Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skammtímasamningur í bígerð Samninganefnd leikskólakennara ákvað í gærkvöldi að efna ekki til allsherjaratkvæðagreiðslu um um boðun verkfalls í janúar. Þess í stað verði leitað eftir skammtímasamningi við við Launanefnd sveitarfélaga, en beðið verði eftir niðurstöðu gerðardóms um kjör grunnskólakennara. 16.11.2004 00:01
Mótmæla tvöföldu siðgæði Í ályktun fjölmenns fundar í Sjúkaraliðafélagi Íslands í gærkvöldi er mótmælt tvöföldu siðgæði ráðherra og þingmanna, sem ítrekað taki við launahækkunum og líferyisréttindum, sem séu í engu samræmi við þau kjör sem almenningi er ætlað að sætta sig við. 16.11.2004 00:01
Munntóbak er krabbameinsvaldandi Notkun munntóbaks eykur áhættuna á krabbameini í munni og briskirtli um allt að 67%, að því er ný könnun sem gerð var í Noregi hefur leitt í ljós. Könnunin var gerð á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og niðurstaða hennar gengur þvert á aðrar kannanir sem gerðar hafa verið um munntóbak, þar sem talið var að það fylgdi því ekki aukin krabbameinsáhætta að nota slíkt tóbak. 16.11.2004 00:01
Bretar banna reykingar á börum Breska ríkisstjórnin íhugar nú að banna reykingar á flestum opinberum stöðum, þar með talið börum og veitingahúsum. Ef tillögur stjórnarninnar verða samþykktar verður bannað að reykja á um 90% allra breskra bara. Reykingar hafa þegar verið bannaðar á Írlandi og í Noregi. 16.11.2004 00:01
Skaut vopnlausan uppreisnarmann Rannsókn er hafin á því hvernig á því stóð að bandarískur hermaður skaut særðan og vopnlausan írakskan uppreisnarmann í höfuðið í borginni Fallujah. Atvikið náðist á myndband, sem hefur farið sem eldur í sinu um heiminn. 16.11.2004 00:01
Ólga meðal foreldra Allur gangur er á skólahaldi í dag, vegna fjarvista kennara, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en víða í strjálbýlinu er það með eðlilegum hætti. Sumstaðar er engin kennsla, annarsstaðar er aðeins yngstu bekkjunum kennt, sumstaðar er einskonar gæsla fyrir yngstu börnin þar sem kennara vantar og enn annarsstaðar er sumum bekkjum kennt, en öðrum ekki. 16.11.2004 00:01
Kettir þurfa alnæmisvottorð Alnæmisveira hefur fundist í íslenskum köttum og þarf framvegis að framvísa alnæmisvottorðum með köttum, sem fluttir eru til landsins. Veiran fannst fyrir tæpum þremur árum þegar Hrund Holm og fleilri voru að gera lokaverkefni í dýralækningum og tóku sýni úr rúmlega hundrað köttum, aðallega villiköttum eða útigangsköttum. 16.11.2004 00:01
Ættingjar Danans komnir Ættingjar danska mannsins sem lést eftir hnefahögg á knæpu í Keflavík um helgina eru komnir til landsins til að flytja lík hans heim. Bráðabirgðaniðurstaða liggur fyrir eftir krufningu sem framkvæmd var á Landspítalanum í gær. Ákæra verður gefin út á næstu vikum að sögn fulltrúa sýslumanns í Reykjanesbæ 16.11.2004 00:01
Áshreppur sýknaður Byggðasamlag Húnavallaskóla og Áshreppur voru sýknuð af kröfu móður heyrnarskertrar stúlku um greiðslu kostnaðar vegna búsetu í Reykjavík, sem nauðsynleg var vegna fötlunar stúlkunnar. 16.11.2004 00:01
Rice hreppti hnossið Condoleeza Rice tekur við af Colin Powell sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna og er búist við opinberri yfirlýsingu þessa efnis strax í dag. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, hittir Powell síðar í dag. 16.11.2004 00:01
Sigurður og Hallgrímur hættir Hallgrímur Thorsteinsson og Sigurður G. Tómasson hafa yfirgefið Útvarp Sögu, þar sem þeir telja að Arnþrúður Karlsdóttir hafi ekki staðið við gerða samnniga við sig. Arnþrúður segist sjálf undirbúa kæru á hendur þeim Sigurði og Hallgrími. 16.11.2004 00:01
Fyrsti sökudólgurinn fyrir dóm Í dag mætir fyrsti sakborningurinn af þeim sem ákærðir eru fyrir hryðjuverkin í Madrid í mars fyrir dóm á Spáni. Hann er 16 ára gamall og er gefið að sök að hafa flutt sprengiefnin sem notuð voru til árásarinnar. Drengurinn á yfir höfði sér átta ára fangelsisdóm fyrir sinn þátt í málinu. 16.11.2004 00:01
Fá ekkert fyrir stuðninginn Jacques Chirac, frakklandsforseti, segir Breta ekki hafa fengið neitt fyrir stuðning sinn við innrásina í Írak. Chirac, sem ræddi við breska fréttamenn í gær, sagði það ekki í eðli Bandaríkjamanna um þessar mundir að endurgjalda greiða. 16.11.2004 00:01
Lést af völdum heilablæðingar Bráðabirgðaniðurstaða krufningar á líki Flemming Tolstrup sem lést í Keflavík s.l. laugardag er sú að hann hafi látist af völdum heilablæðingar sem hafi orsakast við högg á hægri kjálka. Lík hans var krufið á Landspítalanum í gær. Ættingjar Flemmings eru komnir til landsins til að flytja lík hans heim til Danmerkur. 16.11.2004 00:01
Vinnumiðlun kennara stofnuð Í dag var formlega stofnað til vinnumiðlunar kennara, sem mun þjónusta þá kennara sem ekki hafa lengur áhuga á því að starfa við kennslu á Íslandi. Vinnumiðlunin hefur hlotið nafnið Nýtt starf ehf. 16.11.2004 00:01
Ungverjar fara frá Írak um áramót Ungverska þingið hefur hafnað tillögum ríkisstjórnarinnar þar í landi um að framlengja veru 300 friðargæsluliða í Írak um 3 mánuði. Friðargæsluliðarnir eiga að fara heim til Ungverjalands í lok ársins, en ríkisstjórnin var á því að nauðsynlegt væri að framlengja dvölina fram yfir kosningar í Írak, sem fara eiga fram í upphafi næsta árs. 16.11.2004 00:01
Kaupmáttur eykst Regluleg laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað að meðaltali um 4,9 prósent frá því á sama tíma á síðasta ári. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3.6% þannig að kaupmáttur launa jókst að meðaltali um 1,3 prósent. Laun kvenna hækkuðu meira en karla og laun utan höfuðborgarsvæðisins hækkuðu meira. 16.11.2004 00:01
Steinunn formlega ráðin Formleg ráðning Steinunnar V Óskarsdóttur, sem borgarstjóra Reykjavíkur, var lögð fyrir borgarstjórnarfund sem hófst klukkan tvö. Samþykkt þessa efnis var afgreidd úr borgaráði og kemur því til afgreiðslu borgarstjórnar sem fyrsta mál á dagskrá og hefur sennilega verið afgreidd núna. 16.11.2004 00:01
Tölvunotkun getur valdið gláku Mikil tölvunotkun getur leitt til gláku, sérstaklega hjá þeim sem eru nærsýnir. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar, þar sem 10 þúsund japanskir skrifstofustarfsmenn voru athugaðir. Í ljós komu mikil tengsl milli tölvunotkunar, nærsýni og gláku. 16.11.2004 00:01
Lýsa yfir áhyggjum Bæjarfulltrúar í Hafnarfirði sendu frá sér ályktun í dag, þar sem lýst er yfir verulegum áhyggjum af þeirri stöðu sem er uppi í grunnskólum Hafnarfjarðar. Bæjarfulltrúar leggja ríka áherslu á, að skólastarf komist strax í fyrramálið í eðlilegt horf, með hagsmuni nemenda, foreldra, kennara og skólasamfélagsins alls að leiðarljósi. 16.11.2004 00:01
Ætla ekki að opinbera skýrslur Skýrslur um heilsu Jassers sáluga Arafats dagana áður en hann lést, verða ekki birtar nema fjölskylda hans gefi samþykki fyrir því. Þetta segir utanríkisráðherra Frakklands. Fyrr í dag fór forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qurei, fram á það að Frakkar gerðu skýrslurnar opinberar, 16.11.2004 00:01
Jólakort í tölvunni Danski Pósturinn býður fólki að búa til jólakortin sín í tölvunni, skrifa jólakveðju og senda kortið rafrænt til Póstsins sem prentar út á pappír og kemur honum hratt og örugglega til viðtakenda. Pósturinn hefur á boðstólum ýmsar gerðir af jólakortum á netinu, en fólk getur líka sótt eigin ljósmyndir. 16.11.2004 00:01
700 kíló falin í smokkfiski Lögreglan í perú gerði í dag upptæk rúm 700 kíló af kókaíni, sem komið hafði verið fyrir í frosnum risasmokkfiski, sem átti að flytja til Mexikó og þaðan til Bandaríkjanna. Umbúðir efnisins voru þaktar pipri, til að villa um fyrir fíkniefnahundum. Talið er að unnt hefði verið að fá vel á annan milljarð króna fyrir efnið í götusölu. Sjö menn voru handteknir vegna málsins. 16.11.2004 00:01
Færð að versna Færð er nú tekin að versna allverulega í kringum höfuðborgarsvæðið. Snjó kyngir niður og samkvæmt upplýsingum frá gestum í litlu kaffistofunni var mjög blint á leið úr borginni og uppeftir. Vanur bílstjóri sem var að koma að austan segir skafa mikið á hellisheiðinni en vel sé fært. 16.11.2004 00:01
Verja gjörðir hermannsins Félagar hermannsins sem sást skjóta særðan óvopnaðan írakskan fanga verja gjörðir hans í dag. Myndband sem tekið var af manninum sýna hann lyfta rifli sínum og taka írakan af lífi. Félagar hans segja hann líklega hafa þjáðst af átakaálagi í erfiðum aðstæðum; hann hafi fengið í sig skot daginn áður og misst félaga sinn. 16.11.2004 00:01
Bannað að banna malarnámið Umhverfisráðuneytið hefur heimilað að nýju malarvinnslu á fjallsbrún Ingólfsfjalls sem Skipulagsstofnun hafði í byrjun september kveðið á um að væri óheimil meðan umhverfismats væri beðið. 16.11.2004 00:01
Segir göngin geðveiki "Mér finnst þetta vera geðveiki. Ég hef einu sinni farið til Vestmannaeyja og ef mig langaði óskaplega aftur þá gæti ég alveg eins flogið eða tekið ferju," segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, tónlistarmaður, einnig þekktur sem Dr. Gunni. 16.11.2004 00:01
Neyðarlínan vill vita um símana Neyðarlínan leggur áherslu á að fyrirtækjum sem hyggjast bjóða símaþjónustu sem byggir á internettækni (IP símar) verði gert að hafa innbyggða staðarákvörðun í símkerfi sín. 16.11.2004 00:01
Nýr stjóri hjá NAMMCO Samkvæmt ákvörðun stjórnar tekur Dr. Christina Lockyer við sem nýr framkvæmdastjóri Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðsins (NAMMCO) með aðsetur í Tromsö í Noregi í mars næstkomandi. 16.11.2004 00:01
Mismikil hækkun launa Kaupmáttur launa hefur aukist að meðaltali um 1,3 prósent frá því á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Í tilkynningu kjararannsóknarnefndar kemur fram að laun á almennum vinnumarkaði hafi hækkað að meðaltali um 4,9 prósent frá þriðja ársfjórðungi 2003. 16.11.2004 00:01
Alcoa reisir rafskautaverksmiðju Alþjóðlega álfyrirtækið Alcoa hyggst reisa rafskautaverksmiðju í bænum Mosjoen í Noregi, þar sem meðal annars verður framleitt rafskaut fyrir Fjarðaál. Verksmiðjan verður sameiginlega í eigu Alcoa og norska málmfyrirtækisins Elkem og nemur heildarfjárfestingin rúmlega 21 milljarði íslenskra króna. 16.11.2004 00:01
Frá Alabama til heimsáhrifa Condoleezza Rice hefur farið langan veg frá því hún fæddist í Suðurríkjunum á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Hún varð fyrst kvenna þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta og verður nú fyrst þeldökkra kvenna til að taka við starfi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. </font /></b /> 16.11.2004 00:01
Táningur dæmdur í hryðjuverkamáli Spænskur táningur hefur verið dæmdur til sex ára vistar í unglingafangelsi fyrir þátt hans í hryðjuverkaárásunum í Madríd 11. mars síðast liðinn. Táningurinn, sextán ára piltur, var fundinn sekur um að hafa flutt sprengiefni frá norðanverðum Spáni til hryðjuverkamannanna sem gerðu árásirnar. 16.11.2004 00:01
Ráðist gegn vígamönnum í Mosul Á annað þúsund bandarískir og íraskir hermenn réðust gegn vígamönnum í Mosul til að koma á kyrrð í borginni. Vígamenn réðust á lögreglustöðvar í borginni meðan athygli Bandaríkjahers beindist að mestu að Falluja og náðu lögreglustöðvunum á sitt vald. 16.11.2004 00:01
Slagsmál á tónlistarverðlaunum Átök brutust út og einn maður var stunginn á tónlistarverðlaunum tímaritsins Vibe, sem sérhæfir sig í R&B- og rapptónlist. Átökin brutust út þegar veita átti rapparanum Dr. Dre verðlaun fyrir ævistarf sitt. Að sögn sjónarvotta lenti Dre sjálfur í hringiðu slagsmálanna, þar sem stólum var hent, hnefahögg gengu manna á milli og verður þakkarræða hans því að bíða betri tíma. 16.11.2004 00:01
ETA-liðar handteknir Spænska lögreglan handtók sautján meinta meðlimi basknesku aðskilnaðarhreyfingarinnar ETA í árásum á nokkra staði í fjórum héruðum í norðurhluta Spánar, Baskahéruðunum þremur og Navarra. Handtökurnar eru framhald af aðgerðum gegn ETA, alls hafa verið handteknir 32 meintir ETA-liðar á innan við mánuði. 16.11.2004 00:01
Vopnasölubann á Fílabeinsströndina Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur lagt bann við vopnasölu til stjórnvalda á Fílabeinsströndinni. Samþykkt öryggisráðsins fylgir í kjölfar árása stjórnarhermanna á franska hermenn sem voru við friðargæslu í landinu. 16.11.2004 00:01
Til marks um aukna hörku BNA Skiptar skoðanir eru um það hvort Condoleezza Rice sé heppilegur arftaki Colins Powells í stöðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Sumir kvíða skiptunum fyrir hönd heimsins meðan aðrir telja að hún skilji mikilvægi varna Íslands. 16.11.2004 00:01
Áhyggjur á Alþingi Nýleg skoðanakönnun Gallups um afstöðu Íslendinga til flótamanna og málefna útlendinga varð tilefni til utandagskrárumræðna á Alþingi í gær. 16.11.2004 00:01
Ísland ber ábyrgð á stríðsglæpum Enginn ráðherra ríkisstjórnarinnar var viðstaddur umræðu á Alþingi í gær, þar sem ríkisstjórnin var sökuð um að bera ábyrgð á stríðsglæpum sem framdir væru þessa dagana borginni Fallujah í Írak. 16.11.2004 00:01
Ætlaði aftur á staðinn Danski hermaðurinn sem lést á veitingahúsi á laugardagskvöld, lést af völdum heilablæðingar, vegna hnefahöggs efst við kjálkabarð. Þegar sá sem höggið veitti frétti hversu alvarlegar afleiðingar þess voru, ætlaði hann aftur á vettvang, en lögreglan handtók hann við heimili hans. 16.11.2004 00:01
Stefnan enn herskárri? Condoleeza Rice, þjóðaröryggisráðgjafi Bush, tekur við embætti bandaríska utanríkisráðherrans af Colin Powell. Búist er við því að enn frekari harka færist í utanríkisstefnu Bandaríkjanna við ráðherraskiptin. 16.11.2004 00:01
Óttast að Hassan sé látin Eiginmaður Margaretar Hassan, hjálparstarfsmanns í Írak, óttast að mannræningjar hafi tekið hana af lífi. Hann segist hafa upplýsingar um myndband sem sýni hana myrta. Margaret Hassan var á sextugsaldri, fædd í Dublin en hafði búið hálfa ævi sína í Írak. 16.11.2004 00:01
Átökin breiðast út Átökin í Írak breiðast út um landið. Bandaríkjaher segist vera búin að ná tökum á uppreisnarmönnum í Falluja og beinir sjónum sínum að borginni Mosul í norðurhluta landsins. 16.11.2004 00:01
Dráp vekur reiði meðal Araba Myndbandsupptaka sem sýnir þegar bandarískur hermaður skýtur særðan og vopnlausan íraskan uppreisnarmann til bana hefur vakið mikla reiði í Arabaheiminum. Bandaríkjaher rannsakar atvikið. 16.11.2004 00:01