Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjö ára ferðalag að skila árangri Evrópskt geimfar flaug í dag inn í lofthjúp Títans, sem er fylgitungl Satúrnusar, eftir sjö ára ferðalag frá jörðu. Títan er eitt af dularfyllstu himintunglum sólkerfisins. 14.1.2005 00:01
Tengsl slitin við stjórn Palestínu Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fyrirskipaði í dag embættismönnum sínum að slíta öll tengsl við nýja ríkisstjórn Palestínumanna þar til hún hefði bundið enda á hryðjuverkaárásir. Sex Ísraelar voru drepnir á landamærunum að Gasa í dag. 14.1.2005 00:01
Í lífshættu vegna sambýlismanns Nálgunarbann sem sett var á ofbeldisfullan sambýlismann konu hafði lítið að segja og var hún í lífshættu af hans völdum. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum gleymdi kæru sem hún lagði fram eftir að maðurinn beitti hana alvarlegu ofbeldi. 14.1.2005 00:01
Neituðu að sitja fyrir svörum Fulltrúar Impregilo neituðu að sitja fyrir svörum hjá Félagsmálanefnd Alþingis í morgun ef fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni yrðu viðstaddir. Gert hafði verið ráð fyrir því að þeir sætu samtímis fyrir svörum en horfið frá því að kröfu ítalska verktakafyrirtækisins. 14.1.2005 00:01
Landsfundur Samfylkingar í vor Allar líkur eru á því að landsfundur Samfylkingarinnar verði haldinn strax í vor. Þá verður komið í ljós hvort Össur Skarphéðinsson eða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verður formaður flokksins. 14.1.2005 00:01
Nemendur Ölduselsskóla safna Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri“ fékk öflugan stuðning frá sex til níu ára börnum í dag. Til dæmis söfnuðu börn á frístundaheimili ÍTR í Ölduselsskóla tæpum sextán þúsund krónum með sölu á bleikum pönnukökum og súkkulaðismákökum. 14.1.2005 00:01
Fróði flutti fyrirvaralaust Starfsmenn Fróða þurftu að pakka saman og flytja fyrirvaralaust í dag af Seljavegi upp á Höfðabakka. Ósamkomulag er á milli Fróða og Eikar Fasteignafélags um leigutíma núverandi húsnæðis. 14.1.2005 00:01
Eðlilegt að klára byrgðir Davíð Egilsson, forstjóri Umhverfisstofnunar, fundar með forsvarsmönnum Mjallar-Friggjar á mánudaginn, en fyrirtækið framleiðir klór í Kópavogi án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. 14.1.2005 00:01
Netbankinn styrkir fatlaða Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins hefur endurnýjað tölvubúnað sinn fyrir styrk sem Netbankinn veitti. Styrkurinn kom að góðum notum þar sem tölvukennsla og tölvunotkun er orðin vaxandi þáttur í endurhæfingarstarfi þjónustumiðstöðvarinnar. 14.1.2005 00:01
Sundabraut bíður enn Frestað var á fundi borgarráðs Reykjavíkur í vikunni afgreiðslu á tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um Sundabraut. 14.1.2005 00:01
Fjármagn fyrir meðferð ópíumfíkla Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir jákvætt að fjármagn fáist frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu til að halda áfram lyfjameðferð þrjátíu ópíumfíkla. Fjörutíu ópíumfíklar eru í lyfjameðferðinni. 14.1.2005 00:01
Framkvæmdastjórar ráðnir Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að ráða framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðva borgarinnar frá og með 1. mars næstkomandi. Ráðin verða Aðalbjörg Traustadóttir, Hafdís Gísladóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson og Ragnar Þorsteinsson. 14.1.2005 00:01
Minna veitt en árið áður Heildarafli síðasta árs var 1.723 þúsund tonn, heldur minni en afli ársins 2003 sem var 1.979 þúsund tonn 2003. 14.1.2005 00:01
Þarf að greiða þrjátíu milljónir Maður á sextugsaldri var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur til að greiða rúmar þrjátíu milljónir í sekt og í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og brotum um virðisaukaskatt. Eins árs fangelsi kemur í stað sektarinnar verði hún ekki greidd. 14.1.2005 00:01
Minni gjöld á fasteignir F-listinn í borgarstjórn mótmælti í vikunni hugmyndum Reykjavíkurlistans um hækkun fasteignagjalda. Listinn telur að óbreytt álagningarhlutfall fasteignagjalda leiði til of mikillar hækkunar vegna 20 prósenta hækkunar fasteignamats. 14.1.2005 00:01
Ræddi við forsetann Tómas Ingi Olrich afhenti í byrjun vikunnar Jacques Chirac, forseta Frakklands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Frakklandi. 14.1.2005 00:01
Árekstur jeppa og fólksbíls Rétt fyrir klukkan tíu síðasta miðvikudagsmorgun lentu saman hvítur Toyota Land Cruiser jeppi og grár VW Golf fólksbíll á mótum Arnarnesvegar og Bæjarbrautar í Garðabæ. 14.1.2005 00:01
25 kíló á kjaft Sala kindakjöts jókst um 13,5 prósent milli áranna 2003 og 2004, eða um 860 tonn, samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum sauðfjárbænda. Sala síðasta árs jafngildir því að hver Íslendingur hafi borðað um 25 kíló af kindakjöti. 14.1.2005 00:01
Gæti borgað sjúkrahús á 12 árum Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs harmar hugmyndir um að bjóða landsmönnum nýjan Landspítala fyrir einkavæðingu Símans, en lýsir um leið fullum stuðningi við aukin fjárframlög í þágu bættrar heilbrigðisþjónustu. 14.1.2005 00:01
Græddum meira á ferðafólki Tölur Seðlabanka Íslands sýna að gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum eru 2,2 milljörðum meiri fyrstu níu mánuði ársins 2004 en á sama tíma árið áður. 14.1.2005 00:01
Söfnunin nær hámarki Landssöfnunin vegna hamfaranna í Asíu á öðrum degi jóla, Neyðarhjálp úr norðri, nær hápunkti í dag. Söfnunin er ein sú umfangsmesta sem hér hefur verið ráðist í, en að henni stendur fjöldi hjálparsamtaka auk fjölmiðla, félagasamtaka, fyrirtækja og almennings. 14.1.2005 00:01
Eldsvoði í Mosfellsbæ Slökkvilið var fyrir stundu kallað að Tröllateig í Mosfellsbæ. Tilkynnt var um talsverðan eld í íbúð í nýbyggingu. Bílar frá tveimur stöðvum voru sendir á staðinn en ekki var frekari upplýsingar að hafa um eldsvoðann. 14.1.2005 00:01
Stýrir endurreisn þorps á Indlandi Íslenskur maður, Vilhjálmur Jónsson, stýrir nú hjálparstarfi og uppbyggingu í þorpinu Thazhankuda á austurströnd Indlands. Hann segir eyðilegginguna í þorpinu algjöra og íbúana í losti mörgum dögum eftir að hamfarirnar á annan dag jóla dundu yfir. 13.1.2005 00:01
Íbúarnir sátu og störðu út í tómið Vilhjálmur Jónsson frá Akureyri hefur ásamt félögum sínum tekið að sér uppbyggingarstarf í litlu þorpi á austurströnd Indlands. Mikið verk er framundan enda er eyðileggingin þar algjör. </font /></b /> 13.1.2005 00:01
Alfreð segist ekki hætta Alfreð Þorsteinsson segir kröfu um að hann víki vegna langs aldurs í pólitík út í hött og bendir á að hann hafi verið álíka lengi að og Halldór Ásgrímsson. </font /></b /> 13.1.2005 00:01
Ríkissaksóknari vill frekari gögn Að ósk ríkissaksóknara er sýslumannsembættið á Seyðisfirði að afla viðbótargagna vegna banaslyssins á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka aðfaranótt 15. mars í fyrra. Að þeim gögnum fengnum mun ríkissaksóknari taka ákvörðun um hvort ákært verður í málinu. 13.1.2005 00:01
Skuldir hamfaraþjóða frystar Parísarhópurinn svonefndi, sem nítján ríkustu þjóðir heims eiga aðild að, ákvað í gærkvöldi að skuldir þjóða sem urðu illa úti í hamförunum í Asíu yrðu frystar ef óskað verður eftir því. Alls hefðu þjóðirnar sem urðu fyrir barðinu á hamförunum þurft að greiða þjóðunum nítján um 300 milljarða króna í vexti og afborganir í ár. 13.1.2005 00:01
Vill að R-listinn starfi áfram Oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík segir að vísasti vegurinn til að tryggja Sjálfstæðisflokknum völd í Reykjavík sé að hætta samstarfi Reykjavíkurlistans. Hann er eindreginn stuðningsmaður þess að R-listinn bjóði fram í næstu borgarstjórnarkosningum. 13.1.2005 00:01
Þriggja enn saknað í Kaliforníu Þriggja er enn saknað í Kaliforníu eftir að gríðarlegar aurskriður féllu þar með þeim afleiðingum að tíu manns fórust og fimmtán hús eyðilöggðust. Björgunarsveitarmenn hafa fjarlægt fleiri tonn af leðju og braki eftir aurskriðurnar, sem féllu eftir fimm daga stanslausa úrhellisrigningu í fylkinu. 13.1.2005 00:01
Þyrla sótti slasaðan sjómann Þyrla af danska eftirlitsskipinu Triton, sem hélt nýlega frá Reykjavík, sótti síðdegis færeyskan sjómann, sem hafði slasast alvarlega á höfði um borð í togara djúpt norðvestur af landinu og flutti hann á slysadeild Landspítalans. Sjómaðurinn mun vera höfuðkúpubrotinn. 13.1.2005 00:01
Fundað um erlenda starfsmenn Fundur verður haldinn í Vinnumálastofnun í dag með fulltrúum frá Impregilo um ráðningu fimmtíu og fjögurra erlendra starfsmanna til starfa við Kárahnjúka og væntanlega um ráðningu enn fleiri útlendinga. 13.1.2005 00:01
Víða rafmagnslaust í Malasíu Rafmagnsleysi lamar nú atvinnulíf víða í Malasíu og í borginni Kúala Lúmpúr hafa verksmiðjur stöðvast, samgöngur truflast og sömuleiðis viðskiptalífið. Talið er að þetta megi rekja til þess að raflínur hafi laskast í hamförunum á annan í jólum og séu nú að gefa sig. 13.1.2005 00:01
Sjö létust í sprengingu á Spáni Sjö manns fórust í sprengingu í stórri vörugeymslu í spænsku borginni Burgos í norðurhluta Spánar í morgun. Í húsinu voru meðal annars geymdar vinnuvélar og eldsneyti, samkvæmt upplýsingum borgarstjórans í Burgos. Ekkert er enn vitað um orsakir sprengingarinnar. 13.1.2005 00:01
Tíu látnir í bruna í Íran Að minnsta kosti tíu börn og kennarar eru látin í barnaskóla í Íran sem enn stendur í björtu báli. Óttast er að mun fleiri muni farast þar. Slökkviliðsmenn berjast nú við eldinn og björgunarmenn koma börnum og kennurum til hjálpar. Ekki er greint frá að sprenging hafi orðið áður en eldurinn braust út. 13.1.2005 00:01
Hermaður seldi einkennisbúninginn Bandaríkjaher segir sölu hermannabúninga í Kolaportinu geta þýtt að stríð þeirra gegn hryðjuverkum sé unnið fyrir gýg. Ólafur Ólafsson, sem selur búningana, segir íslenska stúlku sem seldi honum einkennisbúning amerísks kærasta síns hafa skömmu seinna hringt í ofboði og beðið um að nafn kærastans yrði tekið af búningnum. Ella blasti við fangelsi. 13.1.2005 00:01
Ósáttur við ofurlaun Halldórsmanns Jón E. Böðvarsson flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli er með tvöföld mánaðarlaun Björns Inga Knútssonar sem hann er að leysa af í eitt og hálft ár. Jóni var ýtt til hliðar í Ratsjárstofnun til að rýma fyrir Ólafi Erni Haraldssyni framsóknarmanni. Davíð Oddsson er óánægður með embættisfærslu Halldórs Ásgrímssonar í málinu. 13.1.2005 00:01
Kapteinn Kókaín á Hauki ÍS Tveir sjómenn af togaranum Hauki ÍS-847 sitja nú í gæsluvarðhaldi í Bremerhaven vegna tilraunar til smygls á metmagni af kókaíni. Skipstjóri skipsins, Ómar Örvarsson, sat 10 mánuði í fangelsi í Karabíska hafinu fyrir smygl á tæpum 15 kílóum af kókaíni. Ómar er fyrir rétt í dag vegna tæplega 200 kannabis-plantna sem funudst hjá honum árið 2002. 13.1.2005 00:01
Vísitala neysluverðs hækkar Vísitala neysluverðs í janúar 2005 er 239,2 stig og hækkaði um 0,08% frá fyrra mánuði, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 229,2 stig og lækkaði um 0,56% frá því í desember. 13.1.2005 00:01
Hestar hlupu fyrir lest í Danmörku Tveir hestar hlupu fyrir járnbrautarlest á Jótlandi snemma í morgun og drápust báðir. Dráttarvagn lestarinnar skemmdist svo mikið að hann varð óökuhæfur en engan í lestinni sakaði. Lausaganga búfjár er því víðar vandamál en á Íslandi en síðast var bíl ekið á hest hér á landi í fyrradag skammt frá Akureyri. 13.1.2005 00:01
Ástralar gefa mest Ástralar, sem heitið hafa hæstri upphæð allra þjóða til hjálparstarfsins í Asíu, gefa líka langmest ef tekið er tillit til hlutfalls upphæðarinnar af vergri landsframleiðslu. Þeir tæplega 50 milljarðar íslenskra króna sem ríkisstjórn Ástralíu hefur heitið til hjálparstarfsins eru nærri 0,15 prósent af vergri landsframleiðslu þjóðarinnar. 13.1.2005 00:01
Svikulir teppahreinsarar í Osló Eldri borgarar í Osló hafa verið varaðir við tveim svindlurum sem hafa haft stórfé af gömlu fólki fyrir teppahreinsanir. Þeir rukkuðu m.a. gamla konu um sem nemur 212 þúsund íslenskum krónum fyrir teppahreinsun í íbúð hennar. 13.1.2005 00:01
Atvinnuleyfi verði afgreidd fljótt Forstjóri Vinnumálastofnunar býst við því að atvinnuleyfi sem Impregilo sótti um fyrir 54 Kínverja verði afgreidd síðar í dag eða á morgun. Forstjóri Vinnumálastofnunar situr nú á fundi með fulltrúum Impregilo vegna málsins. Talsmaður fyrirtækisins segir að það hafi greitt tæpan milljarð í skatt hér á landi. 13.1.2005 00:01
Styðja þann sem Pútín velur Stærsti stjórnmálaflokkur Rússlands, Sameinað Rússland, ætlar að styðja hvern þann frambjóðanda sem Vladímír Pútín velur til þess að taka við af sér í forsetakosningunum árið 2008. 13.1.2005 00:01
Tekjur gætu numi sex milljörðum Fiskifræðingar, sjómenn og útvegsmenn anda nú léttar eftir að svo mikið af loðnu hefur fundist að ástæða er til að stór auka kvótann. Útflutningstekjur af loðnuafurðum vegna viðbótarkvótans nema um sex milljörðum króna. 13.1.2005 00:01
Játar aðild að byltingartilraun Mark Thatcher, sonur Margrétar Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur játað að hafa átt þátt í misheppnaðri byltingartilraun í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu á síðasta ári. Landið er mjög auðugt af olíu. Sjötíu málaliðar sitja nú í fangelsi í nokkrum Afríkuríkjum vegna þessa máls. 13.1.2005 00:01