Lífið

Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Euro­vision

Eiður Þór Árnason skrifar
DARA flutti lagið Bangaranga fyrir hönd Búlgaríu.
DARA flutti lagið Bangaranga fyrir hönd Búlgaríu. Getty/Christian Bruna

Búlgaría sigraði Eurovision sem fram fór í Vínarborg í Austurríki í kvöld. Ísrael lenti í öðru sæti og Rúmenía í því þriðja. Þetta er í fyrsta sinn sem Búlgaría fer með sigur af hólmi en landið tók ekki þátt síðustu fjögur ár. DARA með lagið Bangaranga fékk alls 516 stig.

Ísrael hlaut 343 stig samanlagt frá dómnefndum og áhorfendum og mátti greinilega heyra baulað á keppendur Ísraels þegar áhorfendastigin þeirra voru tilkynnt og landið færðist efst í stigatöfluna. 

Sat Ísrael á toppnum allt þar til áhorfendastig Búlgaríu voru tilkynnt undir lok talningarinnar. DARA frá Búlgaríu hlaut 204 stig frá dómnefndum og 312 stig úr áhorfendakosningunni. Þetta er í fyrsta sinn frá því í Úkraínu árið 2017 sem þátttökuríki fær bæði flest stig frá dómnefnd og áhorfendum.

Bretland sat á botninum í kvöld með eitt stig frá dómnefndum og engin frá áhorfendum. Ísrael lenti einnig í öðru sæti í fyrra þegar Austurríki sigraði keppnina.

Færri lönd tóku þátt í Eurovision nú en síðustu ár þar sem Spánn, Ísland, Írland, Holland og Slóvenía sniðgengu keppnina vegna andstöðu við þátttöku Ísraels. Þetta var í sjötugasta sinn sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fór fram. 

Noam Bettan flutti lagið Michelle fyrir Ísrael.Getty/Ian West/PA Images

Tíu efstu löndin

1. Búlgaría - 516 stig

2. Ísrael - 343 stig

3. Rúmenía - 296 stig

4. Ástralía - 287 stig

5. Ítalía - 281 stig

6. Finnland - 279 stig

7. Danmörk - 243 stig

8. Moldóva - 226 stig

9. Úkraína - 221 stig

10. Grikkland - 220 stig  


Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Þau komust áfram í úrslit Eurovision

Ísraelar, Svíar og Finnar eru meðal þjóða sem komust áfram í úrslit Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fyrri undanúrslitin voru haldin í kvöld.

Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur

Ríkisútvarpið sýnir Eurovision í ár þar sem útvarpið vildi gefa fólki sem hefur áhuga á Eurovision kost á að fylgjast með keppninni með íslenskum þul frekar en að vísa því fólki á erlenda miðla sem einnig sýni keppnina. Keppnin sé auk þess vinsæl meðal fjölskyldufólks og þess vegna fór Ríkisútvarpið ekki sömu leið og spænska, írska og slóvenska ríkisútvarpið sem ákváðu hvorki að taka þátt í keppninni né sýna frá henni. 

Hvað veistu um… Eurovision?

Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í Austurríki í gærkvöldi og en seinna undanúrslitakvöldið á dagskrá annað kvöld og verður þá ljóst hvaða 25 framlög verða flutt á úrslitakvöldinu á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.