Hnífjafnt og möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. september 2026 00:13 Vinstri og hægri blokkirnar berjast um sætin við ríkisstjórnarborðið. Til hægri er Magdalena Andersson leiðtogi Sósíaldemókrata og til vinstri Ulf Kristersson, formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Samsett/EPA Hnífjafnt er á milli hægri og vinstri blokkanna í sænsku þingkosningunum nú þegar búið er að telja 91 prósent atkvæða. Fylking stjórnarandstöðunnar leiðir með örlitlum meirihluta en aðeins eitt þingsæti skilur að fylkingarnar tvær sem berjast um stjórnartaumana.
Sósíaldemókratar undir forystu Magdalenu Andresson er stærsti flokkurinn og hlaut 28 prósent atkvæða nú þegar 91 prósent atkvæða hafa verið talin. Þar á eftir kemur hægriflokkurinn Moderaterna með 19,9 prósent og næst á eftir fjarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar með 17,6 prósent, sem missa fylgi frá því í síðustu þingkosningum. Möguleiki er á því að úrslitin ráðist ekki fyrr en á miðvikudag þegar svokölluð miðvikudagsatkvæði verða talin. Það eru atkvæði Svía sem búa erlendis og önnur utankjörfundaratkvæði sem ekki bárust fyrir lokun kjörfundar. Hátt í 370 þúsund eru á kjörskrá sem búa erlendis. Kjósendur hafi sent skýr skilaboð en óljós úrslit Ulf Kristersson forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á kosningavöku Moderaterna að þó að úrslitin séu ekki ljós hafi kjósendur sent skýr skilaboð. „Flokkunum þremur til vinstri hefur enn og aftur mistekist að ná meirihluta á sænska þinginu,“ sagði hann. Hann sér fyrir sér ansi flókin samtöl í framhaldinu,“ sagði hann í samtali við SVT eftir ræðuhöldin en vildi ekki gefa upp við hvaða flokksleiðtoga hann hyggðist hafa samband við. Ebba Busch, leiðtogi Kristilegra demókrata, sagði í samtali við SVT að leiðtogar stjórnarflokkanna ætluðu að funda annað kvöld. Í útgangsspám fyrr í kvöld var ekki jafnt mjótt á munum en þá leit út fyrir að miklar líkur væru á stjórnarskiptum í Svíþjóð. Í þeirri spá var stjórnarandstöðufylkingin með Magdalenu Andersson í forystuhlutverki með 4,5 prósentustiga forskot. Sjá einnig: Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Haldist forystan fái Svíar nýja ríkisstjórn Á kosningavöku Sósíaldemókrata sagði Magdalena Andersson að staðan væri afar jöfn en Sósíaldemókratar væru reiðubúnir að axla ábyrgð á niðurstöðunni. „Núna erum við með forystu. Ef hún helst fær Svíþjóð nýja ríkisstjórn. En við verðum að bíða eftir endanlegum úrslitum,“ hefur SVT eftir henni. Síðustu fjögur ár hefur minnihlutastjórn hægriflokka verið við völd í Svíþjóð með Ulf Kristersson, formann Moderaterna, í forystu. Auk Moderaterna eiga Frjálslyndi flokkurinn og Kristilegir demókratar sæti við ríkisstjórnarborðið. Fjarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar ver síðan stjórnina falli og er það hluti af svokölluðu Tidö-samkomulagi sem undirritað var eftir síðustu kosningar en þeir hafa aldrei verið hluti af ríkisstjórn. Myndun nýrrar ríkisstjórnar gæti reynst flókið Saga og tenging Svíþjóðardemókrata við hreyfingar nýnasisma gera það að verkum að forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa útilokað algjörlega samstarf með Svíþjóðardemókrötum. Þó að fylking Magdalenu Andersson fengi meirihluta þingsæta gætu viðræður um stjórnarmyndunarsamstarf reynst erfiðar. Miðflokkurinn hefur til að mynda útilokað samstarf með Vinstriflokknum en báðir flokkar tilheyra rauðgrænu vinstriblokkinni.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir Hnífjafnt og möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Sjá meira