Fleiri fréttir

Indverjar og Bandaríkjamenn handsala kjarnorkusamning

Indverjar og Bandaríkjamenn hafa skrifað undir samkomulag um þróun kjarnorku. Þetta kom fram á sjónvarpsstöð í Indlandi fyrr í morgun. George Bush Bandaríkjaforseti er á Indlandi og fundaði með forseta Indlands í morgun. Ekki liggur enn fyrir hvað felst í samkomulaginu sem var handsalað í morgun.

Árás við ræðismannsskrifstofu BNA í Pakistan

Tveir létust og átján slösuðust í sprengjuárás fyrir utan bandarísku ræðismanns skirfstofuna í Karachi í Pakistan í morgun. Tvær sprengjur sprungu með skömmu millibili á bílastæði Marriot-lúxushótelsins sem er við hliðina á ræðismannsskrifstofunni.

Ákvörðun Alcoa fagnað

Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á Húsavík um miðjan dag þegar tilkynnt var að bandaríska fyrirtækið Alcoa hefði valið Bakka við Húsavík fyrir byggingu hugsanlegs álvers á Norðurlandi. Áformin voru staðfest með undirritun samkomulags milli Alcoa og ríkisstjórnar Íslands um að kanna hagkvæmni þess að reisa þar 250 þúsund tonna álver. Framkvæmdir myndu hefjast í fyrsta lagi árið 2010.

Álver eykur ekki þenslu

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að álversframkvæmdir á Bakka við Húsavík rúmist vel innan efnahagskerfisins. Hann segir nauðsynlegt að horfa til framtíðar en það sé gert með þessum framkvæmdum.

Hagnaður Exista Íslandsmet

Fjárfestingarfélagið Exista skilaði rúmlega 50 milljarða króna hagnaði í fyrra, sem er nýtt Íslandsmet. Fyrra metið átti KB-banki, sem skilaði tæpum 50 milljörðum í hagnað í fyrra, en KB-banki er einmitt einn aðaleigandi Exista.

Hundar og kettir í bann

Útgöngubann hefur verið sett á hunda og ketti í Þýsklanadi þar sem fuglaflensan hefur komið upp. Ekki hefur verið ákveðið hvenær banninu verður aflétt

Sjálfstæðisflokkurinn fengi meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta í borginni þrátt fyrir að Samfylkingin bæti við sig fylgi þriðja mánuðinn í röð. Þetta er niðurstaða Þjóðarpúls Gallups sem var kynnt í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld. Litlu munar á að Samfylkingin tapi sínum sjötta manni til Sjálfstæðisflokksins sem þar með fengi níu menn í borgarstjórn. Oddviti Samfylkingarinnar segir flokkinn í sókn og kvíðir engu.

Ekki tímabært að byggja þrjú álver

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík geti orsakað enn meiri sveiflur í efnahagslífinu. Hún segir að ríkisstjórnin eigi að fara sér hægt í frekari álversframkvæmdir.

Allt í bál og brand

Allt virðist komið í bál og brand í kjaradeilu slökkviliðsmanna og sveitarfélaga. Ekkert kom út úr sáttafundi í dag, en á föstudaginn kemur í ljós hvort af verkfalli verður. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag, en fréttastofa hitti um tvö hundruð þeirra á baráttufundi í Reykjavík og þeim var heitt í hamsi.

Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun

Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun 21. aldar fyrir að skríða á hnjánum fyrir álherrum í Ameríku. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon og hvetur til þess að iðnaðarráðherra veiti þeim viðtöku fyrir hönd félaga sinna.

Engin lausn í sjónmáli

Enn er engin varanlega lausn komin í samningadeilu milli Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefnd skipaðri af heilbrigðisráðherra, sem semur við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn. Nefndin hefur þó fallist á að greiða þeim ljósmæðrum áfram laun sem enn sinna skjólstæðingum sínum, þrátt fyrir að samningurinn hafi runnið út á miðnætti í gær.

Íslendingur í haldi bresku lögreglunnar

Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri, sem lögreglan í Burnley á Englandi handtók í síðustu viku og sakar um rán á breskri stúlku, verður í gæsluvarðhaldi fram í byrjun apríl þegar mál hans verður tekið fyrir.

Ungliðar mótmæltu álverframkvæmdum

Ungliðar gegn stóriðju mótmæltu byggingu álvers á Bakka við Húsavík, á skrifstofum Alcoa á Suðurlandsbraut í dag. Lögregla fjarlægði ungliðana af skrifstofunum eftir skamma en hávaðasama viðveru þeirra þar.

Hagnaður Bayer 124 milljarðar króna

Hagnaður þýska lyfjarisans Bayer nam 124 milljörðum króna, á síðasta ári. Bayer mun greina nánar frá afkomu félagsins á mánudag, en vinnuskjal frá fyrirtækinu lak út og því var greint frá hagnaði félagsins nú. Hlutabréf Bayer hækkuðu lítilsháttar í verði í Kauphöllinni í Frankfurt í dag.

Félagsmálaráðherra ávarpaði fund Kvennanefndar SÞ

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, ávarpaði í dag 50. fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Ráðherrann lagði áherslu á að enda þótt árangur hefði náðst á grundvelli þeirrar stefnu sem mörkuð var á Peking ráðstefnunni árið 1995 þá væri ljóst að enn væri mikið verk að vinna.

Forsætisráðherra Kosovo hættur

Forsætisráðherra Kosovo-héraðs í Serbíu tilkynnti í dag afsögn sína en hann hefur mætt miklu andstreymi flokksmanna sinna. Sameinuðu þjóðirnar hafa stýrt Kosovo frá því að stríði Atlantshafsbandalagsins gegn stjórnvöldum í Belgrad, lauk árið 1999. Yfirvöld í Belgrad hafa sagt ógerlegt að slíta Kosovo frá Serbíu en stjórnmálapekingar segja þó líklegt að ekki líði á löngu þar til Kosovo verði gert að sjálfstæðu ríki.

Mótmælendur ruddust inn á skrifstofu Alcoa

Um 20 ungir mótmælendur hafa ruðst inn á skrifstofur Alcoa við Suðurlandsbraut í Reykjavík og hafa þar í frammi mótmæli gegn byggingu álvers við Húsavík. Ungliðarnir krefjast þess að hætt verði við byggingu álversins og fallið frá stóriðjustefnu stjórnvalda.

FL Group bætir við sig í Royal Unibrew

FL Group hefur bætt við hlut sinn í Royal Unibrew og á eftir kaupin 16,35% í félaginu. Fyrr í mánuðinum keypti FL Group 10,7 prósenta hlut í danska félaginu. Royal Unibrew er annar stærsti drykkjarvöruframleiðandi í Skandinavíu. Meðal vörumerkja eru eru danski bjórinn Faxe sem margir Íslendingar þekkja. Félagið velti tæpum 30 milljörðum íslenskra króna árið 2004 og dreifir til yfir 65 landa.

Hussein játar

Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, játaði fyrir rétti í Bagdad í dag að hafa fyrirskipað árás á bændabýli þar sem uppreisnarmenn sem sýndu honum banatilræði árið 1982 héldu sig.

Enn er allt í hnút

Enn er allt í hnút hjá samningarnefnd Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefnd sveitarfélaganna. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag.

Afganistan öðrum þjóðum fyrirmynd

George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir Afgani vera öðrum þjóðum fyrirmynd og hvatning. Lýðræðið sé augljóslega farið að skjóta rótum í landinu.

Bakki við Húsavík varð fyrir valinu

Bandaríska álfyrirtækið Alcoa og ríkisstjórn Íslands hafa undirritað samkomulag um að hefja ítarlega könnun á hagkvæmni þess að reisa nýtt, 250.000 tonna álver á Bakka við Húsavík. Verði af byggingu þess mun álverið nota rafmagn sem að mestu verður framleitt með vistvænni jarðvarmaorku. Verði ákveðið að reisa nýtt álver á Norðurlandi er fyrstu framkvæmda á svæðinu ekki að vænta fyrr en árið 2010.

ABC barnahjálp safnar fyrir skóla

Það er ekki oft sem skrýmsli og furðuverur heimsækja Bessastaði en það gerðist í dag þegar Dorrit Moussaieff, forsetafrú, tók á móti börnum og gaf fé í söfnunina "Börn hjálpa börnum" sem hófst í dag og það var ekki annað að sjá en að Dorrit væri hin hressasta á Bessastöðum þegar hún tók á móti nemendum úr fimmta bekk Álftanesskóla.

Ónóg lög um leyniþjónustur

Evrópuríki þurfa strangari reglur um eftirlit með leyniþjónustum sínum og betra eftirlit með erlendum útsendurum sem starfa innan landamæra þeirra. Þetta sagði Terry Davis, forseti Evrópuráðsins, þegar hann kynnti skýrslu Evrópuráðsins um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA.

Gagnrýnir Nýsköpunarsjóð

Runólfur Ágústsson telur að aðstandendur keppninnar um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands séu komnir á hálan ís með afstöðu sinni til kvenna. Vísar hann til ummæla sem Hanna María Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna, lét falla í fréttum NFS á mánudagskvöld.

Dugir ekki að syngja fyrir hærri launum

Slökkviliðsmenn mættu í fullum herklæðum fyrir utan Borgartún 30 og mótmæltu harðlega ósveigjanleika stjórnvalda í samningaviðræðum en Launanefnd sveitarfélaga fundaði í Borgartúni í hádeginu. Þeir voru mættir með kröfuspjöld og sögðu að ekki myndi duga að syngja öskudagslög fyrir hærri launum. Á spjöldunum sem mennirnir báru var auglýst eftir starfsmanni sem þyrfti að þora að leggja sig í lífshættu, þyrfti að geta þolað líkamlegt erfiði og andlegt álag og að viðkomandi gæti lent í stórhættu í hreinsun á efnaúrgangi.

Brestir í viðræðum um stjórnarmyndun

Brestir eru komnir í samningaviðræður um nýja ríkisstjórn í Írak. Forseti landsins er æfur út í forsætisráðherrann fyrir að fara í opinbera heimsókn til Tyrklands.

Sængurkvennadeildir fyllast

Fæðingardeildir Landspítalans gætu fyllst á nokkrum klukkustundum nú þegar ljósmæður taka ekki við nýjum fjölskyldum í heimaþjónustu í sængurlegu. Samningur ljósmæðra og Tryggingastofnunar rann út á miðnætti og konur sem hefðu átt að fara heim í dag þurfa því að dvelja áfram á sængurlegudeildum sjúkrahúsa. Á fundi í gær höfnuðu ljósmæður tilboði tryggingastofnunar enda segjast þær vera komnar langt undir útreiknaðan kostnað við vitjanir.

Húsvíkingar vongóðir um álver

Andi Einars heitins Benediktssonar athafnaskálds mun væntanlega svífa yfir vötnum á æskuheimili hans í Gamla Bauki á Húsavík í dag, þar sem stuðningsmenn álvers við Húsavík, vonast til að geta fagnað nýju álveri í héraði síðdegis.

Tímaritið aVs lagt niður

Tímaritum landsins fækkar um eitt á föstudag. Þá verður tímaritið aVs formlega lagt niður en það hefur verið gefið út í röskan áratug. Í tímaritinu hefur verið fagleg umfjöllun um arkitektúr og skipulag auk tengdra málefna.

Óvenju mikið um sjúkraflutninga

Slökkviliðsmenn hafa haft í nægu að snúast síðasta sólarhringinn við sjúkraflutninga. Alls var farið í 88 útköll vegna slíkra flutninga frá klukkan átta í gærmorgun til klukkan átta í morgun og þykir það óvenju mikið.

Slökkviliðsmenn krefjast hærri launa

Fjöldi slökkviliðsmanna hefur safnast saman fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara í Borgartúni. Með því vilja slökkviliðsmenn þrýsta á um að laun þeirra verði bætt til muna frá því sem nú er.

Jeppa stolið í Grindavík

Toyota Hi-Lux jeppa var stolið í Grindavík síðustu nótt og hefur ekki fundist. Bíllinn er blár að lit með bílnúmerið LT-053. Hann er með 38 tommu hjólbarða og krómaðan veltiboga.

Svifryk yfir heilsuverndarmörkum

Umhverfissvið Reykjavíkurborgar ráðleggur þeim sem eru með viðkvæm öndunarfæri að halda sig fjarri fjölförnum umferðargötum. Ástæðan er sú að svifryk í Reykjavík er hátt yfir heilsuverndarmörkum og er það annan daginn í röð sem slíkt gerist.

Situr ráðherrafund í Kaupmannahöfn

Sigríður Anna Þórðardóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda, situr í dag fund samstarfsráðherra í Kaupmannahöfn. Þar á að leggja línurnar að helstu áherslum í starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar og ákveða fjárlög næsta árs.

Fjögurra milljarða hagnaður Símans

Síminn hagnaðist um rúma fjóra milljarða króna á síðasta ári. Það er þriðjungi meiri hagnaður en árið áður þegar félagið hagnaðist um þrjá milljarða króna.

Íslendingur í bresku fangelsi

Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri er í gæsluvarðhaldi í Burnley í Englandi, eftir að hann var handtekinn í síðustu viku á hótelherbergi, þar sem 14 ára bresk stúlka var með honum.

Bush í fyrsta sinn til Afganistan

George Bush kom í morgun í óvænta heimsókn til Afghanistan og er þetta í fyrsta sinn sem forsetinn heimsækir landið eftir hryðjuverkaárásirnar ellefta september 2001.

Bjóða fram A-lista í Reykjanesbæ

Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óflokksbundnir í Reykjanesbæ ætla að bjóða sameiginlega fram til næstu bæjarstjórnarkosninga undir bókstafnum A.

Einna minnst verðbólga á EES-svæðinu

Verðbólga hérlendis síðasta árið mælist 1,3 prósent samkvæmt evrópsku neysluverðsvísitölunni, sem er samræmd verðbólgumæling EES-ríkjanna. Þetta er heldur minni verðbólga en á evrópska efnahagssvæðinu þar sem hún mælist 2,2 prósent og evrusvæðinu þar sem hún mælist 2,4%.

Leita að Pompei austursins

Haraldur Sigurðsson prófessor í haffræði hefur leitt hóp vísindamanna sem hefur fundið stað sem segja má að sé eins konar Pompei austursins.

Vopnað rán upplýst

Lögreglan í Kópavogi hefur upplýst vopnað rán sem var framið í lyfjaversluninni Apótekaranum 22. febrúar. Karlmaður á þrítugsaldri sem hefur alloft komist í kast við lögin hefur viðurkennt að hafa verið að verki.

Ingimundur leiðir F-listann

Ingimundur Þ. Guðnason, bæjarstjóri í Garðinum, skipar fyrsta sæti á framboðslista F-listans, lista framfarasinnaðra kjósenda, við sveitarstjórnarkosningar í vor. Ingimundur hefur verið bæjarstjóri í Garði frá 1990 og verður bæjarstjóraefni listans í kosningunum.

Sjá næstu 50 fréttir