Fangar líklega fluttir til pyntinga með vitund stjórnvalda í Evrópu 24. janúar 2006 20:23 Mynd/Reuters
Rannsóknarnefnd Evrópuráðsins telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Bandaríkjamenn hafi flutt fanga á milli landa til þess að láta pynta þá. Nefndin telur mjög líklegt að ríkisstjórnir í Evrópuríkjum hafi vitað af þessu. Svissneski þingmaðurinn Dick Marty hafði orð fyrir rannsóknarnefnd Evrópuráðsins, á blaðamannafundi sem haldinn var í dag. Hann sagði að á þessu stigi væru engin formleg sönnunargögn sem sýndu svo ekki yrði um villst að Bandaríkjamenn hefðu flutt fanga á milli landa til þess að láta þvinga upp úr þeim upplýsingar. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að á undanförnum árum kunni yfir eitthundrað grunaðir menn að hafa verið fluttir til landa þar sem biðu þeirra pyntingar eða slæm meðferð. Dick Marty, þingmaður, segir að svo virðist sem í sumum tilfellum hafi bandaríska leyniþjónustan, CIA, rænt fjölmörgum mönnum á götu úti í öðrum löndum en Bandaríkjunum og flutt þá í leynileg fangelsi. Rannsóknarnefndin fékk loftmyndir af flugvöllum í Rúmeníu og Póllandi, þar sem mannréttindasamtök hafa sagt að gætu verið leynileg fangelsi. Dick Marty sagði að þeir hefðu enn engar óyggjandi sannanir fyrir því að fangelsin væru þar í raun, en stjórnvöld í bæði Rúmeníu og Póllandi hafa neitað þessum ásökunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira