Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimm íslensk fyrirtæki á nýjan vísitölulista Fimm íslensk fyrirtæki komast inn á nýjan sameiginlegan vísitölulista kauphallanna í Reykjavík, Oslo, Stokkholmi, Kaupmannahöfn og Helsinki, sem stofnaðir verða upp úr næstu mánaðamótum. 24.3.2006 10:45
Yfirtökutilboð Dagsbrúnar í Wyndeham Press Group Dótturfélag Dagsbrúnar, Daybreak Acquisitions Limited (Daybreak), hefur gert öllum hluthöfum í breska prent- og samskiptafyrirtækinu Wyndeham Press Group (Wyndeham) yfirtökutilboð á 155 pens á hlut. Samkvæmt tilboðinu er fyrirtækið metið á um 80,6 milljónir punda. Meðfylgjandi er opinber tilkynning sem birt var í Kauphöllinni í London (LSE) varðandi yfirtökutilboðið. 24.3.2006 10:41
Hæstiréttur þyngdi dóm yfir frönskum manni Hæstiréttur þyngdi í gær dóm yfir frönskum manni sem tók dóttur sína frá barnsmóður sinni og fór með hana til Frakklands árið 2001 og hélt henni þar. 24.3.2006 10:30
Fuglaflensa í kalkúnum í Jórdaníu Staðfest var í morgun að hið hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu hefði greinst í fuglum í Jórdaníu. Flensan hefur ekki greinst í fólki þar. 24.3.2006 10:15
Andspyrnumenn felldir í Pakistan Pakistanskar öryggissveitir felldu í morgun um tuttugu vígamennn í átökum í Norður-Wasiristan héraði í Pakistan. Nokkuð hefur verið um átök á svæðinu síðustu mánuði. 24.3.2006 10:00
Keppni í kynþokka á Vestfjörðum Leitin af kynþokkafyllasta Vestfirðingnum stendur nú yfir en 60 einstaklingar hafa fengið tilnefningu. Á fréttavefnum Bæjarins besta segir að eftir helgi verði tilkynnt hvaða fimm karlar og fimm konur hafa hlotið flestar tilnefningar og verður kosið á milli þeirra. 24.3.2006 09:53
Mun fleiri konur atvinnulausar á Vestfjörðum Konur eru í miklum meirihluta atvinnulausra á Vestfjörðum samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Á fréttavefnum Bæjarins besta segir að 62 konur og tíu menn séu á atvinnuleysisskrá en atvinnulausum karlmönnum hefur fækkað úr 17 frá því í byrjun mars. 24.3.2006 09:41
Aðgerðaráætlun fyrir Langjökul Slysavarnafélagið Landsbjörg, Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórarnir í Árnes-, Húnavatns- Borgarfjarðar og Mýrasýslum undirrituðu í gær aðgerðaráætlun fyrir Langjökul. Tilgangur hennar er að gera allt leitar-og björgunarstarf markvissara með því að ákveða fyrirfram boðun björgunarsveita, stjórnun og leitarskipulag. 24.3.2006 09:30
Tilboð hærri en búist var við Tilboð frá aðal miðlurum voru hærri en búist var við og hærri en tilboð á eftirmarkaði þegar útboð Lánasýslu ríkisins fór fram á miðvikudag, og því ákvað Lánasýslan að hafna öllum tilboðum að þessu sinni, segir í tilkynningu frá Lánasýslunni. 24.3.2006 09:15
Sinueldur við Hafravatnsveg Kveikt var í sinu við Hafravatnsveg í Reykjavík í gærkvöldi og logaði glatt þegar slökkvilið kom á vettvang. Nokkurn tíma tók að slökkva eldinn endanlega, en slökkviliði tókst að fljótt að hefta útbreiðslu eldsins. 24.3.2006 09:00
Á heimleið með fullfermi af kolmunna Tvö íslensk fjölveiðiskip eru nú á landleið af Írlandsmiðum með yfir tvö þúsund tonn af kolmunna hvort skip en heimsiglingin tekur að minnsta kosti tvo sólarhringa. Kolmunninn er nú á norðurleið inn í færeysku lögsöguna og eru vonir bundnar við að hann gangi svo í miklum mæli inn í íslensku lögsöguna í vor. 24.3.2006 08:45
Króuðu kófdrukkinn ökumann af Lögreglumenn á þremur bílum náðu að króa af og stöðva kófdrukkinn ökumann sem reyndi að stinga lögregluna af eftir að hann hafði mælst á rösklega hundrað kílómetra hraða á Sæbraut í nótt. 24.3.2006 08:30
Danskur hermaður lét lífið í Írak Danskur hermaður lét lífið í Írak í gær eftir að vegsprengja sprengdi ökutæki sem hann var í. Annar hermaður særðist í sprengingunni. Þetta er þriðji danski hermaðurinn sem lætur lífið í stríðinu í Írak. 24.3.2006 08:15
Enginn mun ná meirihluta Kosningabaráttan í Úkraínu er nú í algleymingi fyrir kosningarnar sem fram fara í landinu um helgina. Samkvæmt nýjustu könnunum mun enginn flokkur ná meirihluta í kosningunum. 24.3.2006 08:14
Átök milli lögreglu og óeirðalögreglu Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðarlögreglu í París í gær og í nótt þegar mótmæli héldu áfram gegn nýrri vinnulöggjöf í Frakklandi. Mótmælendur segja lögin auðvelda atvinnurekendum að segja upp ungu fólki. 24.3.2006 07:58
200 mótmælendur handteknir í Hvíta-Rússlandi Um tvö hundruð mótmælendur voru í nótt handteknir í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Mótmælendurnir hafa hafst við í tjöldum á torgi í miðborginni síðustu daga til að mótmæla úrslitum forsetakosninganna þar í landi á sunnudaginn. 24.3.2006 07:45
Sögðu upp skuldabréfum íslensku bankanna Peningamarkaðssjóðir í Bandaríkjunum hafa sagt upp fimm ára skuldabréfum sem þeir hafa keypt af íslenskum viðskiptabönkum fyrir hátt í hundrað milljarða króna. 24.3.2006 07:45
Leiði til þess að menn fari betur með vald sitt Helga Jónsdóttir, fyrrverandi borgarritari, vonast til þess að álit umboðsmanns Alþingis þess efnis að ekki hafi legið nægilega faglegar ástæður að baki ráðningu í starf ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins fyrir um tveimur árum, verði til þess að menn fari betur með það vald sem þeim sé falið. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún ætlar að leita réttar síns vegna málsins. 23.3.2006 23:51
Tekinn innanbæjar á 123km hraða Nítján ára drengur var tekinn á 123 kílómetra hraða á Selfossi í kvöld. 50 kílómetra hámarkshraði er í Langholtinu þar sem hann var stöðvaður og má hann því eiga von á tafarlausri ökuleyfissviptingu og háum sektum. 23.3.2006 22:40
Ráðherrar ræddu veiðar og tolla Hvalveiðar, sjóræningjaveiðar og verndartollar Evrópusambandsins voru meðal umræðuefna þegar Einar K. Guðfinnsson hitti Ben Bradshaw, sjávarúvegsráðherra Breta í Lundúnum í dag. 23.3.2006 22:03
Krefjast kennitölu við sölu á gjaldeyri Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að það samræmist ekki alltaf lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga að bankar krefjist skilríkja og kennitölu þegar keyptur er gjaldeyrir. Hins vegar geti það verið réttlætanlegt málið snýst um háar fjárhæðir. 23.3.2006 21:59
Framkvæmdir við hæsta hús á Íslandi ganga vel Framkvæmdir við hæsta hús á Íslandi ganga vel, en það mun rísa við Smáratorg í Kópavogi, húsið verður 78 metrar á hæð og áætlað er að reisa fleirri stórbyggingar á svæðinu. 23.3.2006 21:58
Samráðsfundur fulltrúa verkalýðsfélaga á suðurnesjum Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjarnesbæ segir að taka þurfi fljótt og örugglega á atvinnumálum Íslendinga sem vinna hjá varnarliðinu. 23.3.2006 21:56
Brá þegar flugvél reisti sig fyrirvaralaust Farþegum í síðdegisflugi Icelandair frá Kaupmannahöfn í gær, var brugðið þegar vélin reisti sig fyrirvaralaust. Flugmaðurinn tilkynnti að önnur flugvél hefði stefnt á móti í sömu flughæð. 23.3.2006 21:49
Skrifað undir samkomulag um aðgerðaáætlun Skrifað var undir samkomulag um nýja aðgerðaáætlun í björgunarmálum á Langjökli í dag. Það gerðu björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórarnir í Árnes-, Bogarfjarðar- og Mýrar- og Húnavatnssýslu en jökullinn er í umdæmi þeirra allra. 23.3.2006 19:51
Kosningafundur á Kjalarnesi í kvöld Búist er við snörpum átökum á kosningafundi á Kjalarnesi í kvöld, en Kjalnesingar telja sig búa við lakari aðstöðu en aðrir Reykvíkingar. Þangað hefur verið stefnt fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna sem bjóða sig fram til borgarstjórnarkosninga í vor og verður bein útsendinga frá fundinum á NFS upp úr klukkan átta. Þar munu borgarstjóraefni meðal annars takast á. 23.3.2006 19:19
Margvíslegur niðurskurður Lokun herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli er liður í umfangsmikilli endurskoðun bandarískra stjórnvalda á herstöðvaneti sínu í heiminum. Allur gangur er á hvernig þau hafa staðið að niðurskurði í rekstri stöðva sinna erlendis. 23.3.2006 18:45
Verulegir annmarkar á málsmeðferð við skipan ráðuneytisstjóra Verulegir annmarkar voru á málsmeðferð Árna Magnússonar, fyrrverandi félagsmálaráðherra, þegar hann skipaði Ragnhildi Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra í ágúst 2004. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns Alþingis fyrir Helgu Jónsdóttur, sem einnig sótti um starfið. 23.3.2006 18:27
Kom í leitirnar eftir tíu ár Bandarísk stúlka, sem fyrir réttum áratug hvarf með öllu, birtist allt í einu í verslun í heimabæ sínum í fyrradag. Öryggisvörður í skólanum hennar hafði haldið henni í gíslingu á heimili sínu allan þennan tíma. 23.3.2006 18:06
Sjávarútvegsráðherra ræddi við breskan starfsbróður sinn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra átti í dag fund í Lundúnum með Ben Bradshaw, breskum starfsbróður sínum, í kjölfar heimsóknar til helstu markaðsfyrirtækja Íslendinga á sviði sjávarútvegs, flutninga og matvælaframleiðslu. 23.3.2006 17:30
Útboðið mistókst ekki Lánasýsla ríkisins harmar það sem hún kallar neikvæðan fréttaflutning um nýlegt útboð ríkisbréfa og hafnar öllum fullyrðingum um að það hafi mistekist. 23.3.2006 17:15
Leiðtogafundur hefst í Brussel Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna 25 komu saman til árlegs tveggja daga fundar í Brussel í dag. Meðal þess helsta sem verður á dagskrá eru efnahagsbætur í ríkjum sambandsins og samskipti sambandsins við Kína og Indland á sviði viðskipta. 23.3.2006 17:00
Geir í Moskvu Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, hélt í dag til fundar við Sergei Lavrov, rússneskan starfsbróður sinn, í Moskvu. Fundurinn stendur fram á laugardag. 23.3.2006 16:45
Rafrænar sjúkraskrár geta skipt sköpum Bætt læknismeðferð vegna rafrænna sjúkraskráa getur bjargað mannslífum sagði Sigurður Guðmundsson landlæknir á ráðstefnu um rafrænar sjúkraskrár í dag. 23.3.2006 16:34
Gíslataka í Aþenu Sérsveit lögreglunnar í Aþenu í Grikklandi hefur umkringt læknastöð þar sem fyrrverandi sjúklingur geðlæknis heldur þremur starfsmönnum í gíslingu. Maðurinn ruddist inn á stöðina vopnaður tveimur byssum rétt fyrir hádegi að íslenskum tíma. 23.3.2006 16:30
Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Ramsey Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Scott Ramsey sem varð dönskum hermanni að bana á veitingastaðnum Traffic í Keflavík árið 2004 23.3.2006 16:26
Byrjað á hátt í 1300 íbúðum í borginni í fyrra Hafin var smíði á hátt í þrettán hundruð íbúðum í borginni á síðasta ári sem er met eftir því sem fram kemur í skýrslu byggingarfulltrúa sem kynnt var í borgarráði í dag. 23.3.2006 16:01
ESSO hækkar bensínverðið ESSO hefur hækkað bensínverð sitt um 2,50 krónur á lítrann og dísil um 1,50 krónur á lítrann. Algengt verð á lítra í sjálfsafgreiðslu er nú 117,40 krónur. Samkvæmt vefjum hinna olíufélaganna fjögurra er algengt verð bensínlítrans á bilinu 113 til 115 krónur. 23.3.2006 15:51
Mannréttindaskrifstofa fær rúman helming styrktarfjár Mannréttindaskrifstofa Íslands fékk rúmlega helming þess fjár sem dómsmálaráðherra úthlutaði í styrki til verkefna á sviði mannréttindamála. 23.3.2006 15:41
Fjármálaráðuneytið gagnrýnir skýrslu Danske Bank Höfundar nýrrar skýrslu Danske Bank um íslenskt efnahagslíf hafa ekki sérþekkingu á íslensku hagkerfi, sem kann að útskýra þær staðreynda- og greiningarvillur sem þar komi fram. Þetta segir í nýjasta eintaki Vefrits fjármálaráðuneytisins sem birt var í dag. 23.3.2006 15:30
Ekki ljóst hvenær varnarviðræður hefjast á ný Ekki er enn ljóst hvenær varnarviðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna hefjast að nýju. Nick Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, tjáði Geir H. Haarde utanríkisráðherra á laugardaginn síðasta að viðræður yrði hafnar innan tíu daga. 23.3.2006 15:16
Mannskæðar árásir í Bagdad Að minnsta kosti 25 féllu og tugir særðust í röð sprengjuárása í Bagdad, höfuðborg Íraks í dag. Tíu hinna látnu voru lögreglumenn en mannskæðasta árásin var gerð á höfuðstöðvar lögreglunnar. 23.3.2006 14:53
Ölvunarakstur algeng ástæða banaslysa Ölvunarakstur orsakaði flest banaslys í umferðinni á síðasta ári og flest umferðarslys urðu í desembermánuði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um umferðarslys. Meirihluti umferðarslysa verða milli klukkan fjögur og fimm síðdegis eða helmingi fleiri en verða milli átta og níu á morgnana. 23.3.2006 14:53
Fundin eftir 10 ára fjarveru Bandarísk kona sem hvarf fyrir áratug þegar hún var á táningsaldri er fundin. Hún hafði verið í gíslingu hjá nágranna fjölskyldu hennar í tíu ár. 23.3.2006 13:45
Gíslar í Írak frelsaðir Fjölþjóðlegu liði hermanna tókst í dag að frelsa þrjá starfsmenn kristilegra hjálparsamtaka, sem hafa verið í haldi mannræningja í Írak síðan í nóvember. Fjórði gíslinn fannst látinn fyrr í mánuðinum. 23.3.2006 13:30