Fleiri fréttir

Eystrasaltsríki hunsuðu hátíðahöld

Endaloka heimsstyrjaldarinnar síðari var í dag minnst í Moskvu með hersýningu og hátíðarhöldum. Ekki eru allir á eitt sáttir og Eystrasaltslöndin hunsuðu hátíðarhöldin þar sem endalok Hitlers og heimstyrjaldarinnar marka líka upphafið að hernámi Sovétríkjanna..

Afhentu ráðherra áskorun

Stjórn og aðalfundur Ferðafélagsins 4x4, Landsamband sendibílstjóra, Frami, félag leigubílstjóra, Félag hópferðaleyfishafa og bifreiðastjórafélagið Átak afhentu Geir H. Haarde fjármálaráðherra áskorun við Alþingishúsið í dag vegna gjalds sem lagt verður á dísilolíu 1. júní næstkomandi. Félögin stóðu fyrir hópakstri frá Holtagörðum niður í bæ vegna þessa.

Berrassaðir Belgar í Brugge

Tvö þúsund berrassaðir Belgar hlupu um götur Brugge-borgar um helgina í nafni listarinnar. Fólkið var að hlýða kalli hins heimsfræga ljósmyndara Spencers Tunicks sem fær fólk um allan heim til að afklæðast og gera undarlegustu hluti svo hann megi ná þeim á mynd. Belgarnir létu fimbulkulda og hellirigningu ekki á sig fá og sigldu á bátum um síki borgarinnar og hlupu til og frá eftir duttlungum Tunicks.

Geislavirkur leki í Sellafield

Í ljós hefur komið að um 20 tonn af stórhættulegri blöndu geislavirkra efna hafa lekið úr hriplekum pípum í Sellafield, kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Bretlandi.

Bjargaði stúlku úr brennandi bíl

Jón Ólafsson sem særðist í bílsprengjuárás á laugardaginn var bjargaði ungri stúlku úr bíl sem var nær alelda eftir tilræðið. Írösk stjórnvöld höfðu samband við hann og þökkuðu honum fyrir afrekið að sögn aðstandanda Jóns en sjálfur má hann ekki tjá sig við fjölmiðla meðan málið er í rannsókn.

Reyndi að úthýsa Vallarvinum

Systurfyrirtæki Icelandair, Flugþjónustan á Kelfavíkurflugvelli ehf., reyndi með beinskeittum og sértækum aðgerðum að hrekja keppinauta sína Vallarvini ehf. af markaðnum.

Frumvarpi um RÚV frestað

Stjórnarfrumvarp um Ríkisútvarpið verður saltað, sem og vatnalög, með samkomulagi sem stjórn og stjórnarandstaða á Alþingi náðu í dag um lok þingstarfa.

Ekki rangt að útskrifa veikan mann

Aðeins munaði örfáum sekúndum að þrír ungir piltar yrðu fyrir bíl manns sem útskrifaður var af geðdeild alvarlega veikur í gær. Yfirlæknir geðdeildar Landspítalans segir að það hafi ekki verið rangt að útskrifa manninn.

Minntust rússneskra sjómanna

Aðeins fjórir rússneskir sjómenn af þeim þúsundum sem sigldu með skipalestunum í Norður-Íshafi í seinni heimsstyrjöldinni eru lífs og ferðafærir. Þeir voru allir mættir í Fossvogskirkjugarð í dag þegar afhjúpað var minnismerki um þá sem sigldu þessa leið og komu aldrei aftur.

Slasaðist ekki alvarlega í árás

Faðir Jóns Ólafssonar, íslenska öryggisvarðarins sem slasaðist þegar sprengjuárás var gerð á bílalest hans í Írak á laugardag, segir son sinn ekki alvarlega meiddan þrátt fyrir að hann hafi fengið sprengjubrot í andlitið.

Aðeins 6,5% gerða í íslensk lög

Aðeins 6,5 prósent af tilskipunum og öðrum gerðum Evrópusambandsins hafa verið tekin inn í íslensk lög. Andstæðingar Evrópusambandsaðildar á Alþingi segja þessar upplýsingar afhjúpa þá blekkingu að Íslendingar þyrftu með EES-samningnum að innleiða 80 prósent af reglugerðaverki Evrópusambandsins.

Strætó líklega frá Kirkjusandi

Starfsemi Strætó bs. mun að öllum líkindum flytja af Kirkjusandslóð á þessu ári og lóðin verða seld. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir lóðina vera eina þá bestu í bænum og að verðið verði eftir því. Starfsemi Strætó bs. hefur verið fundin ný lóð.

Hissa á viðkvæmni barnageðlækna

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er hissa á því hversu viðkvæmir barnageðlæknar eru fyrir umræðu um þá miklu aukningu sem orðið hefur á notkun barna á ofvirknilyfjum.

Mótmæltu háu olíugjaldi

Eigendur dísilbíla flautuðu fyrir utan Alþingishúsið nú síðdegis til að mótmæla háu olíugjaldi. FÍB furðar sig hins vegar á mótmælunum.

Fasteignasölu lokað

Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala, sem nýverið tók til starfa, hefur þurft að loka einni fasteignasölu. Þar starfaði enginn löggildur fasteignasali á þeim tíma. Langflestum málum nefndarinnar lýkur án þess að nokkuð þurfi að aðhafast.

Ný jarðhitahola

Jarðboranir og Hitaveita Egilsstaða og Fella hafa undirritað samning um borun nýrrar jarðhitaholu á virkjunarsvæði hitaveitunnar við Urriðavatn.

Kókaínkaupin undu upp á sig

Sjö sæta ákæru fyrir innflutning á rúmum 130 grömmum af kókaíni og þúsund e-töflum í ársbyrjun í fyrra. Við sögu koma blómasali, dóttir konu hans og kærastinn hennar, frænka blómasalans, marokkóskur maður hennar og tveir til viðbótar sem áttu pening til kaupanna.

Gæsluvarðhald staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem gefin er að sök aðild á smygli á rúmum 7,5 kílóum af amfetamíni með Dettifossi frá Þýskalandi til Íslands síðasta sumar.

Frávísun stendur í máli lækna

Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Félagsdóms frá 15. apríl þar sem máli Læknafélags Íslands á hendur íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Læknafélagið, sem kærði úrskurðinn 20. apríl, þarf að greiða ríkinu 150 þúsund krónur í kærumálskostnað.

30 kílómetra löng röð fólks

Stríðslokanna er minnst víða í Evrópu í dag en þann 8. maí 1945 var uppgjöf nasista fyrir bandamönnum staðfest. Mikil hátíðarhöld fara fram í Þýskalandi og Frakklandi. Af því tilefni verður mynduð 30 kílómetra löng keðja fólks í Berlín en fólkið heldur á kerti til þess að minnast stríðslokanna.

Kópavogur 50 ára

Kópavogur er 50 ára og heldur afmælisveislu í Fífunni en helmingur hennar verður fylltur með leiktækjum þar sem ungir sem aldnir geta leikið sér að vild. Bakarar hafa sameinast um að baka 50 metra afmælisköku og afmælisgestum verður einnig boðið upp á gos og kaffi.

Aðstoðuðu við morðin í Rúanda

Tveir menn frá Rúanda munu koma fyrir rétt í Belgíu á morgun þar sem þeir verða sóttir til saka fyrir aðild þeirra að þjóðarmorðunum í Rúanda árið 1994. Réttað verður yfir mönnunum fyrir alþjóðlegum dómstóli í Belgíu en þeir voru búsettir í landinu þegar þeir voru handteknir árið 2002.

Verðandi drottning með barni

Verðandi drottning Spánar er kona eigi einsömul. Letizia prinsessa giftist krónprinsinum Felipe við hátíðlega athöfn í maí á síðasta ári og nú, rétt tæpu ári síðar, eiga hjúin von á sínu fyrsta barni.

Jarðskjálfti skekur Japan

Jarðskjálfti skók Japan í morgun og mældist hann 4,7 á Richter. Upptök skjálftans voru skammt norður af höfuðborginni Tókýó. Ekki hafa borist fréttir af manntjóni eða skemmdum á mannvirkjum af völdum jarðskjálftans.

Mannkynið lærði mikið af stríðinu

Þess er minnst víða í Evrópu í dag að 60 ár eru liðin frá uppgjöf nasista og lokum seinna stríðs í Evrópu. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, sem tekur þátt í hátíðahöldum í Moskvu, telur að mannkynið hafi, þrátt fyrir allt, lært mikið af hildarleiknum. 

Klamydía herjar á mörgæsir

Kynsjúkdómurinn klamydía herjar á mörgæsir í dýragarðinum í San Francisco. Tólf mörgæsir í garðinum hafa greinst með klamydíu og skilur enginn hvernig í ósköpunum þær smituðust af bakteríunni.

Bakka ekki með frumvörpin

Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin bakki hvorki með frumvarp um samkeppnislög né hin um fjarskiptalögin og Ríkisútvarpið, þótt umdeild séu. Þingmenn ræddu breytingar á samkeppnislögum í allan gærdag þar til þingfundi var slitið um klukkan hálf sjö.

Neitar að taka við embættinu

Enn hefur ekki tekist að mynda endanlega ríkisstjórn Íraks. Í dag bárust fréttir af því að súnní-músliminn Hashim al-Shible, sem taka átti við embætti mannréttindamálaráðherra, hefði neitað að taka við stjórn ráðuneytisins.

Mannlaus bíll rann u.þ.b. 50 metra

Töluverðar skemmdir urðu þegar mannlaus bíll rann úr stæði við Vesturbraut í Keflavík í gær og lenti á gömlu timburhúsi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í bænum rann bíllinn um fimmtíu metra áður en hann skall á húsinu og sér töluvert bæði á bílnum og húsinu. Víkurfréttir greina frá þessu.

Halldór kominn til Moskvu

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra er kominn til Moskvu til að vera viðstaddur hátíðarhöld í borginni á morgun þar sem þess er minnst að 60 ár eru liðin frá uppgjöf nasista og lokum síðari heimsstyrjaldar í Evrópu.

Tilbúnir í nýjan fjölmiðlaslag

Stjórnarandstæðingar eru tilbúnir að sitja næstu vikur á þingi ef reynt verður að keyra í gegn frumvarp um Ríkisútvarpið án nauðsynlegrar umræðu, segja þeir. Kynntar verða breytingar á frumvarpinu í menntamálanefnd þingsins í dag.

Eldur í skóglendi fyrir austan

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldur kom upp í skóglendi um þrjátíu kílómetra frá Egilsstöðum síðdegis í dag. Sumarhúsabyggð er í grennd við svæðið þar sem eldurinn kom upp og var eitt húsanna í töluverðri hættu að sögn Baldvins Pálssonar, slökkviliðsstjóra brunavarna á Héraði.

Hringurinn þrengist um al-Zarqawi

Öryggissveitir Íraka hafa handsamað lykilmann í hryðjuverkahópi Abu Musabs al-Zarqawis sem sagður er æðsti maður al-Qaida í landinu. Þetta er annar háttsettur leiðtogi innan skæruliðahóps Zarqawis sem handsamður er á stuttum tíma.

Sinubruni í Mosfellsdal

Slökkviliðið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna sinubruna í Mosfellsdal um þrjúleytið í dag. Töluvert mikill eldur logaði í sinunni þegar slökkvilið kom á vettvang en það tók um tvær klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins að fullu.

Ófeigur hvolpur tekinn í fóstur

Fjögurra mánaða Border Collie hvolpur, sem beið dauða síns á Hundahótelinu á Leirum, hefur verið tekinn í fóstur. Fimm manna fjölskylda í Kjós tók hvolpinn að sér eftir að eigandi hundahótelsins framlengdi dvöl hans í þeirri von að einhver gæfi honum tækifæri.

Veltur framtíð Blairs á ESB?

Evrópumálin verða líklega stærsta verkefni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, á þriðja kjörtímabili hans. Takist honum ekki að fá bresku þjóðina til að samþykkja nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins kann það að binda enda á pólitískan feril hans.

Geðsjúkur maður rændi bifreiðum

Tvítugur maður rændi tveimur bifreiðum með skömmu millibili í dag með því að ógna ökumönnum og draga þá út. Hann var útskrifaður af geðdeild um hádegi í dag eftir að hafa verið fluttur þangað með alvarlegt þunglyndi og ranghugmyndir í gærkvöld. Litlu mátti muna að stórslys yrði.

Sýning á handverki í Árbænum

Handverksfólk úr félagsmiðstöðinni í Hraunbæ 105 í Árbænum opnaði sýningu á vetrarstarfi sínu í dag. Málverk, útskurður, perlusaumur, bútasaumur og postulínsmálun er meðal þess sem gleður augað á sýningunni sem verður opin frá klukkan níu til fimm á morgun. Gestum er að sjálfsögðu boðið upp á kaffiveitingar.

Mikil aukning í útgáfu vegabréfa

Bandaríkjaferðum Íslendinga fjölgaði um helming í vetur miðað við árið á undan. Útgáfa nýrra vegabréfa hefur aukist í takt við það, enda þarf rafrænt vegabréf til að ferðast til Bandaríkjanna. Það er þó mögulegt að sleppa með það gamla enn um sinn - en bara einu sinni.

Enginn afsláttur af kjarasamningum

Árni Bjarnason forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands segir sambandið allt af vilja gert til að greiða fyrir nýsmíði skipa, svo framarlega sem kröfur útgerðarmanna vegna nýsmíða gangi ekki gegn nýgerðum kjarasamningum.

Taki á vegamálum af festu

Allt útlit er fyrir að vegaáætlun fyrir næstu fjögur ár verði samþykkt að mestu óbreytt á Alþingi fyrir þinglok síðar í vikunni. Áætlunin var afgreidd úr samgöngunefnd þingsins án verulegra breytinga en búast má við fjörlegum umræðum um áætlunina.

Rætt um kjör og biðlista

"Það vantar verulega á að hlustað sé nægilega vel á okkur í sambandi við kjörin. Þar þurfum við að gera stórátak," segir Benedikt Davíðsson, fráfarandi formaður Landssamands eldri borgara sem heldur landsfund á Kaffi Reykjavík í dag og á morgun.

Of lítill munur á dísel og bensíni

"Mér er það til efs, þrátt fyrir þessa fimm krónu lækkun, að atvinnubílstjórar séu spenntir fyrir því að vera á díselbíl frekar en bensínbíl, segir Óskar Stefánsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka dísilolíugjald um fimm krónur

Kallað á viðamiklar breytingar

Kallað er á viðamiklar breytingar á þjónustu fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur á Íslandi í skýrslu sem starfshópur á vegum trygginga- og heilbrigðisráðuneytis hefur unnið og lögð hefur verið fyrir Alþingi.

Lærðu lítið af hörmungum stríðsins

Í dag eru 60 ár síðan tilkynnt var um frið í Evrópu og að þýsku nasistarnir hefðu gefist upp. Fyrrum landflótta gyðingur, sem kom hingað til lands í upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar, segir mannkynið lítið hafa lært af þeim hörmungum. Sex milljónir gyðinga létust í helförinni.

Sjá næstu 50 fréttir