Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kjúklingabændur óttast fuglaflensu Kjúklingabændur innan Evrópusambandsins óttast hrun á markaðnum ef svokölluð fuglaflensa breiðist út í Evrópu. Ellefu milljón tonn af kjúklingakjöti eru framleidd á hverju ári og þar af er tíundi hlutinn seldur utan sambandsins. Um er að ræða markað upp á rúmlega sjötíu milljarða íslenskra króna. Starfsmenn á kjötsmarkaðnum í Rungis, rétt fyrir utan París, hafa tekið eftir sölutregðu og segja að salan hafi minnkað um tíu prósent síðan í októberbyrjun, miðað við árið í fyrra. 14.10.2005 00:01
Bresk þota hrapar Þota úr konunglega breska flughernum hrapaði í sjóinn við austurströnd Skotlands í dag. Samkvæmt upplýsingum frá breska varnarmálaráðuneytinu hrapaði flugvélin um 16 km frá flugherstöðinni, RAF Leuchars, við austurströnd Skotlands. Flugmennirnir tveir sem voru um borð í þotunni náðu að skjóta sér úr henni áður en hún brotlenti. Ekki er vitað um orsakir slyssins. 14.10.2005 00:01
Fuglaflensan til Íslands næsta vor Fuglaflensutilvik hafa undanfarna daga komið upp í bæði Tyrklandi og Rúmeníu. Flest bendir til að fuglaflensa breiðist út um alla Evrópu næsta vor. Yfirdýralæknisembættið á Íslandi hefur fengið tæpar tvær milljónir króna til að rannsaka alifugla hérlendis og farfugla sem koma hingað næsta vor. 14.10.2005 00:01
Viðræður í næstu viku Viðræðum um framtíð bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður fram haldið í Washington í næstu viku. 14.10.2005 00:01
Leit að eftirlifendum hætt Björgunarmenn eru hættir að leita að eftirlifendum jarðskjálftans í Suður-Asíu. Engin von þykir til þess að nokkur finnist á lífi úr því sem komið er. 14.10.2005 00:01
Ráðist að súnníum Uppreisnarmenn í Írak beindu í gær spjótum sínum að leiðtogum súnnísks stjórnmálaflokks sem lýst hefur stuðningi sínum við drög að stjórnarskrá landsins. Fimm tilræði voru framin gegn þeim í gær en enginn slasaðist í árásunum. 14.10.2005 00:01
Hækka skatt þegar þeir sjá hann Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi félagshyggju í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og kvað talsmenn hennar vilja skattahækkanir. 14.10.2005 00:01
Telur sig vanhæfan Bogi Nilson ríkissaksóknari hefur sagt sig frá Baugsmálinu þar sem hann sé vanhæfur til að fjalla um málið. Ríkslögreglustjóri óskaði eftir því að Ríkissaksóknari fjallaði um málið, í kjölfar dóms hæstaréttar. 14.10.2005 00:01
Atburðir kalla á fjölmiðlalög Í fyrirspurnartíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær vísaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra til þverpólítískrar samstöðu sem náðs hefur í fjölmiðlanefnd á hennar vegum. 14.10.2005 00:01
Stálu skipi en skiluðu því svo Sómalskir sjóræningjar sem fyrr í vikunni rændu flutningaskipi sem Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna hafði á leigu hafa nú séð að sér og skilað fleyinu. Eigandi skipsins segist ekki hafa þurft að greiða neitt lausnargjald. 14.10.2005 00:01
Engin miskunn hjá Pútín Engin miskunn var fyrirskipunin sem Pútín Rússlandsforseti gaf sveitum sínum og þær hlýddu. Tugir hryðjuverkamanna sem gerðu árásir í bæ í Suður-Rússlandi voru þurrkaðir út í dag. Við vörum við myndunum sem fylgja þessari frétt. 14.10.2005 00:01
Sjö handteknir í Haag Hollenskir lögreglumenn umkringdu mikilvægar stjórnsýslubyggingar í höfuðborginni Haag í gær vegna gruns um að hryðjuverk væru í uppsiglingu. Ráðist var inn í hús og sjö manns handteknir í tengslum við málið. 14.10.2005 00:01
Leitinni hætt Björgunarsveitir hættu formlegri leit að fórnarlömbum jarðskjálftans í pakistanska Kasmír í gær en nánast útilokað er að finna fleiri á lífi í rústunum. 14.10.2005 00:01
Níðingsskap mótmælt Félagar í dýraverndunarsamtökunum PETA komu saman í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í gær og mótmæltu meðferð Ástrala á sauðfé. 14.10.2005 00:01
Óttast um smit í mönnum Níu Tyrkir voru fluttir á sjúkrahús í gær vegna ótta um fuglaflensusmit. Þeir fengu að fara heim að rannsókn lokinni. Evrópusambandið fylgist grannt með þróun fuglaflensunnar í Tyrklandi og Rúmeníu. 14.10.2005 00:01
Stjúpfaðir hindraði ekki afskipti Stjúpfaðir barnaníðings í Hafnarfirði reyndi ekki að koma í veg fyrir að barnayfirvöld hefðu afskipti af málinu segir fyrrverandi tengdadóttir hans. Öðru hefur verið haldið fram. 14.10.2005 00:01
Ræða Davíðs gagnrýnd Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á landsfundi flokksins í gærkvöld að innan fárra ára yrði ljótasti blettur á íslenskri fjölmiðlun kominn í sitt skot í sögunni. Hann sagði að fjölmiðlasamsteypa hefði verið notuð til að þjóna hagsmunum auðhrings, þar sem óvægnum árásum og slúðri úr stolnum gögnum hefði verið beitt gegn einstaklingum sem auðhringnum væri í nöp við. 14.10.2005 00:01
Veiðibann hrekur frá Fréttir af skotveiðibanni frá og með 15. októbersem bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudag og tekur til allra þeirra sem ekki eiga lögheimili í sveitarfélaginu hefur skaðað þá sem standa að ferðaþjónustu á svæðinu segir Jón Hákon Ágústsson, eigandi gistiheimilisins Kaupfélagið. 14.10.2005 00:01
Lóðaverð hækkar um fimmtíu prósent Lóðaverð í Hafnarfirði hækkar um fimmtíu prósent með nýjum úthlutunarreglum og skilmálum sem samþykktir voru í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Bæjarstjórinn segir helstu ástæðuna vera brask þeirra sem hafa fengið úthlutað lóðum langt undir markaðsverði. Hafnfirðingar ganga ekki lengur fyrir um lóðir. 14.10.2005 00:01
Bíða úrlausnar mála sinna Stríðið í Tsjetsjeníu teygir anga sína víða, meðal annars hingað til lands. Ung múslimahjón frá Tsjetsjeníu leituðu hælis hér á landi fyrir tæplega hálfum mánuði. Maðurinn segist ekki vilja berjast gegn Rússum eða nokkrum öðrum, en óttast um líf sitt, - að verða álitinn svikari af löndum sínum. 14.10.2005 00:01
Milljóndollara seðlar Bíræfnir peningafalsarar hafa undanfarna mánuði reynt að fá íslenska banka til að taka sjötíu einnar milljónar dollara seðla sem veð gegn láni. Það jafngildir nærri fjórum og hálfum milljarði króna. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur seðlana undir höndum og vinnur nú að því með lögregluyfirvöldum í Bretlandi að hafa hendur í hári svindlaranna. 14.10.2005 00:01
Skotvopnasala bönnuð í Brasilíu? Bann við sölu á byssum og skotfærum til almennra borgara í Brasilíu gæti orðið raunin áður en langt um líður. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu þess efnis og mun þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram um málið í lok mánaðarins en það er í fyrsta sinn sem málefni af þessum toga er lagt í dóm almennings. 14.10.2005 00:01
Kosningar í Írak á morgun Eftir blóðugt stríð og hryðjuverk í meira en tvö ár vona íröksk stjórnvöld og hersetuveldin að morgundagurinn marki tímamót en hvers eðlis þau verða er með öllu óvíst á þessari stundu. Stjórnarskráin er ýmist talin marka upphaf tímabils friðar og lýðræðis, eða upphaf endalokanna. 14.10.2005 00:01
Öryggisráðið ekki stækkað John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, spáði því opinberlega í gær að sú tilraun sem í gangi væri til að fjölga aðildarríkjum öryggisráðs SÞ myndi fara út um þúfur. Bandarísk stjórnvöld myndu aðeins styðja að stækka ráðið upp í 19 eða í mesta lagi 20 aðildarþjóðir, úr 15 nú. 14.10.2005 00:01
Á annað hundrað í valnum Rússneskir her- og lögreglumenn kembdu í gær í gegnum Nalchik, héraðshöfuðborg Kákasushéraðsins Kabardino-Balkariya, í leit að meintum íslömskum uppreisnarmönnum sem á fimmtudag gerðu óvæntar árásir á stjórnsýslubyggingar og lögreglustöðvar í borginni. Að minnsta kosti 108 manns lágu í valnum eftir átökin. 14.10.2005 00:01
Stoltenberg tekur við á mánudag Ný samsteypustjórn vinstriflokka tekur formlega við embætti í Noregi á mánudag, en miðju-hægristjórn Kjells Magne Bondevik sagði af sér í gær. 14.10.2005 00:01
María Elísabet á fæðingardeild María Elísabet krónprinsessa af Danmörku var í gærkvöld lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum danskra vefmiðla benti flest til þess að hún væri komin að fæðingu, um hálfum mánuði fyrir tímann. 14.10.2005 00:01
Gagnrýna hernaðarvanmátt Evrópu Í nýrri sérfræðiskýrslu um varnarmál í Evrópu er komist að þeirri niðurstöðu að ráðamenn í flestum löndum álfunnar hafi sýnt vanrækslu með því að láta hjá líða að nútímavæða herafla landa sinna svo að hann stæðist kröfur tímans. Varnarmálaráðherrar ESB-ríkja tóku undir þessa gagnrýni á fundi sínum fyrir helgi. 14.10.2005 00:01
Vímuvarnarvikan 2005 Vímuvarnarvikan 2005 verður haldin dagana 17. -23. október næstkomandi. Fjölmörg samtök standa að vikunni en henni er ætlað að beina athygli að börnum og forvarnarstarfi. 14.10.2005 00:01
Hefur öðlast trú á mannkynið á ný Það á alltaf að leyfa börnunum að njóta vafans og tilkynna um ef minnsti grunur er um að þau séu beitt ofbeldi. Þetta segir Thelma Ásdísardóttir sem hefur hrundið af stað vakningu gegn barnaofbeldi í samfélaginu. 14.10.2005 00:01
Eftirlit hert í Leifsstöð Yfirdýralæknir hefur beðið um hert eftirlit í Leifsstöð vegna fuglaflensu sem er að breiðast út. Landbúnaðarráðuneytið gaf í gær út herta reglugerð um innflutning á fuglum og hvers kyns fuglaafurðum. 14.10.2005 00:01
Sláturfé sett á gjöf Sunnlenskir bændur hafa nú sláturlömb sín á gjöf og bíða óvenju mörg lömb slátrunar. Þeir eru uggandi um hvort hægt verði að slátra hrútlömbunum áður en þau verða kynþroska. 14.10.2005 00:01
Eldur í íbúð við Skúlagötu Eldur kom upp í kjallaraíbúð við Skúlagötu í kvöld og var allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sent á vettvang. Að sögn varðstjóra á vakt er nú búið að slökkva eldinn en íbúðin var mannlaus. Mikinn reyk lagði frá henni og a.m.k. ein rúða í íbúðinni sprakk vegna eldsins. 14.10.2005 00:01
Falsaðir milljóndollaraseðlar Erlendur maður hefur undanfarna mánuði reynt að blekkja íslenska banka með fölsuðum bandarískum milljón dollara seðlum. „Þetta er mjög ævintýralegt, seðlarnir eru mjög vel falsaðir, þetta er allt mjög faglega gert,“ segir Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Ríkislögreglustjóraembættisins. 14.10.2005 00:01
Eftirlaunafrumvarpið dýrt Aukinn kostnaður ríkisins vegna eftirlaunafrumvarpsins, sem tekur til alþingismanna, var um 650 milljónir króna árið 2004, samkvæmt fjársýslu ríkisins. Þegar Davíð Oddson, þáverandi forsætisráðherra og núverandi Seðlabankastjóri, lagði fram frumvarpið árið 2003, áætlaði hann að kostnaðaraukningin yrði um sex milljónir króna á árinu 2004. 14.10.2005 00:01
Átta segja upp Átta háskólamenntaðir starfsmenn hafa sagt upp hjá Landmælingum Íslands síðan í vor, en þar starfa um 35 manns. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fer nú fram sálfræðiúttekt á samskiptum yfirmanna Landmælinga við undirmenn. 14.10.2005 00:01
Formaður kjörinn einróma Ingólfur Sveinsson var einróma kjörinn formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis suður á aðalfundi félagsins á fimmtudagskvöld. Sigrún Jónsdóttir, fyrrum formaður félagsins, hafði ákveðið að gefa ekki kost á sér að þessu sinni. 14.10.2005 00:01
Dómsmálaráðherra talinn vanhæfur Bogi Nilsson ríkissaksóknari hefur sagt sig frá Baugsmálinu. Gestur Jónsson telur að dómsmálaráðherra sé hugsanlega vanhæfur til þess að velja nýjan saksóknara. Páll Hreinsson dósent segir þessar reglur vandmeðfarnar. 14.10.2005 00:01
Barist um völdin hjá Framsókn Búist er við átökum á aðalfundi Framsóknarfélagsins í syðra kjördæmi Reykjavíkur í kvöld. Rúmlega hundrað nýir félagsmenn hafa bæst í félagið fá mánaðamótum að því er Fréttablaðið greinir frá í dag og munu flestir þeirra stuðningsmenn Björn Inga Hrafnssonar, varaþingmanns og aðstoðarmanns forsætisráðherra. 13.10.2005 00:01
Breyta iðnaðarsvæði í íbúðabyggð Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi íhuga að breyta iðnaðarsvæðinu við Bygggarða og Sefgarða, vestast í bænum, í íbúðabyggð. Hugmyndirnar snúa að því að reisa þétta byggð á þriggja hektara landsvæði þar sem húsin yrðu ýmist tvær eða þrjár hæðir. 13.10.2005 00:01
Betri byggð mótmælir Samtök um betri byggð mótmæla harðlega leiðandi spurningu í skoðanakönnun samgönguráðherra um framtíðarstaðsetningu miðstöðvar innanlandsflugsins þar sem eingöngu var gefinn kostur á flutningi til Keflavíkur. Samtökin telja að þessi leiðandi spurning hafi valdið einstaklega lágu svarhlutfalli, eða 54 prósentum. 13.10.2005 00:01
Skrúfað frá brunahönum í borginni Suðurgatan í Reykjavík lokaðist fyrir umferð á tólfta tímanum í gærkvöldi vegna vatnsflaums úr brunahana, en nokkru áður hafði verið skrúfað frá brunahana við Listabraut og nokkru síðar við Engjaveg. Lögreglu- og slökkviliðsmenn skrúfuðu fyrir hanana og ekki hlaust tjón af í þetta skiptið. 13.10.2005 00:01
Setur landsfund í síðasta sinn Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag, sá þrítugasti og sjötti í röðinni. Davíð Oddsson setur landsfund í síðasta sinn sem formaður Sjálfstæðisflokksins en eftirmaður hans verður kjörinn á sunnudag. 13.10.2005 00:01
Pakistanar biðja um meiri aðstoð Musharraf forseti Pakistan, hefur beðið alþjóðasamfélagið um meiri aðstoð vegna hamfaranna þar á dögunum en hann sagði hörmungarnar meiri en stjórnvöld réðu við. Musharraf viðurkenndi að hjálpar- og björgunarstarf gengi illa en bað landsmenn um að sýna umburðarlyndi. 13.10.2005 00:01
Öflugur eftirskjálfti í Pakistan Öflugur eftirskjálfti reið yfir Islamabad, höfuðborg Pakistan í gærkvöld, fjórum dögum eftir að jarðskjálfti upp á 7,6 á richter varð að minnsta kosti 40 þúsund manns að bana í landinu. 13.10.2005 00:01