Íslenski boltinn

Arnar um stór­leik dagsins: „Þetta er bara móðir allra leikja“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson segir sína menn þurfa að spila sinn leik og þá sé titillinn í höfn.
Arnar Gunnlaugsson segir sína menn þurfa að spila sinn leik og þá sé titillinn í höfn. Vísir/Hulda Margrét

„Það hefur gengið mjög vel eftir að við náðum okkur niður eftir KR-leikinn, það var svona tveir dagar og svefnlausar nætur eftir það,“ sagði Arnar Gunnlaugsson aðspurður hvernig vikan hefði verið hjá Víkingum sem spila sinn stærsta leik í að minnsta kosti 30 ár í dag.

Pepsi Max deild karla í fótbolta lýkur í dag. Víkingar eru með pálmann í höndunum en sigur á Leikni Reykjavík tryggir félaginu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil frá árinu 1991. Nú þrjátíu árum síðar geta þeir orðið meistarar á heimavelli og má búast við miklum látum í Víkinni síðar í dag.

„Eftir að við byrjuðum að æfa af krafti aftur hefur þetta verið fínt, tvær mjög góðar æfingar og leikmenn spenntir, farnir að rífast á æfingum og mikil samkeppni þannig menn eru farnir að gera sér grein fyrir hvað er í boði hérna í dag,“ sagði þjálfari Víkinga er hann ræddi við Stöð 2 Sport og Vísi fyrir stórleik dagsins.

Klippa: Arnar um stórleikinn á morgun

Mikið undir

„Ég held þú getir ekki orðað það betur. Stóri titillinn undir og það er á svona dögum sem þú leitar í reynslubankann. Við vorum með stóran dag fyrir tveimur árum síðan, bikarúrslitaleikur, þar sem að vikan var ekkert ósvipuð. Mikil fjölmiðlaathygli og allir að tala um þann leik, þannig það er gott að hafa staðist það próf og við erum búnir að vinna einhverja 7-8 leiki í röð. Margir hverjir stórleikir, tvisvar á móti KR, einu sinni á móti Val, á móti FH, HK og Fylki.“

„Erum búnir að spila gríðarlega vel og sína mikinn karakter að vera komnir í þessa stöðu og eiga möguleika á að landa þeim stóra á morgun.“

Síðasta skrefið strembið

„Þess vegna eru hlutfallslega fá lið og fáir leikmenn sem vinna titil á sínum ferli. Þetta snýst ekki bara um knattspyrnuhæfileika, þetta snýst líka um að ná stjórn á sínum tilfinningum og finna þetta rétta jafnvægi. Vera rólegur í hausnum en samt á fullu til að geta spilað þinn leik. Við erum með ungt lið en líka reynslumikla menn sem hafa gengið í gegnum þetta og það hjálpar allt á svona dögum. Svo líka okkar frábæra stuðningsfólk. Ef við mætum og hlaupum, berjumst og munum að njóta leiksins fer þetta allt vel.“

Stuðningsmenn Víkings.Vísir/Hulda Margrét

„Þú getur ekkert sagt við leikmenn „farðu og hafðu sjálfstraust á morgun,“ þetta virkar ekki þannig. Þú þarft að byggja upp söguna og sýna þeim hvað þeir eru búnir að gera síðustu þrjú ár sem hefur leitt okkur á þennan stað og þá komast leikmenn að þeirri niðurstöðu sjálfir að þeir eru nógu góðir og ekkert annað skiptir máli.“

„Mjög þægilegt að fara inn í leik vitandi það að ef þú spilar þinn leik að þá áttu meiri möguleika en andstæðingurinn að vinna leikinn.“

Um Leikni Reykjavík

„Þeir unnu okkur sannfærandi í fyrri leikliðanna og það er víti til varnaðar. Leiknir er með fínasta lið, með mjög flottan þjálfara sem er taktískt mjög sterkur. Þetta er líka stóra sviðið fyrir þá. Þeir eru ekki komnir hingað til að gefa okkur eitt eða neitt en eins og ég segi, ef við spilum okkar leik: kraftmiklir og jákvæðir – þá löndum við þessu.“

„Þetta er bara móðir allra leikja. Ég held að margir eru búnir að bíða eftir þessu lengi og margir í Víking héldu að þetta myndi aldrei koma. Það eru 30 ár síðan við unnum titilinn síðan og ég held það munu margir Víkingar mæta. Ég líka finn fyrir að Víkingur er lið fólksins, eins og Skaginn var í gamla daga. Sá sem heldur ekki með Breiðabliki mun halda með Víkingi og það gerir mig afskaplega stoltan,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, að endingu í viðtali við Stöð 2 og Vísi.

Stöð 2 Sport verður með veglega dagskrá á í dag. Upphitun Pepsi Max stúkunnar hefst klukkan 13:00 og hægt verður að fylgjast með öllum leikjunum samtímis í þættinum. Þá verða allir leikirnir í lokaumferðinni sýndir beint og klukkan 20:00 er svo komið að uppgjörsþætti. Nánari upplýsingar um dagskrá morgundagsins má sjá með því að smella hér.


Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.


Tengdar fréttir

Víkingar hafa aldrei unnið Leiknismenn í efstu deild

Víkingur verður Íslandsmeistari í knattspyrnu á morgun ef liðið vinnur lokaleik sinn á móti Leikni. Það hafa Víkingar þó aldrei afrekað áður í sögunni í deild þeirra bestu.

Bikarinn verður miðja vegu á milli Víkinnar og Smárans

Íslandsmeistarabikarinn fer annað hvort á loft á Víkingsvelli eða Kópavogsvelli. Á meðan leikjunum í lokaumferðinni í Pepsi Max-deild karla verður bikarinn í vörslu starfsmanns KSÍ á miðlægum stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×