Ónóg lög um leyniþjónustur 1. mars 2006 14:07 Terry Davis, forseti Evrópuráðsins.
Evrópuríki þurfa strangari reglur um eftirlit með leyniþjónustum sínum og betra eftirlit með erlendum útsendurum sem starfa innan landamæra þeirra. Þetta sagði Terry Davis, forseti Evrópuráðsins, þegar hann kynnti skýrslu Evrópuráðsins um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Rannsókn Evrópuráðsins leiddi ekki í ljós neinar óyggjandi sannanir fyrir því að bandaríska leyniþjónustan CIA hefði starfrækt leynileg fangelsi í Evrópu fyrir meinta fylgismenn Al-Kæda. Hún leiddi hins vegar í ljós að víða væri pottur brotinn. Terry Davis, forseti Evrópuráðsins, sagði ljóst að löggjöf um leyniþjónustur væri ófullnægjandi í mörgum þeirra ríkja sem eiga aðild að Evrópuráðinu. Ætti það hvort tveggja við um leyniþjónustur viðkomandi landa og eftirlit með erlendum erindrekum. Hann sagði jafnframt að það væri nær ómögulegt fyrir stjórnvöld í aðildarríkjunum að vita hvort mannréttindasáttmáli Evrópu væri brotinn með flugi um lofthelgi þeirra. Evrópuráðið krafði ríkisstjórnir allra aðildarríkja sinna um svör við spurningum um löggjöf sína og vitneskju um fangaflug CIA. Íslensk stjórnvöld svara því til að engin sértæk löggjöf sé um eftirlit með erlendum útsendurum. Þá segjast þau enga vitneskju hafa um að nokkur opinber starfsmaður eða embættismaður hafi hjálpað til við fangaflug né ástæðu til að ætla að svo hafi verið. Þess vegna hafi ekki þótt ástæða til að hefja opinbera rannsókn. Enn fremur segir í svarinu að stjórnvöld hafi ekki talið ástæðu til að hefja upplýsingaöflun um farþega allra flugvéla sem lenda á íslenskum flugvöllum.
Erlent Fréttir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Sjá meira