Fleiri fréttir

Sækir um skráningu á frumlyfi

Íslensk erfðagreining hefur sótt um að hefja klínískar rannsóknir á frumlyfinu DG041 hjá bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitinu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. DG041 er lítil lyfjasameind af nýjum lyfjaflokki sem beint er gegn æðakölkun í fótum

Verðbólga við vikmörk Seðlabanka

Hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrra mánuði gengur þvert á spár greiningardeilda bankanna. Verðbólga nú 4%, sem við efri vikmörk verbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, og greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að verðbólga fari upp fyrir vikmörkin á næstu mánuðum en hjaðni svo og verði 2,1% yfir árið.

ASÍ segir hið opinbera ábyrgt

Alþýðusamband Íslands segir að opinberir aðilar beri mesta ábyrgð á þeirri miklu verðbólgu sem blasi við, þegar horft sé framhjá hækkun húsnæðis. Á heimasíðu ASÍ er bent á að verðbólga nú í janúar mælist 4%. Hún sé því komin í efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands og að neysluverðsvísitalan hafi ekki mælst meiri frá því á miðju ári 2002.

Sakfelling í 155 málum

Sakfellt hefur verið í 155 af 176 skattsvikamálum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á árunum 1998-2004, samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Tuttugu mál eru nú til meðferðar fyrir dómstólum og í einu tilviki var fallið frá ákæru fyrir aðalmeðferð. Samanlögð vanframtalin velta er talin nema um þremur milljöðrum króna í málunum 176 en heildarfjárhæð skattsvikanna er talin vera um 1,3 milljarðar króna.

Kaupir skip til loðnuveiða

Samherji hefur gengið frá kaupum á nótaveiðiskipinu Högabergi FD frá E.M.Shipping í Færeyjum, eftir því sem fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Þetta er gert vegna mikillar aukningar á aflaheimildum á loðnu. Í kaupsamningi um skipið er ákvæði um endursölurétt innan þriggja mánaða frá undirritun.

230 þúsund manns töldu fram 2003

Þeir framteljendur, sem voru ekki í sambúð og ekki með börn á framfæri sínu, voru um 96 þúsund talsins árið 2003. Það eru rúmlega 40 prósent allra framteljenda sem voru um 230 þúsund. Í vefriti fjármálaráðuneytisins kemur fram að stór hluti þessa hóps sé ungt fólk, en þó voru 55 þúsund 25 ára og eldri.

Annan segir smærri eyjar í hættu

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að eyðileggingin af völdum flóðbylgjunnar í Indlandshafi undirstriki þá hættu sem vofi yfir smærri eyjum vegna breytinga á veðurfari, en óttast er að margar eyjur kunni að fara á kaf í vatn af völdum gróðurhúsaáhrifa og hækkandi hitastigs sjávar.

Jólatrén hirt í síðasta sinn

Starfsmenn Gatnamálastofu munu annast hirðingu jólatrjáa í Reykjavík í dag í síðasta sinn í ár en þeir hafa sinnt því verki síðan á þrettándanum. Þeir borgarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og þau verða þá fjarlægð.

Ungar konur spenna beltin rangt

Lögreglan í Keflavík hefur orðið vör við ranga notkun bílbelta meðal ökumanna og er algengast að beltið sé ekki látið liggja yfir öxl heldur sett undir vinstri handarkrika.

Ferðamönnum fjölgar um 42 þúsund

Erlendir ferðamenn, sem komu hingað til lands á nýliðnu ári, voru um 42 þúsund fleiri en þeir sem komu til landsins árið áður, sem þó var metár. Þetta er fjölgun upp á rúmlega 13 prósent, en samtals heimsóttu 362.200 erlendir gestir Ísland á árinu 2004, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálaráði.

Borga með farsímum í stöðumæla

Eftir nokkra daga eða vikur verður hægt að borga í stöðumæla og miðamæla. Þjónusta tveggja fyrirtækja verður markaðssett á næstunni.

Impregilo ætlar að sanna sitt mál

Forystumenn Impregilo útskýrðu sín sjónarmið á fundi með félagsmálaráðherra í gær. Þeir telja sig fara fullkomlega eftir Virkjanasamningnum og ætla að leggja sannanir sínar fyrir ráðherra. </font /></b />

Hundruð manna á utangarðsskrá

Óljóst er hversu margir erlendir starfsmenn eru á Kárahnjúkum og hvenær og hversu lengi þeir dveljast þar. Þetta er alvarlegt með tilliti til almannavarna á svæðinu. </font /></b />

Útsvarstekjur allt að þrefaldast

Útsvarstekjur sveitarfélaganna fyrir austan hafa allt að þrefaldast vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka. Misjafnt er hvort og þá hversu miklar tekjur sveitarfélögin hafi af starfsmönnum á utangarðsskrá. </font /></b />

Minni líkur á farsóttum

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að líkur á sjúkdómum og farsóttum fari minnkandi á hamfarasvæðunum við Indlandshaf, en flestir hafa nú aðgang að annaðhvort hreinu vatni eða hreinsitöflum. 158.000 manns eru taldir hafa látist í flóðunum og var óttast að sú tala myndi tvöfaldast ef farsóttir, sem berast m.a. með óhreinu vatni, brytust út.

Engin röskun á framkvæmdum

Engin röskun verður á framkvæmdum við álverið í Reyðarfirði þrátt fyrir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Fjarðaál verði að gangast undir umhverfismat. Fyrirtækið hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar og þangað til hann fellir úrskurð hefur það sömu réttarstöðu og fyrir úrskurð héraðsdóms.

Stjórnarnefnd LSH fagnar hugmyndum

Stjórnarnefnd Landspítala - háskólasjúkrahúss hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún fagnar mjög hugmyndum ráðherra og þingmanna um fjármögnun nýs hátæknisjúkrahúss við Hringbraut.

Áttu annað erindi á heimilið

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir lögregluna hafa farið að heimili konu á þrítugsaldri rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags vegna kvartana nágranna um hávaða. Vegna útkallsins hafi lögreglan átt erindi á heimili konunnar aftur aðfaranótt þriðjudags.

Annar með kókaínið

Kókaínið sem fannst um borð í Hauki ÍS í Bremerhaven var allt í ferðatösku yngri Íslendingsins sem situr nú í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi. Hassið var falið í farangri þess eldri en mennirnir hafa báðir verið úrskurðaðir í sex mánaða gæsluvarðhald.

Bush en kokhraustur

Bandaríkjamenn hafa hætt leit að efnavopnum í Írak. Meint efnavopnaeign var meginrök Bandaríkjaforseta fyrir innrásinni. Sjónvarpsviðtal við Bush verður sýnt í bandarísku sjónvarpi í kvöld.

Fasteignaskattur ekki hækkaður

Borgarráð hefur ákveðið að draga til baka áform um að hækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði. Um áramótin hækkaði fasteignamat töluvert umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun borgarinnar og því telur borgarstjóri ekki lengur þörf á að auka tekjur með hækkun álagningarhlutfalls.

Sjónarhóll enn ógirtur

Miltisbrandssýkta jörðin Sjónarhóll á Vatnsleysuströnd er enn ógirt þrátt fyrir tilmæli landbúnaðarráðherra um annað. Meira en mánuður er liðinn frá því að þrjú hross drápust á jörðinni. Eigendur Sjónarhóls vilja að jörðin verði girt vestan þjóðvegar og fyrir því þarf að leita samþykkis eigenda nágrannajarða.

Reynt að hrinda af stað styrjöld

Hryðjuverkamenn eru farnir að myrða leiðtoga sjíta í Írak og reyna að hrinda af stað borgarastyrjöld fyrir kosningarnar sem haldnar verða um næstu mánaðamót.

Fjármunir gufa stundum upp

Fjármunir, sem lofað er vegna náttúruhamfara, eiga það til að gufa upp þegar á reynir, en þetta gerist bæði vegna spillingar og vanefnda. Því hafa íbúar í sumum ríkjum Mið-Ameríku, í Bam í Íran og í Afganistan fengið að kynnast.

Klór áfram í Kópavogi

Heilbrigðiseftirlit Kópavogs taldi framleiðslu klórs lokið í fyrirtæki Mjallar-Friggjar í Kópavogi. Tveir til þrír mánuðir eru eftir af framleiðslunni sem er án starfsleyfis.

Íhuga að sanna mál sitt fyrir dómi

Verkefnastjóri Impregilo vísar á bug öllum ásökunum Alþýðusambands Íslands um brot á íslenskri vinnu- og skattalöggjöf. Hann segist nú íhuga dómsmál til að færa sönnur á mál sitt. Félagsmálaráðherra reynir þessa dagana að mynda sér skoðun á málinu en það er orð gegn orði í málflutningi forkólfa ASÍ og lmpregilo.

Stórmeistari fékk nálgunarbann

Fertugur maður kemur fyrir dóm í dag, ákærður fyrir að hafa rofið nálgunarbann. Hann hefur haft í hótunum við Helga Áss Grétarsson stórmeistara í skák, sem á í sambandi við barnsmóður hans.

Deilt um hagnað af samráði

Við málflutning fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála á mánudag var hart deilt á skýrslu þeirra Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Jóns Þórs Sturlusonar, sérfræðings á stofnuninni, sem þeir gerðu fyrir olíufélögin og var lögð fram til varnar olíufélögunum í haust.

Úr gæslu fyrir mistök

Maður sem er þekktur af líkamsmeiðingum og hótunum gengur nú laus vegna mistaka lögreglu. Í janúar í fyrra var manninum gert að sæta nálgunarbanni og honum bannað að koma í námunda við heimili fólks sem hann hafði sýnt ógnandi tilburði. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til klukkan tólf þann 3. janúar vegna brota á nálgunarbanninu.

Berjast um föðurarfinn

Þrjú börn Þorvaldar í Síld og fiski berjast um föðurarfinn en Þorvaldur var um áratugaskeið skattakóngur í Reykjavík og með auðugustu mönnum landsins.

Annþór áfrýjar

Handrukkarinn Annþór Kristján Karlsson hefur áfrýjaði til Hæstaréttar. Hann var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að ganga í skrokk á manni sem lá mjaðmargrindarbrotinn á sjúkrabeði.

Sýslumaður skilar Muggsmyndum

Sýslumaðurinn á Patreksfirði hefur fellt niður kæru á stuldi þriggja teikninga Muggs. Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar rennur út á mánudag.

Nöfnin fari hugsanlega á Netið

Samtök lögmanna í Noregi og Danmörku birta á Netinu nöfn þeirra lögmanna sem verða uppvísir að afglöpum í starfi. Slíkt er ekki gert hér á landi en formaður Lögmannafélagsins útilokar ekki að þessu fordæmi verði fylgt.

Áfengissala ÁTVR eykst um 8%

Sala áfengis jókst um tæp átta prósent í verslunum ÁTVR milli áranna 2003 og 2004. Nær sextán milljónir lítra af áfengi seldust í fyrra í verslununum.

Segir lög um fóstureyðingar brotin

Sektarkennd, martraðir og átta mánaða andlegt niðurbrot voru afleiðingar fóstureyðingar ungrar konu fyrir tveimur árum. Hún segir að lög um fóstureyðingar séu þverbrotin hér á landi.

Ótrúlegt hversu duglegt fólk sé

Magnús Norðdahl, sem starfar hjá friðargæslunni í Srí Lanka, segir ótrúlegt hvað fólkið þar sé duglegt að bjarga sér eftir flóðbylgjuna miklu. Hann segir fólk vera að gera sér grein fyrir hversu mikill skaðinn sé.

Stjórnvöld hamla hjálparsamstarfi

Sú krafa indónesískra stjórnvalda að hermenn fylgi hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðum í Aceh-héraði getur orðið til þess að grafa undan hjálparstarfi í héraðinu, sögðu talsmenn hjálparsamtaka í gær.

Kvartað undan ástarbríma

Íbúum fjölbýlishúss í Borlänge í norðvesturhluta Svíþjóðar varð ekki að ósk sinni þegar leigusali þeirra neitaði að flytja út hávært par sem býr í húsinu.

Tveir í 30 daga fangelsi

Tveir Eþíópíumenn voru í gær dæmdir í 30 daga fangelsi hvor um sig í Héraðsdómi Reykjaness. Þriðji maðurinn, sænskur ríkisborgari af eþíópískum uppruna, var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á miðvikudag í næstu viku.

Vill uppfylla öryggisskilmála

Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, segist staðráðinn í að standa við þau ákvæði vegvísis fjórveldanna til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs sem kveða á um að vígahreyfingar Palestínumanna afvopnist. Hann neitar þó beiðnum Ísraela um uppgjör við herskáar hreyfingar og segist ætla að semja við þær.

Eitruðu fyrir barni með salti

Bresk hjón hafa verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar fyrir að verða þriggja ára dreng að bana. Þau íhuguðu að ættleiða drenginn en drápu hann þess í stað með því að eitra fyrir honum með salti og veita honum banvænan höfuðáverka.

Myrti ófríska eiginkonu sína

Norskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn fyrir morðið á ófrískri eiginkonu sinni og ófæddu barni sem hún hafði borið undir belti í nær níu mánuði.

Létti skattbyrði innan ramma laga

Fyrirtæki eiga að beita öllum tiltækum ráðum til að draga úr skattabyrði sinni, svo fremi að það sé gert innan ramma laganna. Fari slíkar aðgerðir fyrir brjóstið á skattayfirvöldum ættu þau að beita sér fyrir breytingum á skattalögum. Þetta segir hollenskur skattasérfræðingur sem var með erindi hér á landi í dag.

Breytingar á skipuriti Eddu

Á stjórnarfundi á miðvikudag samþykkti stjórn Eddu útgáfu breytingar á skipuriti sínu. Helstu breytingar eru að útgáfustjórar verða ekki lengur tengdir ákveðnum forlögum, heldur verða útgáfustjórar ákveðinna sviða.

218 milljóna tap af fjarskiptum

Í bréfi sem Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, sendi Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra fyrir viku kemur fram að Landsvirkjun hefur tapað tæpum 218 milljónum á fjarskiptarekstri frá því Landsvirkjun fór að fjárfesta í slíkum fyrirtækjum.

Sjá næstu 50 fréttir