Erlent

Danskir læknar lokkaðir til Noregs

Þúsundir danskra lækna nýta frítíma sinni til að vinna í Noregi þar sem þeir fá að minnsta kosti tvöfalt hærri laun. Þetta leiðir til verri þjónustu á dönskum spítölum þar sem ekki er hægt að manna alla vaktir þar eftir því sem fram kemur í Jótlandspóstinum. Þar segir einnig að vandinn hafi stigmagnast á síðustu 10 til 15 árum og nú séu starfandi sérstakar afleysingaskrifstofur sem lokki danska lækna til Noregs með boðum um hærri laun, ókeypis flutning á milli staða og húsnæði á meðan á dvölinni í Noregi stendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×