Innlent

Harður árekstur í Keflavík

Mjög harður árekstur varð í gær á mótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar í Keflavík. Þar skullu saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að beita þurfti klippum til að ná ökumanni annarrar bifreiðarinnar lausum. Útkall barst Neyðarlínunni kl. 18:11 í gærkvöldi og voru lögregla, sjúkrabíll og tækjabíll Brunavarna Suðurnesja send á vettvang. Tvennt var slasað og voru bæði flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar var tekin ákvörðun um að senda einn slasaðan á sjúkrahús í Reykjavík til frekari skoðunar. Ekki er vitað um alvarleika áverka. Báðar bifreiðarnar þurfti að fjarlægja af vettvangi með dráttarbíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×