Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ASÍ gagnrýnir hagstjórn ríkisins Alþýðusamband Íslands segir að búast megi við harkalegri lendingu við lok stóriðjuframkvæmda. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að mikilvægasta verkefnið sé aðhald í launamálum hins opinbera. 6.7.2005 00:01
Framsókn undir 4% í Reykjavík Framsóknarflokkurinn mælist með minna en fjögurra prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Flokkurinn tapar einu prósentustigi milli mánaða í Reykjavíkurkjördæmunum. Frjálslyndi flokkurinn mælist með tæp tvö prósent. 6.7.2005 00:01
Hér & Nú ehf. kærir Hér & Nú Hér & Nú ehf. hefur kært tímaritið Hér & Nú til Samkeppnisstofnunar vegna ruglings sem skapast hefur á nafni hins nýja tímarits. Hér & Nú ehf. ákvað að leggja fram kæru þar sem efnistök tímaritsins Hér & Nú og sú slæma umræða í kringum það í fjölmiðlum að undanförnu hefur neikvæð áhrif á rekstur Hér & Nú ehf. 6.7.2005 00:01
Upplýsingaútvarp á ensku Upplýsingaútvarp á ensku fyrir erlenda ferðamenn er komið í loftið á Suðurnesjum. Því er ætlað að auðvelda erlendum ferðamönnum til muna aðgang að gagnlegum upplýsingum. 6.7.2005 00:01
Skotárás í Bagdad Fimm opinberir starfsmenn voru skotnir til bana í Bahgdad, höfuðborg Íraks í morgun. Mennirnir voru á leið til vinnu þegar vopnaðir menn hófu skothríð með fyrrgreindum afleiðingum. Þá sprakk bílsprengja við sendiráð Írans í Írak í morgun, en enginn slasaðist í árásinni. 5.7.2005 00:01
Innbrot í ljósmyndavöruverslun Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í austurborginni um klukkan fimm í morgun og þaðan stolið á annan tug dýrra myndavéla. Þjófurinn komst undan og er hans nú leitað. 5.7.2005 00:01
Jarðskjálfti á Súmötru Öflugur jarðskjálfti upp á sex til sex komma sjö á richter skók eyjuna Súmötru á Indónesíu rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Ekki hafa borist neinar fregnir af skaða á fólki, né eignatjóni. Fjöldi fólks hljóp upp á hæðir af ótta við flóðbylgju í kjölfar skjálftans. 5.7.2005 00:01
Hamas samtökin hafna aðild Hamas samtökin í Palestínu hafa hafnað tilboði Mahmoud Abbas, leiðtoga landsins, um aðild að ríkisstjórn Palestínu. Abbas bauð forsvarsmönnum samtakanna til viðræðna um hugsanlega þátttöku í samsteypustjórn, en án árangurs. 5.7.2005 00:01
Kauptilboð í Somerfield í óvissu Einhverjir hinna erlendu aðila sem standa að kauptilboði í stórverslanakeðjuna Somerfield ásamt Baugi hafa hótað að hætta við tilboð sín, ef Baugur dregur sig ekki út úr hópnum, að sögn Financial Times. Ástæðan er ákæran, sem Ríkislögreglustjóri hefur gefið út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra Baugs, og fleirum. 5.7.2005 00:01
Júlílaun kennara skert Júlílaun grunnskólakennara á meðallaunum eru skert um rúmlega áttatíu þúsund krónur vegna verkfallsins í fyrrahaust. 5.7.2005 00:01
Eiturlyfjamarkaðurinn Götuverð á kókaíni hefur hríðfallið á einum mánuði úr tólf þúsund krónum grammið niður í sjö þúsund og fimm hundruð krónur, samkvæmt verðkönnun SÁÁ. Þessi verðlækkun getur verið vísbending um að einhverjum hafi nýverið tekist að smygla miklu af efninu til landsins. 5.7.2005 00:01
Gistinóttum fer fjölgandi Gistinætur á hótelum á landinu í maí síðastliðnum voru fimm prósentum fleiri en í sama mánuði í fyrra. Þær voru nú tæplega 87 þúsund sem er fjölgun um rúmlega fjögur þúsund. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. 5.7.2005 00:01
Við öllu búnir í Gleneagle Lögreglan í Edinborg telur að um hundrað manns sem mótmæltu leiðtogafundi G8 ríkjanna í gær, kunni að sæta ákæru vegna málsins. Til harðra átaka hefur komið á milli mótmælenda og óeirðalögreglu. 5.7.2005 00:01
Leit að líki í Grafarvogi hætt Leit að líki í Grafarvogi í Reykjavík sem hófst síðdegis í gær bar ekki árangur og var henni hætt upp ur miðnætti. Þá höfðu björgunarsveitarmenn, lögregla og slökkviliðsmenn kafað, siglt um voginn og gengið fjörur auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið. 5.7.2005 00:01
Díselolía dýrari en bensín Díselolían er orðin dýrari en bensín á bensínstöðvum Essó eftir að félagið ákvað í gær að hækka lítrann af díselolíu upp í 110 krónur. Bensínlítrinn hjá sama félagi og hinum stóru olíufélögunum er hinsvegar á hundrað og níu og tuttugu. Díselolían er nú áttatíu aurum dýrari en bensín. 5.7.2005 00:01
Ögrandi ummæli Chirac um Breta Matarslagur geisar milli Breta og Frakka vegna niðrandi ummæla Jacques Chiracs Frakklandsforseta um breska matarhefð. Breskir matgæðingar svara fullum hálsi. 5.7.2005 00:01
Framboðsmál R listans óljós Samfylkingin og Vinstri grænir eru óhress með þá tillögu Framsóknarmanna að þeir fái tvö örugg sæti á R-listanum þrátt fyrir að skoðanakönnun bendi til þess að Framsóknarflokkurinn fái engan borgarfulltrúa kjörinn í næstu sveitarstjórnarkosningum. 5.7.2005 00:01
Endurbætur á kostnað flokksins Endurbætur á húsi Framsóknarflokksins, sem áður var í eigu Kers, voru að fullu á kostnað flokksins sjálfs, segir í tilkynningu frá Framsóknarflokknum. 5.7.2005 00:01
Hrefnuveiði aukin Hafrannsóknastofnun ætlar að láta veiða þrjátíu og níu hrefnur í sumar, en tuttugu og fimm voru veiddar í fyrra og þrjátíu og sex árið þar áður. Talsmenn hvalaskoðunarfyrirtækja segja að miklum hagsmunum sé stefnt í hættu með veiðunum. 5.7.2005 00:01
Lögreglan á Hróarskeldu leit undan Danska lögreglan horfði gegnum fingur sér með hassneyslu á útitónleikunum á Hróarskeldu, þótt lög sem sett voru í Danmörku fyrir ári geri ráð fyrir að refsa skuli fyrir jafnvel smæstu fíkniefnabrot. Lögreglan segist ekki bregðast við sé farið fínt í hassreykingarnar, aðeins ef þeim er tranað fram. 5.7.2005 00:01
Búist við mótmælum í Kaupmannhöfn George Bush, forseti Bandaríkjanna, kemur til Kaupmannahafnar í kvöld. Bush kemur í stutta heimsókn til Danmerkur á leið sinni á G8-fundinn í Skotlandi. Lögreglan bæði í Danmörku og Svíþjóð býr sig nú undir að tugir þúsundir mótmæli heimsókninni. 5.7.2005 00:01
Sprengjuárás í Rússlandi Sprengja sprakk við lögreglustöð í bæ nálægt Chechnyu í Rússlandi í dag. Enn er ekki vitað hversu margir kunna að hafa slasast í sprengingunni en unnið er að björgunaraðgerðum. Enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér. Þá fórust tíu manns er sprengja sprakk í sama bæ á föstudag en þá þá báru öfgasinnaðir múslimar ábyrgð á verknaðinum. 5.7.2005 00:01
Níu mánaða fangelsi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann á þrítugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir ýmis afbrot, þar á meðal fyrir aðild að innflutningi á rúmum tveimur og hálfu kílói af kannabisefni til landsins. Með brotunum rauf maðurinn í þriðja sinn skilorð dóms sem hann hlaut árið 2003. 5.7.2005 00:01
Met í sölu nýrra bíla Aldrei hafa selst jafn margir nýir bílar hér á landi og nú. Á fyrstu sex mánuðum ársins seldust 9687 nýir bílar. Eru það fleiri nýjar fólksbifreiðar en seldust allt árið 2001 og einnig árið 2002. 5.7.2005 00:01
Sex mánuði fyrir eignaspjöll Maður var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir stórfelld eignaspjöll Honum var meðal annars gefið að sök að hafa kveikt í íbúðarhúsinu að Kársnesbraut 7 í Kópavogi, eign eiginkonu sinnar, með þeim afleiðingum að húsið stórskemmdist að innan. Hálfs árs fangelsisvistin fellur niður ef ákærði heldur skilorð í tvö ár. 5.7.2005 00:01
Skotbardagi á Indlandi Indverskar öryggissveitir skutu í morgun fimm vopnaða menn til bana. Mennirnir fimm réðust í morgun ásamt fleirum inn í bænahús hindúa og múslima vopnaðir byssum. Lögreglan kom þegar á staðinn og til skotbardaga kom. Honum lauk fljótlega með fyrrgreindum afleiðingum. 5.7.2005 00:01
Icelandic Group með afkomuviðvörun Icelandic Group hefur sent frá sér afkomuviðvörun og lækkuðu hlutabréf fyrirtækisins lítillega í morgun. Samþætting rekstrar Icelandic Group hf. og Sjóvíkur ehf. stendur yfir og unnið er að heildarstefnumótun sameinaðs félags en áætlanir og framtíðarsýn sameinaðs fyritækis verða kynntar í lok ágúst. 5.7.2005 00:01
Icelandic Group með afkomuviðvörun Icelandic Group hefur sent frá sér afkomuviðvörun og lækkuðu hlutabréf fyrirtækisins lítillega í morgun. Samþætting rekstrar Icelandic Group hf. og Sjóvíkur ehf. stendur yfir og unnið er að heildarstefnumótun sameinaðs félags en áætlanir og framtíðarsýn sameinaðs fyritækis verða kynntar í lok ágúst. 5.7.2005 00:01
Sjálfsíkveikja í Búkarest Heimilislaus maður kveikti í sér fyrir framan fjölmiðlafyrirtæki í miðbæ Búkarest, höfuðborg Rúmeníu í dag. Maðurinn klifraði upp í tré og sprautaði málningarþynni yfir sig, kveikti síðan í sér og datt úr trénu. 5.7.2005 00:01
SÁÁ byggir við Efstaleiti Skóflustunga að nýrri byggingu SÁÁ við Efstaleiti var tekin í fyrradag en stefnt er að því að byggingu hússins verði lokið haustið 2006. 5.7.2005 00:01
Mannréttindafulltrúi á Íslandi Mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins, Alvaro Gil-Robles, lauk í gær þriggja daga opinberri heimsókn hér á landi. 5.7.2005 00:01
Fyrsta útskriftin Menntaskólinn Hraðbraut útskrifar fyrstu stúdentana á laugardag en skólinn hóf störf árið 2003 og býður upp á nám til stúdentsprófs á tveimur árum. 5.7.2005 00:01
Slippurinn verður menningarsvæði Nýtt bryggjuhverfi mun rísa á slippasvæðinu við Mýrargötu í Vesturbæ Reykjavíkur árið 2010. 5.7.2005 00:01
Sorpa greiðir fyrir bylgjupappa Sorpa greiðir nú fyrirtækjum fyrir skil á bylgjupappa og filmuplasti. Sorpa vonast til þess að greiðslan verði fyrirtækjum hvati til að flokka úrgang betur og skila til endurvinnslu. 5.7.2005 00:01
Minnkandi verðbólga í OECD ríkjum Verðbólga í maí var að jafnaði 2,4% á ársgrundvelli í aðildarríkjum OECD samanborið við 2,8% í apríl síðastliðnum. Ástæðan fyrir minni verðbólgu var einkum að eldsneytisverð lækkaði lítillega. Mest var verðbólgan í Tyrklandi, eða 10%. Á Íslandi var verðbólgan 2,9% eins og í Bretlandi, 2,8% í Bandaríkjunum, 1,6% í Noregi, 1,5% í Danmörku, 0,8% í Finnlandi og 0,1% í Svíþjóð. 5.7.2005 00:01
Skotið að bíl í Bagdad Skotið var að bifreið sendiráðs Rússlands í Írak í dag. Tveir embættismenn voru í bílnum en hvorugan þeirra sakaði. Upplýsingafulltrúi sendiráðsins sagði á fréttamannafundi að skotárásinni hafi ekki verið beint sérstaklega að bifreiðinni, heldur skutu uppreisnarmenn á allt sem hreyfðist. 5.7.2005 00:01
Hrefnur skoðaðar og svo skotnar "Það er útlit fyrir að dýrin verði skoðuð á daginn og svo skotin að nóttu," segir Vignir Sigursveinsson skipstjóri á hvalaskoðunarbátnum Eldingunni en hann segist hafa orðið var við hrefnuveiðibáta strax í fyrradag á þeim slóðum þar sem hann er að sigla um með fólk í hvalaskoðun suðvestur af Akranesi og norður með Kjalarnesi. 5.7.2005 00:01
Líkleitinni hætt án árangurs Hætt hefur verið leit að líki sem tilkynnt var að hafi sést við Gullinbrú í Reykjavík. Fjölmennt lið úr röðum slökkviliðs, lögreglu og björgunarsveita leitaði líksins fram yfir miðnætti í fyrrinótt án árangurs. Að sögn lögreglu verður leitin ekki hafin að nýju nema eitthvað nýtt komi fram í málinu. 5.7.2005 00:01
Erilsamt hjá lögreglu í Borgarnesi Frá því á föstudaginn hafa 49 ökumenn verið teknir af lögreglunni í Borgarnesi. Þeir voru allir teknir fyrir að keyra yfir hámarkshraða fyrir utan einn sem stöðvaður var grunaður um ölvun við akstur. 5.7.2005 00:01
Möguleiki á að riða breiðist út Brögð eru að því að hestamenn fari illa með fjárréttir og safngirðingar víða um land. Að sögn Ólafs Dýrmundssonar, landnýtingarráðunautar hjá Bændasamtökum Íslands, er þetta mjög áberandi í nágrenni við Reykjavík 5.7.2005 00:01
Skilorð fyrir kannabisræktun Þrír karlmenn og ein kona, öll á fimmtugsaldri voru fundin sek um vörslu fíkniefna og ræktun kannabisefna í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ræktunin fór fram í haughúsi við sveitabæ í Ölfusi. Einn karlmaðurinn hlaut 7 mánaða fangelsi, annar hlaut 6 mánuði og sá þriðji 4 mánuði en konan 45 daga og er refsing þeirra allra skilorðsbundin til tveggja ára. 5.7.2005 00:01
Varað við of mikilli bjartsýni Leiðtogafundur G8-ríkjanna hefst í Skotlandi í dag. Forystumenn Afríkuríkja skora á starfsbræður sína á Vesturlöndum til að standa við yfirlýsingar sínar en Gordon Brown varar við of mikilli bjartsýni. 5.7.2005 00:01
Sendiherrar múslimaríkja skotmörk Uppreisnarmenn í Írak hafa fundið sér ný skotmörk í baráttu sinni, erindreka annarra múslimaríkja sem starfa í landinu. Þeir hyggjast þar með fæla trúbræður sína frá því að mynda tengsl við ríkisstjórn Íraks sem starfar í skjóli bandarískrar herverndar. 5.7.2005 00:01
45.000 manna herlið á Gaza Stjórnvöld í Ísrael búa sig undir að taka landnema á Gaza-ströndinni föstum tökum meðan á brottflutningi þeirra frá svæðinu stendur. 5.7.2005 00:01
Í mál við Abramovich Boris Berezovsky, rússneski auðkýfingurinn sem komst í ónáð hjá Vladimir Pútín Rússlandsforseta og fékk pólitískt hæli í Bretlandi, hyggst stefna rússneska athafnamanninum Roman Abramovich, eiganda knattspyrnuliðsins Chelsea. 5.7.2005 00:01