Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Essó lækkar bensínverð Bensínverð lækkar um eina og hálfa krónu líterinn á afgreiðslustöðvum Essó í dag og líterinn af dísil- og gasolíu lækkar um krónu. Eftir þessa breytingu verður algengt verð í sjálfsafgreiðslu á höfuðborgarsvæðinu 111,70 krónúr. 25.1.2006 11:35
Góð kjörsókn í Palestínu Kjörsókn í Palestínu hefur verið góð það sem af er degi en þar kjósa landsmenn nýtt þing, í fyrsta sinn í tíu ár. Útlit er fyrir að Hamas-hreyfingin fái nánast jafnmikið fylgi og Fatah-flokkur Mahmouds Abbas, forseta heimastjórnarinnar. 25.1.2006 11:27
„Fráleit byggðastefna“ Það er fráleit byggðastefna að ráðast í stórfellda uppbyggingu áliðnaðar á Suðvesturlandi á undan uppbyggingu álvers á Norðurlandi. Þetta segir í nýrri ályktun bæjarstjórnar Húsavíkurbæjar. 25.1.2006 10:30
Ákærð fyrir að aka ölvuð á unnusta sinn Ríkissaksóknari hefur ákært tvítuga konu fyrir alvarlega líkamsárás fyrir að aka ölvuð og af ásetningi á unnusta sinn og slasa hann. 25.1.2006 10:18
Walt Disney kaupir Pixar Walt Disney hefur gert samning um kaup á teiknimyndafyrirtækinu Pixar á 7, 4 milljarða dollara eða sem samsvarar 455 milljörðum íslenskra króna og er áhætlað að öll hlutabréf Pixar verði komin í eigu Disney um mitt þetta ár. Ed Catmull verður forstjóri hins nýja sameinaða fyrirtækis Disney og Pixar. Steve Jobs einn af stofnendum Apple verður framkvæmdastjóri og formaður. 25.1.2006 09:15
Fylgi Fata og Hamas flokkanna hnífjafnt Kannanir benda til að fylgi Fata, flokks Abbasar forseta Palestínu, og Hamas, sem Ísraelsmenn telja hryðjuverkasamtök, sé hníf jafnt, en ellefu flokkar eru í framboði í þingkosningunum í Palestínu í dag.Sumir óttast að þar með verði friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs enn óljósari en aðrir benda á kosti þess að Hamas berjist fyrir markmiðum sínum á stjórnmálasviðinu í stað þess að grípa til hermdarverka. 25.1.2006 09:15
Chris Penn fannst látinn Leikarinn Chris Penn fannst látinn við fjölbýlishús í Santa Monica í Kaliforníu síðdegis í gær. Chris Penn er bróðir hins þekkta leikara Sean Penn. Ekki er enn vitað hvernig hann lést. Í dag átti að frumsýna síðustu mynd Chris sem hann lék í ,The Darwin Awards á Sundance kvikmyndahátíðinni. 25.1.2006 09:01
Fjöldi manns mótmælti áætlun ráðamanna á Hahítí Um fjögur hundruð mótmælendur gengu um götur fátækrahverfisins Cæt Solei á Haítí í gær til að mótmæla þeirri áætlun ráðamanna að flytja kjörstaði í forsetakosningunum sem fram undan eru í landinu út fyrir hverfið. Skotbardagar eru nánast daglegt brauð í hverfinu, og þá oftast á milli glæpaklíka og friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna, auk þess sem mannrán eru afar tíð. 25.1.2006 09:00
Mannleg mistök orsökuðu hrun byggingarinnar Stjórnvöld í Kenýa greindu frá því í gær að eigandi nýbyggingarinnar, sem hrundi til grunna í Nairóbí, höfuðborg Kenýa, á mánudag, hafi legið svo mikið á að koma húsinu upp að hann hafi skipað verkamönnunum að byrja á nýrri hæð, áður en steypan hafi þornað á hæðunum fyrir neðan. 25.1.2006 08:44
Ísraelar verða að gefa eftir hluta af Vesturbakkanum Ísraelar verða að gefa eftir hluta af Vesturbakkanum til að tryggja meirihlutasamfélag gyðinga á svæðinu. Þetta sagði sitjandi forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, í fyrstu opinberu ræðu sinni eftir að hann tók við embætti á hinni árlegu Herzliya-ráðstefnu í Ísrael í gær. 25.1.2006 08:15
Tveir teknir vegna ölvunaraksturs Lögreglan í Kópavogi stöðvaði tvo ölvaða ökumenn í nótt og munu þeir báðir missa ökuréttindin. Svo stöðvaði hún tvo til viðbótar, báða blá edrú, en báða réttindalausa, eftir að hafa misst ökuskírteinin vegna ölvunaraksturs.Það dregst því eitthvað á langinn að þeir fái ökuréttindi á ný, því þeir höfðu ekki fengis syndaaflausn. 25.1.2006 08:12
Búið að aflýsa 315 ferðum á vegum SAS Danski armur SAS flugfélagsins hefur aflýst öllu flugi, eða 315 ferðum samtals í dag vegna launadeilu flugmanna og félagsins, en flug félagsins var að mestu lamað í gær af sömu orsökum. Tugir þúsunda farþega, þeirra á meðal margir Íslendingar, hafa lent í umtalsverðum erfiðleikum vegna verkfallsins og ekki er séð fyrir endan á því. 25.1.2006 08:09
Viðskiptahalli við útlönd áætluð 13% í ár Gert er ráð fyrir að vöruskiptahallinn við útlönd verði 13% í ár, í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. Það er aðeins tveimur prósentustigum minni halli en á nýliðnu ári, sem var met ár á þessu sviði,en svo á hallinn að minnka hratt á þarnæsta ári, eða niður í 6%. 25.1.2006 08:05
Útgjöld aukast um sex prósent umfram ráðstöfunartekjur Útgjöld heimilanna hafa aukist um sex prósent umfram ráðstöfunartekjur þeirra frá tímabilinu 2001-2003 til tímabilsins 2002-2004 samkvæmt rannsóknum Hagstofunnar. Þær leiða enn fremur í ljós að um gæludýr eru á þriðjungi heimila í landinu. 25.1.2006 08:00
Til Íslands fyrir aðeins 987 krónur með Iceland Express Ískalt tilboð til Reykjavíkur er fyrirsögn á vefnum Chep Flights en þar er Iceland Express að bjóða flugfar til íslands frá Stansted flugvelli í London á aðeins 9 pund aðra leiðina sem samsvarar um 987 íslenskum krónum. . 25.1.2006 07:34
Flughált á Steingrímsfjarðarheiði Vegagerðin varar við flughálku á Steingrímsfjarðarheiði. Hálka og hálkublettir eru einnig á sunnanverðum Vestfjörðum og á Eyrarfjalli. Hálka er á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði og þá er einnig hálka og hálkublettir víða á Norðausturlandi. Hálkublettir eru á milli Kvískers og Víkur í Mýrdal. Þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum. 25.1.2006 07:12
Stefnt að mikilli uppbyggingu umhverfis Hlemm Íbúum á svæðum umhverfis Hlemm gæti fjölgað um allt að þrjú þúsund á næstu árum ef nýtt deiliskipulag verður að veruleika. Fyrstu reitirnir koma að öllum líkindum til uppbyggingar strax á þessu ári. 24.1.2006 23:45
Setbergsskóli stækkaður Hafnarfjarðarbær tók formlega í notkun nýbyggingu við Setbergsskóla. Fánar blöktu við hún við skólann enda verið að taka í notkun nýja viðbyggingu við hann. Í henni er tvískiptanlegur íþróttasalur ásamt búning- og baðaðstöðu, fyrirlestrarsalur, þrjár kennslustofur, hópherbergi ásamt tilheyrandi rýmum. Með byggingunni er síðasta áfanganum að einsetningu grunnskólanna í Hafnarfirði lokið. 24.1.2006 23:30
Mengun vegna stækkunar álvers má ekki aukast Mengun vegna álvers í Straumsvík má ekki aukast að mati Lúðvíks Geirssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Afstaða bæjarstjórnar er skýr hvað þetta varðar. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan telur óhjákvæmilegt að einhver mengunaraukning verði við stækkunina. 24.1.2006 22:47
Íslensk stjórnvöld höfðu ekki vitund um mannrán og fangaflug Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki haft neina vitneskju um fangaflug á vegum Bandaríkjastjórnar en segist ekki geta fullyrt neitt um hvort slíkt hafi átt sér stað án þeirra vitneskju. Hann segir að íslensk stjórnvöld muni ekki leita frekari svara Bandaríkjamanna og telur ekki ástæðu til þess að þau sendi sjálfstæða fyrirspurn um málið til bandarískra stjórnvalda. 24.1.2006 21:59
Lægsta boð í tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar 727 milljónir króna. Tilboð voru opnuð í dag í tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar og reyndist lægsta boð 727 milljónir króna. Til stendur að sporna gegn hægri umferð á þessum kafla með fjölgun akreina milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika úr tveimur í fjórar. 24.1.2006 21:44
Enn fleiri uppsagnir á leikskólum í Kópavogi Tugir ófaglærðra starfsmanna á leikskólum Kópavogs hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Átta starfsmenn leikskólans Dals skiluðu inn uppsagnarbréfum í dag. Myndmenntarkennari í skólanum fær um það bil sextíu þúsund krónum hærri laun í Reykjavík. 24.1.2006 21:36
Tíunda hvert barn í leikskólum Reykjavíkur af erlendum uppruna Tíunda hvert barn í leikskólum Reykjavíkur er af erlendum uppruna. Þessi börn eiga rætur að rekja til áttatíu og tveggja þjóða í öllum heimsálfum. Reykjavíkurborg kynnti fjölmenningarstefnu leikskóla Reykjavíkur í dag, en vonir eru bundnar við að þetta átak dragi úr brottfalli þessara barna úr skóla síðar á lífsleiðinni. 24.1.2006 21:28
Nýr líkbrennsluofn ekki keyptur fyrr en eftir tíu ár Kirkjugarðar Reykjavíkur telja ekki ástæðu til að kaupa nýjan líkbrennsluofn, fyrr en eftir tíu ár, þrátt fyrir að sá gamli sé að verða sextugur. Á síðustu árum hefur tekist að draga verulega úr brunalykt í nágrenni líkbrennslunnar með endurbótum á ofninum og með því að byrja líkbrennslu fyrr á daginn þegar flestir eru í fastasvefni. 24.1.2006 21:20
Háttsettir írakskir lögreglumenn grunaðir um aðild að hryðjuverkum Breskir og írakskir hermenn handtóku í dag fjórtán háttsetta lögreglumenn í borginni Basra. Þeir eru taldir eiga þátt í mikilli fjölgun hryðjuverka í borginni undanfarnar vikur. 24.1.2006 20:51
Líknardráp leyfð á Íslandi? Á Íslandi er dauðvona sjúklingum hjálpað til að lina þjáningar og stundum er tekin ákvörðun um að hætta læknismeðferð og sjúklingum leyft að deyja. Aðstoðarlandlæknir segir að það sé þó langur vegur frá líknardrápi. Hollensk kona sem býr hér á landi segir það einungis tímaspursmál hvenær líknardráp verði leyft á Íslandi. Faðir hennar fékk aðstoð við að binda enda á líf sitt á hollensku sjúkrahúsi. 24.1.2006 20:37
Fangar líklega fluttir til pyntinga með vitund stjórnvalda í Evrópu Rannsóknarnefnd Evrópuráðsins telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Bandaríkjamenn hafi flutt fanga á milli landa til þess að láta pynta þá. Nefndin telur mjög líklegt að ríkisstjórnir í Evrópuríkjum hafi vitað af þessu. 24.1.2006 20:23
Mengunarkvótinn uppurinn Stækkun álversins í Straumsvík klárar það sem eftir er af mengunarkvóta Íslands, samkvæmt Kyoto-samningnum. Til að byggja fleiri álver þarf Ísland því annaðhvort að biðja um frekari undanþágur við endurskoðun samningsins eða kaupa mengunarkvóta frá öðrum ríkjum. 24.1.2006 20:07
Álver í Straumsvík tekið fram yfir álver í Helguvík Stjórn Landsvirkjunar tók stækkun álversins í Straumsvík fram yfir nýtt álver í Helguvík þar sem Alcan bauðst til að greiða hærra verð fyrir raforkuna. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin án samráðs við sig. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir þetta hins vegar hafa verið pólitíska ákvörðun. 24.1.2006 19:55
Fyrirhugaðar framkvæmdir umfangsmeiri en þær yfirstandandi Í hálffimm fréttum KB banka kemur fram að allt bendi til þess að álversframkvæmdir muni áfram knýja hagvöxt á næstu árum og gengi krónunnar haldist því hærri en ella. Þá sé efnahagslegt umfang fyrirhugaðra álversframkvæmda eftir árið 2008 að öllum líkindum meiri en af yfirstandandi byggingu Fjarðaráls og stækkunar Norðuráls. 24.1.2006 19:14
Ekki vegið að starfsheiðri umferðareftirlitsmanna Landssamband lögreglumanna sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem segir að fullyrðing Vegagerðarinnar þess eðlis að landssambandið hafi vegið að starfsheiðri og trúverðugleika umferðareftirlitsmanna sé með öllu órökstudd. Landssambandið neitar því að málflutningur þess, um framkomið frumvarp til breytinga á umferðarlögum, byggist á misskilningi en því hélt talsmaður Vegagerðarinnar fram í gær. 24.1.2006 17:17
Ferðum SAS frá Kastrup aflýst fram á fimmtudag SAS í Danmörku tilkynnti fyrr í dag að félagið yrði að aflýsa öllum ferðum frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn í dag og á morgun vegna verkfallsaðgerða flugmanna. 24.1.2006 16:30
Alitalia aflýsir um 250 flugferðum Útlit er fyrir að ítalska flugfélagið Alitalia þurfi að aflýsa á þriðja hundrað flugferðum í dag vegna skyndiverkfalla starfsmanna. Aflýsa þurfti 250 flugferðum í gær. Síðan á fimmtudag hafa starfsmenn mótmælt fyrirhuguðum skipulagsbreytingum hjá félaginu. 24.1.2006 16:26
Sterk staða krónunnar hefur komið hátækniiðnaðinum illa Í ávarpi sínu í dag á UT-deginum sagði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, að sterk staða krónunnar hafi að undanförnu komið útflutnings- og samkeppnisgreinum illa, þar á meðal hátækniiðnaðinum. Vísbendingar séu þó um að gengi krónunnar muni gefa eftir á þessu ári. 24.1.2006 16:15
Flughálka á Kjósarskarði, í Barðastrandarsýslu og á Mjóafjarðarheiði Vegagerðin varar við hálku á nokkrum stöðum á landinu. Flughálka er á Kjósarskarði, í Barðastrandarsýslu frá Brjánslæk að Bjarkarlundi og á Mjóafjarðarheiði. Að öðru leyti er þokkaleg vetrarfærð um allt land segir í tilkynningu Vegagerðarinnar. 24.1.2006 15:53
Þriðjungur starfsmanna á Dal hefur sagt upp Um þriðjungur starfsmanna leikskólans Dals í Kópavogi, eða tíu manns, hefur sagt upp störfum vegna óánægju með þá bið sem orðið hafi á því að bæta kjör þeirra. Sóley Gyða Jörundsdóttir, leikskólastjóri á Dal, segir fólk orðið langþreytt á biðinni en eins kunnugt er er ekki að vænta tillögu frá Launanefnd sveitarfélaga fyrr en 10. febrúar. 24.1.2006 15:02
Skeljungur hækkar einnig Skeljungur hækkaði nú síðdegis verð á bensíni um eina krónu og tuttugu aura lítrann. Verð á dísilolíu hækkaði um eina krónu. Olíufélagið Essó hækkaði bensínverð um eina krónu og 50 aura á miðnætti og Olís hækkaði um sömu upphæð í morgun. 24.1.2006 14:55
Hundruð manna um allan heim læra íslensku á Netinu Hundruð manna um allan heim leggja stund á íslenskunám á Netinu. Námið kallast Icelandic Online og er þróað við Háskóla Íslands. Mikill áhugi er fyrir íslenskunáminu og eru dæmi þess að nemar hafi klárað námi og síðan komið til landsins til að læra málið enn betur. 24.1.2006 13:59
Átta manns segja upp á Leikskólanum Dal í Kópavogi Það stefnir í enn meiri vandræði hjá Leikskólanum Dal í Kópavogi og virðist sem starfsmönnum lítist ekki á þá biðstöðu sem kom út á launaráðstefnu sem haldin var 20 janúar síðastliðin. 24.1.2006 13:31
Bráðabirgðaskýrsla um fangaflug leyniþjónustu Bandaríkjanna kynnt Dick Marty, þingmaður frá Sviss, kynnti í morgun bráðabirgðaskýrslu sína fyrir Evrópuráðið um fangaflug leyniþjónustu Bandaríkjanna og ólöglega vistun meintra hryðjuverkamanna í leynilegum fangelsum í Evrópu. 24.1.2006 12:52
Ríkisstjórnin í Kanada fallin Þrettán ára stjórn Frjálslynda flokksins í Kanada er lokið en Íhaldsflokkurinn fór með sigur af hólmi í þingkosningum þar í landi í gær. 24.1.2006 12:19
Tímabært að refsa Írönum Það er löngu tímabært að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna refsi Írönum vegna kjarnorkuáætlana sinna. Þetta sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær. Hún sagði mikilvægt að þjóðir heims stæðu saman í þessu máli. 24.1.2006 12:16
Eldar geisa nú í fjórum fylkjum í Ástralíu. Tekist hefur að slökkva elda í Suður-Ástralíu, en þeir breiðast enn út um þurrt gróðurlendi í Victoriu, Vestur-Ástralíu og í eyríkinu Tasmaníu. 24.1.2006 12:12
Tugir flugmanna hjá SAS í Noregi tilkynntu um veikindi í morgun Tugir flugmanna hjá SAS í Noregi tilkynntu um veikindi í morgun og hefur yfir sjötíu brottförum frá Gardermoen-flugvelli verið frestað. Um 150 danskir flugmenn SAS efndu í gær til skyndiverkfalls vegna orðróms um uppsagnir og hugsanlegar kjaraskerðingar. 24.1.2006 12:10
Má rífa öll húsin á svæðinu Fyrirhugað er að byggja allt að 240 íbúðir á Rauðarárholti í Reykjavík. Samkvæmt deiliskipulagstillögu má rífa öll húsin á svæðinu sem standa þar nú. 24.1.2006 12:04