Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gengur illa að fá fullnægingu Engin þjóð á eins mikið af titrurum og Íslendingar og engri þjóð finnst eins gaman að leika sér með kynlífsleikföng. Rúmur helmingur þjóðarinnar nýtur þess að horfa á klám með maka sínum en Íslendingum gengur hins vegar bölvanlega að fá fullnægingu. 17.1.2005 00:01
Komi í veg fyrir árásir á Ísrael Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, fyrirskipaði palestínskum öryggissveitum í gær að reyna að koma í veg fyrir árásir á Ísrael. Hann fyrirskipaði þeim einnig að rannsaka skotárásina á Gaza í síðustu viku sem kostaði sex ísraelska verkamenn lífið. 17.1.2005 00:01
Á þriðja tug myrtir í Írak Á þriðja tug manna létust í árásum vígamanna í Írak í gær. Ofbeldisverk vígamanna eru nú í algleymingi, tæpum tveimur vikum áður en Írakar ganga að kjörborðinu og velja stjórnlagaþing sem semur nýja stjórnarskrá Íraks og skipar bráðabirgðastjórn fram að nýjum kosningum. 17.1.2005 00:01
Stjórnvöld treg í taumi Spænska ríkisstjórnin segist ekki ráðast í neinar viðræður við aðskilnaðarsinnaða Baska fyrr en uppreisnarhreyfing ETA hættir vopnaðri baráttu sinni og lætur vopn sín af hendi. Þannig svöruðu stjórnvöld umleitunum ETA og stjórnmálaarms þeirra, Batasuna, um viðræður. 17.1.2005 00:01
Tugþúsundir í verkfallshug Viðbúið er að verkföll hafi mikil áhrif á franskt þjóðfélag í vikunni. Lestarstarfsmenn hófu verkfall á miðnætti síðustu nótt og hyggjast ekki snúa aftur til starfa fyrr en á fimmtudagsmorgun. Með þessu vilja þeir mótmæla áformum um að segja upp 3.500 starfsmönnum. Stjórn frönsku járnbrautanna kemur saman á morgun og fjallar um uppsagnirnar. 17.1.2005 00:01
Leita beina Kólumbusar Spænskir vísindamenn sem reyna að leysa ráðgátuna um hvar bein Kristófers Kólumbusar eru grafin hafa orðið sér úti um leyfi til að grafa upp líkamsleifar í Dóminíkanska lýðveldinu. Grunur leikur á um að bein Kólumbusar séu grafin þar en ekki á Spáni. 17.1.2005 00:01
Íhuga að banna hakakrossinn Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, íhugar að banna notkun hakakrossins, tákn þýskra nasista í tíð Adolfs Hitlers. Frattini sagðist reiðubúinn að taka málið upp á fundi framkvæmdastjórnarinnar í næstu viku. Verði bannið sett gildir það í öllum 25 ríkjum Evrópusambandsins. 17.1.2005 00:01
Ótti um snjóflóð 53 íbúar í Bolungarvík og Ísafjarðarbæ gátu ekki sofið í rúmum sínum í nótt vegna snjóflóðahættu. Alls voru rýmd 28 hús, bæði íbúðarhús og vinnustaðir. Þá voru vegir víða lokaðir eða takmarkanir settar á umferð vegna snjóflóðahættu úr bröttum hlíðum. Hættumat verður endurmetið nú strax í morgunsárið. 17.1.2005 00:01
Bókhaldið ófært Jón H. Snorrason segir fyrst og fremst stjórnendur hjá Frjálsri fjölmiðlun og öðrum félögum tengdum fyrirtækinu vera til rannsóknar hjá embættinu. 17.1.2005 00:01
Yfir hundrað íbúa rýmdu hús sín Fimmtíu íbúar úr fimmtán húsum við Urðarstíg, Mýrar og Hóla á Patreksfirði þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu og leituðu íbúar til ættingja og vina í bænum. Í Bolungarvík voru sjö hús rýmd auk eins sveitabæjar og fimmtán hús voru rýmd í Ísafjarðarbæ. 17.1.2005 00:01
Rúmlega 100 manns rýmdu hús sín Lokið er rýmingu húsa sem ákveðnar hafa verið á Vestfjörðum. Alls hafa 103 íbúar í 37 húsum þurft að yfirgefa heimili sín í dag vegna snjóflóðahættu. 49 á Patreksfirði, 23 á Ísafirði, Hnífsdal og í dreifbýli Ísafjarðarbæjar og 31 á Bolungarvík og tveimur bæjum þar við. Almannavarnir munu fylgjast grannt með þróun mála í nótt. 17.1.2005 00:01
Súðavík flutt Tíu ár eru í dag liðin frá því að snjóflóð féll á Súðavík og hreif með sér fjórtán mannslíf. Í kjölfar flóðanna var nýtt þorp reist, litlu innar í Álftafirði, þar sem ekki er hætta á að snjóflóð falli. Flutningur byggðarinnar var þrekvirki. Björn Þór Sigbjörnsson blaðamaður og Pétur Sigurðsson ljósmyndari voru á ferð í Súðavík í vikunni. </font /></b /> 16.1.2005 00:01
Maður lærir að lifa með þessu Missir Sigríðar Rannveigar Jónsdóttur og Þorsteins Arnar Gestssonar var mikill. Dóttir þeirra og foreldrar Þorsteins fórust í flóðinu. Parið unga flutti í burtu í kjölfarið en sneri svo aftur heim. Sigríður segir gott að búa í Súðavík en ekki líður sá dagur að hún hugsi ekki til atburðanna fyrir tíu árum. </font /></b /> 16.1.2005 00:01
Evrópumálin verða stærsta verkefnið næstu 5 til 10 árin Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, útilokar ekki aðild að Evrópusambandinu. Í ítarlegu viðtali segir hann Samfylkinguna hafa glutrað niður möguleika á stjórnarþátttöku í síðustu kosningabaráttu. Hann gagnrýnir sjálfstæðismenn fyrir framkomu sína við forseta Íslands og segir Íslendingum ekki geðjast að Bush Bandaríkjaforseta. 16.1.2005 00:01
Dregið úr yfirtíð hjá Akureyrarbæ Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt nýjar vinnureglur um yfirvinnu starfsmanna bæjarins en samkvæmt þeim heyrir föst yfirvinna sögunni til og aðeins verður greitt fyrir unna yfirvinnu. Samkvæmt nýju vinnureglunum má yfirvinna ekki fara yfir 600 klukkustundir á yfirstandandi ári og ekki yfir 500 klukkustundir á næsta ári. 16.1.2005 00:01
Björgunarsveit leitaði fimm manna Björgunarsveitin Strákar frá Siglufirði kom fimm vélsleðamönnum til bjargar í gærkvöldi. Beiðni um aðstoð barst á fimmta tímanum í gær frá vélsleðamanni sem hafði orðið viðskila við fjóra félaga sína en mennirnir voru á leið frá Siglunesi í Héðinsfjörð. Mjög slæmt skyggni var á þessum slóðum og djúpur snjór. 16.1.2005 00:01
Hálka og þung færð víða Hálka og þung færð er víða. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er snjóþekja og snjókoma suðvestanlands og á Vesturlandi. Það er hálka á Holtavörðuheiði og á Norðurlandi og hálka og éljagangur er á Vestfjörðum. Kleifaheiði er þungfær og þæfingur á Hálfdáni. 16.1.2005 00:01
Rúður brotnuðu í sprengingu Þrír ungir karlmenn eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík, grunaðir um skemmdarverk. Laust fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um sprengingu við Skipholt. Þar hafði verið sprengd heimatilbúin sprengja með þeim afleiðingum að skyggni við veitingastaðinn American Style skemmdist, rúður brotnuðu og fleira. 16.1.2005 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæði eru víða opin í dag. Bretta- og skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið til klukkan fimm. Þar er troðinn, þurr snjór, eins stigs frost og logn. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, segir greinilegt að landsmenn kunni að meta að snjóað hafi undanfarnar vikur því að snjóbretta- og skíðaáhugi sé mikill. 16.1.2005 00:01
ETA vill friðarviðræður ETA, aðskilnaðarsamtök Baska, segjast reiðubúin að hefja friðarviðræður við ríkisstjórn Spánar. Í dagblaðinu <em>Gara</em> sem gefið er út í Baska-héraði birtist í dag yfirlýsing frá ETA þar sem þetta kemur fram. Það er hins vegar ekkert minnst á hvort samtökin hafi í hyggju að leggja niður vopn eins og spænska stjórnin hefur sett sem skilyrði fyrir friðarviðræðum. 16.1.2005 00:01
Hvers vegna dýrin lifðu af flóðin Vísindamenn telja sig nú hafa komist að því hvers vegna öll villt dýr á Srí Lanka lifðu af flóðbylgjurnar í Suðaustur-Asíu. 16.1.2005 00:01
Ísraelsmenn herða aðgerðir Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði fyrir ríkisstjórnarfund í morgun að aðgerðir gegn herskáum Palestínumönnum yrðu hertar til muna á næstunni í kjölfar árása síðustu daga. Sagði hann að herinn hefði leyfi til að nota allar aðferðir. 16.1.2005 00:01
Mikil hálka á höfuðborgarsvæðinu Það er líklega full ástæða til að vara gangandi vegfarendur við hálkunni sem nú er. Erill var á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í gær og í fyrradag vegna hálkuslysa, án þess þó að alvarleg slys yrðu. Um var að ræða minniháttar beinbrot, mar og tognanir sem og höfuðhögg. Rólegt hefur hins vegar verið á slysadeildinni það sem af er degi, enda kannski fáir komnir á kreik. 16.1.2005 00:01
Tíu ára fangelsi fyrir pyntingar Bandaríski herlögreglumaðurinn Charles Graner var í gærkvöldi dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir pyntingar á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. 16.1.2005 00:01
225 milljónir hafa safnast 110 milljónir króna söfnuðust í söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri, viðamestu söfnun landsins, sem hófst á þriðjudag og lauk í beinni útsendingu sjónvarpsstöðvanna þriggja í gærkvöld. Alls hafa safnast 225 milljónir til þeirra samtaka sem verja munu söfnunarfénu í þágu þeirra sem eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Asíu. 16.1.2005 00:01
81 meintur talíbani látinn laus Bandaríski herinn í Afganistan hefur látið lausan áttatíu og einn fanga í Bagram, norður af Kabúl, að sögn talsmanns hæstaréttar þar í landi. Mennirnir fá föt og verða svo sendir heim. Mennirnir eru meðal mörg hundruð meintra talíbana sem handteknir voru síðla árs 2001 og gefið að sök að leyna verustað Osama bin Ladens. 16.1.2005 00:01
Hálka víðast hvar um landið Hálka er suðvestanlands og éljagangur og snjóþekja á Vesturlandi. Þungfært er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt veður. Á Norðurlandi er víða hálka og éljagangur. 16.1.2005 00:01
Austurströndin nánast horfin Gríðarleg eyðilegging og oft og tíðum grimmdarleg örlög er meðal þess sem Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, hefur orðið vitni að á Srí Lanka undanfarna sólarhringa. Á vesturströndinni eru ferðamannastaðirnir, sem gáfu þeim bestu sem Íslendingar þekkja ekkert eftir, nánast í rúst. 16.1.2005 00:01
58 særðir eftir sprengingu Að minnsta kosti einn lést og 58 særðust í sprengingu fyrir utan veitingastað í Suður-Taílandi í morgun. Sex börn hið minnsta eru á meðal særðra. Talið er að íslömsk aðskilnaðarsamtök í suðurhéruðum landsins séu ábyrg fyrir ódæðinu en blóðug borgarastyrjöld hefur geisað í héruðunum frá því snemma á síðasta ári. 16.1.2005 00:01
Sprengjumönnum sleppt Lögreglan hefur sleppt þremenningunum sem sprengdu sprengju við veitingastaðinn American Style í nótt. Við yfirheyrslur gátu þeir litlar skýringar gefið á athæfinu en sögðu að ekki hafi verið um heimatilbúna sprengju að ræða heldur öfluga rakettu sem prikið hefði verið tekið af. 16.1.2005 00:01
Kostnaðarsamur mokstur á Akureyri Talsvert fannfergi er nú á Akureyri og er kostnaður bæjarfélagsins við snjómokstur ærinn. Það má áætla að hann kosti bæjarbúa árlega um 40 milljónir króna samkvæmt fréttavef Akureyrar en árið 2004 nam kostnaðurinn um eða yfir 48 milljónum. 16.1.2005 00:01
Kertalogi orsök brunans Bruni á Akureyri í fyrrinótt orsakaðist af kerti sem brann niður án þess að íbúinn yrði þess var fyrr en of seint. Kertið brann í gegnum borð sem það stóð á. Nágranni sýndi mikið snarræði og bjargaði stúlkunni sem þar bjó út undir bert loft en hún var að reyna að skríða út úr reykjarkófinu af sjálfsdáðum. 16.1.2005 00:01
Þakka taílensku þjóðinni Forsætisráðherrar Svíþjóðar, Noregs og Finnlands hittu í dag ýmsa ráðamenn Taílands, þ.á m. forsætisráðherra landsins og kónginn, til að þakka þjóðinni fyrir hennar þátt í að bjarga og hlúa að þeim Svíum, Norðmönnum og Finnum sem lentu í og áttu um sárt að binda eftir flóðin við Indlandshaf á dögunum. 16.1.2005 00:01
Mandela til liðs við Breta Nelson Mandela mun taka þátt í svokallaðri Marshall-aðstoð Breta sem felst í að vinna gegn fátækt og skuldasöfnun fátækustu ríkja Afríku. Hann tilkynnti þetta eftir að fund sinn með Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, í Suður-Afríku í dag. Leiðtoginn mun meðal annars taka þátt í ráðstefnu í tengslum við verkefnið í Lundúnum í næsta mánuði. 16.1.2005 00:01
Snjóblásari utan í bíl Árekstur varð á Seyðisfirði um tvöleytið í gær þegar snjóblásari fór utan í fólksbíl. Snjóblásarinn var að aka inn á veg rétt fyrir utan bæinn og sá ekki bíl sem kom þar aðvífandi. 16.1.2005 00:01
Óhapp við umferðarljós Betur fór en á horfðist í allhörðum árekstri á Akureyri upp úr klukkan 14 í gær þegar tveir bílar skullu saman á umferðarljósum við Glerárgötu og Tryggvabraut. Flughált var á Akureyri í gær. 16.1.2005 00:01
Sprengdu þakskyggni Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti. 16.1.2005 00:01
Frjósamari vegna breytts litnings Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa uppgötvað þriggja milljóna ára gamlan litning í erfðamengi mannsins sem hefur að hluta til snúist á haus en þeir sem bera þennan breytta litning eignast að meðaltali fleiri börn en aðrir. Þetta hefur líklega gerst við blöndun ólíkra tegunda. 16.1.2005 00:01
Fjölmenni við guðsþjónustuna Fjölmenni var við minningarguðsþjónustu í Súðavík í dag þar sem þess var minnst að áratugur er frá snjóflóðinu mannskæða. Sumum íbúum þar er órótt þegar veður eru válynd en presturinn segir að aðstoð góðra vina og hjálp hafi hjálpað þeim sem misstu mest að halda lífinu áfram. 16.1.2005 00:01
Frjáls fjölmiðlun til rannsóknar Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir fjölda mála vera til rannsóknar sem tengist gjaldþroti Frjálsrar fjölmiðlunar, fyrirtækinu og forsvarsmönnum þess. 16.1.2005 00:01
Komin á staðinn í huganum Átta manna hópur Íslendinga, sem var á Phatong-ströndinni í Taílandi þegar flóðbylgjan reið yfir, er kominn til Íslands. 16.1.2005 00:01
Þakklát að vera á lífi Íslendingarnir átta sem voru í mánuð í Taílandi komu heim um helgina. Ein úr hópnum, Margrét Þorvaldsdóttir, segir að það hafi verið hryllilegt að upplifa flóðið og skelfingarnar sem á eftir fylgdu. 16.1.2005 00:01
Miðast við lög og dómafordæmi Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að saksóknarar embættisins fari yfir rannsóknargögn hvers máls og það þurfi að vera líklegt eða verulega líklegt að ákæra leiði til sakfellingar til að málið leiði til ákæru. 16.1.2005 00:01
Trúa börnunum en vantar sannanir Saksóknari fellir niður rúmlega helming mála vegna meints kynferðisbrots á börnum þar sem ekki þykir líklegt að ákæra leiði til sakfellingar. Oftast vantar frekari sannanir. </font /></b /> 16.1.2005 00:01
Urðum að leita skjóls Fjórir vélsleðamenn biðu í neyðarskýli í Héðinsfirði í fimm klukkutíma án þess að vita hvað hefði orðið um fimmta manninn sem var með þeim í för á laugardag. "Ég reyndi að fara á eftir honum en komst ekki neitt," segir Ragnar Már Hansson sem beið ásamt þremur öðrum eftir hjálp í neyðarskýlinu. 16.1.2005 00:01