Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dæmdur fyrir íkveikju Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir að kveikja í fjölbýlishúsi. Dómurinn er skilorðsbundinn. Maðurinn bjó í húsinu, sem er við Hjaltabakka í Reykjavík og taldist sannað að hann hefði hellt eldfimu lími á nokkrar geymsluhurðir í kjallara eins stigagangsins og borið eld að. 17.11.2004 00:01
Sendinefnd til Parísar Úr hverju dó Jassir Arafat? Það vilja palestínsk yfirvöld fá að vita og hyggjast senda nefnd til Parísar til að krefjast svara. Frá því að Arafat var lagður helsjúkur inn á sjúkrahús í París með ótilgreindan sjúkdóm hafa verið á kreiki sögusagnir þess efnis að ekki væri allt með felldu. 17.11.2004 00:01
Rússar með nýjar kjarnorkuflaugar Þeir sem töldu endalok Kalda stríðsins þýða endalok vopnakapphlaupsins virðast hafa haft rangt fyrir sér. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, boðar nýja gerð kjarnorkusprengja, sem eiga að geta komist fram hjá stjörnustríðsskildi Bandaríkjanna. 17.11.2004 00:01
Þurfa að greiða 73 milljónir Kvikmyndafyrirtækið Sögn hefur verið dæmt til að greiða Síldarvinnslunni í Neskaupstað rúmlega 73 milljónir króna í bætur vegna bruna á frystihúsi félagsins við upptökur á kvikmyndinni Hafið. 17.11.2004 00:01
Icelandair færir sig á Heathrow Afgreiðsla Icelandair á Heathrow færist til flugstöðvarbyggingar 2 í dag. Innritun farþega og afgreiðsla flugs Icelandair til og frá Heathrow flugvellinum í London færist frá flugstöðvarbyggingu 1 til flugstöðvarbyggingar 2 frá og með deginum í dag. 17.11.2004 00:01
Búið að skrifa undir Nú rétt áðan var skrifað undir kjarasamning grunnskólakennara. Samningurinn byggði að stóru leyti á þeim samningi sem kennarar höfnuðu áður en sett voru lög á kennaraverkfallið. Forsvarsmenn kennarasambandsins ætla að hvetja félagsmenn sína til þess að samþykkja samninginn, sem sé hvað sem öðru líður betri kostur en lagasetningin sem sett hafi verið. 17.11.2004 00:01
Alnæmisveira í köttum Alnæmisveira hefur fundist í íslenskum köttum. Framvegis þurfa eigendur katta sem flytja hingað til lands að framvísa vottorði um að kettirnir séu ekki með veiruna. 17.11.2004 00:01
Staðfesta ekki reikninga ESB Tíunda árið í röð hafa endurskoðendur Evrópusambandsins neitað að votta reikninga þess. Ástæðan er líkt og undanfarin ár sú að ekki er nógu vel staðið að framkvæmd fjárlaga, útborgunum og bókhaldi. Gagnrýnin beinist hvort tveggja að Evrópusambandinu og aðildarríkjum þess. 17.11.2004 00:01
Írakar drógu sér 1.400 milljarða Stjórn Saddams Hussein dró sér um 1.400 milljarða króna úr áætlun Sameinuðu þjóðanna sem átti að gera Írökum kleift að selja olíu til að kaupa matvæli og lyf meðan landið sætti viðskiptabanni af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Þetta kemur fram í gögnum sem tekin voru saman fyrir bandaríska þingnefnd sem rannsakar spillingu í kringum olíusöluna. 17.11.2004 00:01
Þingkona á flótta vegna morðhótana Belgískur þingmaður sem hefur gagnrýnt íhaldssama múslima harkalega fór í felur vegna morðhótana. 17.11.2004 00:01
Konur 13 prósent stjórnarmanna Langt er enn í land með að minnst 40 prósent stjórnarmanna í skráðum norskum fyrirtækjum séu kvenkyns eins og stefnt er að fyrir mitt næsta ár. Þetta kemur fram í skýrslu norsku jafnréttisstofnunarinnar. Hún sýnir að einungis þrettán prósent stjórnarmanna eru kvenkyns. 17.11.2004 00:01
8.000 fórnarlömb jarðsprengja Rúmlega átta þúsund manns hið minnsta létust eða slösuðust af völdum jarðsprengja á síðasta ári. Þetta er sá fjöldi atvika sem tilkynnt var um en raunverulegur fjöldi slasaðra og særða getur verið tvöfalt til þrefalt hærri þar sem ekki er tilkynnt um nærri öll atvik, að sögn samtaka sem börðust gegn banni við notkun jarðsprengja. 17.11.2004 00:01
Framkvæmdir halda áfram Framkvæmdir við nýtt hótel í Eimskipafélagshúsinu halda áfram þótt Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hafi fellt byggingaleyfið úr gildi á föstudag. 17.11.2004 00:01
Hóta að sniðganga kosningarnar Stjórnmálamenn og aðrir áhrifamenn úr röðum súnnímúslima hótuðu því í gær að sniðganga kosningarnar sem fara eiga fram í janúar og skoruðu á aðra að gera það sama til að mótmæla árásum Bandaríkjahers. 17.11.2004 00:01
Réðist á mann sinn með öxi 82 ára gömul japönsk kona réðist með öxi á áttræðan eiginmann sinn vegna þess að hana grunaði að hann héldi framhjá sér. Konan réðist á eiginmann sinn þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu og hjó hann nokkrum sinnum í höfuðið með öxinni. 17.11.2004 00:01
Vilja ekki íslamskan helgidag Hugmynd eins þingmanna Græningja um að lögfesta íslamskan helgidag sem þjóðarfrídag hefur mætt harðri gagnrýni í Þýskalandi. Jürgen Trittin, umhverfisráðherra flokksins, sem lýsti sig opinn fyrir umræðu um hugmyndinni, fékk að kenna á því og söluhæsta dagblað Þýskalands, Bild, sagði hann hafa tapað glórunni. 17.11.2004 00:01
Um sextíu löggum rænt í Írak Um sextíu íröskum lögregluþjónum var rænt þegar þeir sneru aftur til Íraks eftir að hafa fengið þjálfun í Jórdaníu. 17.11.2004 00:01
Forstjórajeppa stolið Mercedez - Bens - jeppa Stefáns Friðfinnssonar, forstjóra Íslenskra aðalverktaka, var stolið á dögunum. Um er að ræða Bens-jeppa af gerðinni ML 270 CDI með öllum græjum. "Toppbíll" eins og þeir segja í umboðinu. 17.11.2004 00:01
Samningar í höfn Kennaradeilan er leyst og var skrifað undir samning fyrir stundu. Samningurinn gildir til maíloka 2008. Laun kennara hækka um 5,5 prósent strax og þeir fá 130 þúsund króna eingreiðslu. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, vill ekki ræða heildarlaunahækkun kennara, en segir að ekki hafi verið lengra komist 17.11.2004 00:01
Arnþrúður sátt "Mér hefur aldrei liðið betur," segir Arnþrúður Karlsdóttir í samtali við DV, en hún hefur þurft að sjá á eftir öllum félögum sínum á Útvarpi Sögu og veifað til þeirra hótunum um lögregluaðgerðir í kveðjuskyni. 17.11.2004 00:01
Skrifað undir orkusamning Norðurál, Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja skrifuðu undir orkusamning í dag vegna stækkunar álversins á Grundartanga, sem þá verður stærsta álver dagsins. Ef Orkuveitu Reykjavíkur tekst að útvega meiri orku stendur til að stækka álverið enn meira. Verði af þeirri stækkun fjölgar starfsmönnum álversins um hátt í þrjú hundruð. 17.11.2004 00:01
Framlög verða aukin Framlög til samkeppniseftirlits verða stóraukin í framtíðinni, þegar gerðar hafa verið skipulagsbreytingar á því. Breytingarnar verða kynntar á næstu dögum. Um áttatíu mál bíða úrlausnar hjá Samkeppnisstofnun. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður vill að rannsakað verði hvort bankar eða tryggingafélög hafi ólöglegt samráð. 17.11.2004 00:01
Kærir auglýsingar Jóhannes Valdimarsson rekstrarfræðingur hefur kært auglýsingar vegna húsnæðislána bankanna til Samkeppnisstofnunar þar sem hann segir skilyrði þeirra brjóta gegn ákvæðum samkeppnislaga. Hann segir bankana blekkja fólk vísvitandi með villandi upplýsingum án þess að Neytendasamtökin eða aðrir láti sig málið varða. 17.11.2004 00:01
Breiddi yfir haus eftir íkveikju Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykjavík í mars árið 2003. Maðurinn kveikti í geymslum í kjallara fjölbýlishúss sem hann bjó sjálfur í. 17.11.2004 00:01
Þrjú hjól undir bílnum "Annað framdekkið undir bílnum losnaði af og skorðaðist undir brettinu í miðri Ártúnsbrekkunni," segir Eðvarð Ingi Friðriksson sem fékk lánaðan bíl hjá vini sínum og varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að aðeins urðu þrjú hjól eftir undir bílnum. Gleymst hafði að herða rærnar á einu hjólinu. 17.11.2004 00:01
Sjálfsvíg fátíð í fangelsum Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir ekki hafa legið fyrir beiðni um innlögn á geðdeild hjá stofnuninni vegna þrítugrar konu sem svipti sig lífi í fangelsinu á mánudagsmorgun. Hann segir sjálfsvíg í íslenskum fangelsum mjög fátíð. Ekki hafði verið framið sjálfvíg í íslensku fangelsi í sex ár þegar konan svipti sig lífi. 17.11.2004 00:01
Þétt dagskrá sáttasemjara Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari segir samningaviðræður kennara og sveitarfélaganna langt frá því að vera þær erfiðustu sem hann hafi fengist við. 17.11.2004 00:01
Skólastjórar sáttir Samningur skólastjóra byggir á sama grunni og sá samningur sem samninganefnd þeirra hafði áður samþykkt, en með lagfæringum, segir Sigfús Grétarsson, formaður samninganefndar Skólastjórafélags Íslands. 17.11.2004 00:01
Kennarar fá 25 prósenta hækkun Kennarar fá tæplega 25 prósenta launahækkun í þrepum til ársins 2008 samþykki þeir kjarasamning sem samninganefndir þeirra og sveitarfélaganna rituðu undir á sjötta tímanum í gær. 17.11.2004 00:01
Vetrarfrí á Ólafsfirði Grunnskólakennarar á Ólafsfirði ætla að taka vetrarfrí. Þeim var boðin yfirvinnugreiðsla í fríinu en vilja halda fyrri áætlunum. Þeir eru ósáttir við lagasetningu á verkfall þeirra. Fríið hefst í dag og skólinn aftur á þriðjudag. 17.11.2004 00:01
Vinnumiðlun fyrir kennara Vinnumiðlun fyrir kennara, Nýtt starf ehf., er tekin til starfa og geta þeir kennarar sem vilja hætta kennslu haft samband við aðstandendur í gegnum vefsíðuna www.nyttstarf.net en verið er að móta síðuna þessa dagana. 17.11.2004 00:01
Útboð vegna bryggjuhverfis Þessa dagana fer fram útboð vegna niðurrifs húsa á Norðurbakka í Hafnarfirði og forval vegna sölu byggingarréttar. Á svæðinu mun rísa bryggjuhverfi með um 440 íbúðum á sex fjölbýlishúsalóðum og hefst uppbygging strax næsta vor. 17.11.2004 00:01
Ekki tekið á meintum lögbrotum Hugsanlegt er að meint lögbrot kennara verði látin kyrrt liggja ef kennarar samþykkja kjarasamning þann sem undirritaður var milli Kennarasambands Íslands og launanefndar sveitarfélaga síðdegis í gær. 17.11.2004 00:01
Bílaraðir í ófærðinni Þungfært var á höfuðborgarsvæðinu í snjókomunni í gærmorgun og síðdegis á þriðjudag og mynduðust stíflur vegna illa útbúinna bíla og langar bílaraðir á öllum helstu umferðaræðum á höfuðborgarsvæðinu. 17.11.2004 00:01
Óljóst með samræmdu prófin Fullkomlega óljóst er hvað verður um samræmdu prófin í 10. bekk grunnskólanna í vetur. 17.11.2004 00:01
Sprengja í tryggingum fyrir hross Sprenging hefur orðið í ábyrgðartryggingum fyrir hross í sumar og haust, að sögn Brynju Tomer hjá Vátryggingafélagi Íslands. 17.11.2004 00:01
Lagaleg staða þolenda er óverjandi Það er matsatriði lögreglu hverju sinni hvort þolendur heimilisofbeldis fá réttargæslumann eða ekki. Margrét Frímannsdóttir alþingismaður segir núverandi lagalega stöðu þolendanna óverjandi. Það vanti fjármagn og eftirfylgni stjórnvalda. 17.11.2004 00:01
Varnarmálin ekki í höfn Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að viðræður Davíðs Oddssonar, utanríkisráðherra, við starfsbróðir sinn Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í gær hafi verið mikilvægar. 17.11.2004 00:01
Boðar stóreflt samkeppniseftirlit Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra, boðaði stóreflt samkeppniseftirlit í svari við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylkingu, á Alþingi í gær. 17.11.2004 00:01
Nýtt fangelsi við Reykjavík Lagt er til að nýtt fangelsi verði reist við Reykjavík og fangelsin að Litla-Hrauni, Kvíabryggju og á Akureyri verði stækkuð. 17.11.2004 00:01
Samningar sýna réttmæti laganna Forsætisráðherra segir kennarasamninga staðfesta réttmæti lagasetningar. Sveitarstjórnarmenn og stjórnarandstaða fagna samningum en segja áríðandi að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga verði endurskoðuð. </font /> 17.11.2004 00:01
Samningar ógna stöðugleikanum Launahækkun kennara upp á tæp 25% mun leiða beint út í verðlagið því að búast má við að aðrir hópar komi í kjölfarið. Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins vildu ekki tjá sig um samninginn í gær. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar líst ekkert á hækkunina. 17.11.2004 00:01
Garðabær athugar tilraunasamning Garðabær hefur í skoðun hvort hægt sé að gera tilraunasamning um skólastarf bæjarins. Grunnskólakennarar hræðast að deilan fari í gerðardóm og niðurstaðan verði litlu betri, jafnvel verri en miðlunartillaga ríkissáttasemjara. </font /></b /> 16.11.2004 00:01
Rice tekur við af Powell Condoleezza Rice er sögð verða næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir að Colin Powel sagði af sér. Rice hefur verið þjóðaröryggisráðgjafi í stjórnartíð George Bush og er náinn vinur fjölskyldu forsetans. Hún er talin tilheyra herskárri armi stjórnarinnar, en Powell aftur á móti hinum hófsamari. 16.11.2004 00:01
Allur gangur á skólahaldi Allur gangur virðist vera á skólahaldi í dag, vegna fjarvista kennara, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en víða í strjálbýlinu er það með eðlilegum hætti. Sumstaðar er engin kennsla, annarsstaðar er aðeins yngstu bekkjunum kennt, sumstaðar er einskonar gæsla fyrir yngstu börnin þar sem kennara vantar og enn annarsstaðar er sumum bekkjum kennt, en öðrum ekki. 16.11.2004 00:01