Fleiri fréttir

Margmiðlunartækni í landnámsbæ

Margmiðlunartækni verður notuð til hins ítrasta þegar landnámsbærinn í Hótel Reykjavík Centrum verður opnaður almenningi í maí. Meðal annars má sjá landnámsmenn ganga um og rota geirfugla sér til matar. Ekki er ólíklegt að Ingólfur Arnarson hafi verið meðal þeirra.

Borgarstjóri veitir hópnum Samferða viðurkenningu

Hópurinn Samferða hlaut í dag viðurkenningu fyrir gott gegni myndarinnar "Þröng sýn". Það var borgarstjórinn í Reykjavík sem veitti hópnum viðurkenninguna. Á dögunum vann kvikmyndin Þröng sýn verðlaun Framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins "Eusopian Youth awards" í flokknum "Barátta gegn kynþáttahatri og fordómum". Kvikmyndin var valin úr um tólf þúsund verkum sem bárust keppninni og veitti Guðmundur Arnar Guðmundsson, annar leikstjóri myndarinnar verðlaununum viðtöku á dögunum. Eins var myndin tilnefnd til Eddu- verðlauna á síðustu Eddu hátíð í flokki stuttmynda og hlaut fyrstu verðlaun í flokknum "Ný form" á alþjóðlegu stúdentakvikmyndahátíðinni í Karlov Vary í Tékklandi. Af þessu tilefni veitti Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, hópnum Samferða viðurkenningu í Hinu húsinu í dag en meðleikstjóri Guðmundar er Þórgnýr Thoroddsen.

Tveir féllu á Gasa

Tveir palestínskir uppreisnarmenn féllu í loftárás Ísraelshers á norðanverðri Gasa-ströndinni nú undir kvöld. Mennirnir tveir, sem voru báðir í herskáum armi Fatah-hreyfingarinnar, héldu til nærri Jabalya flóttamannabúðunum. Undanfarna þrjá daga hafa sjö Palestínumenn fallið í loftárásum Ísraelshers á Gasa.

Rafmagns- og heitavatnslaust um tíma í Grafarvogi

Rafmagns- og heitavatnslaust varð í stórum hluta Grafarvogs fyrr í kvöld. Háspennustrengur við Víkurveg var grafinn í sundur um hálfsexleytið með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í syðri hluta Grafarvogs og á Höfðum. Viðgerð lauk tæpri klukkustund síðar en þá fór heita vatnið af.

Fær ekki greidda tryggingu vegna fjölskyldusögu

Kona á fimmtugsaldri, sem sótti um sjúkdómatryggingu hjá KB líf, fær ekki greidda tryggingu ef hún greinist með MS þar sem móðir hennar hefur strítt við sjúkdóminn. Formaður samtaka MS-sjúklinga segir þetta hneyksli. Það sé nógu sárt að glíma við ólæknandi sjúkdóm, þótt manns nánustu sé ekki refsað fyrir það.

Íslenski fáninn tekinn niður í Amman

Reiði múslíma í garð Dana vegna myndanna af Múhameð spámanni magnast enn. Fjórir liggja í valnum eftir mótmæli í Afganistan og Sómalíu í dag. Og í Amman, höfuðborg Jórdaníu, hefur ræðismaður Íslands tekið niður íslenska þjóðfánann af ótta við að ráðist verði á hús hans.

Fasteignamarkaðurinn að taka við sér eftir áramót

Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér eftir áramótin því gengið var frá 180 kaupsamningumí síðustu viku. Það er töluvert meira en meðaltal síðustu fjögurra vikna samkvæmt hálffimmfréttum KB banka, en 123 kaupsamningum hefur verið þinglýst á viku síðastliðnar fjórar vikur.

Samþykkja að nýta sér heimildir til launahækkana

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbær hafa samþykkt að nýta sér þær heimildir sem Launanefnd sveitarfélaga samþykkti fyrir rúmri viku til tímabundinna viðbótargreiðslna umfram gildandi kjarasamninga við stéttarfélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Félag leikskólakennara. Þetta kemur fram á vefnum dagur.net.

Banaslys við Stjörnugróf

Banaslys varð við Stjörnugróf um klukkan hálf fimm í dag. Maður á sjötugsaldri var við vinnu undir vörubíl þegar tengivagn bílsins rann til og hafnaði ofan á manninum með þeim afleiðingum að hann lést samstundis. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,2 milljarða

Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands jókst um 1,2 milljarða króna í janúarmánuði og nam hann 68,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Aukning gjaldeyrisforðans er tilkomin vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði.

Myndlistaskólinn í Reykjavík fékk hæsta styrkinn

Menntaráð Reykjavíkur úthlutaði í dag styrkjum til fræðslu- og þróunarverkefna fyrir næsta skólaár. Alls námu styrkirnir sjötíu milljónum króna. Lögð var áhersla á verkefni sem tengjast samstarfi leik- og grunnskóla, kennslu bráðgerra barna og ensku- og íslenskukennslu fyrir nýbúabörn. Alls hlutu áttatíu og sex skólar styrk, misháa þó, og hlaut Myndlistaskólinn í Reykjavík hæsta styrkinn að uppghæð tíu milljónir og fjögurhundruð þúsund krónur til styrktar myndlistarnáms grunnskólanemenda í Reykjavík. Þá hlutu sex tónlistarskólar styrk en það er í fyrsta sinn tónlistarskólar hljóta styrk frá menntaráði.

Slíta viðskiptatengslum við Danmörku

Íranar hafa slitið öllum viðskiptatengslum við Danmörku. Þetta sagði viðskiptaráðherra Írans í viðtali við írönsku fréttastofuna ISNA fyrir stundu. Frá og með morgundeginum yrði engum dönskum vörum hleypt inn á viðskiptasvæði sem Íran hefði stjórn yfir. Á síðasta ári nam sala á dönskum vörum í Íran tæplega átján milljörðum íslenskra króna.

Skipar verkefnisstjórn vegna búsetumála geðfatlaðra

Félagsmálaráðherra hefur skipað verkefnisstjórn sem falið er að hafa umsjón með uppbyggingu búsetuúrræða og þjónustu við geðfatlaða í samræmi við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að verja milljarði króna af söluandvirði Símans til verkefnisins.

Náði ekki tilætluðum árangri og hættir því

"Ég náði ekki tilætluðum árangri og þess vegna tók ég ákvörðun um að vera ekki með á listanum," segir Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi R-listans, um ástæðu þess að hún tekur ekki sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Hún bauð sig fram í 1. sæti í prófkjöri flokksins en endaði í 2. sæti.

Vill 439 milljarða dollara til varnarmála 2007

George Bush Bandaríkjaforseti hefur lagt til að Bandaríkjamenn eyði 439 milljörðum dollara í varnarmál árið 2007. Það samsvarar ríflega tuttugu og fimm þúsund milljörðum króna.

Telja að sá markaður sem Sena er á eigi eftir að vaxa

Dagsbrún hefur keypt allt hlutafé í útgáfufyrirtækinu Senu. Sena er hluti af Degi Group og með kaupunum fylgir tónlistarútgáfa, umboð fyrir tölvuleiki, þrjú kvikmyndahús, tónlistarveitan tonlist.is og fleira. Greitt er fyrir kaupin annars vegar með 1.600 milljónum í reiðufé og hins vegar með hlutafé í Dagsbrún. Sena er útgáfuhluti gömlu Skífunnar en Róbert keypti Skífuna af Norðurljósum árið 2004. Bréf í Dagsbrún hafa hækkað um tæp 3% í dag.

Útgáfufyrirtækið Sena selt

Róber Melax eigandi Dags Group hefur ákveðið að selja útgáfufyrirtækið Senu. Samkvæmt heimildum NFS er það Dagsbrún sem kaupir Senu. Sena er stærsti útgáfuaðili tónlistar á Íslandi og rekur meðal annars þrjú kvikmyndahús. Sena er útgáfuhluti gömlu Skífunnar en Róbert keypti Skífuna af Norðurljósum árið 2004.

Danir hvattir til að forðast 14 lönd

Dönsk stjórnvöld hvetja Dani eindregið til að ferðast ekki til fjórtán landa í heiminum, þar sem múslimar hafa hótað að drepa danska ríkisborgara.

Kostnaður við mötuneyti um 580 milljónir á ári

Samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að kostnaður við matvæli í mötuneytum grunnskóla borgarinnar sé um 410 milljónir króna á ári og annar sérstakur kostnaður vegna mötuneyta sé um 170 milljónir. Kostnaðurinn við mötuneytin er því samtals um 580 milljónir króna.

Varað við fljúgandi hálku á Öxnadalsheiði

Lögreglan á Akureyri varar við fljúgandi hálku á Öxnadalsheiði. Að sögn lögreglunnar hafa þó engin óhöpp orðið í dag en hún segir að við þeim hafi legið í nokkrum tilvikum. Hálkan mun vera mjög lúmsk og eru ökumenn hvattir til að fara sér hægt og gæta fyllstu varúðar.

Náttúrufræðingar semja við borgina

Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur samið við Reykjavíkurborg um kaup og kjör um fimmtíu félagsmanna sinna sem starfa hjá borginni. Samningurinn var undirritaður í síðustu viku og gildir út október 2008.

Tveggja mánaða fangelsi fyrir áfengisstuld

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag mann á sextugsaldri til tveggja mánaða fangelsisvistar þar sem annar mánuðurinn er skilorðsbundin til tveggja ára fyrir fjársvik og þjófnað tengdu áfengi.

Nokkur afskipti af ökumönnum vegna hraðaksturs

Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af 45 ökumönnum í síðustu viku vegna umferðarlagabrota. 28 Ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og þrír vegna gruns um ölvun við akstur. Hraðamælingar voru gerðar í íbúðahverfum og voru þrír ökumenn stöðvaðir í tengslum við hraðakstur þar.

Lögreglan á Ísafirði óskar eftir upplýsingum varðandi fíkniefnamisferli

Lögreglan á Ísafirði hyggst auka eftirlit með aðilum sem grunaðir eru um meðferð fíkniefna. Almenningur er hvattur til að hafa samband við lögregluyfirvöld ef einhver grunur kviknar um meðhöndlun fíkniefna eða annað fíkniefnamisferli og þeim er heitið nafleynd sem til hennar leitar með upplýsingar. Þá er einnig ráðgert að auka eftirlit með ætluðum útivistarreglubrotum unglinga og meintri ölvun.

Lögregla hefur afskipti af ökumönnum á torfærutækjum

Lögreglan á Hvolsvelli hafði afskipti af nokkrum ökumönnum torfærutækja og vélhjóla í síðustu viku. Ökumennirnir reyndust ekki hafa ökuréttindi til akstursins og þar að auki þá voru torfærutækin og vélhjólin ekki skráð og því ekki með skráninganúmer.

Anna Kristinsdóttir ekki sæti á lista Framsóknarflokksins

Anna Kristinsdóttir hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista Framsóknarflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér fyrir stundu. Yfirlýsing Að loknu prófkjöri framsóknarmanna sem fram fór 28. janúar sl. vegna komandi borgarstjórnarkosninga ákvað ég að taka mér tíma til að ígrunda niðurstöðuna og mína stöðu. Það er engin launung á því að niðurstöður prófkjörsins urðu mér vonbrigði enda hafði ég stefnt á og óskað eftir stuðningi í fyrsta sæti listans. Ég hef undanfarin tæp fjögur ár sem borgarfulltrúi lagt mig fram við að vinna af heilindum og samviskusemi að málefnum Reykjavíkurlistans sem Framsóknarflokkurinn hefur verið hryggsúlan í. Niðurstöður prófkjörsins eru hinsvegar skýrar og hef ég í framhaldi af því ákveðið að taka ekki sæti á lista Framsóknarflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum heldur snúa mér að öðrum verkefnum. Um leið og ég tilkynni þetta vil ég þakka öllum þeim sem veittu mér stuðning í prófkjörinu og óska jafnframt meðframbjóðendum mínum velfarnaðar. Reykjavík, 6. febrúar 2006 Anna Kristinsdóttir

Samþykkt að nýta sér heimildir til launahækkunar

Bæjarráð Akureyrarbæjar og Dalvíkurbyggðar hafa samþykkt að nýta sér heimildir sem samþykktar voru af Launanefnd sveitafélaga 28. janúar síðastliðinn. Um er að ræða tímabundnar launagreiðslur umfram gildandi kjarasamninga við stéttafélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Félag leikskólakennara.

Ráðist á höfuðstöðvar ferjufyrirtækis

Til óeirða kom í morgun fyrir utan höfuðstöðvar egypsks fyrirtækis sem gerði út ferju sem sökk í Rauðahaf fyrir helgi. Um 1400 farþegar og rúmlega 200 manna áhöfn voru um borð þegar ferjan sökk og er 800 enn saknað.

Líbanir biðjast afsökunar

Líbanski innanríkisráðherrann hefur sagt af sér vegna árásar mótmælenda á ræðismannsskrifstofu Dana í Beirút, höfuðborg Líbanon. Líbönsk stjórnvöld hafa beðið Dani afsökunar á árásinni en reiðir mótmælendur kveiktu í vegna skopmynda af Múhameð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum fyrir nokkrum mánuðum.

Fyrsti andlitságræðsluþeginn fyrir almennings sjónir

Fyrsti andlitságræðsluþegi í heimi kom í morgun fram fyrir almennings sjónir í fyrsta sinn. Isabelle Dinoire, er tæplega fertug frönsk kona, móðir tveggja barna. Isabelle skaddaðist alvarlega í andliti þegar hundur hennar réðst á hana. Hún gekkst undir andlitságræðsluna í lok nóvember í fyrra og að sögn lækna hafa aðgerð og eftirmeðferð gengið framar vonum.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar yrði aðskilin

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar yrði alveg aðskilin frá starfssemi Varnarliðsins, þótt hún tæki við af þyrlusveit þess. Engin knýjandi þörf væri að flytja hana frá Reykjavík til Keflavíkur, ef til yfirtökunnar kæmi.

60 teknir fyrir of hraðan akstur

Tæplega 60 manns voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi um helgina. Einn ökumaðu rmældist á rúmlega 130 km hraða en hann var á pallbíl og samkvæmt lögum má hann ekki keyra hraðar en á 80 km hraða. Hann á von á hárri sekt vegna athæfisins eða um 40 þúsund króna sekt. Greiði hann innan mánaðar lækkar sektin um 10 þúsund krónur.

Hákarl tefur sundkeppni

Stöðva þurfti eina stærstu sundkeppni í Ástralíu í gær þegar þriggja metra langur hákarl fór að elta þátttakendur, þeim til mikillar skelfingar. Keppnin fór fram undan strönd Sydney var um það bil hálfnuð þegar vart varð við hákarlinn.

Skotið á danska hermenn í Írak

Skotið var á danska hersveit í írösku borginni Basra í gær. Danska útvarpið greinir frá því að sveitin hafi verið að aðstoða hóp barna sem ekið hafi verið á þegar skotið var á hermennina.

Lyfjafræðideild HÍ með bestu skil á einkunnum

Skrifstofustjórar og deildarforsetar lyfjafræðideildar, viðskipta- og hagfræðideildar og verkfræðideildar við Háskóla Íslands, fengu á föstudag afhentar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu við einkunnaskil. Viðurkenningarnar koma frá fulltrúum stúdenta við Háskóla Íslands en það hefur lengi verið baráttumál stúdenta að einkunnaskil séu innan þeirra marka sem lög og reglur skólans kveða á um.

Heimsafli á grásleppu minnkar um fjórðung á milli ára

Heimsafli á grásleppu minnkaði um fjórðung frá árinu 2004 til 2005. Þetta kom fram á fundi fulltrúa veiðimanna og framleiðenda grásleppukavíars, LUROMA, sem haldin var í London í síðustu viku. Grásleppuhrogn voru verkuð í rúmlega 32. þúsund tunnur á síðasta ári sem er um 10 þúsund tunnum minna en árið 2004.

Harður árekstur í Keflavík

Mjög harður árekstur varð í gær á mótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar í Keflavík. Þar skullu saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að beita þurfti klippum til að ná ökumanni annarrar bifreiðarinnar lausum.

Bæjarstjórnarfulltrúum boðið á kynningu í leikskólum

Félag leikskólakennara í Vestmannaeyjum hefur boðið fulltrúum úr bæjarstjórn, fræðslufulltrúa og formanni fræðslu- og menningarráðs að koma og kynna sér starfið á leikskólum bæjarins. Kynningin verður 14. febrúar næstkomandi og mun standa yfir í fjóra tíma.

Mikill áhugi fyrir sjóstangveiði

Mikill áhugi virðist verða á sjóstangveiðiferðum hjá vestfirska fyrirtækinu Fjord fishing en nú þegar hafa um 800 manns bókað í sjóstangsveiðir í sumar. Von er á fyrstu hópunum til Tálknafjarðar í apríl en til Súðavíkur í maí.

Gistinóttum í desember fjölgar um rúm 13% á milli ára

Gistinótum á hótelum í desember fjölgaði um rúm 13% í fyrra miðað við í desember árið 2004. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum 14% en gistinóttum fækkaði á Norðurlandi og á Austurlandi.

Kosningar á Haiti

Íbúar á Haítí ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa sér forseta og þing. Um 30 sækjast eftir forsetaembættinu og mörg hundruð manns ætla sér á þing. Öryggisgæsla í landinu er mikil og annast 9 þúsund friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna kosningaeftirlit.

Sjá næstu 50 fréttir