Mótmælt á Gasa þegar ár er liðið frá innrás Ísraela 28. desember 2009 04:00 Palestínumenn halda á myndum af ættingjum sem drepnir voru í hernaði Ísraela fyrir ári. Myndin er tekin í flóttamannabúðunum í Jebaliya á norðurhluta Gasa-svæðisins. Fréttablaðið/AP
Sérlegur talsmaður Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um málefni hernámssvæða Ísraela í Palestínu kallar eftir því að Ísraelar láti af aðgerðum til að einangra Gasa-svæðið. Í tilkynningu fréttaveitu SÞ á Þorláksmessu er einnig kallað eftir því að lönd í Evrópu og Norður-Ameríku, sem stutt hafi Ísrael, beiti landið efnahagsþvingunum til að þrýsta á um umbætur varðandi Gasa og að unnið verði úr ábendingum Goldstone-skýrslunnar svonefndu, en þar er fjallað um mannréttindabrot Ísraela og Palestínumanna í átökum þjóðanna. „Hver maður með samvisku, sem og stjórnvöld um heim allan og Sameinuðu þjóðirnar ættu að horfa til alvarlegs ástands á Gasa," segir í tilkynningu Richards Falk, talsmanns SÞ um hernámssvæði Palestínu, á Þorláksmessukvöld. „Áþján 1,5 milljóna íbúa Gasa sem líða fyrir vöruflutningabann Ísraela, en yfir helmingur þeirra er börn, hefur verið látin viðgangast án formlegra mótmæla stjórnvalda eða Sameinuðu þjóðanna." Ákall Falks var sent út rétt áður en ár var liðið frá árásarhrinu Ísraela á Gasa. Íbúar á svæðinu tóku í gær þátt í skipulegum mótmælum Hamas vegna þeirra, en fleiri hundruð manns dóu og margmilljóna tjón varð í árásum sem stóðu yfir í 22 daga. Uppbyggingarstarf hefur svo setið á hakanum vegna vöruflutningabanns og einangrunar Ísraela á svæðinu. Fréttaveitan AP greinir frá því að um 3.000 stuðningsmenn Hamas hafi komið saman á torgi bæjarins Jebaliya í norðurhluta Gasa. Þar hafi verið veifað grænum fánum samtakanna og haldið uppi myndum af fjölskyldumeðlimum sem drepnir hafi verið í árásum Ísraela. Þær hófust 27. desember í fyrra, en talið er að um 1.400 Palestínumenn hafi verið drepnir í þeim. Þar af eru um 900 sagðir hafa verið óbreyttir borgarar og 400 börn. Þrettán Ísraelar voru drepnir. Benyamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, vék ekki orði að innrásinni fyrir ári, sem gerð var undir stjórn fyrri ríkisstjórnar, í yfirlýsingu sem hann las fyrir vikulegan ríkisstjórnarfund sem fram fór í gær. Hann áréttaði þó að landið myndi bregðast við öllum árásum af fullri hörku. Ísrael réðst inn á Gasa-svæðið fyrir ári að eigin sögn í viðleitni til að binda endi á árásir með skotflaugum á landamærabyggðir Ísraela og til að grafa undan stjórn Hamas á svæðinu. Báðar fylkingar fagna sigri eftir átökin. Syðri byggðir Ísraela eru sagðar blómstra þar sem eldflaugaárásir hafi að mestu hætt og Hamas hampar stjórn sinni á Gasa. Svæðið er hins vegar í rúst. Mörg hundruð fjölskyldur syrgja fallna ástvini og mörg hundruð til viðbótar eru örkumla eða alvarlega særð. Þúsundir heimila voru eyðilagðar eða mikið skemmd, en stíft vöruflutningabann Ísraela og Egypta hefur hamlað uppbyggingu. Bannað er að flytja inn á Gasa gler, steypu eða annað byggingarefni. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira