Fleiri fréttir Símaskráin í sérstakri hátíðarútgáfu Ný símaskrá er komin út og það í hundraðasta sinn en símaskráin var fyrst gefin út árið 1906. Að því tilefni hefur verið gefin út sérstök afmælisútgáfa en í henni er að finna fyrstu símanúmeraskránna sem gefin var út á Íslandi. 30.5.2006 13:30 ESB braut lög Evrópusambandið braut lög þegar það ákvað að leyfa evrópskum flugfélögum að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um flugfarþega á leið til Bandaríkjanna. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins sem segir persónuvernd evrópskra farþega ekki tryggða nægilega vel í Bandaríkjunum. Dómstóllinn gefur fjögurra mánaða frest til að endurskoða samning um upplýsingagjöfina. 30.5.2006 12:45 Gísli sest í bæjarstjórastólinn á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir á Akranesi tilkynntu í hádeginu um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn. Það sem er óvenjulegt við þennan meirihluta er að Gísli S. Einarsson, sem verið hefur Samfylkingarmaður, verður bæjarstjóri en sjálfstæðismenn tefldu honum fram sem slíkum. 30.5.2006 12:30 Ekki samið um neitt fyrir kosningarnar Forystumenn stjórnarflokkanna segja ekkert hæft í samsæriskenningum um að búið hafi verið að semja um stuðning Sjálfstæðismanna við frumvarp iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands, áður en flokkarnir mynduðu meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, segir ekki hafa verið samið neitt um myndun nýs meirihluta milli flokkanna í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Þeir eu báðir hæstánægðir með nýja meirihlutann. 30.5.2006 12:12 Lítil von um að nokkur finnist á lífi Björgunarmenn segja litla sem enga von á að nokkur finnist á lífi í rústum húsa á indónesísku eyjunni Jövu en öflugur jarðskjálfti reið þar yfir á laugardaginn. Rúmlega fimm þúsund og fjögur hundruð manns fórust í hamförunum en skjálftinn mældist 6,3 á Richter. 30.5.2006 11:30 200 fangar í Abu Ghraib látnir lausir Bandaríkjaher hefur látið um það bil tvö hundruð írakska fanga lausa úr Abu Ghraib fangelsinu þar í landi. Þetta var gert þegar staðfest var að fangarnir hefðu ekki átt þátt í aðgerðum andspyrnumanna gegn hersveitum í Írak. 30.5.2006 10:51 Gísli S. Einarsson næsti bæjarstjóri á Akranesi? Boðað hefur verið til blaðamannafundar í hádeginu vegna myndun nýs bæjarstjórnarmeirihluta á Akranesi. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttavefjarins Skessuhorn verður Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar sem var á lista sjálfstæðismanna í kosningunum, næsti bæjarstjóri á Akranesi. 30.5.2006 10:30 Bændur óhressir með tryggingar Bændur eru óhressir með svonefndar rekstrarstöðvunartryggingar, sem Sjóvá býður þeim upp á, án þess að eftir því hafi verið leitað. Sérstaklega telja bændur það til vansa að Sjóvá skuli senda greiðsluseðla án útskýringa og í mörgum tilvikum beint til greiðsluþjónustu viðskiptabanka bændanna. 30.5.2006 10:23 Upplýsingagjöf ólögleg Evrópusambandið braut gegn lögum þegar það samþykkti að skylda evrópsk flugfélög til að láta Bandaríkjamönnum í té upplýsingar um flugfarþega þeirra. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins. 30.5.2006 09:18 Innbrotsþjófar gleymdu myndavélinni Lögreglan á Selfossi leitar nú nokkurra innbrotsþjófa sem brutust inn í sumarbústað i Grímsnesi um helgina og virðast hafa slegið upp teiti á staðnum. Góður gleðskapur er gjarnan festur á filmu og gerður þjófarnir enga undantekningu á því. Það varð þeim hinsvegar að falli, því þeir gleymdu myndavélinni á vettvangi og telur lögreglan sig þegar þekkja einn þeirra af myndum úr teitinu, og ætlar að hafa tal af honum í dag. 30.5.2006 08:45 Þrír fórust í átökum á Gazasvæðinu Þrír biðu bana og fjórir særðust í átökum Ísraelshers og palestínskra vígamanna á Gaza-ströndinni í morgun, að sögn heimildarmanns úr röðum Palestínumanna. 30.5.2006 08:30 Sjálfstæðismenn og frjálslyndir mynda meirihluta á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri. 30.5.2006 08:24 Fjórir fórust í sprengingu í efnaverksmiðju Að minnsta kosti fjórir létu lífið og þrír slösuðust í sprengingu í efnaverksmiðju um þrjátíu kílómetra suðvestur af Belgrad, höfuðborg Serbíu, í gær. Auk þess að framleiða ýmis eiturefni er sprengiefni framleitt í verksmiðjunni en sprengingin mun hafa orðið þar sem sú framleiðsla fer fram. 30.5.2006 08:00 Reyndi að stinga lögregluna af Ungur ökumaður bifhjóls, sem reyndi að stinga lögregluna af í Reykjavík í gærkvöldi, slapp ómeiddur þótt hann hafi tvisvar fallið af hjólinu á flóttanum. Þegar lögreglumenn reyndu að hafa tal af honum í miðborginni gaf hann í austur Sæbraut, þar sem hann féll á gatnamótunum við Snorrabraut. 30.5.2006 08:00 Sumarþing hefst í dag Sumarþing hefst í dag en þingmenn tóku sér frí í byrjun mánaðarins vegna nýliðinna sveitarstjórnarkosninga. Nefndarfundir hófust í gær og halda áfram í fyrramálið. Fjöldi mála liggur fyrir þinginu og um flest þeirra er væntanlega sátt á milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Um nokkur mál standa þó deilur og þingfundur hefst á því að ræða eitt þeirra, nýtt frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið. 30.5.2006 08:00 Ökumaður slapp með skrekkinn Þau undur gerðust í Njarðvík í gærkvöldi að vél í nýlegum jepplingi hreinlega sprakk í miðjum akstri, og eldur kviknaði í vélarhúsinu. Vegfarandi gat haldið eldinum í skefjum þar til slökkviliðið kom á vettvang og slökkti hann. Kom þá í ljós að sjálf blokkin í vélinni var sprunginn og ýmislegt innvols úr vélinni lá í götunni auk þess sem olía og kælilvökvi láku úr vélinnin þannig að slökkviliðsmenn þurftu að hreinsa vettvanginn. Ökumaðurinn slapp ómeiddur en orsakir þessa eru ókunnar. 30.5.2006 07:45 Grískum ráðherra sýnt banatilræði Öflug sprengja sprakk við heimili ráðherra menningarmála í Grikklandi í Aþenu í morgun. Enginn særðist í sprengingunni, að sögn lögreglu, en nokkrir bílar eyðilögðust. Ekki fylgir sögunni hvort bíll ráðherrans, George Voulgarakis, hafi verið þar á meðal en sprengjan sprakk skömmu áður en ráðherrann lagði af stað til vinnu. 30.5.2006 07:30 Meirihlutaviðræður halda áfram í dag Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð. 30.5.2006 07:15 Útgöngubann í Kabúl Útgöngubann hefur verið sett á í Kabúl, höfuðborg Afganistans, vegna átakanna sem þar hafa geisað síðasta sólarhring. Átökin hófust eftir að bandarískur herbíll keyrði á fjölda farartækja á götum borgarinnar og varð fimm manns að bana. 30.5.2006 06:50 117 höfnuðu tillögum Alls 117, eða þriðjungur kosningabærra, höfnuðu öllum þremur tillögum að nöfnum á nýsameinuðu sveitarfélagi Hólmavíkurhrepps og Broddaneshrepps á Ströndum. 30.5.2006 06:00 Helgi Steinsson efstur Í Hörgárbyggð var óbundin kosning. Íbúar á kjörskrá voru 287 og þar af greiddi 181 atkvæði. Kosningu hlutu Helgi B. Steinsson, Birna Jóhannesdóttir, Árni Arnsteinsson, Jóhanna María Oddsdóttir og Guðný Fjóla Árnmarsdóttir. 30.5.2006 00:01 Where Atheists are Proven Wrong 30.5.2006 00:01 Úrslit í Skútustaðahreppi Óbundinni kosningu í Skútustaðahreppi er lokið. Á kjörskrá voru 306 og greiddu 190 manns atkvæði. 29.5.2006 23:00 Vinstri grænir í Kópavogi harma ákvörðun Framsóknarmanna Vinstri græn í Kópavogi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma þá ákvörðun Framsóknarmanna í Kópavogi að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn um áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjónr Kópavogs. Segja Vinstri grænir framsóknarflokkinn þar með kasta frá sér sögulegu tækifæri til að losna úr viðjum þess meirihluta sem er á góðri leið með að þurrka Framsóknarflokkinn út, ekki bara í Kópavogi heldur víðast hvar á landinu. 29.5.2006 22:01 Landsvirkjun opnar tilboð í IP Telephone Exchange Í dag opnaði Landsvirkjun tilboð í IP Telephone Exchange. Alls bárust níu tilboð og var það hæsta frá EJS og hljóðaði það upp á rúmar 12 komma 8 milljónir króna. Notrek ehf. átti næsthæsta tilboðið og Sensa það þriðja hæsta. 29.5.2006 21:54 Breskir fjölmiðlamenn létust í Írak Myndatökumaður og hljóðmaður frá CBS sjónvarpsstöðinni létust í Írak í dag þegar sprengja lenti á bílalest sem þeir voru í. Fréttakona frá sjónvarpsstöðinni slasaðist einnig lífshættulega og var samstundis flutt á hersjúkrahús í Bagdad þar sem hún gekkst undir skurðaðgerð. 29.5.2006 21:21 ESB setur Tamíltígra á lista yfir hryðjuverkamenn Evrópusambandið hefur sett uppreisnarhópinn Tamíltígrana á Sri Lanka á lista yfir hryðjuverkasamtök og fryst allar bankainnistæður samtakanna. Skæð átök hafa átt sér stað á milli stjórnarhers á Sri Lanka og Tamíltígranna sem berjast fyrir sjálfstæðu landi Tamíla í norðurhluta Sri Lanka. 29.5.2006 20:27 Tugþúsundir undir berum himni í Indónesíu Tugþúsundir manna hafast nú við undir berum himni í rigningu á jarðskjálftasvæðum í Indónesíu. Að minnsta kosti fimm þúsund manns létu lífið í skjálftanum sem varð á laugardag. 29.5.2006 20:16 Frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð afgreitt úr iðnaðarnefnd Frumvarp Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um Nýsköpunarmiðstöð Íslands, var afgreitt úr iðnaðarnefnd Alþingis í dag. Á morgun hefst sumarþing, -en þingmenn tóku sér frí 4. maí vegna nýliðina sveitarstjórnarkosninga. 29.5.2006 20:05 Róstur gegn útlendingum í Kabúl Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í uppþotum í Kabúl, höfuðborg Afganistans, sem beinast gegn útlendingum í borginni. Tíu Íslendingar eru í Kabúl en ekkert amar að þeim, að sögn utanríkisráðuneytisins. 29.5.2006 20:02 Karlar til ábyrgðar á laggirnar Félagsmálaráðherra skrifaði í morgun undir samning um verkefnið Karlar til ábyrgðar. Verkefnið er sérhæft meðferðarúrræði fyrir karlmenn sem beita ofbeldi á heimilum. Sálfræðingar munu annast meðferðarstarfið en áhersla er lögð á að mennirnir vilji sjálfir leita sér hjálpar. 29.5.2006 20:00 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson næsti Borgarstjóri - Björn Ingi formaður Borgarráðs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður næsti borgarstjóri í Reykjavík en nú síðdegis samdi hann við Björn Inga Hrafnsson um myndun meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn. Þetta var tilkynnt klukkan fimm í dag en þremur stundum fyrr sleit Vilhjálmur viðræðum við oddvita Frjálslynda flokksins um myndun meirihluta. 29.5.2006 19:57 Eyþór tekur ekki sæti í bæjarstjórn Árborgar strax Eyþór Arnalds missir ökuréttindi í tólf mánuði og greiðir 150 þúsund króna sekt, samkvæmt lögreglusátt sem hann gekk frá á föstudaginn. Hann tekur ekki sæti sitt í bæjarstjórninni í Árborg fyrr en árið er liðið. Sem kunnugt er ók Eyþór ölvaður á ljósastaur við Kleppsveg fyrir rúmlega hálfum mánuði. Hann hefur þegar skilað inn ökuskírteininu og greitt sektina. 29.5.2006 19:40 Nauðgun kærð í Vestmannaeyjum Nítján ára stúlka kærði þrítugan mann fyrir nauðgun í heimahúsi í Vestmannaeyjum á aðfaranótt laugardags. Maðurinn var tekinn í yfirheyrslu hjá lögreglu en var sleppt að því loknu. Einhver ölvun tengist málinu. Eftir er að yfirheyra vitni en málið er enn í rannsókn. 29.5.2006 19:37 Úrslit í Súðavíkurhreppi Óbundinni kosningu í Súðavíkurhreppi er lokið. Á kjörskrá voru 165 og greiddu 110 manns atkvæði. 29.5.2006 19:00 Bilun í stjórnbúnaði ljósabekks olli bruna Nú er ljóst að eldurinn sem kom upp í Akureyrinni úti fyrir Látrabjargi á laugardag kviknaði vegna bilunar í stjórnbúnaði ljósabekks sem staðsettur var í frístundarými skipsins. 29.5.2006 17:15 Meirihlutaviðræðum á Akureyri slitið Samfylkingin á Akureyri hefur slitið meirihlutaviðræðum við L-lista og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð í bæjarstjórn Akureyrar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Samfylkingunni. 29.5.2006 17:14 Vilhjálmur borgarstjóri og Björn Ingi formaður borgarráðs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er ný borgarstjóri Reykjavíkur og Björn Ingi Hrafnsson nýr formaður borgarráðs samkvæmt samkomulagi sem Framsóknaflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn gerðu í Reykjavík um meirihlutasamstarf. Þetta var tilkynnt fyrir stundu eftir fund framsóknarmanna og sjálfstæðismanna á heimili Vilhjálms í Breiðholti. 29.5.2006 17:05 Hinn ófullkomni glæpur Hópur fólks braust inn í sumarbústað í Grímsnesinu um helgina til þess að halda þar partí. Fólkið hafði ekkert á brott með sér en skildi eftir sig bjórdósir - og myndavél með myndum af fólkinu í gleðskapnum. Með svo þægileg sönnunargögn í höndunum var lögreglan á Selfossi ekki lengi að hafa uppi á sökudólgunum. 29.5.2006 17:00 Bein útsending frá blaðamannafundi um myndun meirihluta í borginni á NFS og Vísi kl. 17 Bein útsending verður frá blaðamannafundi um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur á NFS og hér á Vísi klukkan 17. Fundurinn fer fram við heimili Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita D-lista, í Breiðholti. Samkvæmt heimildum NFS hafa sjálfstæðismenn og framsóknarmenn náð samkomulagi um myndun meirihluta í borgarstjórn. 29.5.2006 16:20 Einn blóðugasti dagurinn í Bagdad frá upphafi stríðsins Senn er að kveldi kominn einn blóðugasti dagurinn í Bagdad í Írak frá upphafi stríðs í landinu fyrir rúmum þremur árum. Minnst þrjátíu og þrír hafa fallið og fjölmargir særst í röð sprenginga. 29.5.2006 16:10 Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarmenn að mynda nýjan meirihluta Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn eru að ná samkomulagi um myndun nýs meirihluta í Reykjavíkurborg skv. heimildum NFS. Tilkynning um málið verður send út innan tveggja klukkustunda samkvæmt sömu heimild. Bein útsending verður frá blaðamannafundi um myndun meirihlutans á NFS kl. 17. 29.5.2006 16:01 Dómkirkja brennur í Finnlandi Dómkirkjan í Porvoo í Suður-Finnlandi, ein elsta kirkja landsins, skemmdist töluvert í bruna í nótt. Ekki er vitað um eldsupptök en samkvæmt upplýsingum yfirvalda kviknaði eldurinn utan við kirkjuna og grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. 29.5.2006 15:50 Ekkert amar að Íslendingunum í Kabúl Ekkert amar að tíu Íslendingum sem eru að störfum í Kabúl, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu, en minnst átta manns hafa fallið og rúmlega hundrað slasast í átökum í borginni í dag. 29.5.2006 15:16 Skrifað undir viljayfirlýsingu um meirihlutamyndun Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn á Ísafirði skrifuðu undir viljayfirlýsingu um myndun meirihluta á Ísafirði fyrir stundu. Samkvæmt yfirlýsingunni verður Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, áfram bæjarstjóri. 29.5.2006 15:15 Sjá næstu 50 fréttir
Símaskráin í sérstakri hátíðarútgáfu Ný símaskrá er komin út og það í hundraðasta sinn en símaskráin var fyrst gefin út árið 1906. Að því tilefni hefur verið gefin út sérstök afmælisútgáfa en í henni er að finna fyrstu símanúmeraskránna sem gefin var út á Íslandi. 30.5.2006 13:30
ESB braut lög Evrópusambandið braut lög þegar það ákvað að leyfa evrópskum flugfélögum að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um flugfarþega á leið til Bandaríkjanna. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins sem segir persónuvernd evrópskra farþega ekki tryggða nægilega vel í Bandaríkjunum. Dómstóllinn gefur fjögurra mánaða frest til að endurskoða samning um upplýsingagjöfina. 30.5.2006 12:45
Gísli sest í bæjarstjórastólinn á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir á Akranesi tilkynntu í hádeginu um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn. Það sem er óvenjulegt við þennan meirihluta er að Gísli S. Einarsson, sem verið hefur Samfylkingarmaður, verður bæjarstjóri en sjálfstæðismenn tefldu honum fram sem slíkum. 30.5.2006 12:30
Ekki samið um neitt fyrir kosningarnar Forystumenn stjórnarflokkanna segja ekkert hæft í samsæriskenningum um að búið hafi verið að semja um stuðning Sjálfstæðismanna við frumvarp iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands, áður en flokkarnir mynduðu meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, segir ekki hafa verið samið neitt um myndun nýs meirihluta milli flokkanna í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Þeir eu báðir hæstánægðir með nýja meirihlutann. 30.5.2006 12:12
Lítil von um að nokkur finnist á lífi Björgunarmenn segja litla sem enga von á að nokkur finnist á lífi í rústum húsa á indónesísku eyjunni Jövu en öflugur jarðskjálfti reið þar yfir á laugardaginn. Rúmlega fimm þúsund og fjögur hundruð manns fórust í hamförunum en skjálftinn mældist 6,3 á Richter. 30.5.2006 11:30
200 fangar í Abu Ghraib látnir lausir Bandaríkjaher hefur látið um það bil tvö hundruð írakska fanga lausa úr Abu Ghraib fangelsinu þar í landi. Þetta var gert þegar staðfest var að fangarnir hefðu ekki átt þátt í aðgerðum andspyrnumanna gegn hersveitum í Írak. 30.5.2006 10:51
Gísli S. Einarsson næsti bæjarstjóri á Akranesi? Boðað hefur verið til blaðamannafundar í hádeginu vegna myndun nýs bæjarstjórnarmeirihluta á Akranesi. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttavefjarins Skessuhorn verður Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar sem var á lista sjálfstæðismanna í kosningunum, næsti bæjarstjóri á Akranesi. 30.5.2006 10:30
Bændur óhressir með tryggingar Bændur eru óhressir með svonefndar rekstrarstöðvunartryggingar, sem Sjóvá býður þeim upp á, án þess að eftir því hafi verið leitað. Sérstaklega telja bændur það til vansa að Sjóvá skuli senda greiðsluseðla án útskýringa og í mörgum tilvikum beint til greiðsluþjónustu viðskiptabanka bændanna. 30.5.2006 10:23
Upplýsingagjöf ólögleg Evrópusambandið braut gegn lögum þegar það samþykkti að skylda evrópsk flugfélög til að láta Bandaríkjamönnum í té upplýsingar um flugfarþega þeirra. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins. 30.5.2006 09:18
Innbrotsþjófar gleymdu myndavélinni Lögreglan á Selfossi leitar nú nokkurra innbrotsþjófa sem brutust inn í sumarbústað i Grímsnesi um helgina og virðast hafa slegið upp teiti á staðnum. Góður gleðskapur er gjarnan festur á filmu og gerður þjófarnir enga undantekningu á því. Það varð þeim hinsvegar að falli, því þeir gleymdu myndavélinni á vettvangi og telur lögreglan sig þegar þekkja einn þeirra af myndum úr teitinu, og ætlar að hafa tal af honum í dag. 30.5.2006 08:45
Þrír fórust í átökum á Gazasvæðinu Þrír biðu bana og fjórir særðust í átökum Ísraelshers og palestínskra vígamanna á Gaza-ströndinni í morgun, að sögn heimildarmanns úr röðum Palestínumanna. 30.5.2006 08:30
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir mynda meirihluta á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri. 30.5.2006 08:24
Fjórir fórust í sprengingu í efnaverksmiðju Að minnsta kosti fjórir létu lífið og þrír slösuðust í sprengingu í efnaverksmiðju um þrjátíu kílómetra suðvestur af Belgrad, höfuðborg Serbíu, í gær. Auk þess að framleiða ýmis eiturefni er sprengiefni framleitt í verksmiðjunni en sprengingin mun hafa orðið þar sem sú framleiðsla fer fram. 30.5.2006 08:00
Reyndi að stinga lögregluna af Ungur ökumaður bifhjóls, sem reyndi að stinga lögregluna af í Reykjavík í gærkvöldi, slapp ómeiddur þótt hann hafi tvisvar fallið af hjólinu á flóttanum. Þegar lögreglumenn reyndu að hafa tal af honum í miðborginni gaf hann í austur Sæbraut, þar sem hann féll á gatnamótunum við Snorrabraut. 30.5.2006 08:00
Sumarþing hefst í dag Sumarþing hefst í dag en þingmenn tóku sér frí í byrjun mánaðarins vegna nýliðinna sveitarstjórnarkosninga. Nefndarfundir hófust í gær og halda áfram í fyrramálið. Fjöldi mála liggur fyrir þinginu og um flest þeirra er væntanlega sátt á milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Um nokkur mál standa þó deilur og þingfundur hefst á því að ræða eitt þeirra, nýtt frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið. 30.5.2006 08:00
Ökumaður slapp með skrekkinn Þau undur gerðust í Njarðvík í gærkvöldi að vél í nýlegum jepplingi hreinlega sprakk í miðjum akstri, og eldur kviknaði í vélarhúsinu. Vegfarandi gat haldið eldinum í skefjum þar til slökkviliðið kom á vettvang og slökkti hann. Kom þá í ljós að sjálf blokkin í vélinni var sprunginn og ýmislegt innvols úr vélinni lá í götunni auk þess sem olía og kælilvökvi láku úr vélinnin þannig að slökkviliðsmenn þurftu að hreinsa vettvanginn. Ökumaðurinn slapp ómeiddur en orsakir þessa eru ókunnar. 30.5.2006 07:45
Grískum ráðherra sýnt banatilræði Öflug sprengja sprakk við heimili ráðherra menningarmála í Grikklandi í Aþenu í morgun. Enginn særðist í sprengingunni, að sögn lögreglu, en nokkrir bílar eyðilögðust. Ekki fylgir sögunni hvort bíll ráðherrans, George Voulgarakis, hafi verið þar á meðal en sprengjan sprakk skömmu áður en ráðherrann lagði af stað til vinnu. 30.5.2006 07:30
Meirihlutaviðræður halda áfram í dag Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð. 30.5.2006 07:15
Útgöngubann í Kabúl Útgöngubann hefur verið sett á í Kabúl, höfuðborg Afganistans, vegna átakanna sem þar hafa geisað síðasta sólarhring. Átökin hófust eftir að bandarískur herbíll keyrði á fjölda farartækja á götum borgarinnar og varð fimm manns að bana. 30.5.2006 06:50
117 höfnuðu tillögum Alls 117, eða þriðjungur kosningabærra, höfnuðu öllum þremur tillögum að nöfnum á nýsameinuðu sveitarfélagi Hólmavíkurhrepps og Broddaneshrepps á Ströndum. 30.5.2006 06:00
Helgi Steinsson efstur Í Hörgárbyggð var óbundin kosning. Íbúar á kjörskrá voru 287 og þar af greiddi 181 atkvæði. Kosningu hlutu Helgi B. Steinsson, Birna Jóhannesdóttir, Árni Arnsteinsson, Jóhanna María Oddsdóttir og Guðný Fjóla Árnmarsdóttir. 30.5.2006 00:01
Úrslit í Skútustaðahreppi Óbundinni kosningu í Skútustaðahreppi er lokið. Á kjörskrá voru 306 og greiddu 190 manns atkvæði. 29.5.2006 23:00
Vinstri grænir í Kópavogi harma ákvörðun Framsóknarmanna Vinstri græn í Kópavogi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma þá ákvörðun Framsóknarmanna í Kópavogi að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn um áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjónr Kópavogs. Segja Vinstri grænir framsóknarflokkinn þar með kasta frá sér sögulegu tækifæri til að losna úr viðjum þess meirihluta sem er á góðri leið með að þurrka Framsóknarflokkinn út, ekki bara í Kópavogi heldur víðast hvar á landinu. 29.5.2006 22:01
Landsvirkjun opnar tilboð í IP Telephone Exchange Í dag opnaði Landsvirkjun tilboð í IP Telephone Exchange. Alls bárust níu tilboð og var það hæsta frá EJS og hljóðaði það upp á rúmar 12 komma 8 milljónir króna. Notrek ehf. átti næsthæsta tilboðið og Sensa það þriðja hæsta. 29.5.2006 21:54
Breskir fjölmiðlamenn létust í Írak Myndatökumaður og hljóðmaður frá CBS sjónvarpsstöðinni létust í Írak í dag þegar sprengja lenti á bílalest sem þeir voru í. Fréttakona frá sjónvarpsstöðinni slasaðist einnig lífshættulega og var samstundis flutt á hersjúkrahús í Bagdad þar sem hún gekkst undir skurðaðgerð. 29.5.2006 21:21
ESB setur Tamíltígra á lista yfir hryðjuverkamenn Evrópusambandið hefur sett uppreisnarhópinn Tamíltígrana á Sri Lanka á lista yfir hryðjuverkasamtök og fryst allar bankainnistæður samtakanna. Skæð átök hafa átt sér stað á milli stjórnarhers á Sri Lanka og Tamíltígranna sem berjast fyrir sjálfstæðu landi Tamíla í norðurhluta Sri Lanka. 29.5.2006 20:27
Tugþúsundir undir berum himni í Indónesíu Tugþúsundir manna hafast nú við undir berum himni í rigningu á jarðskjálftasvæðum í Indónesíu. Að minnsta kosti fimm þúsund manns létu lífið í skjálftanum sem varð á laugardag. 29.5.2006 20:16
Frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð afgreitt úr iðnaðarnefnd Frumvarp Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um Nýsköpunarmiðstöð Íslands, var afgreitt úr iðnaðarnefnd Alþingis í dag. Á morgun hefst sumarþing, -en þingmenn tóku sér frí 4. maí vegna nýliðina sveitarstjórnarkosninga. 29.5.2006 20:05
Róstur gegn útlendingum í Kabúl Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í uppþotum í Kabúl, höfuðborg Afganistans, sem beinast gegn útlendingum í borginni. Tíu Íslendingar eru í Kabúl en ekkert amar að þeim, að sögn utanríkisráðuneytisins. 29.5.2006 20:02
Karlar til ábyrgðar á laggirnar Félagsmálaráðherra skrifaði í morgun undir samning um verkefnið Karlar til ábyrgðar. Verkefnið er sérhæft meðferðarúrræði fyrir karlmenn sem beita ofbeldi á heimilum. Sálfræðingar munu annast meðferðarstarfið en áhersla er lögð á að mennirnir vilji sjálfir leita sér hjálpar. 29.5.2006 20:00
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson næsti Borgarstjóri - Björn Ingi formaður Borgarráðs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður næsti borgarstjóri í Reykjavík en nú síðdegis samdi hann við Björn Inga Hrafnsson um myndun meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn. Þetta var tilkynnt klukkan fimm í dag en þremur stundum fyrr sleit Vilhjálmur viðræðum við oddvita Frjálslynda flokksins um myndun meirihluta. 29.5.2006 19:57
Eyþór tekur ekki sæti í bæjarstjórn Árborgar strax Eyþór Arnalds missir ökuréttindi í tólf mánuði og greiðir 150 þúsund króna sekt, samkvæmt lögreglusátt sem hann gekk frá á föstudaginn. Hann tekur ekki sæti sitt í bæjarstjórninni í Árborg fyrr en árið er liðið. Sem kunnugt er ók Eyþór ölvaður á ljósastaur við Kleppsveg fyrir rúmlega hálfum mánuði. Hann hefur þegar skilað inn ökuskírteininu og greitt sektina. 29.5.2006 19:40
Nauðgun kærð í Vestmannaeyjum Nítján ára stúlka kærði þrítugan mann fyrir nauðgun í heimahúsi í Vestmannaeyjum á aðfaranótt laugardags. Maðurinn var tekinn í yfirheyrslu hjá lögreglu en var sleppt að því loknu. Einhver ölvun tengist málinu. Eftir er að yfirheyra vitni en málið er enn í rannsókn. 29.5.2006 19:37
Úrslit í Súðavíkurhreppi Óbundinni kosningu í Súðavíkurhreppi er lokið. Á kjörskrá voru 165 og greiddu 110 manns atkvæði. 29.5.2006 19:00
Bilun í stjórnbúnaði ljósabekks olli bruna Nú er ljóst að eldurinn sem kom upp í Akureyrinni úti fyrir Látrabjargi á laugardag kviknaði vegna bilunar í stjórnbúnaði ljósabekks sem staðsettur var í frístundarými skipsins. 29.5.2006 17:15
Meirihlutaviðræðum á Akureyri slitið Samfylkingin á Akureyri hefur slitið meirihlutaviðræðum við L-lista og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð í bæjarstjórn Akureyrar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Samfylkingunni. 29.5.2006 17:14
Vilhjálmur borgarstjóri og Björn Ingi formaður borgarráðs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er ný borgarstjóri Reykjavíkur og Björn Ingi Hrafnsson nýr formaður borgarráðs samkvæmt samkomulagi sem Framsóknaflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn gerðu í Reykjavík um meirihlutasamstarf. Þetta var tilkynnt fyrir stundu eftir fund framsóknarmanna og sjálfstæðismanna á heimili Vilhjálms í Breiðholti. 29.5.2006 17:05
Hinn ófullkomni glæpur Hópur fólks braust inn í sumarbústað í Grímsnesinu um helgina til þess að halda þar partí. Fólkið hafði ekkert á brott með sér en skildi eftir sig bjórdósir - og myndavél með myndum af fólkinu í gleðskapnum. Með svo þægileg sönnunargögn í höndunum var lögreglan á Selfossi ekki lengi að hafa uppi á sökudólgunum. 29.5.2006 17:00
Bein útsending frá blaðamannafundi um myndun meirihluta í borginni á NFS og Vísi kl. 17 Bein útsending verður frá blaðamannafundi um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur á NFS og hér á Vísi klukkan 17. Fundurinn fer fram við heimili Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita D-lista, í Breiðholti. Samkvæmt heimildum NFS hafa sjálfstæðismenn og framsóknarmenn náð samkomulagi um myndun meirihluta í borgarstjórn. 29.5.2006 16:20
Einn blóðugasti dagurinn í Bagdad frá upphafi stríðsins Senn er að kveldi kominn einn blóðugasti dagurinn í Bagdad í Írak frá upphafi stríðs í landinu fyrir rúmum þremur árum. Minnst þrjátíu og þrír hafa fallið og fjölmargir særst í röð sprenginga. 29.5.2006 16:10
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarmenn að mynda nýjan meirihluta Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn eru að ná samkomulagi um myndun nýs meirihluta í Reykjavíkurborg skv. heimildum NFS. Tilkynning um málið verður send út innan tveggja klukkustunda samkvæmt sömu heimild. Bein útsending verður frá blaðamannafundi um myndun meirihlutans á NFS kl. 17. 29.5.2006 16:01
Dómkirkja brennur í Finnlandi Dómkirkjan í Porvoo í Suður-Finnlandi, ein elsta kirkja landsins, skemmdist töluvert í bruna í nótt. Ekki er vitað um eldsupptök en samkvæmt upplýsingum yfirvalda kviknaði eldurinn utan við kirkjuna og grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. 29.5.2006 15:50
Ekkert amar að Íslendingunum í Kabúl Ekkert amar að tíu Íslendingum sem eru að störfum í Kabúl, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu, en minnst átta manns hafa fallið og rúmlega hundrað slasast í átökum í borginni í dag. 29.5.2006 15:16
Skrifað undir viljayfirlýsingu um meirihlutamyndun Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn á Ísafirði skrifuðu undir viljayfirlýsingu um myndun meirihluta á Ísafirði fyrir stundu. Samkvæmt yfirlýsingunni verður Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, áfram bæjarstjóri. 29.5.2006 15:15