Fleiri fréttir Veðjað á álver Spákaupmenn á peningamarkaðnum virðast veðja á að álfyrirtækið Alcoa ætli að reisa álver fyrir norðan, því hækkun krónunnar um rösklega eitt prósent í gær er meðal annars rakin til væntinga til þess. 1.3.2006 08:30 Hugað að sameiningu á Vesturlandi Unnið er að því að sameina þrjú verkalýðsfélög á Vesturlandi í eitt. Þetta eru verkalýðsfélögin Valur í Dalasýsu, Hörður í sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar og Verkalýðsfélag Borgarness. 1.3.2006 08:15 Síðustu göngurnar um Kárahnjúkasvæðið í sumar Þeir sem hafa hugsað sér að skoða landið sem hverfur undir Hálslón Kárahnjúkavirkjunar ættu að fara að skipuleggja ferðir þangað því í september verður vatni hleypt á hið margumtalaða Hálslón. Gönguhópurinn Augnablik hefur gengið um "landið sem hverfur" í þrjú sumur og þetta fjórða sumar verður að öllum líkindum hið síðasta. 1.3.2006 08:00 Halda stjórnarmyndun áfram Ofbeldið í Írak undanfarna daga mun ekki koma í veg fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar á næstu vikum. Þetta segir Ibrahim al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks, sem nú er í opinberri heimsókn í Tyrklandi. 1.3.2006 07:58 Þjóðvegirnir greiðfærir Allir helstu þjóðvegir landsins eru nokkuð greiðfærir samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Einhverjir hálkublettir eru þó á Norðaustur- og Austurlandi. 1.3.2006 07:55 Felldu þrjátíu uppreisnarmenn Pakistanskar hersveitir felldu þrjátíu uppreisnarmenn í áhlaupi við landamæri Afganistan snemma í morgun. Fjölmennt herlið lét til skarar skríða á þyrlum og af jörðu niðri, án þess að uppreisnarmennirnir fengju rönd við reist. 1.3.2006 07:53 Skattur á þá efnaminni Notendagjöld í heilbrigðiskerfinu eru aukaskattur á tekjulágt og fátækt fólk, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að ávinningurinn af innheimtu notendagjalda sé lítill eða enginn og þau valdi því helst að efnaminna fólk hafi ekki efni á heilbrigðisþjónustu. 1.3.2006 07:45 Fjöldi erlendra ríkisborgara á Íslandi hefur þrefaldast á áratug Fjöldi erlendra ríkisborgara með lögheimili á Íslandi hefur þrefaldast undanfarinn áratug. Á Austurlandi eru tæplega átján prósent íbúa með erlent ríkisfang. Þetta kemur fram í nýjustu tölum frá Hagstofu Íslands og miðast við 31. desember síðastliðinn. 28.2.2006 22:20 Heimaþjónusta ljósmæðra í uppnámi Samningar um heimaþjónustu milli Ljósmæðrafélags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins rennur út á miðnætti. Ljósmæðrum voru kynnt drög að nýjum samningi í dag en skilaboð þeirra eru skýr, þær sætta sig ekki við samninga undir kostnaðargreiningu. 28.2.2006 22:10 Árni Sigfússon leiðir framboðslista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ Fjölmennur fulltrúaráðsfundur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ samþykkti í kvöld framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Árni Sigfússon leiðir framboðslistann áfram og mun hann ekki gefa kost á sér fyrir komandi alþingiskosningar. 28.2.2006 21:49 Eldur í húsnæði Landspítala - háskólasjúkrahúss Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í húsnæði Landspítala - háskólasjúkrahúss í Kópavogi um klukkan tuttugu mínútur í níu í kvöld. Starfsfólk í byggingunni sagðist finna reykjarlykt leggja frá kjallara hússins. 28.2.2006 21:08 Bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar auka þjónustu við innflytjendur Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kynntu í dag áætlun um aukna þjónustu við íbúa af erlendum uppruna en þeim hefur farið fjölgangi í sveitarfélaginu á síðustu árum. Pólverjar eru fjölmennasti hópur innflytjenda í Hafnarfirði en þar býr einnig fjöldi fólks frá Eystrasaltslöndunum, Rússlandi og fyrrum Júgóslavíu. 28.2.2006 21:00 Gott gengi hjá Bakkavör Group Áætlaður hagnaður Bakkavarar Group er ríflega þrjú þúsund milljónir króna en félagið mun birta uppgjör sitt fyrir árið 2005 á morgun. 28.2.2006 20:34 Haft samband við hæstbjóðendur Framkvæmdarsvið Reykjavíkurborgar hefur haft samband við þá sem áttu hæsta tilboð í byggingarétt á lóðum í Úlfarsárdal. Þeir þurfa nú að ákveða við hvaða tilboð þeir hyggjast standa. Eins og fram hefur komið í fréttum átti einn maður hæsta tilboð í byggingarétt 39 einbýlishúsalóða af þeim fjörtíu sem í boði voru í útboði borgarinnar. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fimmtudag tillögu borgarstjóra þess efnis að hver einstaklingur fengi aðeins að kaupa eina einbýlishúsa eða parhúsalóð. 28.2.2006 17:00 Lækkun á nýjum útlánum Íbúðalánasjóðs um 12-20 milljarða Íbúðalánasjóður gerir ráð fyrir lækkun á nýjum útlánum um tólf til tuttugu milljarða króna á þessu ári frá því sem áður var áætlað. Þetta kemur fram í tilkynningu um endurskoðaða áætlun sem sjóðurinn sendi Kauphöllinni í dag. 28.2.2006 16:50 Viðbúnaðarstigi vegna fuglaflensunnar ekki breytt hér á landi Viðbúnaðarstigi vegna fuglaflensunnar verður ekki breytt hér á landi í ljósi tíðindanna frá Svíþjóð, að sögn Jarle Reiersens, yfirdýralæknis alifuglasjúkdóma. Fyrr í dag var greint frá því að hættulegt afbrigði flensunnar hafi fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. 28.2.2006 16:20 Slökkviliðsmenn eru mjög eldfimir eftir fund hjá ríkissáttasemjara Fundur í kjaradeilu Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaganna er loikið hjá ríkissáttasemjara, en menn settust til samninga klukkan hálf eitt í dag. . 28.2.2006 16:03 Köttur smitaður af fuglaflensu Þýsk yfirvöld hafa fundið dauðan kött sem var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensunnar. Ekki er enn vitað hvort kötturinn dó af völdum fuglaflensunnar eða af öðrum orsökum en verið er að rannsaka hræið. Kötturinn fannst á sömu slóðum og fuglarnir sem fundust í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Ekki er enn vitað til þess að menn geti smitast af fuglaflensunni af köttum en fundurinn vekur óneitanlega ugg hjá mönnum um að fuglaflensan geti borist í aðrar dýrategundir. 28.2.2006 16:00 Miriam Makeba væntanleg á Listahátíð Listahátíð í Reykjavík verður haldin í tuttugasta skipti nú í vor. Mikil áhersla er lögð á tónlist að þessu sinni en meðal gesta hátíðarinnar verður hin heimsþekkta afríska söngkona Miriam Makeba. Á blaðamannfundi í Iðnó í dag var dagská hátíðarinnar kynnt og nýr vefur listahatid.is var opnaður. Um fimmtíu viðburðir með þáttöku tæplega sex hundruð listamanna verða á hátíðinni. Mun fjöldinn allur af tónlistarmönnum koma fram en megináhersla er á tónlist að þessu sinni. 28.2.2006 15:45 Börn krefjast að múhameðsteiknarar verði hengdir Fimmþúsund börn allt niður í átta ára gengu fylktu liði um götur stærstu borgar Pakistan í morgun og kröfðust þess að teiknarinn sem teiknaði skopmyndirnar af Múhammeð spámanni yrði hengdur. Hingað til hefur fullorðna fólkið að mestu séð um mótmælin vegna skopmyndanna í MiðAusturlöndum, en það breyttist heldur betur í dag. 28.2.2006 15:30 Verðlaun í ljóðasamkeppni 28.2.2006 14:45 Hátt í hundrað tonn af saltkjöti ofan í landann Búast má við að landinn láti ofan í sig hátt í hundrað tonn af saltkjöti í dag þegar hann fagnar sprengideginum. Þá eru ótaldar bauninar sem fylgja þessum þjóðarrétti Íslendinga á þessum degi. 28.2.2006 14:30 Lífið að komast í samt horf hjá Hjálparsveitinni í Hveragerði Vel hefur gengið að fylla í skörðin eftir að kviknaði í út frá flugeldum í húsi Hjálparsveitar skáta í Hveragerði. Sveitin hefur hvarvetna mætt miklum velvilja og hefur m.a. fengið GPS-tæki og talstöðvar að gjöf. 28.2.2006 14:15 Viðbúnaður hugsanlega í áhættustig tvö Hættulegt afbrigði fuglaflensunnar hefur fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. Samkvæmt leiðbeiningum Landbúnaðarstofnunar um áhættustig þýðir þetta að viðbúnaður vegna flensunnar verði færður á stig tvö hér á landi. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn. 28.2.2006 13:58 Verðbólgan áfram yfir þolmörkum Verðbólgan mun áfram vera yfir efri þolmörkum og mælast 4,2 prósent ef verðbólguspá Íslandsbanka mun ganga eftir. Þetta verður þá 23 mánuðurinn í röð þar sem verðbólgan er umfram markmið Seðlabankans en verðbólgumarkmið hans er 2,5 prósent. Þá mun vísitala neysluverðs hækka um 0,9 prósent ef spáin gengur eftir. 28.2.2006 13:45 SPES byggir í Tógó Þróunarsamvinnustofnun Íslands og SPES-barnahjálp hafa gert með sér samkomulag um að ÞSSÍ styrki byggingu nýs húsnæðis í barnaþorpi samtakanna í Lomé í Tógó. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ÞSSÍ hljóðar kostnaðaráætlun við bygginguna upp á 65.000 evrur eða rúmar fimm milljónir íslenskra króna og nemur styrkur ÞSSÍ til byggingarinnar um 40 prósent af upphæðinni eða um 2 milljónir króna. 28.2.2006 13:45 Atkvæðagreiðsla vegna verkfalls slökkviliðsmanna hafin Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hófu á hádegi að greiða um það atkvæði hvort boða eigi til verkfalls sem hefjast á um miðjan marsmánuð. Um 280 atvinnuslökkviliðsmenn eru á kjörskrá og er kosið í deildum þeirra víða um land. 28.2.2006 13:30 Tuttugu ár frá morðinu á Olof Palme Í kvöld verða nákvæmlega tuttugu ár síðan Olav Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var myrtur í miðborg Stokkhólms. Rannsókn á morðinu er komin í fullan gang á ný og margir verða yfirheyrðir vegna þess á næstunni. 28.2.2006 13:15 Áframhaldandi óöld í Írak Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið. 28.2.2006 13:00 Gufumökkur yfir stóru svæði á Reykjanesbraut Mikið umferðaröngþveiti varð á Reykjanesbraut til móts við Sprengisand og í Ártúnsbrekku á áttunda tímanum í morgun eftir að önnur aðal heitavatnsæð Orkuveitunnar frá Reykjum til borgarinnar sprakk og gufumökk lagði yfir stórt svæði. 28.2.2006 12:45 Ísland í 13. sæti yfir hlutfall kvenna á þjóðþingum Íslendingar eru nokkrir eftirbátar hinna norrænu ríkjanna þegar kemur að hlutfalli kvenna á þjóðþingum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Alþjóðaþingmannasambandinu sem birtar voru í gær. Ísland er í þrettánda sæti á listanum af 187 löndum en hér á landi eru konur akkúrat þriðjungur þingmanna. 28.2.2006 12:30 Ólína ósátt við Menntamálaráðuneytið Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, segir að menntamálaráðuneytið hafi ekki stutt nægilega það sáttaferli sem ráðuneytið kom af stað í haust. Ólína var gestur fréttavaktarinna fyrir hádegi en mikill styrr hefur staðið um starf hennar sem skólameistari undanferin misseri. 28.2.2006 12:15 Fuglaflensa greinist í Svíþjóð Hið hættulega afbrigði fuglaflensunnar, af stofni H5N1, hefur greinst í suðurhluta Svíþjóðar. 28.2.2006 12:05 Ljósmæður óánægðar með samningskjör fyrir heimaþjónustu Samningur milli Ljósmæðrafélags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins rennur út á miðnætti í kvöld og enginn fundur er boðaður milli ljósmæðra og Tryggingastofnunar. Ljósmæður segja verktakagreiðslur fyrir heimaþjónustu lágar, því að starfinu fylgi mikil binding og ekki sé greitt aukalega fyrir akstur á milli staða eða annan útlagðan kostnað. Ljóst er að heimaþjónusta sparar ríkinu gríðarlega fjárhæð miðað við sængurlegu. 28.2.2006 11:55 Vinna harðar að auðgun úrans Íranar vinna nú harðar en nokkru sinni að auðgun úrans, og halda áfram að hundsa fyrirspurnir kjarnorkueftirlitsmanna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Aðeins tæpar tvær vikur eru síðan Íranar hófu notkun á tíu nýjum skilvindum í því augnaamiði að auðga úran. Með tilliti til þess hve lítinn samstarfsvija Íransstjórn hafi sýnt, sé alls ekki hægt að fullyrða að tilgangurinn sé með öllu friðsamlegur. 28.2.2006 10:30 Fjórðungur karlmanna á Austurlandi útlendingar Fjórðungur karlmanna á Austurlandi er með erlent ríkisfang samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Hlutfall erlendra ríkisborgara er hæst í þeim landshluta, eða 17,6 prósent, sem má væntanlega rekja til stóriðjuframkvæmdanna fyrir austan. 28.2.2006 10:30 Maóistar drápu fimmtíu manns Uppreisnarmenn úr röðum maóista drápu fimmtíu manns með fjarstýrðri sprengju í morgun. Sprengjan sprakk undir sendibifreið sem í var hópur fólks sem unnið hefur gegn maóistum. Þá slösuðust margir í sprengingunni, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra séu í lífshættu. 28.2.2006 10:30 Flugmenn SAS með áfangasigur 28.2.2006 10:00 Umferð komin í samt lag aftur Umferð um Reykjanesbraut og Ártúnsbrekku er komin í samt lag eftir mikið öngþveiti, sem skapaðist þegar önnur aðal æð hitaveitunnar frá Reykjum í Mosfellsbæ til borgarinnar, sprakk í stokk undir Reykjanesbrautinni á móts við Sprengisand á áttunda tímanum í morgun. Við það flæddi heitt vatnið upp á vestari vegahelminginn og beljaði niður í niðurföll, en samtímis steig upp gufustrókur sem birgði ökumönnum sýn. 28.2.2006 09:58 Viljla álver við Eyjafjörð L-listi, listi fólksins á Akureyri skorar á Alcoa að reisa álver á Dysnesi við Eyjafjörð. Á almennum fundi flokksins í gærkvöldi var samþykkt að senda frá sér ályktun þar sem fram kemur að flokkurinn telji Eyjafjörð besta kostinn fyrir álver Alcoa og er fyrirtækið boðið velkomið til Eyjafjarðar. 28.2.2006 09:45 Maður og geit í það heilaga Maður í Súdan neyðist til að kvænast geit að því er fram kemur á bt.dk í dag. Málsatvik eru þau að maðurinn var í ástaratlotum við geitina þegar eigandi hennar kom að honum. Eigandi krafðist þess að maðurinn gengi að eiga geitina og að hann borgaði fyrir hana brúðargjald. Öldungaráð ráð bæjarins fundaði um málið og komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn og geitin skyldu heitbindast 28.2.2006 09:00 Umferðartafir vegna brostinnar hitaveituæðar Önnur aðalæð hitaveitunnar frá Reykjum í Mosfellsbæ til borgarinnar brast fyrir stundu rétt við Reykjanesbrautina þar sem æðin kemur yfir Elliðaárnar og hefur heitt vatn skapað mikla gufustróka, sem truflað hafa umferðina, sem meira og minna er í hnút í Ártúnsbrekku og á Reykjanesbrautinni í átt að Breiðholti. 28.2.2006 08:48 Súkkulaðiát hin hollasta iðja Ný, bandarísk rannsókn bendir afdráttarlaust til þess að súkkúlaðiát sé hin hollasta iðja. Rannsakendur skoðuðu hóp eldri karlmanna frá Hollandi í meira en áratug og í ljós kom að blóðþrýstingur þeirra sem borðuðu súkkúlaði á hverjum degi var mun lægri en þeirra sem ekki voru fyrir súkkúlaðið, auk þess sem lífslíkur þeirra voru hreinlega meiri en hinna. 28.2.2006 08:45 Danskir læknar lokkaðir til Noregs Þúsundir danskra lækna nýta frítíma sinni til að vinna í Noregi þar sem þeir fá að minnsta kosti tvöfalt hærri laun. Þetta leiðir til verri þjónustu á dönskum spítölum þar sem ekki er hægt að manna alla vaktir þar eftir því sem fram kemur í Jótlandspóstinum. 28.2.2006 08:30 Bensínlítrinn hækkar hjá Esso og Olís Olíufélögin Esso og Olís hækkuðu bensínlítrann um tvær og fimmtíu í gær og er hann nú kominn í tæpar 112 krónur í sjálfsafgreiðslu og díselolían er krónu ódýrari. Þetta er nokkuð snörp hækkun eftir þrjár verðlækkanir að undanförnu. 28.2.2006 08:15 Sjá næstu 50 fréttir
Veðjað á álver Spákaupmenn á peningamarkaðnum virðast veðja á að álfyrirtækið Alcoa ætli að reisa álver fyrir norðan, því hækkun krónunnar um rösklega eitt prósent í gær er meðal annars rakin til væntinga til þess. 1.3.2006 08:30
Hugað að sameiningu á Vesturlandi Unnið er að því að sameina þrjú verkalýðsfélög á Vesturlandi í eitt. Þetta eru verkalýðsfélögin Valur í Dalasýsu, Hörður í sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar og Verkalýðsfélag Borgarness. 1.3.2006 08:15
Síðustu göngurnar um Kárahnjúkasvæðið í sumar Þeir sem hafa hugsað sér að skoða landið sem hverfur undir Hálslón Kárahnjúkavirkjunar ættu að fara að skipuleggja ferðir þangað því í september verður vatni hleypt á hið margumtalaða Hálslón. Gönguhópurinn Augnablik hefur gengið um "landið sem hverfur" í þrjú sumur og þetta fjórða sumar verður að öllum líkindum hið síðasta. 1.3.2006 08:00
Halda stjórnarmyndun áfram Ofbeldið í Írak undanfarna daga mun ekki koma í veg fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar á næstu vikum. Þetta segir Ibrahim al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks, sem nú er í opinberri heimsókn í Tyrklandi. 1.3.2006 07:58
Þjóðvegirnir greiðfærir Allir helstu þjóðvegir landsins eru nokkuð greiðfærir samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Einhverjir hálkublettir eru þó á Norðaustur- og Austurlandi. 1.3.2006 07:55
Felldu þrjátíu uppreisnarmenn Pakistanskar hersveitir felldu þrjátíu uppreisnarmenn í áhlaupi við landamæri Afganistan snemma í morgun. Fjölmennt herlið lét til skarar skríða á þyrlum og af jörðu niðri, án þess að uppreisnarmennirnir fengju rönd við reist. 1.3.2006 07:53
Skattur á þá efnaminni Notendagjöld í heilbrigðiskerfinu eru aukaskattur á tekjulágt og fátækt fólk, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að ávinningurinn af innheimtu notendagjalda sé lítill eða enginn og þau valdi því helst að efnaminna fólk hafi ekki efni á heilbrigðisþjónustu. 1.3.2006 07:45
Fjöldi erlendra ríkisborgara á Íslandi hefur þrefaldast á áratug Fjöldi erlendra ríkisborgara með lögheimili á Íslandi hefur þrefaldast undanfarinn áratug. Á Austurlandi eru tæplega átján prósent íbúa með erlent ríkisfang. Þetta kemur fram í nýjustu tölum frá Hagstofu Íslands og miðast við 31. desember síðastliðinn. 28.2.2006 22:20
Heimaþjónusta ljósmæðra í uppnámi Samningar um heimaþjónustu milli Ljósmæðrafélags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins rennur út á miðnætti. Ljósmæðrum voru kynnt drög að nýjum samningi í dag en skilaboð þeirra eru skýr, þær sætta sig ekki við samninga undir kostnaðargreiningu. 28.2.2006 22:10
Árni Sigfússon leiðir framboðslista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ Fjölmennur fulltrúaráðsfundur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ samþykkti í kvöld framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Árni Sigfússon leiðir framboðslistann áfram og mun hann ekki gefa kost á sér fyrir komandi alþingiskosningar. 28.2.2006 21:49
Eldur í húsnæði Landspítala - háskólasjúkrahúss Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í húsnæði Landspítala - háskólasjúkrahúss í Kópavogi um klukkan tuttugu mínútur í níu í kvöld. Starfsfólk í byggingunni sagðist finna reykjarlykt leggja frá kjallara hússins. 28.2.2006 21:08
Bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar auka þjónustu við innflytjendur Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kynntu í dag áætlun um aukna þjónustu við íbúa af erlendum uppruna en þeim hefur farið fjölgangi í sveitarfélaginu á síðustu árum. Pólverjar eru fjölmennasti hópur innflytjenda í Hafnarfirði en þar býr einnig fjöldi fólks frá Eystrasaltslöndunum, Rússlandi og fyrrum Júgóslavíu. 28.2.2006 21:00
Gott gengi hjá Bakkavör Group Áætlaður hagnaður Bakkavarar Group er ríflega þrjú þúsund milljónir króna en félagið mun birta uppgjör sitt fyrir árið 2005 á morgun. 28.2.2006 20:34
Haft samband við hæstbjóðendur Framkvæmdarsvið Reykjavíkurborgar hefur haft samband við þá sem áttu hæsta tilboð í byggingarétt á lóðum í Úlfarsárdal. Þeir þurfa nú að ákveða við hvaða tilboð þeir hyggjast standa. Eins og fram hefur komið í fréttum átti einn maður hæsta tilboð í byggingarétt 39 einbýlishúsalóða af þeim fjörtíu sem í boði voru í útboði borgarinnar. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fimmtudag tillögu borgarstjóra þess efnis að hver einstaklingur fengi aðeins að kaupa eina einbýlishúsa eða parhúsalóð. 28.2.2006 17:00
Lækkun á nýjum útlánum Íbúðalánasjóðs um 12-20 milljarða Íbúðalánasjóður gerir ráð fyrir lækkun á nýjum útlánum um tólf til tuttugu milljarða króna á þessu ári frá því sem áður var áætlað. Þetta kemur fram í tilkynningu um endurskoðaða áætlun sem sjóðurinn sendi Kauphöllinni í dag. 28.2.2006 16:50
Viðbúnaðarstigi vegna fuglaflensunnar ekki breytt hér á landi Viðbúnaðarstigi vegna fuglaflensunnar verður ekki breytt hér á landi í ljósi tíðindanna frá Svíþjóð, að sögn Jarle Reiersens, yfirdýralæknis alifuglasjúkdóma. Fyrr í dag var greint frá því að hættulegt afbrigði flensunnar hafi fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. 28.2.2006 16:20
Slökkviliðsmenn eru mjög eldfimir eftir fund hjá ríkissáttasemjara Fundur í kjaradeilu Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaganna er loikið hjá ríkissáttasemjara, en menn settust til samninga klukkan hálf eitt í dag. . 28.2.2006 16:03
Köttur smitaður af fuglaflensu Þýsk yfirvöld hafa fundið dauðan kött sem var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensunnar. Ekki er enn vitað hvort kötturinn dó af völdum fuglaflensunnar eða af öðrum orsökum en verið er að rannsaka hræið. Kötturinn fannst á sömu slóðum og fuglarnir sem fundust í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Ekki er enn vitað til þess að menn geti smitast af fuglaflensunni af köttum en fundurinn vekur óneitanlega ugg hjá mönnum um að fuglaflensan geti borist í aðrar dýrategundir. 28.2.2006 16:00
Miriam Makeba væntanleg á Listahátíð Listahátíð í Reykjavík verður haldin í tuttugasta skipti nú í vor. Mikil áhersla er lögð á tónlist að þessu sinni en meðal gesta hátíðarinnar verður hin heimsþekkta afríska söngkona Miriam Makeba. Á blaðamannfundi í Iðnó í dag var dagská hátíðarinnar kynnt og nýr vefur listahatid.is var opnaður. Um fimmtíu viðburðir með þáttöku tæplega sex hundruð listamanna verða á hátíðinni. Mun fjöldinn allur af tónlistarmönnum koma fram en megináhersla er á tónlist að þessu sinni. 28.2.2006 15:45
Börn krefjast að múhameðsteiknarar verði hengdir Fimmþúsund börn allt niður í átta ára gengu fylktu liði um götur stærstu borgar Pakistan í morgun og kröfðust þess að teiknarinn sem teiknaði skopmyndirnar af Múhammeð spámanni yrði hengdur. Hingað til hefur fullorðna fólkið að mestu séð um mótmælin vegna skopmyndanna í MiðAusturlöndum, en það breyttist heldur betur í dag. 28.2.2006 15:30
Hátt í hundrað tonn af saltkjöti ofan í landann Búast má við að landinn láti ofan í sig hátt í hundrað tonn af saltkjöti í dag þegar hann fagnar sprengideginum. Þá eru ótaldar bauninar sem fylgja þessum þjóðarrétti Íslendinga á þessum degi. 28.2.2006 14:30
Lífið að komast í samt horf hjá Hjálparsveitinni í Hveragerði Vel hefur gengið að fylla í skörðin eftir að kviknaði í út frá flugeldum í húsi Hjálparsveitar skáta í Hveragerði. Sveitin hefur hvarvetna mætt miklum velvilja og hefur m.a. fengið GPS-tæki og talstöðvar að gjöf. 28.2.2006 14:15
Viðbúnaður hugsanlega í áhættustig tvö Hættulegt afbrigði fuglaflensunnar hefur fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. Samkvæmt leiðbeiningum Landbúnaðarstofnunar um áhættustig þýðir þetta að viðbúnaður vegna flensunnar verði færður á stig tvö hér á landi. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn. 28.2.2006 13:58
Verðbólgan áfram yfir þolmörkum Verðbólgan mun áfram vera yfir efri þolmörkum og mælast 4,2 prósent ef verðbólguspá Íslandsbanka mun ganga eftir. Þetta verður þá 23 mánuðurinn í röð þar sem verðbólgan er umfram markmið Seðlabankans en verðbólgumarkmið hans er 2,5 prósent. Þá mun vísitala neysluverðs hækka um 0,9 prósent ef spáin gengur eftir. 28.2.2006 13:45
SPES byggir í Tógó Þróunarsamvinnustofnun Íslands og SPES-barnahjálp hafa gert með sér samkomulag um að ÞSSÍ styrki byggingu nýs húsnæðis í barnaþorpi samtakanna í Lomé í Tógó. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ÞSSÍ hljóðar kostnaðaráætlun við bygginguna upp á 65.000 evrur eða rúmar fimm milljónir íslenskra króna og nemur styrkur ÞSSÍ til byggingarinnar um 40 prósent af upphæðinni eða um 2 milljónir króna. 28.2.2006 13:45
Atkvæðagreiðsla vegna verkfalls slökkviliðsmanna hafin Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hófu á hádegi að greiða um það atkvæði hvort boða eigi til verkfalls sem hefjast á um miðjan marsmánuð. Um 280 atvinnuslökkviliðsmenn eru á kjörskrá og er kosið í deildum þeirra víða um land. 28.2.2006 13:30
Tuttugu ár frá morðinu á Olof Palme Í kvöld verða nákvæmlega tuttugu ár síðan Olav Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var myrtur í miðborg Stokkhólms. Rannsókn á morðinu er komin í fullan gang á ný og margir verða yfirheyrðir vegna þess á næstunni. 28.2.2006 13:15
Áframhaldandi óöld í Írak Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið. 28.2.2006 13:00
Gufumökkur yfir stóru svæði á Reykjanesbraut Mikið umferðaröngþveiti varð á Reykjanesbraut til móts við Sprengisand og í Ártúnsbrekku á áttunda tímanum í morgun eftir að önnur aðal heitavatnsæð Orkuveitunnar frá Reykjum til borgarinnar sprakk og gufumökk lagði yfir stórt svæði. 28.2.2006 12:45
Ísland í 13. sæti yfir hlutfall kvenna á þjóðþingum Íslendingar eru nokkrir eftirbátar hinna norrænu ríkjanna þegar kemur að hlutfalli kvenna á þjóðþingum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Alþjóðaþingmannasambandinu sem birtar voru í gær. Ísland er í þrettánda sæti á listanum af 187 löndum en hér á landi eru konur akkúrat þriðjungur þingmanna. 28.2.2006 12:30
Ólína ósátt við Menntamálaráðuneytið Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, segir að menntamálaráðuneytið hafi ekki stutt nægilega það sáttaferli sem ráðuneytið kom af stað í haust. Ólína var gestur fréttavaktarinna fyrir hádegi en mikill styrr hefur staðið um starf hennar sem skólameistari undanferin misseri. 28.2.2006 12:15
Fuglaflensa greinist í Svíþjóð Hið hættulega afbrigði fuglaflensunnar, af stofni H5N1, hefur greinst í suðurhluta Svíþjóðar. 28.2.2006 12:05
Ljósmæður óánægðar með samningskjör fyrir heimaþjónustu Samningur milli Ljósmæðrafélags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins rennur út á miðnætti í kvöld og enginn fundur er boðaður milli ljósmæðra og Tryggingastofnunar. Ljósmæður segja verktakagreiðslur fyrir heimaþjónustu lágar, því að starfinu fylgi mikil binding og ekki sé greitt aukalega fyrir akstur á milli staða eða annan útlagðan kostnað. Ljóst er að heimaþjónusta sparar ríkinu gríðarlega fjárhæð miðað við sængurlegu. 28.2.2006 11:55
Vinna harðar að auðgun úrans Íranar vinna nú harðar en nokkru sinni að auðgun úrans, og halda áfram að hundsa fyrirspurnir kjarnorkueftirlitsmanna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Aðeins tæpar tvær vikur eru síðan Íranar hófu notkun á tíu nýjum skilvindum í því augnaamiði að auðga úran. Með tilliti til þess hve lítinn samstarfsvija Íransstjórn hafi sýnt, sé alls ekki hægt að fullyrða að tilgangurinn sé með öllu friðsamlegur. 28.2.2006 10:30
Fjórðungur karlmanna á Austurlandi útlendingar Fjórðungur karlmanna á Austurlandi er með erlent ríkisfang samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Hlutfall erlendra ríkisborgara er hæst í þeim landshluta, eða 17,6 prósent, sem má væntanlega rekja til stóriðjuframkvæmdanna fyrir austan. 28.2.2006 10:30
Maóistar drápu fimmtíu manns Uppreisnarmenn úr röðum maóista drápu fimmtíu manns með fjarstýrðri sprengju í morgun. Sprengjan sprakk undir sendibifreið sem í var hópur fólks sem unnið hefur gegn maóistum. Þá slösuðust margir í sprengingunni, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra séu í lífshættu. 28.2.2006 10:30
Umferð komin í samt lag aftur Umferð um Reykjanesbraut og Ártúnsbrekku er komin í samt lag eftir mikið öngþveiti, sem skapaðist þegar önnur aðal æð hitaveitunnar frá Reykjum í Mosfellsbæ til borgarinnar, sprakk í stokk undir Reykjanesbrautinni á móts við Sprengisand á áttunda tímanum í morgun. Við það flæddi heitt vatnið upp á vestari vegahelminginn og beljaði niður í niðurföll, en samtímis steig upp gufustrókur sem birgði ökumönnum sýn. 28.2.2006 09:58
Viljla álver við Eyjafjörð L-listi, listi fólksins á Akureyri skorar á Alcoa að reisa álver á Dysnesi við Eyjafjörð. Á almennum fundi flokksins í gærkvöldi var samþykkt að senda frá sér ályktun þar sem fram kemur að flokkurinn telji Eyjafjörð besta kostinn fyrir álver Alcoa og er fyrirtækið boðið velkomið til Eyjafjarðar. 28.2.2006 09:45
Maður og geit í það heilaga Maður í Súdan neyðist til að kvænast geit að því er fram kemur á bt.dk í dag. Málsatvik eru þau að maðurinn var í ástaratlotum við geitina þegar eigandi hennar kom að honum. Eigandi krafðist þess að maðurinn gengi að eiga geitina og að hann borgaði fyrir hana brúðargjald. Öldungaráð ráð bæjarins fundaði um málið og komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn og geitin skyldu heitbindast 28.2.2006 09:00
Umferðartafir vegna brostinnar hitaveituæðar Önnur aðalæð hitaveitunnar frá Reykjum í Mosfellsbæ til borgarinnar brast fyrir stundu rétt við Reykjanesbrautina þar sem æðin kemur yfir Elliðaárnar og hefur heitt vatn skapað mikla gufustróka, sem truflað hafa umferðina, sem meira og minna er í hnút í Ártúnsbrekku og á Reykjanesbrautinni í átt að Breiðholti. 28.2.2006 08:48
Súkkulaðiát hin hollasta iðja Ný, bandarísk rannsókn bendir afdráttarlaust til þess að súkkúlaðiát sé hin hollasta iðja. Rannsakendur skoðuðu hóp eldri karlmanna frá Hollandi í meira en áratug og í ljós kom að blóðþrýstingur þeirra sem borðuðu súkkúlaði á hverjum degi var mun lægri en þeirra sem ekki voru fyrir súkkúlaðið, auk þess sem lífslíkur þeirra voru hreinlega meiri en hinna. 28.2.2006 08:45
Danskir læknar lokkaðir til Noregs Þúsundir danskra lækna nýta frítíma sinni til að vinna í Noregi þar sem þeir fá að minnsta kosti tvöfalt hærri laun. Þetta leiðir til verri þjónustu á dönskum spítölum þar sem ekki er hægt að manna alla vaktir þar eftir því sem fram kemur í Jótlandspóstinum. 28.2.2006 08:30
Bensínlítrinn hækkar hjá Esso og Olís Olíufélögin Esso og Olís hækkuðu bensínlítrann um tvær og fimmtíu í gær og er hann nú kominn í tæpar 112 krónur í sjálfsafgreiðslu og díselolían er krónu ódýrari. Þetta er nokkuð snörp hækkun eftir þrjár verðlækkanir að undanförnu. 28.2.2006 08:15