Gíslar í Írak frelsaðir 23. mars 2006 13:30 Fjórði gíslinn, Bandaríkjamaðurinn Tom Fox, fannst myrtur í Bagdad fyrr í mánuðinum. MYND/AP
Fjölþjóðlegu liði hermanna tókst í dag að frelsa þrjá starfsmenn kristilegra hjálparsamtaka, sem hafa verið í haldi mannræningja í Írak síðan í nóvember. Fjórði gíslinn fannst látinn fyrr í mánuðinum. Um er að ræða Bretann Norman Kember og Kanadamennina Singh Sooden og James Loney. Þeir voru starfsmenn kristilegra hjálparsamtaka í Írak. Þeim var rænt í nóvember í fyrra. Myndband með myndum af gíslunum var birt á arabísku sjónvarpsstöðinni al Jazeera fyrir nokkrum mánuðum. Það var svo fyrr í þessum mánuði sem lík af bandarískum félaga þeirra, Tom Fox, fannst í Bagdad en honum hafði verið rænt með þeim. Það var svo í morgun sem hermenn létu til skarar skríða og gíslarnir voru frelsaðir þar sem þeir voru í haldi í bæ um 30 kílómetra norður af Bagdad. Jack Straw, utanríkisráðherra Breta, segir að aðgerðin hafi verið margar vikur í undirbúningi. Breski gíslinn mun hafa verið við góða heilsu eftir atvikum en Kanadamennirnir þurftu á aðstoð lækna að halda. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands fagnaði lausn gíslanna í morgun og sagði þetta gleðifregnir fyrir fjölskyldur mannanna. Raun þeirra væri nú lokið.
Erlent Fréttir Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fleiri fréttir Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Sjá meira