Fótbolti

Eggert missir af mikil­vægum lands­leik

Sindri Sverrisson skrifar
Eggert Aron Guðmundsson var magnaður á EM U19-landsliða í fyrra og hefur unnið að því að koma U21-landsliðinu einnig á stórmót, en verður ekki með gegn Tékkum.
Eggert Aron Guðmundsson var magnaður á EM U19-landsliða í fyrra og hefur unnið að því að koma U21-landsliðinu einnig á stórmót, en verður ekki með gegn Tékkum. Getty/Seb Daly

Eggert Aron Guðmundsson, lykilmaður í U21-landsliði Íslands, verður ekki með þegar liðið tekst á við Tékka ytra á þriðjudaginn.

Eggert, sem var keyptur frá Stjörnunni til sænska félagsins Elfsborg í vetur, á við meiðsli að stríða og þurfti því að draga sig út úr hópnum. 

Í hans stað kemur Bjarni Guðjón Brynjólfsson, sem kom til Vals frá Þór Akureyri í vetur og á að baki einn leik fyrir U21-landsliðið.

Eggert hefur spilað alla þrjá leiki Íslands í undankeppni EM til þessa, frá upphafi til enda. Liðið hefur unnið tvo sigra en tapað einum leik, og er í harðri baráttu um að komast á EM. 

Wales er efst í riðlinum en búið að spila sex leiki, og er með 11 stig. Danmörk er með átta stig eftir fjóra leiki, Ísland sex stig eftir þrjá leiki, Tékkar tvö eftir þrjá leiki, og Litháen án stiga eftir fjóra leiki.

Ísland tapaði naumlega gegn Wales ytra, 1-0, en vann afar sæta sigra gegn Tékkum á heimavelli, 2-1 með glæsilegu sigurmarki Andra Fannars Baldurssonar í uppbótartíma, og 1-0 á útivelli gegn Litháen.

U21-hópur Íslands:

Adam Ingi Benediktsson - IFK Göteborg - 6 leikir

Lúkas J. Blöndal Petersson - Hoffenheim - 3 leikir

Andri Fannar Baldursson - Elfsborg - 17 leikir, 1 mark

Kristall Máni Ingason - Sonderjyske - 16 leikir, 7 mörk

Ólafur Guðmundsson - FH - 9 leikir, 1 mark

Danijel Dejan Djuric - Víkingur R. - 8 leikir, 1 mark

Valgeir Valgeirsson - Örebro - 8 leikir

Ísak Andri Sigurgeirsson - IFK Norrköping - 7 leikir

Jakob Franz Pálsson - Valur - 7 leikir

Logi Hrafn Róbertsson - FH - 7 leikir

Óli Valur Ómarsson - IK Sirius - 7 leikir, 1 mark

Ari Sigurpálsson - Víkingur R. - 5 leikir, 1 mark

Davíð Snær Jóhannsson - Aalesunds FK - 5 leikir, 2 mörk

Anton Logi Lúðvíksson - FK Haugesund - 4 leikir

Hlynur Freyr Karlsson - FK Haugesund - 4 leikir

Kristófer Jónsson - US Triestina - 4 leikir

Hilmir Rafn Mikaelsson - Kristiansund BK - 3 leikir

Benoný Breki Andrésson - KR - 1 leikur

Bjarni Guðjón Brynjólfsson - Valur - 1 leikur

Daníel Freyr Kristjánsson - FC Midtjylland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×