efnis að forsætisráðherra taki saman skýrslu um þá samninga, viljayfirlýsingar og fyrirheit sem veitt voru í aðdraganda kosninga. Beiðnin var samþykkt samhljóðar. 4.6.2007 15:52
Engar heimildir í gildi vegna stríðsins í Írak Þær heimildir sem íslensk stjórnvöld veittu bandarískum til þess að nýta sér aðstöðu hér á landi vegna stríðsins í Írak eru fallnar úr gildi. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á Alþingi í dag. 4.6.2007 15:30
Sakfelldir fyrir umfangsmikið smygl á fólki Sex karlar voru í dag í Uppsölum í Svíþjóð dæmdir í átta mánaða til tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir umfangsmikið smygl á Írökum til Svíþjóðar og annarra Evrópulanda. 4.6.2007 15:03
Aðgerðir Seðlabankans hafa skaðað atvinnulífið, segir SA Ríkisstjórnin þarf nú þegar að taka á þeirri sjálfheldu sem stjórn peningamála og hagstjórnin hefur ratað í og aðgerðir Seðlabankans hafa skaðað atvinnulífið, segja Samtök atvinnulífsins. Framkvæmdastjórn samtakanna átti í morgun fund með forsætisráðherra og utanríkisráðherra. 4.6.2007 14:47
Farðu til Rómar og vertu skakkur Ef þú hefur einusinni komið til Rómar þá þráir þú að fara þangað aftur. Ítalskir vísindamenn hafa nú kannski uppgötvað ástæðuna fyrir því að Róm verður vanabindandi. Þeir voru að mæla loftmengun með nýjum og fullkomnum tækjum. Auðvitað fundu þeir merki um útblástur frá bílum, í andrúmsloftinu. En þeir fundu líka kókaín, nikótín, koffín og hass. 4.6.2007 14:38
Fræðsluvefurinn opnaður Orkuveita Reykjavíkur opnaði í dag á vefsvæði sínu sérstakan fræðsluvef sem ætlað er að miðla fróðleik um þau málefni sem starfsemi fyrirtækisins beinist að. Það var nýr heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, sem opnaði vefinn en þetta mun vera á meðal síðustu embættisverka Guðlaugs hjá Orkuveitunni áður en hann lætur af embætti stjórnarformanns. 4.6.2007 14:19
Tugthúsmyndin af París Þegar fólk er sett í tugthús er venjan að taka af því ljósmyndir fyrir fangaskrána. Það var auðvitað gert þegar París Hilton kom í fangelsið í dag til þess að afplána 23 daga fangelsisvist í dag. Og líklega er þetta flottasta fangaportrett sem lengi hefur verið tekið af nýjum fanga í Lynwood fangelsinu í Kaliforníu. Smellið á "meira" til þess að sjá myndina af París. 4.6.2007 14:17
Blair setti sjö lög á dag Sjö ný lög hafa verið samþykkt á breska þinginu á hverjum einasta degi frá því Tony Blair tók við völdum fyrir tíu árum. Að meðaltali 2.685 lög voru samþykkt á ári í valdatíð hans. Það var 22 prósent aukning frá áratugnum á undan, þegar Íhaldsflokkurinn fór með völd. Þetta er til viðbótarl lögum sem hefur þurft að samþykkja 4.6.2007 14:02
Gerðu aðsúg að lögreglu á dansleik á Höfn Gerður var aðsúgur að lögreglumönnum við eftirlit á sjómannadagsdansleik á Höfn í Hornafirði á laugardag og beitti lögregla piparúða til að verja hendur sínar gagnvart ólátaseggum. 4.6.2007 13:51
Rauði krossinn fordæmir morð á tveimur starfsmönnum á Sri Lanka Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans fordæmir brottnám og morð á tveimur starfsmönnum Rauða krossins á Sri Lanka þann 3. júní. Skorað hefur verið á þarlend yfirvöld að hefja tafarlaust rannsókn á morðunum en ekki er vitað hverjir voru að verki. 4.6.2007 13:37
Lögreglan á Akranesi rannsakar þrjár nauðganir Lögreglan á Akranesi hefur nú til rannsóknar þrjár nauðganir og eitt kynferðisbrotamál til viðbótar. Málin hafa komið upp á síðustu vikum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. 4.6.2007 13:32
Þörf á tæknibyltingu í iðnaði á næstu árum Þörf er á tæknibyltingu í iðnaði í heiminum á næstu 10-15 árum til þess að vinna gegn loftlagsbreytingum og styðja við sjálfbæra þróun. Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi umhverfisráðherra Evrópska efnahagssvæðisins í Essen í Þýskalandi um helgina en þann fund sótti Þórunn Sveinbjarnardóttir, nýr umhverfisráðherra. 4.6.2007 13:20
Kanna möguleikann á því að nýta risaborinn áfram Verið er að kanna möguleikann á því að risaborinn sem nú borar göng að Kárahnjúkum verði notaður til þess að bora veggöng hér á landi. Þetta kom fram hjá Kristjáni L. Möller, samgönguráðherra í hádegisviðtalinu á Stöð 2. 4.6.2007 13:14
Efnaverksmiðja í björtu báli Efnaverksmiðja í Crewe í Englandi stendur í björtu báli eftir að þar varð mikil sprenging fyrir stundu. Verið er að rýma næsta nágrenni verksmiðjunnar en reykjarbólstrar standa mörghundruð metra í loft upp. Sjónarvottar segja að eldurinn sé að breiðast út. Ekki er á þessari stundu vitað um manntjón í verksmiðjunni. 4.6.2007 13:12
Íranir eru ósigrandi Íranar minnast þess nú að um þessar mundir eru 18 ár liðin frá dauða Ayatollah Kohmeini, stofnanda íranska lýðveldisins. Forseti landsins, Mahmoud Ahmadinejad sagði í ræðu í gær fyrir utan grafhýsi leiðtogans fyrrverandi að Íranir ætluðu sér ekki hætta við áform sín um að kjarnorkuvæða landið og sagði hann íranska lýðveldið vera „ósigrandi“. 4.6.2007 12:50
Danska lögreglan lærir af þeirri þýsku í Heiligendamm Danska lögreglan hyggst senda hóp lögreglumanna til Heiligendamm í Þýskalandi þar sem leiðtogar átta helstu iðnríkja heims koma saman á miðvikudag til fundar. 4.6.2007 12:45
Vaxandi ásókn í laxveiðileyfi Ásókn í laxveiðileyfi fer vaxandi ár frá ári þrátt fyrir hækkandi verð og er þegar uppselt í nokkrar ár áður en veiðitíminn hefst í fyrarmálið. 4.6.2007 12:30