Útboðið mistókst ekki 23. mars 2006 17:15 MYND/Gunnar V. Andrésson
Lánasýsla ríkisins harmar það sem hún kallar neikvæðan fréttaflutning um nýlegt útboð ríkisbréfa og hafnar öllum fullyrðingum um að það hafi mistekist. Í tilkynningu frá Lánasýslunni segir að valið hafi verið að taka engum tilboðum að þessu sinni þrátt fyrir að hafa móttekið tilboð að fjárhæð 3.700 m.k. Ástæðurnar voru þrjár. Tilboð frá aðalmiðlurum voru lítið eitt hærri en búist var við og hærri en tilboð á eftirmarkaði þegar útboð fór fram. Þetta stafar líklega af óvissu á markaði vegna nýbirtra og að sumu leiti villandi skýrslna um íslenskt efnahagslíf. Lánasýslan telur að skýrslur þessar hafi valdið fjárfestum erfiðleikum við að mynda skoðun á efnahagslífinu og að viðbrögð fjárfesta við umræddum skýrslum séu tímabundin. Lánasýslan telur því að tilboð í framtíðinni muni endurspegla betur ástand efnahagslífsins. Í öðru lagi var afgangur ríkisfjármála á síðasta ári 3,8% af vergri landsframleiðslu og það hefur leitt til góðrar stöðu ríkissjóðs. Af þeim sökum er ekki þörf á útgáfu ríkisbréfa til að fjármagna ríkissjóð. Í þriðja lagi kemur fram í Ársáætlun Lánasýslu ríkisins fyrir árið 2006 að innlend lánsfjárþörf sé engin og stefnt að því að ekkert álag verði á innlendum lánamarkað. Þetta verður gert með því gefa út ríkisbréf fyrir 20 ma.kr. og ráðstafað söluandvirðinu til að forinnleysa ríkisbréf í flokki RIKB 070209 fyrir 10 ma.kr. og til að lækka stöðu ríkisvíxla um 10 ma.kr. Útboðin eru því fyrst og fremst haldin til að byggja upp markflokk ríkisbréfaflokksins RIKB 10 0317 á eftirmarkaði en ekki til að fjármagna ríkissjóð. Lánasýslan tekur einnig fram að Staðreyndin er að íslenska ríkið fær mjög góðar einkunnir hjá lánshæfismatsfyrirtækjunum Moody's, Standard and Poor's og Fitch, sem eru á bilinu AA+ til AAA fyrir innlendar langtímaskuldbindingar.
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Fleiri fréttir Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða og innviðahópur ekki skipaður með formlegum hætti Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Sjá meira
Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða og innviðahópur ekki skipaður með formlegum hætti