Hin 31 árs gamla Isla Bryson var sakfelld fyrir að hafa nauðgað tveimur konum í Glasgow árin 2016 og 2019. Þegar hún var handtekin og ákærð gekk hún undir nafninu Adam Graham en kom út úr skápnum á meðan réttarhöldin stóðu yfir.
Eftir að dómur féll var Bryson flutt í Cornton Vale kvennafangelsið í Skotlandi en sú ákvörðun vakti harða gagnrýni. Sá Nicola Sturgeon forsætisráðherra sig knúna til að grípa inn í og stíga fram og lýsa því yfir að Bryson myndi ekki afplána dóm sinn í kvennafangelsinu.
Að sögn saksóknara níddist Bryson á konum í viðkvæmri stöðu en hún neitaði sök fyrir dómi og sagðist aldrei myndu gera flugu mein. Eiginkona Bryson hefur stigið fram og greint fjölmiðlum frá því að hún telji yfirlýsingar Bryson um kynvitund sína ekkert annað en blekkingar.
Forsætisráðherrann Sturgeon var spurð út í málið í kjölfar þess að talsmaður forsætisráðherra Bretlands sendi frá sér yfirlýsingu þar sem lýst var áhyggjum af því hvernig fangelsisvist Bryson væri háttað.
Sturgeon sagði vistun trans einstaklinga alltaf háða persónubundnu mati en hún væri sammála þeim orðum framkvæmdastjóra Rape Crisis Scotland að það ætti aldrei að vista nauðgara í kvennafangelsi.
Hún ítrekaði þó að umræðan mætti ekki verða á þann veg að konum stafaði ógn af trans konum, þótt trans einstaklingar gerðust sekir um lögbrot í einangruðum tilvikum.