Tónlist

Vinkonurnar vita alltaf hvað er best að segja og gera

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Benedikt vakti mikla athygli fyrir sinn epíska poppstíl á Músíktilraunum í ár.
Benedikt vakti mikla athygli fyrir sinn epíska poppstíl á Músíktilraunum í ár. Aðsent

Popptónlistarmaðurinn Benedikt gefur í dag út sitt annað lag, With My Girls. Söngvarinn heitir fullu nafni Benedikt Gylfason og var hann eina einstaklingsatriðið sem komst áfram á úrslitakvöld Músíktilrauna fyrr á þessu ári.

„Lagið er óður til allra frábæru vinkvenna hans, er hreint og grípandi popp sem er skemmtilegt að syngja hátt með í bílnum eða dansa við,“ segir í tilkynningu um lagið. 

Benedikt Gylfason er 19 ára söngvari, lagahöfundur og pródúsent úr Reykjavík. Hann stundar nám við MH og er í söngnámi í Menntaskóla í Tónlist sem og námi í jazzpíanóleik. Þörfin fyrir að standa á sviði hefur alltaf verið mikil. Benedikt byrjaði ungur að semja tónlist, bæði klassíska sem og popp. Hann kom mikið fram opinberlega þegar hann var yngri. Hann hefur verið í leikhúsi, óperum, var í klassísku listdansnámi og hefur verið virkur í kórastarfi, fyrst í Drengjakór Reykjavíkur og nú í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð.

Stuttskífa í vinnslu

Í maí keppti Benedikt til úrslita í Músíktilraunum og var hann eina einstaklingsatriðið sem komst áfram í úrslitin. With My Girls er önnur smáskífa Benedikts. 

„Lagið er fjörugt, grípandi og takturinn hvetur mann til að dansa. Textinn fjallar um hvernig best sé að komast yfir ástarsorg en það er að leggja símann frá sér og hitta góðar vinkonur. Þá líður manni betur með sjálfan sig því þær vita alltaf hvað er best að segja og gera.“

Benedikt gaf út lagið Diamond í júlí síðastliðnum við góðar undirtektir. Stuttskífa með Diamond, With My Girls og tveimur öðrum lögum er væntanleg í nóvember en það verkefni er styrkt af bæði Upptökusjóði STEFs sem og Tónskáldasjóði RÚV og STEFs.


Tengdar fréttir

Ólafur Kram sigraði í Músík­til­raunum

Hljómsveitin Ólafur Kram bar sigur úr bítum í Músíktilraunum, sem fór fram í Hörpu í gær. Tólf hljómsveitir tóku þátt í keppninni og eftir æsispennandi úrslitakvöld var niðurstaða dómnefndar og símakosninga kynnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×