Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. mars 2026 12:00 Samkvæmt heimildum átti árásin sér stað í bílakjallara í Borgartúni. vísir/vilhelm Alvarleg hópárás sem átti sér stað í bílakjallara í Borgartúni aðfaranótt þriðjudags er rannsökuð sem tilraun til manndráps og er komin á borð miðlægrar deildar lögreglunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu var eggvopni og kylfum beitt við árásina. Fimm karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna lífshættulegrar líkamsárásar í bílakjallara í Borgartúni aðfaranótt þriðjudags. Fjórir til föstudags en einn í vikulangt varðhald. Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi hjá rannsóknardeild lögreglunnar, staðfestir að málið hafi verið fært frá lögreglustöð eitt á höfuðborgarsvæðinu yfir til miðlægrar deildar skömmu eftir að málið kom upp. Málið er nú rannsakað sem tilraun til manndráps og er rannsóknin á viðkvæmu stigi. Að öðru leyti verst lögregla allra fregna. Sjö voru upprunalega handteknir en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru brotaþolar þrír. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru þó töluvert fleiri viðstaddir í kjallaranum, jafnvel tugir manna. Árásin hafi verið lífshættuleg en einn slasaðist meira en aðrir og var minnst einn hnífur notaður við verknaðinn ásamt kylfum. Þá hafi ökutæki verið ekið á brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu er að mestu leyti um erlenda ríkisborgara að ræða. Hluti þeirra hefur dvalið í skamma stund hér á landi. Ekki liggur fyrir hvers vegna svo mikill fjöldi kom saman í umræddum bílakjallara eða hvers konar atvik eða uppgjör hafi verið um að ræða en samkvæmt heimildum er það meðal þess lögregla reynir nú að ná utan um. Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Lögreglumál Reykjavík Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Tengdar fréttir Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Sjömenningarnir sem handteknir voru í nótt í tengslum við stórfellda líkamsárás verða yfirheyrðir í dag. Gera má ráð fyrir að yfirheyrslurnar taki nokkurn tíma og standi jafnvel yfir fram á kvöld, að sögn lögreglu. 17. mars 2026 10:51 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira
Fimm karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna lífshættulegrar líkamsárásar í bílakjallara í Borgartúni aðfaranótt þriðjudags. Fjórir til föstudags en einn í vikulangt varðhald. Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi hjá rannsóknardeild lögreglunnar, staðfestir að málið hafi verið fært frá lögreglustöð eitt á höfuðborgarsvæðinu yfir til miðlægrar deildar skömmu eftir að málið kom upp. Málið er nú rannsakað sem tilraun til manndráps og er rannsóknin á viðkvæmu stigi. Að öðru leyti verst lögregla allra fregna. Sjö voru upprunalega handteknir en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru brotaþolar þrír. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru þó töluvert fleiri viðstaddir í kjallaranum, jafnvel tugir manna. Árásin hafi verið lífshættuleg en einn slasaðist meira en aðrir og var minnst einn hnífur notaður við verknaðinn ásamt kylfum. Þá hafi ökutæki verið ekið á brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu er að mestu leyti um erlenda ríkisborgara að ræða. Hluti þeirra hefur dvalið í skamma stund hér á landi. Ekki liggur fyrir hvers vegna svo mikill fjöldi kom saman í umræddum bílakjallara eða hvers konar atvik eða uppgjör hafi verið um að ræða en samkvæmt heimildum er það meðal þess lögregla reynir nú að ná utan um. Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Lögreglumál Reykjavík Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Tengdar fréttir Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Sjömenningarnir sem handteknir voru í nótt í tengslum við stórfellda líkamsárás verða yfirheyrðir í dag. Gera má ráð fyrir að yfirheyrslurnar taki nokkurn tíma og standi jafnvel yfir fram á kvöld, að sögn lögreglu. 17. mars 2026 10:51 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira
Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Sjömenningarnir sem handteknir voru í nótt í tengslum við stórfellda líkamsárás verða yfirheyrðir í dag. Gera má ráð fyrir að yfirheyrslurnar taki nokkurn tíma og standi jafnvel yfir fram á kvöld, að sögn lögreglu. 17. mars 2026 10:51