Fleiri fréttir

Kópavogur brátt bær turnanna

Framkvæmdir eru hafnar við hæsta hús á Íslandi á Smáratorgi. Búið er að samþykkja annað verslunarháhýsi hinu megin við götuna og umsókn fyrir það þriðja liggur fyrir. Oddviti minnihlutans í Kópavogi telur gatnakerfi Kópavogs engan veginn í stakk búið til að taka við þeirri umferð sem fylgir háhýsunum.

Umsóknum um almenn íbúðalán fækkaði um 27%

Afgreiddum umsóknum hjá Íbúðalánasjóði um almenn íbúðalán fækkaði um 27%,rúmlega fjórðung, á milli áranna 2004 og 2005. Heildarfjárhæð almennra útlána jókst hins vegar um rúma þrettján milljarða. Á síðasta ári voru tæplega átta þúsund umsóknir afgreiddar hjá sjóðnum.

Ökumaður blindaðist af sólinni og keyrði á bifhjól

Keyrt var aftan á létt bifhjól á Hlíðarvegi í Vestmannaeyjum á sjötta tímanum í dag. Ökumaður blindaðist af sólinni og sá ekki bifhjólið og ökumann þess. Bifhjólið lenti í veg fyrir bíl sem kom úr gangstæðri átt við áreksturinn en engann sakaði. Bifhjólið skemmdist töluvert og bílarnir sömuleiðis, en mikil mildi þykir að ökumennina þrjá sakaði ekki við áreksturinn.

Mikill áhugi fyrir arabísku

Mikill áhugi er fyrir arabísku hér á landi og komust færri að en vildu á arabískunámskeið sem kennt er í Alþjóðahúsi um þessar mundir.

Enginn árangur af sáttafundi

Sáttafundi slökkviliðsmanna og viðsemjenda þeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk án árangurs nú undir kvöldið. Annar fundur hefur verið boðaður í hádeginu á morgun en samkvæmt heimildum NFS er enn nokkuð langt í land með að samkomulag náist. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu í síðustu viku heimild til boðun verkfalls um allt land.

Baugsmeðferð kann að brjóta gegn Mannréttindasáttmála

Ef ákæruvaldið kýs að ákæra að nýju í þeim 32. ákæruliðum sem Hæstiréttur vísðai frá dómi í október kann það að stangast á við 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta segir Danski lögmaðurinn, Tyge Trier sem Baugur fékk til að meta þetta mál. Hann segirst myndu ráðleggja sakborningum að vísa málinu til Mannréttindadómstólsins ef ákært verður í þessum liðum á nýjan leik.

Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra segir ekki víst hvort hann geti útvegað fjármagn á fjárlögum næsta árs, þannig að hægt verði að leysa úr vanda eldri hjóna sem ekki geta búið saman vegna veikinda annars þeirra.

Sorg á Akureyri

Ungu mennirnir tveir úr Eyjafirði, sem voru í för með mönnunum sem hröpuðu niður í jökulsprungu á Hofsjökli um helgina með þeim afleiðingum að annar lést, eru miður sín eftir atburðina.

Sextíu þúsund manns á kjötkveðjuhátíð í Ríó

Minnst sextíu þúsund manns komu saman á hápunkti kjötkveðjuhátíðarinnar í Ríó í gærkvöldi. Þúsundir samba-dansara sýndu listir sínar á Sambadrome-leikvanginum, ásamt hundruðum trommuleikara.

Neitar að hafa vitað um vangoldin opinber gjöld

Fram kom í máli Eyjólfs Sveinssonar í aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur að hann segist ekki hafa vitað um vangoldin opinber gjöld ýmissa fyrirtækja sem hann var í forsvari fyrir. Aðalmeðferð gegn honum og níu öðrum hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Báðir mennirnir enn á gjörgæslu

Líðan mannsins sem féll af þaki við Lyngás í Garðabæ í síðustu viku er stöðug. Hann er alvarlega slasaður en hann er í öndunarvél og er honum haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans-háskólasjúkrahúss. Maðurinn sem var í bíl sem fór ofan í sprungu upp á Hofsjökli um helgina er enn á gjörgæslu en ástand hans er stöðugt. Hann er alvarlega slasaður en með meðvitund.

George Michael handtekinn vegna gruns um fíkniefnanotkun

Poppsöngvarinn George Michael var handtekinn vegna gruns um fíkniefnanotkun um helgina. Þetta kemur fram í götublaðinu Sun. Þar segir að söngvarinn hafi fundist í annarlegu ástandi í bíl sínum í Lundúnum snemma á laugardagsmorgun og verið handtekinn vegna gruns um að hafa fíkniefni í fórum sínum.

Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri vegna fuglaflensunnar

Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólkis við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla.

Þrjátíu þúsund manns mótmæla í París

Meira en þrjátíu þúsund manns gengu fylktu liði um götur Parísar í gær, til að mótmæla morði á gyðingi, sem kynþáttahatarar pyntuðu í þrjár vikur. Lík mannsins fannst illa brennt og handjárnað um miðjan febrúar, þrem vikum eftir að glæpagengi rændi honum í suðurhluta Parísar.

Ekki víst hvort fjárveiting fáist

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir ekki víst hvort fjárveiting fáist í rekstur hjúkrunarheimila aldraðra svo hægt sé að nýta framkvæmdasjóð aldraðra einvörðungu í uppbyggingu og viðhald húsnæðis eins og ætlast er til.

Töluverðar annir hjá lögreglunni í Hafnarfirði

Talsvert mikið var að gera í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði þessa helgi. Margar tilkynningar og kvaranir bárust vegna ölvunar, bæði unglinga og hinna eldri. Þá bárust einnig allmargar kvartanir vegna hávaða frá samkvæmum í heimahúsum.

ESB bjargar Palestínumönnum frá gjaldþroti

Evrópusambandið ætlar að bjarga Palestínumönnum frá gjaldþroti. Framkvæmdastjórn sambandsins samþykkti í morgun að styrkja heimastjórnina um tæpa tíu milljarða króna.

Bono og Geldof tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels

Rokksöngvararnir eru Bono og Bob Geldof eru meðal þeirra sem tilnefndir eru til friðarverðlauna Nóbels í ár. Þeir eru í hópi 191 einstaklings og hóps sem tilnefndir eru en báðir hafa látið sig málefni þriðja heimsins varða.

Segir skýr merki um að hækkanir á fasteignum séu í rénun

Fjármálaráðuneytið telur að þess séu nokkuð skýr merki að þær verðhækkanir sem einkenndu fasteignamarkaðinn í upphafi síðasta árs séu í rénun. Á heimasíðu ráðuneytisins kemur fram að fasteignaverð hafi staðið í stað á undanförnum mánuðum sem komi fram í því að hratt dragi úr mánaðarlegum hækkunum.

Bolla, bolla, bolla!

Bolludagurinn er í dag. Að gæða sér á bollum og öðru góðgæti á þessum mánudegi í föstuinngangi er siður sem barst hingað til lands seint á nítjándu öld frá Danmörku og hefur haldist hér æ síðan. Nafnið á deginum er þó alíslenskt og er fyrst notað rétt eftir aldarmótin nítjánhundruð. Langflestir Íslendingar gæða sér á bollum í dag og nú er úrvalið orðið meira en áður og bollutegundirnar sem bakarar bjóða uppá og mikið er að gera hjá þeim á þessum góðgætisdegi

Tilboði í íbúðir þriðjungur af brunabótamati

Byggðaráð Dalabyggðar hefur hafnað tilboðum í sjö félagslegar íbúðir í Búðardal þar sem þau voru alltof lág. Einn og sami fjárfestirinn bauð í þær allar samtals 33 milljónir króna eða innan við fimm milljónir í hverja íbúð að meðaltali.

Telur samstarf við sjálfstæðismenn ólíklegt eftir kosningar

Þingflokksformaður Vinstri - grænna telur afar litlar líkur á meirihlutasamtarfi flokksins og Sjálfstæðisflokksins að loknum borgarstjórnarkosningum í vor. Þá telur hann að Svandís Svavarsdóttir ætti að verða borgarstjóri ef Samfylkingin og Vinstri - grænir vinna áfram saman.

Engin svartsýni þrátt fyrir rýra vertíð

Þau fáu loðnuskip sem enn eru að veiðum á þessari óvenju rýru vertíð, þar sem aðeins mátti veiða um 170 þúsund tonn, eru um það bil að slá botninn í hana. Nokkur eru búin með kvóta sína og hafa lagst við bryggju, önnur eru á landleið úr síðustu veiðiferð en nokkur eru enn að veiðum, sem ganga vel þegar bjart er af degi.

Landsbjörg sátt við frammistöðuna

Forsvarsmenn Landsbjargar og Landhelgisgæslu eru ánægðir með björgunaraðgerðir við mjög erfiðar aðstæður á Hofsjökli á laugardag þrátt fyrir að þrír tímar hafi liðið þar til komið var niður í sprunguna til hinna slösuðu.

Fáklæddur á flókatöflum á Suðurlandsvegi

Í mörgu var að snúast hjá lögreglumönnum í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í liðinni viku og segir í dagbók lögreglunnar þar að sumir ökumenn hafi hagað akstri sínum líkt og kýr sem sleppt er út í fyrsta skipti á góðum vordegi. Þá óku lögreglumenn fram á fáklæddan karlmann á flókatöflum á Suðurlandsvegi.

LSS og LN funda eftir hádegi

Fundur hefur verið boðaður klukkan eitt hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaganna.

Annir hjá lögreglunni á Akranesi í liðinni viku

Töluverðar annir voru hjá lögreglunni á Akranesi í liðinni viku en 110 mál komu til kasta hennar. 34 voru kærðir fyrir að keyra of hratt og óku þeir á 112-130 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 og 93 - 100 í Hvalfjarðargöngum þar sem hámarkshraði er 70.

Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu

Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef danska ríkisútvarpsns.

Sjá sóknarfæri vegna fuglaflensu

Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólks við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla.

Húsnæðisverð langhæst í Kaupmannahöfn

Húsnæðisverð í Kapmannahöfn er orðið hið langhæsta á Norðurlöndum og er meðalverð á fermetra komið upp í um það bil 300 þúsund íslenskar krónur. Það er því orðið hærra en í Stokkhólmi sem lengi hefur státað af titlinum dýrasta borg í Skandinavíu.

Útstreymi gróðurhúsalofttegunda eykst um 11% á 15 árum

Útstreymi gróðurhúsalofttegunda jókst um ellefu prósent á árabilinu 1990-2004 samkvæmt nýjum tölum sem birtar eru á vef Hagstofunni. Aukninguna má fyrst og fremst rekja til aukins útstreymis koldíoxíðs en sú lofttegund er langþýðingarmest af þeim lofttegundum sem valda gróðurhúsaáhrifum.

Þrettán ára drengur ók á umferðarskilti

Ökuferð þrettán ára ökumanns á stolnum bíl endaði á tveimur umferðarskiltum í Hafnarfirði í gærmorgun, en drengurinn slapp ómeiddur þótt bíllinn skemmdist mikið.

Bang og Olufsen flytur hluta starfseminnar frá Danmörku

Danski raftækjaframleiðandinn Bang og Olufsen, sem FL Group keypti nýverið hlut í, hefur ákveðið að flytja hluta starfsemi sinnar frá Danmörku bæði vegna skorts á verkfræðingum og til að draga úr launakostnaðil.

Slapp ómeidd í veltu í Norðurárdal

Ung kona slapp ómeidd þegar bíll hennar rann út af þjóðvegunum efst í Norðurárdal í gærkvöldi og valt. Þar hafði myndast fljúgandi hálka og voru lögreglu- og björgunarmenn í hættu á vettvangi þar til hægt var á umferð í grenndinni.

Líðan mannsins fer batnandi

Líðan mannsins sem slasaðist þegar bíll sem hann var í féll ofan í sprungu á Hofsjökli er eftir atvikum góð og fer batnandi að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeils Landspítalans. Maðurinn lá í átta tíma í bílnum á meðan björgunarmenn unnu að því að ná honum úr bílnum sem var í um þrjátíu metra dýpi ofan í sprunginni. Hann var svo fluttur með þyrlu á Landspítalannn í Fossvogi rétt eftir miðnætti á laugardag.

Þrjátíu þúsund mótmæltu gyðingahatri

Meira en þrjátíu þúsund manns gengu fylktu liði um götur Parísar í gær til að mótmæla morði á gyðingi, sem kynþáttahatarar pyntuðu í þrjár vikur.

Lögregla í Sádi-Arabíu berst við uppreisnarmenn

Skotbardagar milli lögreglu og uppreisnarmanna í Sádi-Arabíu hafa staðið í alla nótt. Uppreisnarmennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að sprengja stærsta olíuhreinsunarfyrirtæki heims og lögregla hefur verið á hælunum á þeim um nokkurt skeið.

Sjá næstu 50 fréttir