Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Kjartan Kári Halldórsson skoraði annað mark FH-inga með frábæru skoti.
Kjartan Kári Halldórsson skoraði annað mark FH-inga með frábæru skoti. Vísir/Diego

FH-ingar sóttu fyrsta sigur sinn í Bestu deild karla í fótbolta í sumar til Keflavíkur í botnbaráttuslag í kvöld.

FH vann leikinn 2-1 en liðið var aðeins með tvö stig í fyrstu níu deildarleikjum sumarsins. Þrátt fyrir sigurinn er Hafnarfjarðarliðið samt enn á botni deildarinnar.

Bæði mörk FH-inga komu í fyrri hálfleik. Það fyrra skoraði Adolf Daði Birgisson á 26. mínútu en hann hafði komið inn á völlinn sem varamaður í upphafi leiks. Það seinna skoraði Kjartan Kári Halldórsson með frábæru skoti á 41. mínútu

Stefan Alexander Ljubicic minnkaði muninn fyrir Keflavik í blálokin en það kom bara of seint.

Leikurinn fór fjörlega af stað og voru heimamenn í Keflavík hættulegri í upphafi leiks. Keflavík var að komast í góðar stöður en náðu þó ekki að komast í nein alvöru færi.

Stefan Ljubicic skoraði fyrir Keflavík eftir undirbúning grá Alpha Conteh þegar um korter var liðið en flaggið fór á loft hjá aðstoðardómara svo það fékk ekki að telja.

Það dró til tíðinda á 26. mínútu leiksins en FH fékk þá hornspyrnu sem endaði með því að Adolf Daði Birgisson kom FH í forystu eftir atgang í teignum. Þetta gaf FH auka kraft því augnabliki seinna voru þeir næstum búnir að tvöfalda þegar Adolf Daði átti flotta fyrirgjöf á Úlf Ágúst en skalli hans yfir markið.

Mark FH gaf þeim óumdeilanlegan kraft og byr undir báða vængi. Maður sá sjálfstraust byggjast upp í liðinu með hverri sendingu og hverri snertingu.

Það var svo á 41. mínútu leiksins þar sem FH tvöfaldaði forystu sína og það með frábæru marki hjá Kjartani Kára Halldórssyni. Stórbrotið mark fyrir utan teig sem var óverjandi fyrir Ásgeir Orra Magnússon í marki Keflavíkur.

FH fór með sannfærandi og sanngjarna forystu inn í hálfleik 2-0.

Keflvíkingar voru óheppnir að minnka ekki muninn í upphafi seinni hálfleiks þegar Muhamed Alghoul átti frábæra sendingu fyrir markið á Stefan Ljubicic sem átti bara eftir að pota boltanum yfir línuna en Grétar Snær Gunnarsson átti þá frábæra tæklingu og náði að henda sér fyrir og bjarga á línu.

Keflavík reyndi að ógna og náði að ýta FH vel aftur á völlinn en þétt vörn FH stóð vaktina vel og gaf fá færi á sér.

Stefan Alexander Ljubicic minnkaði muninn í uppbótartíma en það reyndist bara vera sárabótamark því FH hafði að lokum betur með tveimur mörkum gegn einu og vann um leið sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í sumar.

Atvik leiksins

Erfitt að horfa framhjá stórbrotnu marki Kjartans Kára og öðru marki FH í dag. Fær boltann frá Úlfi Ágúst á vinstri vængnum og keyrir í átt að marki og lætur svo bara vaða frábæru skoti sem syngur í netinu.

Stjörnur og skúrkar

Adolf Daði Birgisson kom inn með frábærum krafti inn í lið FH í dag. Hann kom inn fyrir Arnór Borg Guðjohnsen sem meiddist eftir fimm mínútna leik og skoraði fyrsta mark leiksins fyrir FH.

Kjartan Kári Halldórsson var einnig öflugur í dag en hann líktist meira þeim leikmanni sem maður á að þekkja og skoraði stórbrotið mark.

Dómararnir

Twana Khalid sá um flautuna í dag og honum til aðstoðar voru Egill Guðvarður og Antoníus Bjarki. Ekki gallalaus frammistaða í dag en hún var þó heilt yfir bara nokkuð góð.

Stemning og umgjörð

Það var frábært veður og enn betri aðstæður. Búið að tendra grillið og allt til alls á HS Orku vellinum í dag. Hefði verið skemmtilegt að sjá fleiri andlit í stúkunni en fullt hrós á þau sem lögðu leið sína á völlinn í blíðskapaveðri í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira