Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hjúkrurnarkona dæmd fyrir að rífa neglur af sjúklingum Sumir naga neglurnar þegar þeir þjást af spennu eða streitu. Japönsk hjúkrunarkona gekk hins vegar aðeins lengra en hún var í gær dæmd til að dúsa í fangelsi í þrjú ár og átta mánuði fyrir að rífa neglur af fingrum og tám sjúklinga í sinni umsjá. 24.1.2006 09:09
Áætlunarflug SAS hefst líklega um hádegisbil Horfur eru á að áætlunarflug SAS-flugfélagsins hefjist af fullum krafti um hádegisbil eftir verkfallsaðgerðir flugmanna í gær sem ollu því að fjölmörg flug voru felld niður. 24.1.2006 08:34
Dauðadóms krafist yfir Ástrala vegna fíkniefnasmygls Dauðadóms er krafist yfir áströlskum manni sem kemur fyrir rétt í Indónesíu í dag en hann var handtekinn ásamt átta öðrum Áströlum á síðasta ári fyrir að ætla að smygla rúmlega átta kílóum af heróíni til heimalandsins. 24.1.2006 08:31
Nýr dómari skipaður í réttarhöldunum yfir Saddam Nýr dómari hefur verið skipaður í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnnum hans. Dómarinn, Raouf Abdul Rahman að nafni, er sextíu og fjögurra ára gamall Kúrdi og hefur ekki komið áður að málinu. 24.1.2006 08:00
Maður fannst á lífi í rústunum Maður fannst á lífi, ósærður, í rústum húss sem hrundi til grunna í Nairóbí í Kenýa í gær. Að minnsta kosti sex manns hafa fundist látnir í rústunum og yfir sjötíu eru slasaðir. 24.1.2006 08:00
Palestínumaður veginn og tveir særðir Ísraelsher skaut Palestínumann til bana og særði tvo til viðbótar nærri bænum Ramallah á Vesturbakkanum í gærkvöld. Frá þessu greindu palestínskir læknar. Einn hinna særðu er í lífshættu en ekki er vitað hvers vegna hermennirnir skutu á mennina. 24.1.2006 07:38
Stephen Harper nýr forsætisráðherra Kanada Kanadíski Íhaldsflokkurinn fór með sigur af hólmi í þingkosningunum á mánudag en fékk þó ekki hreinan meirihluta á þingi. Stephen Harper verður því næsti forsætisráðherra landsins og tekur við af vinstri manninum Paul Martin. 24.1.2006 07:33
Hestar og vélhjól fara ekki saman. Hestamenn á Hvolsvelli eru ekki hressir þessa dagana þar sem akstur torfæruhjóla hefur aukist verulega á reiðvegum þeirra. Hestamenn hafa kvartað mikið útaf þessu við lögregluna á staðnum, en það er stórhættulegt að blanda þessum reiðskjótum saman. 24.1.2006 07:27
30 látast í lestarslysi í Svartfjallalandi Að minnsta kosti þrjátíu manns létust og yfir 150 slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu í Svartfjallalandi í gær. Talið er að lestin hafi farið út af sporinu þegar bremsur hennar biluðu og valt hún þrjátíu metra ofan í gil með fyrrgreindum afleiðingum. 24.1.2006 07:21
Pælingar Halldórs Laxnes um kynhneigð á þriðja áratuginum Pælingar Halldórs Laxnes um kynhneigð á þriðja áratuginum er aðal umræðuefni á fyrirlestri sem haldin verður í Háskóla Íslands næstkomandi föstudag á vegum Samtakana 78. 24.1.2006 07:09
Óvíst með loðnukvótann Ekkert liggur enn fyrir um það hvort, eða hvenær kvóti verður gefinn út fyrir loðnuvertíðina í vetur þar sem Hafrannsóknastofnun hefur ekki enn náð nægilegum stofnmælingum til að geta metið veiðiþol stofnsins. Skip hafa nú orðið vör við loðnu úr af Norðurlandi og austur fyrir Langanes, og nokkur skip, sem hafa takmarkaðar veiðiheimildir gegn því að stunda leit, hafa fengið slatta hér og þar, en loðnan hefur verið full af átu og ekki hentað til fyrstingar til manneldis. 24.1.2006 07:07
Bílvelta á Gullinbrú Kona var flutt á slysadeild eftir að bíll hennar valt á Gullinbrú í Grafarvogi um klukkan ellefu í kvöld. Bíll konunnar skall á girðingu sem liggur á milli akreina á brúnni. 23.1.2006 23:52
Allt að 54% verðmunur á matarkörfunni Það getur munað yfir helmingi á matvörukörfunni eftir því hvar verslað er. Þetta kemur fram í verðlagskönnun sem ASÍ gerði í gær. Ódýrust var vörukarfan í verslun Bónus þar sem hún kostaði tæpar 3.300 krónur en dýrust var hún í verslun Tíu-ellefu en þar var vörukarfan á rúmar 5.000 krónur. 23.1.2006 22:46
Kosningafundir á Vesturbakkanum og Gasaströndinni Mörg þúsund Palestínumenn tóku þátt í kosningafundum sem Fatah-samtök Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, Hamas-samtökin og samtökin Heilagt stríð boðuðu til á Vesturbakkanum og Gasaströndinni í kvöld. Nú er aðeins rúmur einn og hálfur sólahringur þar til Palestínumenn ganga að kjörborðinu og kjósa sér þing. 23.1.2006 22:46
Fimmtíu milljarða króna þarf til neyðaraðstoðar til handa konum og börnum árið 2006 Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna UNICEF, þarf um fimmtíu milljarða króna árið 2006 til að hjálpa börnum og konum í aðstæðum sem samtökin skilgreina sem neyðarástand. Fyrirhugað er að rúmur þriðjungur þeirrar upphæðar fari til hjálpar börnum í Súdan en alls segja samtökin neyðarástand ríkja á 29 svæðum í heiminum. 23.1.2006 22:45
Sprenging í þjóðminjasafninu í Helsinki Miklar skemmdir urðu þegar sprenging varð í finnska þjóðminjasafninu í Helsinki í dag. Engan sakaði. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað olli sprengingunni. 23.1.2006 22:44
Jarðskjálfti upp á 6 á Richter í Kólumbíu Jarðskjálfti upp á sex Richter skók vesturströnd Kólumbíu í kvöld. Skjálftamiðjan var 255 kílómetra vest-norð-vestur af borginni Madellin á 26 kílómetra dýpi. 23.1.2006 22:43
Oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík segir ekkert í hendi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, segir ekkert í hendi þótt ný skoðanakönnun sýni að nærri fjórir af hverjum tíu vilji að hann verði næsti borgarstjóri. Dagur B. Eggertsson, sem kemur næstur á eftir Vilhjálmi í könnunninni, telur sig eiga talsvert inni og segir Samfylkinguna geta stöðvað sókn sjálfstæðismanna í borginni. 23.1.2006 22:38
Nær allir starfsmenn Icelandic Asia segja upp 21 starfsmaður Icelandic Asia, sem áður hét Sjóvík, hefur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu frá og með deginum í dag. Eftir eru 4 starfsmenn hjá fyrirtækinu. 23.1.2006 22:33
Áhafnarekstur Eimskipa til Færeyja Eimskip hefur ákveðið að skrá allan áhafnarekstur sinn í Færeyjum á næstu vikum en í Færeyjum bjóða stjórnvöld fyrirtækjum á þessu sviði endurgreiðslu á tekjuskattsgreiðslum áhafna upp á 28%. Vélstjórar eru óhressir með þróun mála og hafa ítrekað farið fram á það við íslensk stjórnvöld að þau grípi til aðgerða. 23.1.2006 22:26
Gömlu bækistöðvar Landhelgisgæslunnar hugsanlega seldar Á næstu dögum verður ákveðið hvort ríkið selji lóðina sína við Seljaveg þar sem Landhelgisgæslan hefur haft bækistöðvar sínar í rúmlega hálfa öld. Landhelgisgæslan flutti þaðan um helgina og er óvíst hvort ríkið hafi þörf fyrir húsnæðið áfram. 23.1.2006 22:22
40 milljóna króna styrkur til tækjakaupa Íslandsbanki veitti í dag Krabbameinsfélagi Íslands 40 milljóna króna styrk til kaupa á nýju stafrænu röntgentæki sem nýtist til forvarnarstarfs Krabbameinsfélagsins. 23.1.2006 22:11
Þingmaður Framsóknarflokks ræðst harkalega að forystu flokksins Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins ræðst harkalega á forystu flokksins á vefsíðu sinni í dag og sakar hana um sýndarlýðræði. Yfirþyrmandi samansafn helstu valdamanna flokksins hafi lýst stuðningi við Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann forsætisráðherra og frambjóðanda í forystusætið í Reykjavík. 23.1.2006 22:05
Eimskip skráir skip sín í Færeyjum Eimskip hefur ákveðið að skrá allan áhafnarekstur sinn í Færeyjum á næstu vikum en í Færeyjum bjóða stjórnvöld fyrirtækjum á þessu sviði endurgreiðslu á tekjuskattsgreiðslum áhafna upp á tuttugu og átta prósent. Vélstjórar eru óhressir með þróun mála og hafa ítrekað farið fram á það við íslensk stjórnvöld að þau grípi til aðgerða. 23.1.2006 22:04
Vegagerðin og Landssamband lögreglumanna í hár saman Talsmaður Vegagerðarinnar segir Landssamband lögreglumanna vega að starfsheiðri umferðareftirlitsmanna. Segir hann landssambandið misskilja fyrirhugaðar breytingar á umferðareftirliti Vegagerðarinnar. 23.1.2006 21:58
Slasaðist í Bláfjöllum Stúlka var flutt á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir að hafa slasað sig í Bláfjöllum. Slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan átta í kvöld og kvartað stúlkan undan verkjum í mjöð. 23.1.2006 21:20
Ferðaáætlun 20 þúsund farþega SAS-flugfélagsins í Danmörku og Noregi hefur raskast í dag þar sem flugmenn félagsins í báðum löndum hafa ýmist lagt niður vinnu eða tilkynnt sig veika. Flugmenn vilja með þessum aðgerðum mótmæla niðurskurði hjá félaginu. 23.1.2006 21:09
Stjórnarskipti í Kanada? Útlit er fyrir að 13 ára valdatíð Frjálslynda flokksins í Kanada sé á enda en þingkosningar standa nú yfir í landinu. 23.1.2006 21:06
Kínverskur verktaki býður í Héðinsfjarðargöng Kínverskur járnbrautaverktaki, sem hlotið hefur viðurkenningu kínverskra stjórnvalda fyrir pólitíska uppfræðslu starfsmanna, er meðal þeirra sem fá að bjóða í Héðinsfjarðargöng. Vegagerðin hafnaði sama verktaka fyrir tveimur árum. 23.1.2006 21:03
Viðbrögð æfð Hvernig er best að bregðast við ef gámabíll með þúsund lítra af klórgasi innanborðs veltur með þeim afleiðingum að gámurinn rifnar og klórgas lekur út í andrúmsloftið? Þessari spruningu reyndu þáttakendur á viðamikilli æfingu að svara í dag. 23.1.2006 21:00
Er raforkuverð að drepa laxeldi á Íslandi? Er raforkuverð að drepa laxeldi í landinu? Kristján L. Möller þingmaður spurði að þessu á Alþingi í dag, en raforkuverð er önnur aðalástæða þess að Sæsilfur hættir starfsemi í Mjóafirði. Iðnaðaráðherra sakaði þingmanninn um vanþekkingu og sagði honum að skammast sín. 23.1.2006 20:56
Landlæknir varar einstaklinga og fyrirtæki við því að birgja sig upp af fuglaflensulyfjum Landlæknir varar eindregið við því að einstaklingar og fyrirtæki birgi sig upp af lyfjum vegna fuglaflensunnar. Það geti leitt til þess að birgðir gangi til þurrðar, og það sem verra er, að ótímabær notkun lyfsins vegna venjulegrar flensu geti leitt til ónæmis. Hann segist munu spyrna við fótum ef fyrirtæki taki upp á því í miklum mæli að hamstra lyfið. 23.1.2006 20:50
Breskir njósnarar? Útvarpssendir í grjóthnullungi sem varpar rússneskum ríkisleyndarmálum til breskra sendiráðsstarfsmanna. Nei, þetta er ekki atriði úr kvikmynd um njósnara hennar hátignar heldur raunverulegar ásakanir rússneskra stjórnvalda á hendur Bretum. 23.1.2006 20:45
Íslandsbanki styrkir Krabbameinsfélag Íslands Í dag veitti Íslandsbanki Krabbameinsfélagi Íslands fjörtíu milljóna króna styrk. Styrkurinn verður notaður til að kaupa ný stafrænt röntgentæki sem nýtist til forvarnarstarfs Krabbameinsfélagsins. 23.1.2006 20:30
Tekist á um örlög fjögurra ára telpu Örlög fjögurra ára norskrar telpu sem liggur í dauðadái eru nú bitbein lækna og ástvina hennar. Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi, ekki síst eftir að Björgvinjarbiskup skarst í leikinn. 23.1.2006 20:25
Frumvarp um Ríkisútvarpið á Alþingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mælti fyrir frumvarpi um Ríkisútvarpið á Alþingi í dag. Stofnuninni verður breytt í hlutafélag, afnotagjöld lögð niður og tekin upp nefskattur. 23.1.2006 20:12
Bjórinnflytjendur reyna að lokka til sín 15 og 16 ára skólabörn Talsverð brögð eru að því að veitingastaðir og bjórinnflytjendur reyni að lokka til sín skólabörn allt niður í fimmtán, sextán ára. Skólarnir reyna að sporna við þessu en viðurlög við slíkum brotum eru léttvæg. 23.1.2006 19:49
Álverið í Straumsvík rúmlega tvöfaldað að stærð Álverið í Straumsvík verður meira en tvöfaldað að stærð á næstu fjórum árum og fjórar vatnsaflsvirkjanir byggðar í neðri Þjórsá og Tungnaá, samkvæmt áformum Alcan og Landsvirkjunar, sem kynnt voru í dag. Áður hafði Orkuveita Reykjavíkur samið um að útvega nærri helming nauðsynlegrar raforku vegna stækkunar í Straumsvík. 23.1.2006 19:45
Ríkisskattstjóri staðfestir tölur um aukna skattheimtu Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri staðfestir að tölur Stefáns Ólafssonar prófessors um aukna skattheimtu séu réttar. Indriði segir að rýrnun persónuafsláttar leiði til meiri skattbyrði á lægri tekjur. Hann telur þó að stærsti áhrifavaldurinn í aukinni skattbyrði sé launaþróun og kaupmáttaraukning. 23.1.2006 19:40
Hamas-samtökunum spáð góðu gengi í þingkosningum Utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir palestínsku þingkosningarnar lýkur í dag. Palestínumenn ganga síðan að kjörborðinu á miðvikudag. Skoðanakannanir benda til þess að Hamas-samtökin verði ráðandi afl í palestínskum stjórnmálum eftir kosningarnar og er þeim spáð 31% atkvæða. 23.1.2006 17:18
Leikskólakennarar óánægðir með launamálaráðstefnu Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara lýsir yfir miklum vonbrigðum með niðurstöður launamálaráðstefnunnar sem séu í senn óljósar og gefi takmörkuð fyrirheit. 23.1.2006 17:11
Frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða Samkvæmt nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða er lagt til að sett verði hámark á samanlagða krókaaflahlutdeild þannig að enginn hafi yfir meiru að ráða en 6% af krókaaflahlutdeild í þorski, 9% krókaaflahlutdeild í ýsu og 6% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar. 23.1.2006 16:29
Alcan á Íslandi og Landsvirkjun ræða um raforkusamning Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hafa samþykkt að taka upp einkaviðræður um raforkusamning fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Stefnt er að því að þeim viðræðum ljúki fyrir lok þessa árs. 23.1.2006 16:12
Landsvirkjun leggur Norðlingaölduveitu til hliðar Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta við undirbúning að Norðlingaölduveitu að svo stöddu. Landsvirkjun mun þess í stað einbeita sér að öðrum virkjunarkostum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands er ósáttur við að Landsvirkjun sé ekki tilbúin að hætta alfarið við framkvæmdirnar. 23.1.2006 15:25
Actavis eignast tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako Tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako er nú að fullu í eigu Actavis eftir kaup þess á 11 prósenta hlut í Fako fyrir rúmlega 1,2 milljarða króna. 23.1.2006 14:25