Erlent

Íbúarnir sátu og störðu út í tómið

Uppbyggingarstarf af áður óþekktri stærðargráðu er framundan á hamfarasvæðunum við Indlandshaf. Ríkisstjórnir, alþjóðastofnanir og fjölþjóðleg hjálparsamtök leggjast nú á eitt við að hjálpa fórnarlömbunum en auk þess hafa smærri samtök og jafnvel einstaklingar látið til sín taka. Vilhjálmur Jónsson hefur verið búsettur í Indlandi um áratuga skeið og nú hefur hann ásamt hjálparsamtökum sem hann veitir forystu tekið að sér uppbyggingarstarf í litlu þorpi sem varð mjög illa úti þegar aldan reið yfir. Sálin marin "Þegar við komum niður á ströndina var ég alls ekki viðbúinn þeirri hrikalegu sjón sem við mér blasti. Máttur flóðsins hafði hreinlega sópað öllu burtu og skilið eftir hrúgur af braki og rusli eftir allri strandlengjunni. Bátarnir höfðu undist utan um tré eða farið í gegnum húsin og leifar af fiskinetum lágu á víð og dreif á margra mílna svæði. Það sem snerti mig mest var tilfinningin um að vonin væri horfin. Það er mjög erfitt að útskýra þetta en kannski er þetta eins og að vera laminn og barinn en það kemur ekki niður á líkamanum heldur sálinni. Hér og þar sátu íbúarnir eða fjölskyldur inni í miðri hrúgu af braki og rusli og störðu út í tómið." Svona lýsir Vilhjálmur Jónsson aðkomunni að þorpinu Thazhankuda sem er um 160 kílómetra suður af borginni Chennai (Madras) í Indlandi. Hjálparstarfið og uppbyggingin í þorpinu er nú í höndum Vilhjálms og félaga hans í líknarsamtökunum Fjölskyldan eða The Family International. Tíu barna faðir frá Akureyri Vilhjálmur er 51 árs gamall Akureyringur en hefur verið búsettur á þessum slóðum í 23 ár. Hann er giftur indverskri konu og saman eiga þau tíu börn. "Það var bara þráin að gera eitthvað fyrir aðra," svarar hann aðspurður um ástæður þess að hann fór af landi brott fyrir tæpum þrjátíu árum. Family International eru alþjóðleg regnhlífarsamtök sem starfa á kristilegum grunni en víða um heim eru sjálfstæð svæðisfélög að störfum. "Við stofnuðum okkar félag hérna í Coimbatore og okkar aðalstarf er á vettvangi menntamála og sérstaklega á meðal heyrnarlausra," segir Vilhjálmur. "Þótt starfið sé kristilegt þá erum við alls ekki trúboðar í hefðbundnum skilningi þess orðs enda tilheyrum við ekki neinni sérstakri kirkjudeild." Íbúarnir í losti Coimbatore er um tvö hundruð kílómetra inni í landi en þegar Vilhjálmur og hans fólk frétti af jarðskjálftunum og flóðunum sem þeim fylgdu biðu þau ekki boðanna heldur þustu af stað. Fimm dögum síðar höfðu þau fengið leyfi yfirvalda til að taka að sér neyðaraðstoð og hjálparstarf í þorpinu Thazhankuda í Cuddalore-sýslu í félagi við nokkra kaþólska presta. Í þorpinu búa 3.000 manns en þar stóð ekki steinn yfir steini þegar Vilhjálmur kom á vettvang. Eyðileggingin var algjör og eftirlifandi íbúar voru í losti. "Þegar ég kom fyrst inn í þorpið vakti maður nokkur athygli mína sem sat starandi í sandinum. Í kjöltunni var hann með matarpakka og smá brauðhleif sem hjálparstarfsmenn höfðu komið þar fyrir en það var greinilegt að það hafði ekkert að segja fyrir hann." Mikið verk framundan Fyrstu dagana einbeittu samtök Vilhjálms sér að dreifingu matar og annarra hjálpargagna til íbúanna en nú sjá þau fyrir endann á neyðaraðstoðinni og eru farin að huga þess í stað að uppbyggingarstarfinu. "Aðalverkefnið núna er að útvega fólkinu báta og net því það getur auðvitað ekki sótt sjóinn, það getur ekki stundað sína atvinnu án þess að hafa þessa hluti í höndunum," segir Vilhjálmur en mestallur útbúnaður þorpsbúa til sjósóknar eyðilagðist í flóðunum. "Maður nokkur sem við töluðum við hafði komið til að ná í lík móður sinnar og mágkonu. Þegar bylgjan skall á var hann að gæta að netum sínum, hann tókst á loft og barst þvert yfir skagann og endaði á ströndinni hinum megin við fjörðinn." Samtökin láta ekki þar við sitja heldur áforma þau að reisa þak yfir hundrað fjölskyldur og setja upp jarðbora til að dæla upp hreinu vatni en vatnsból svæðisins spilltust í flóðunum. Allt kostar þetta peninga og því vinnur Vilhjálmur að því að afla fjár til þessara brýnu verkefna. Hann segir framlög frá Íslendingum mjög vel þegin en hægt er að leggja peninga á reikning samtakanna í Íslandsbanka, Kirkjusandi. Númerið er 515-26-3470 og kennitalan 630300-3470.
GJÖRÓNÝTUR BÁTUR.
ALDAN BRAUT ALLT SEM FYRIR VARÐ. Í það minnsta hundrað fjölskyldur þurfa ný húsakynni.
BÁTAR BÁRUST HUNDRUÐ METRA INN Í LANDIÐ. Vilhjálmur Jónsson sést hér í hópi samstarfsmanna sinna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×