Smalling tryggði Rómverjum frækinn sigur á Inter

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty

AS Roma hafði betur gegn Inter Milan í stórleik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Inter komst yfir með marki Federico Dimarco eftir hálftíma leik en Paulo Dybala var fljótur að jafna metin fyrir gestina frá Rómarborg.

Staðan var jöfn þar til á 75.mínútu þegar enski varnarmaðurinn Chris Smalling skoraði það sem reyndist sigurmark Roma.

Með sigrinum lyfti Roma sér upp í fjórða sæti deildarinnar þar sem liðið hefur sextán stig. Inter hins vegar í sjöunda sæti með tólf stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira