Ný könnun: Íslenskir karlmenn elska rassa meira en brjóst Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 15. desember 2014 10:45 Til vinstri er skýringarmynd sem sýnir vinsældir rassa annars vegar og brjósta hins vegar í hverju landi fyrir sig. Rauði liturinn táknar rassa, sá blái brjóst. Til hægri er mynd af Siggu Dögg.
Íslenskir, gagnkynhneigðir karlmenn eru hrifnari af afturendum kvenna en brjóstum. Þetta kemur fram í könnun sem framkvæmd var af vefsíðunum Pornhub og Youporn í samstarfi við svissneska dagblaðið 20 Minuten.Skera íslenskir karlmenn sig talsvert úr því ef litið er á heiminn allan eru flestir karlmenn hrifnari af brjóstum en afturendum. Ef aðeins Norðurlöndin eru skoðuð sést að flestir karlkyns íbúar þeirra elska barm kvenna meira en bossa. Íslenskir karlmenn eru svipaðir og þeir bandarísku þegar kemur að ást á afturendanum og eru karlmenn í fjörutíu fylkjum af fimmtíu hrifnari af rössum. Þá er algengara að suðrænir karlmenn, til dæmis í Síle og Brasilíu, fíli rassa betur en brjóst. Þessar niðurstöður fengust þannig að öllum leitarorðum síðasta árs var safnað saman.Hér sjást vinsældir rassa í Evrópu.Kynfræðingurinn Sigga Dögg veit ekki af hverju íslenskir karlmenn eru frábrugðnir öðrum Evrópubúum þegar kemur að þessum efnum. „Hér er náttúrulega mikill áhugi á rassinum og kynferðislegri örvun á honum og það er erfitt að aðgreina hvort það komi útaf klámi eða öfugt,“ segir Sigga Dögg. Hún bendir á að rassinn sé í tísku, en afturendar hafa einmitt verið mjög áberandi á árinu sem er að líða. Skemmst er frá því að minnast þegar Kim Kardashian beraði sinn á forsíðu tímaritsins Paper. „Rassinn er í tísku, talinn tabú á meðan brjóst hafa kannski misst sitt tabú því við erum að opnast með brjóstagjöf og bíómyndir eru opnari með að sýna brjóst. Rassinn er ennþá talin svo spennandi og „ósnertanlegur“ samkvæmt sumum en öðrum ekki,“ bætir Sigga Dögg við.Hér sjást vinsældir rassa um heim allan. Því dekkri sem rauði liturinn er, því vinsælli eru rassarnir.Ef litið er á hvernig heimsbúar skiptast í þessar tvær fylkingar brjósta og rassa eftir heimsálfum sést að Evrópu- og Asíubúar eru mun hrifnari af brjóstum en restin af heiminum, sem og þeir sem búa í Ástralíu. Ef eingöngu Norðurlöndin eru skoðuð sést að Finnar eru hrifnastir af brjóstum. Þeir eru í þriðja sæti ef litið er til þeirra sem elska brjóst mest en á þeim lista eru Íslendingar í 72. Sæti. Danir eru í 10. sæti, Norðmenn í því 21. og Svíar í 27. sæti. Grænlendingar ná 7. sæti á þeim lista en á toppinum tróna íbúar Maldíveyja. Það eru hins vegar Afríkubúar sem ráða ríkjum á rassalistanum og skipa Afríkuríkin Tansanía, Ghana og Djibouti þrjú efstu sætin. Ef aðeins er horft til Evrópu sést að Íslendingar eru afar hrifnir af afturendum, sem og Hollendingar, Svíar og Finnar. Hægt er að skoða niðurstöður könnunarinnar nánar hér en önnur leitarorð voru einnig könnuð, svo sem sköp, fótleggir og fætur.Hér sjást svo vinsældir brjósta. Því dekkri sem liturinn er, því vinsælli eru þau.
Mest lesið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Lífið samstarf Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Kominn á toppinn Lífið Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Lífið samstarf Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Lífið samstarf Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Sjá meira