Lífið

Stjörnulífið: Gleðilegt takmarkalaust sumar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Um helgina fögnuðu Íslendingar því að engar takmarkanir eru í gildi innanlands í fyrsta skipti í sextán mánuði.
Um helgina fögnuðu Íslendingar því að engar takmarkanir eru í gildi innanlands í fyrsta skipti í sextán mánuði. Samsett/Instagram

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.

„Gleðilegt takmarkalaust sumar,“ skrifaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra eftir að öllum samkomutakmörkunum var aflétt fyrir helgi. Á miðnætti á föstudag hætti grímuskildan og skemmtistaðir máttu svo hafa opið langt fram á nótt í fyrsta skipti í langan tíma. 

Söngkonan Elísabet Ormslev fór í brúðkaup með kærastanum. Það verður mikið um brúðkaup næstu helgar þar sem margir þurftu að fresta brúðkaupsveislum á síðasta ári. Elísabet gengur með sitt fyrsta barn og tilkynnti það á Instagram að hún ætti von á strák. 

Það var stór helgi hjá Aroni Can um helgina. Hann gaf út nýja plötu á föstudag. Plötunnar hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda þrjú ár síðan hann gaf síðast út plötu. Hann hélt svo upp á þetta með veglegu útgáfupartýi á Cava Club. Þar var Ernu kærustu hans líka fagnað innilega en hún hélt upp á 26 ára afmælið sitt á laugardag. 

Unnsteinn útskrifaðist um helgina af námsbrautinni #serialeyes í Þýska Kvikmyndaskólanum í Berlín.

Donna Cruz hélt upp á afmælið sitt um helgina og var meir og þakklát.

Gylfi Þór Sigurðsson og Alexandra Helga Ívarsdóttir fóru í brúðkaup í Kjós um helgina. Hann klæddist bláum jakkafötum og hún var í fallegum bleikum síðkjól. Brúðhjónin voru Gígja Guðjónsdóttir matarbloggari og Ásgeir Elvar Garðarson. Í brúðkaupinu komu meðal annars fram Emmsjé Gauti, Valdimar og Frikki Dór. 

Lína Birgitta eyddi helginni í Amsterdam með Gumma kærastanum sínum. Þau borðuðu góðan mat og skoðuðu merkjavörubúðir og sýndu auðvitað frá öllu á Instagram.

Daði Freyr tók á móti Langspil verðlaunum STEF og var þakklátur fyrir heiðurinn. Daði Freyr og Árný eru nú komin aftur heim til Berlín þar sem þau bíða spennt eftir barni.

Jón Jónsson birti fallega fjölskyldumynd frá Noregi þar sem þau heimsækja fjölskyldu. 

Sibba Hjörleifsdóttir hélt upp á fertugsafmæli sitt um helgina. Þemað var Coachella hátíðin.  Móeiður Lárusdóttir var á meðal gesta og fór alla leið í þema kvöldsins. 

Pattra birti einnig skemmtilega mynd frá dressinu sínu þetta kvöld. Í veislunni var mikið stuð. Erpur kom fram og svo var meðal annars dansaður línudans við lagið Cotton Eye Joe. 

Söngkonan Sólborg skilaði af sér mikilvægri skýrslu til menntamálaráðherra um helgina. Hún hefur síðasta hálfa árið unnið ásamt fleirum að tillögum um markvissa kennslu um kynheilbrigði og ofbeldisforvarnir í grunn- og framhaldsskólum.

Birgitta Líf nældi sér í miniMBA í markaðsfræði. Hún hefur í nógu að snúast þessa dagana og opnar skemmtistaðinn sinn Bankastræti Club á föstudag. Svo fékk hún sér sitt fyrsta og eina húðflúr um helgina. Vinahópurinn og áhrifavaldarnir Birgitta, Sunneva Einars, Kristín Péturs, Magnea, Ína María og Ástrós fengu sér allar húðflúrið LXS saman, þó ekki allar á sama stað á líkamanum. 

Það var mikið fjör á konukvöldi Sjálands í Garðabænum og komu meðal annars fram DJ Dóra Júlía og GDRN. 

Þórunn Antonía söng afmælissönginn fyrir Ernu Kristínu og bað hana um að vera vinkona sín að eilífu. Erna sagði já og settu þær upp fallega vinkonuhringa að þessu tilefni. 

Eva Ruza fór á kostum á konukvöldinu enda líður henni hvergi betur en uppi á sviði að skemmta fólki. 

Söngkonunrnar Gréta Karen og Svala mættu á konukvöldið. 

Brynja Dan og Andrea Magnúsdóttir fóru saman á konukvöldið, frelsinu fegnar. 

Birgitta Haukdal fór út að leika með góðum hópi fólks. 

Edda Falak og Klara Elías skemmtu sér með kærustum sínum, Kristjáni Helga og Jeremy, ásamt Gunna Nelson og fleirum í Mjölni um helgina. 

Sunneva Einars naut sín í góða veðrinu um helgina. 

Camilla Rut birti af sér skvísumynd frá Kríunesi þar sem hún skemmti sér með SWIPE hópnum. Það var svo tilkynnt um helgina að hún mun ásamt Hjálmari Erni, leysa af Evu Laufey og Svavar í Bakaríinu á Bylgjunni í sumar. 

Rakel Orra, Nökkvi Fjalar og fleiri voru líka á SWIPE árshátíðinni og TikTok stjarna Íslands, Embla Wigum, lét sig sjálfsögðu ekki vanta.

Eliza Reed forsetafrú og Una Sighvats urðu veðurtepptar í appelsínugulu viðvöruninni á Akureyri á laugardag en hún nýtti tækifærið og skoðaði sig um og keypti afmælisgjöf handa eiginmanninum. 

Guðni Th. forseti Íslands fagnaði afmæli sínu á sunnudag. Hann hvatti Álftanes1 áfram á Orkumótinu í Eyjum um helgina og var auðvitað sungið fyrir hann afmælissöngurinn.

Beggi Ólafs keppti í Snæfellsjökulshlaupinu um helgina og endaði þar í sjöunda sæti.

Tímamót hjá Gunna og Elísabetu sem flytja heim til Íslands eftir 12 ár erlendis.

Friðrik Ómar og Jógvan halda áfram tónleikaferðalagi sínu um landið.

Ástrós dansari fagnaði afléttingu samkomutakmarkana og skellti sér út á lífið.

Egill Einarsson óskaði eftir tillögum að nafni á litla drenginn sinn. Hann varð átta vikna um helgina. 

Unnur Eggerts er aftur flutt út til Bandaríkjanna og fór á ströndina um helgina með kærastanum og hundinum. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Sumargigg, fálkaorður og freyðivín

Það er óhætt að segja að landinn sé að vakna aftur til lífsins eftir langt og strangt partýbann. Búbblurnar eru byrjaðar freyða sem aldrei fyrr og sumarkjólum og sólgleraugum er nú skartað við hvert tækifæri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×