Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvatt til aukinnar þróunaraðstoðar Ef ríkustu þjóðir heims tvöfölduðu þróunaraðstoð sína væri hægt að bjarga lífi 30 milljóna barna og koma í veg fyrir að 250 milljónir manna liðu hungur. Þetta kemur fram í nýrri og viðamikilli skýrslu um þróunarmál sem birt var á vegum Sameinuðu þjóðanna í dag. 17.1.2005 00:01
Fyrirskipar aðgerðir gegn herskáum Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti Palestínu, hefur fyrirskipað palestínskum öryggissveitum að koma í veg fyrir árásir herskárra palestínskra samtaka á ísraelsk skotmörk. Þetta er stefnubreyting hjá palestínskum stjórnvöldum því hingað til hafa þau ekki gripið til aðgerða gegn hryðjuverkum heldur sagt að það sé ekki á þeirra valdi. 17.1.2005 00:01
Varað við snjóflóðum við Ísafjörð Vegagerðin hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að snjóflóðahætta sé á vegum í nágrenni Ísafjarðar. Er fólk beðið um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þetta á sérstaklega við um Óshlíð, Súðavíkurhlíð og Flateyrarveg. 17.1.2005 00:01
Afsökunarbeiðni birt í vikunni Afsökunarbeiðni til íröksku þjóðarinnar vegna stuðnings Íslands við innrásina í Írak mun birtast í bandaríska dagblaðinu New York Times í þessari viku, þeirri sömu og George W. Bush Bandaríkjaforseti verður settur í embætti. 17.1.2005 00:01
Fólk hugi að smáfuglum Fuglavernd hvetur fólk til að huga að smáfuglum þar sem þeir eiga erfitt með að ná sér í fæðu vegna snjóalaga. Einkum eiga skógarþrestir, sem hafa vetursetu hér á landi, erfitt uppdráttar við þessar aðstæður og sömuleiðis svartþrestir. 17.1.2005 00:01
Danir glaptir inn á lúxussjúkrahús Dæmi eru um að Danir, sem hafa legið hálfósjálfbjarga eftir slæmar byltur í Austurrísku-Ölpunum, láti glepjast af tilboðum björgunarmanna um að flytja þá á fyrsta flokks sjúkrahús til aðhlynningar. Danirnir og sjálfsagt fleiri þiggja þetta með þökkum en eru svo útskrifaðir með himinháa reikninga á bakinu. 17.1.2005 00:01
Bandaríkjamenn inn á Evrópumarkað Bandarískir útvegsmenn leita nú sem aldrei fyrr inn á Evrópumarkað með sjávarafurðir sínar í samkeppni við íslenskar afurðir vegna sterkrar stöðu evrunnar gagnvart dollaranum. 17.1.2005 00:01
Rúm 1700 skiptu um trúfélag 1705 Íslendingar skiptu um trúfélag á síðasta ári eða 0,6 prósent landsmanna. Hlutfallið er svipað því sem verið hefur undanfarin ár, samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Af þeim sögðu 66 prósent sig úr þjóðkirkjunni eða um ellefu hundruð manns. Nýskráningar voru flestar í Fríkirkjuna í Reykjavík, Fríkirkjuna í Hafnarfirði og kaþólsku kirkjuna. 17.1.2005 00:01
Frjálslyndir eina alvöruandstaðan Charles Kennedy, formaður Frjálslynda flokksins í Bretlandi, hóf kosningabaráttuna með látum í dag þegar hann lýsti því yfir að Íhaldsflokkurinn væri ekki lengur aðalstjórnarandstöðuflokkurinn í landinu. Eina raunhæfa andstaðan við Verkamannaflokkinn væru frjálslyndir. 17.1.2005 00:01
Viðbúnaðarástand á Vestfjörðum Almannavarnanefndir á norðanverðum Vestfjörðum, í samráði við Veðurstofu Íslands, lýstu fyrir stundu yfir viðbúnaðarástandi í öllum þéttbýlisstöðum á svæðinu vegna snjóflóðahættu. 17.1.2005 00:01
Segir hættuna ekki mikla Dönsk yfirvöld hafa varað danska þegna við yfirvofandi hryðjuverkaárás í Aceh-héraði í Indónesíu. Íslenskur hjálparstarfsmaður í héraðinu segir hins vegar að það sé almennt mat manna að hættan sé ekki mikil. 17.1.2005 00:01
Þáðu eftirlaun í fullu starfi Sjö fyrrverandi ráðherrar þáðu sautján milljónir króna í eftirlaun á síðasta ári á sama tíma og þeir gegndu fullu starfi á vegum hins opinbera. Launagreiðslurnar eru tilkomnar vegna lagabreytinga sem meðal annars höfðu það markmið að draga úr sókn gamalla þingmanna í embætti í stjórnkerfinu. Ráðherrarnir fyrrverandi eiga heima í almennum lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins að mati formanns BSRB. 17.1.2005 00:01
Kristinn útilokar ekki framboð Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir forystu flokksins úr takti við almennan vilja flokksmanna. Hann útilokar ekki að gefa kost á sér sem varaformaður flokksins. 17.1.2005 00:01
Þrjú hús rýmd á Ísafirði Þrjú hús, þar af tvö atvinnnuhús, voru rýmd upp úr hádegi á Ísafirði á milli gamla bæjarkjarnans og Holtahverfis vegna snjóflóðahættu. Viðbúnaðarástand vegna snjóflóðahættu er í gildi á öllum norðanverðum Vestfjörðum. 17.1.2005 00:01
Sigurður hættir hjá Flugleiðum Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, lætur af því starfi 31. maí eftir 29 ára starf hjá félaginu, þar af 20 ár sem forstjóri. Þetta kom fram á stjórnarfundi í morgun. Hannes Smárason, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og stjórnarformaður Flugleiða, verður nú starfandi stjórnarformaður og mun einbeita sér að útrás og viðskiptaþróun félagsins, eins og segir í tilkynningu frá félaginu. 17.1.2005 00:01
Forsætisráðherrar á hamfaraslóð Forsætisráðherrar Svíþjóðar, Noregs og Finnlands eru nú á hamfarasvæðunum í Taílandi þar sem þeir hyggjast reyna að afla upplýsinga um afdrif fjölmargra landa sinna sem ýmist eru látnir eða saknað eftir að flóðbylgjan reið yfir landið fyrir rúmum þremur vikum. 17.1.2005 00:01
2,7% atvinnuleysi í desember 94.060 atvinnuleysisdagar voru skráðir í desember á landinu öllu sem jafngildir því að 4.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þetta eru um 2,7% af mannafla á vinnumarkaði í desember. Atvinnuleysi jókst örlítið á milli mánaða en í nóvember var atvinnuleysi 2,6%. 17.1.2005 00:01
Dæmdir fyrir aðild að fjöldamorðum Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag dæmdi í dag tvo fyrrverandi yfirmenn í her Bosníu-Serba í átján og níu ára fangelsi fyrir aðild sína að fjöldamorðunum í Srebrenica í Bosníu árið 1995, en þar voru rúmlega 7.000 múslímar teknir af lífi. 17.1.2005 00:01
Hús rýmd í Bolungarvík Búið er að rýma átta efstu íbúðarhúsin í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu en þar búa um 30 manns. Þá er búið að lýsa hesthúsahverfið hættusvæði og vegurinn um Óshlíð til Ísafjarðar er ófær vegna snjóflóða. Bærinn Geirastaðir í Syðridal hefur líka verið rýmdur. 17.1.2005 00:01
Útskýrir aðdraganda Íraksmáls Forsætisráðherra sendi fyrir stundu frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um Íraksmálið. Þar segir: „Í ljósi endurtekinnar umræðu um aðdraganda þeirrar ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að styðja Bandaríkjamenn, Breta og fleiri þjóðir vegna innrásarinnar í Írak í marsmánuði árið 2003 vill Halldór Ásgrímsson forsætiráðherra ítreka eftirfarandi: 17.1.2005 00:01
Hættan metin úr fjarska Snjóflóðavakt hefur verið á Veðurstofunni í Reykjavík síðan snemma í gærmorgun, og helst er fylgst með Vestfjörðum þar sem ekki hefur verið svona mikill snjór í fjöllum síðan 1995. 17.1.2005 00:01
Bretar senda 650 hermenn til Íraks Bretar hafa sent 650 hermenn til viðbótar til Íraks til þess að reyna að efla öryggi í kringum kosningarnar sem haldnar verða í landinu í lok mánaðarins. Uppreisnarmenn hafa ítrekað gert árásir á her, lögreglu og almenning undanfarnar vikur og er talið að þeir reyni að koma í veg fyrir að kosið verði í landinu um mánaðamótin. 17.1.2005 00:01
Veður versnar á Vestfjörðum Veður fer nú versnandi á norðanverðum Vestfjörðum og er búið að rýma átta hús í Bolungarvík eftir að þrjú snjóflóð féllu úr Traðarhyrnu, en þau stöðvuðust rétt ofan við byggðina. Þrjú hús hafa verið rýmd á Ísafirði og nokkrir bæir í Önundarfirði og Dýrafirði vegna snjóflóðahættu þar. Auk þess hafa nokkur athafnasvæði verið lýst hættusvæði. 17.1.2005 00:01
Legudeild fyrir flensusjúklinga Enn er lítið lát á fárveiku fólki sem streymt hefur inn á Landspítala háskólasjúkrahús undanfarna daga af völdum inflúensu og annarra umgangspesta. 17.1.2005 00:01
Rífandi gangur í útsölum Sigurður Jónsson forstjóri Samtaka verslunar og þjónustu kvaðst hafa tekið stöðuna hjá nokkrum þeirra í síðustu viku og svo virtist sem rífandi gangur væri í þeim. 17.1.2005 00:01
Stærsta farþegavél sögunnar Airbus A380 farþegaflugvélin verður frumsýnd við hátíðlega athöfn í dag í Toulouse í Frakklandi og muna marka tímamót því hún er stærsta farþegaflugvél sögunnar. 17.1.2005 00:01
Rifbrotinn og allur lurkum laminn Nói Marteinsson, bifreiðastjóri á Tálknafirði, var hætt kominn í gær þegar flutningabíllinn sem hann ók fór út af veginum í blindbyl og niður 150-200 snarbratta hlíð. Bíllinn er gjörónýtur. Nói rifbrotnaði og er lurkum laminn eftir að hafa barist í bílhúsinu niður í árfarveg, þar sem bíllinn stöðvaðist. </font /></b /> 17.1.2005 00:01
Óheilbrigðir viðskiptahættir "Þetta er óréttlátt gagnvart öðrum bjóðendum og óheilbrigðir viðskiptahættir," segir Bergþór Jónsson annar eigenda verktakafyrirtækisins Mótás sem hefur sent bæjarráði Garðabæjar skriflegar athugasemdir við útboð á byggingarlóðum við Bjarkarás í Garðabæ. 17.1.2005 00:01
Bíldekk skall á rútu "Það sluppu allir ómeiddir því dekkið lenti sem betur fer bara utan á rútunni en fór ekki inn í bílinn, það hefði getað kostað mannslíf," segir Sveinn Sigurbjarnarson eigandi rútu sem varð fyrir bíldekki sem losnaði af tengivagni sem var að koma úr gagnstæðri átt í Fagradal í Suður-Múlasýslu á laugardag. 17.1.2005 00:01
Nám á háskólastigi tekið út Menntamálaráðherra hefur gert þriggja ára áætlun um úttekt á námi á háskólastigi. Tilteknar deildir og námsleiðir í Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum í Reykjavík og Viðskiptaháskólanum á Bifröst verða teknar út, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. 17.1.2005 00:01
Tollstjóri greiði bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Tollstjórann í Reykjavík til að greiða Kolbrúnu Björndsdóttur grasalækni 200 þúsund krónur í miskabætur fyrir að leggja hald á jurtir sem hún hafði pantað frá Bretlandi árið 2001. 17.1.2005 00:01
Fá allt að 400 þúsund ofan á laun Dæmi eru um að fyrrverandi ráðherrar sem gegna sendiherrastöðu geti haft allt að fjögur hundruð þúsund krónur ofan á laun sendiherra sem eru um milljón á mánuði. 17.1.2005 00:01
Danir vara við hættu Leiðtogi uppreisnarmanna í Aceh héraði, Indlandi segir að ekki verði ráðist gegn erlendum hjálparstarfsmönnum. Viðtalið kom í kjölfar viðvarana danskra yfirvalda í gær um yfirvofandi hættu á árás skæruliða. 17.1.2005 00:01
Herdómstól frestað Dómari ákvað í gær að fresta máli þriggja breskra hermanna sem ásakaðir hafa verið um að misþyrma föngum í Írak. 17.1.2005 00:01
Hugsa enn í mörkum Þremur árum eftir að Þjóðverjar skiptu úr þýskum mörkum í evrur, telur rúmur helmingur þeirra enn eftirsjá í gömlu myntinni, eftir því sem fram kemur í rannsókn sem birt var í Þýskalandi. 17.1.2005 00:01
Látinn eftir 15 ára þögn Zhao Ziyang, fyrrum leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, lést á mánudag 85 ára að aldri á sjúkrahúsi í Bejing. 17.1.2005 00:01
Ófært í fjárhús vegna snjóflóðs Björgunarsveitin Kópur á Bíldudal þurfti að aðstoða fjáreiganda inni í Auðahringsdal við að gefa sauðfé sínu í gær, þar sem snjóflóð hafði fallið á veginn heim að bænum, svo þangað var ófært. 17.1.2005 00:01
Menntun, atvinna og velferð Danskir sósíaldemókratar hafa hafið kosningabaráttu sína og lofa að skapa 50.000 ný störf á næsta kjörtímabili, fái þeir til þess umboð, og ætla að auka fjárveitingar til atvinnusköpunar um rúma 19 milljarða. 17.1.2005 00:01
Segir Bandaríkin undirbúa árás Bandarísk stjórnvöld undirbúa árás á Íran og bandarískar sérsveitir eru þegar að störfum í landinu. Einn reyndasti rannsóknarblaðamaður Bandaríkjanna, Seymour Hersh, heldur þessu fram í nýrri grein sem birtist í tímaritinu New Yorker. 17.1.2005 00:01
Dómstóll fjallar um mál Fischers Japanskur dómstóll mun á miðvikudag fjalla um það hvort Bobby Fischer verður vísað frá Japan og hann fluttur til heimalands síns, Bandaríkjanna. Lögfræðingur Fischers, Masako Suzuki, sagðist í samtali við fréttastofu í dag ætla að nota þetta tækifæri og krefjast þess að tekin verði afstaða til tilboðs íslenskra stjórnvalda um að veita Fischer landvistarleyfi. 17.1.2005 00:01
Skiptastjóri FF til Lúxemborg Sigurður Gizurarson, skiptastjóri í gjaldþrotamáli Frjálsrar fjölmiðlunar, ætlar sjálfur að leita upplýsinga í Lúxemborg um dótturfyrirtæki Frjálsrar fjölmiðlunar og hugsanlegar eigur þeirra þar. 17.1.2005 00:01
Sérsniðin lífeyrislög hneyksli Þingmaður Vinstri-grænna segir að það hafi verið vitað þegar eftirlaunafrumvarpið var samþykkt á þingi árið 2003 að samkvæmt því gætu fyrrverandi ráðherrar þegið eftirlaun á sama tíma og þeir gegndu starfi á vegum hins opinbera. Þingmaður Sjálfstæðisflokks gerir ekki athugasemdir við að þeir njóti góðra lífeyriskjara sem hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir þjóðina. </font /></b /> 17.1.2005 00:01
Rætt um orkumál vegna stóriðju Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, fór til fundar við forsvarsmenn orkufyrirtækja á Norðurlandi í gær. Meðal þeirra eru forsvarsmenn Norðurorku og fulltrúar Akureyrarbæjar, Húsavíkur og Lauga. Friðrik segir rætt hafi verið um ástand og horfur í orkumálum. 17.1.2005 00:01
Davíð og Halldór einir um ákvörðun Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti í dag að hann og Davíð Oddsson hefðu einir tekið þá ákvörðun að Ísland styddi innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak fyrir tveimur árum. Í yfirlýsingu þessa efnis kemur ekki fram hvort sú ákvörðun hafi áður verið rædd í utanríkismálanefnd Alþingis. Djúpstæður ágreiningur virðist í Framsóknarflokknum um málið. 17.1.2005 00:01
Hannes tekur við af Sigurði Sigurður Helgason lætur af störfum sem forstjóri Flugleiða í vor en hann var nýverið kjörinn maður ársins í viðskiptalífinu af tímaritinu Frjálsri verslun. Hannes Smárason verður starfandi stjórnarformaður. 17.1.2005 00:01