Margmiðlunartækni í landnámsbæ 6. febrúar 2006 20:15
Margmiðlunartækni verður notuð til hins ítrasta þegar landnámsbærinn í Hótel Reykjavík Centrum verður opnaður almenningi í maí. Meðal annars má sjá landnámsmenn ganga um og rota geirfugla sér til matar. Ekki er ólíklegt að Ingólfur Arnarson hafi verið meðal þeirra. Elsta mannanna verk sem vitað er um í Reykjavík er veggur sem öskulög sýna að hafði þegar verið uppi standandi árið áttahundruð sjötíu og eitt. Við hann er svo langhús mikið sem talið er að hafi verið reist um níuhundruð og þrjátíu. Rústir þessar fundust árið 2001 þegar verið var að grafa grunn í Aðalstræti 16 fyrir Hótel Reykjavík. Ákveðið var að varðveita rústirnar í kjallara þess og opna þar sýningarsal. Þar verður margmiðlunartækni beitt til hins ítrasta, til þess að gera sýninguna líflega. Á veggnum umhverfis rústirnar verða myndir sem sýna umhverfi Reykjavíkur eins og það var á þeim tíma sem þarna var byggð. Staðarlíkan verður á stóru borði og með því að benda á mismunandi staði á því koma fram upplýsingar um viðkomandi. Þá verða glerveggir á ýmsum stöðum í safninu og við það að ganga framhjá þeim koma fram myndir, bæði úr húsinu sjálfu og utan þess. Sjá má langeld loga og fólk að störfum. Einnig má sjá fólk utan dyra, meðal annars við veiðar á geirfuglum, en mikið af geirfuglabeinum fannst í öskuhaug skammt frá húsinu. Þetta er í fyrsta sinn sem rústir úr torfi eru forvarðar til sýningar innanhúss. Tveir danskir fornleifafræðingar hjálpuðu til við að finna réttu efnin og réttu aðferðina til þess að binda torfleifarnar svo þær molni ekki.
Fréttir Innlent Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni Sjá meira