Erlent

Súkkulaðiát hin hollasta iðja

MYND/Pjetur

Ný, bandarísk rannsókn bendir afdráttarlaust til þess að súkkúlaðiát sé hin hollasta iðja. Rannsakendur skoðuðu hóp eldri karlmanna frá Hollandi í meira en áratug og í ljós kom að blóðþrýstingur þeirra sem borðuðu súkkúlaði á hverjum degi var mun lægri en þeirra sem ekki voru fyrir súkkúlaðið, auk þess sem lífslíkur þeirra voru hreinlega meiri en hinna. Dánartíðni þeirra sem duglegastir voru við að láta í sig fæði úr kakóbaunum reyndist helmingi minni en samanburðarhópsins. Sem fyrri daginn vara þó rannsakendur við of miklu súkkúlaðiáti enda innihaldi það óholla fitu sem ekki sé góð í óhófi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×