Erlent

Átök milli lögreglu og óeirðalögreglu

MYND/AP
Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðarlögreglu í París í gær og í nótt þegar mótmæli héldu áfram gegn nýrri vinnulöggjöf í Frakklandi. Mótmælendur segja lögin auðvelda atvinnurekendum að segja upp ungu fólki. Talið er að í kringum tuttugu og þrjú þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum í nótt og slösuðust tugir þeirra í átökum við óeirðarlögreglu.

Forysta frönsku verkalýðsfélaganna fundar í dag með Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakka, þrátt fyrir að hafa áður lýst því yfir að hún myndi ekki funda með honum fyrr en lögin hafi verið dregin til baka. Verkalýðsforystan segir þó að ekki verði kvikað frá kröfunni um að lögin verði dregin til baka.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×