Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Áróra L Davíðsdóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 22. júlí 2026 22:41 Reiknaðar spár sýni að verslunarmannahelgin verði hægviðrasöm, úrkomulítil eða jafnvel úrkomulaus. Vísir Á morgun virðist ætla að rætast úr spánni á suðvesturhorni landsins, allavega þegar líður á daginn, og búast má við hlýjum og sólríkum laugardegi um helgina.
Segja má að veðrið hafi verið grátt á suðvesturhorni landsins á meðan veðan veðrið hefur leikið við landsmenn víðast hvar annars staðar. Aldrei hefur rignt eins mikið í júlímánuði í höfuðborginni frá því að mælingar hófust, segir Siggi Stormur en Oddur Ævar fréttamaður Sýnar ræddi við hann fyrr í kvöld. Siggi segir að breytinga megi vænta á veðrinu á suðvesturhorninu á næstunni en morgundagurinn verði þó keimlíkur deginum í dag og mörgum þar á undan. Búast megi við sól og allt að 22 stigum á austanverðu landinu. „Síðan fer morgundagurinn í það að koma lægð burt sem er stödd á milli Íslands og Grænlands og þegar hún er komin norðaustur fyrir land þá fer að rofa til í höfuðborginni,“ segir Siggi. Á laugardaginn eigi síðan að rofa til víða á landinu og búist sé við þurrviðri. „Það gæti reyndar orðið skýjað sums staðar með morgninum en síðan rífur hann það af sér og við fáum frábæran laugardag með hlýju veðri með allt að tuttugu stigum suðvestanlands.“ „En svo fer aðeins að róast á ballinu,“ því á laugardaginn sé von á nýju lægðardragi og á sunnudagskvöld megi reikna með einhverjum dropum úr lofti en svo taki ryskjótt tíð við helgina þar á eftir. Siggi segir einhverja mynd komna á veðrið um verslunarmannahelgina. Reiknaðar spár sýni að helgin verði hægviðrasöm, úrkomulítil eða jafnvel úrkomulaus. „Það er fagnaðarefni fyrir marga.“
Veður Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Fleiri fréttir Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Sjá meira