Blair heitir róttækum umbótum 7. maí 2005 00:01
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur þegar stokkað upp í bresku stjórninni í kjölfar þingskosninganna í fyrradag. Blair tilkynnti strax í gær um breytingarnar. Endanleg úrslit í bresku þingkosningunum liggja nú fyrir en kosið var í 645 kjördæmum. Samkvæmt lokatölum hlaut Verkamannaflokkurinn 356 þingsæti og tapaði 47 sætum frá kosningunum 2001, þótt hann hafi sigrað þriðja kjörtímabilið í röð. Íhaldsflokkurinn fékk 197 þingsæti og bætir við sig þrjátíu og þremur. Frjálslyndir demókratar hlutu 62 þingsæti og bæta við sig ellefu. Aðrir flokkar bættu við sig þremur og fengu alls þrjátíu þingsæti. Verkamannaflokkurinn hafði 161 sætis meirihluta á síðasta þingi en hefur nú aðeins 66 sæta meirihluta sem talið er veikja stöðu Blairs verulega. Blair hefur þegar stokkað upp í stjórninni og tilkynnti um breytingarnar í gær. Geoff Hoon lætur af embætti varnarmálaráðherra og í þann stól sest John Reid. Reid var áður yfir heilbrigðismálunum en við því embætti tekur Patricia Hewitt sem verið hefur viðskipta- og iðnaðarráðherra. Þá er David Plunkett aftur kominn inn í bresku stjórnina en Plunkett, sem er blindur, neyddist til þess að segja af sér sem innanríkisráðherra á síðasta ári vegna hneykslismála. Hann gegnir nú embætti atvinnu- og lífeyrismálaráðherra. Gordon Brown, líklegur eftirmaður Blairs, verður áfram fjármálaráðherra, eins og búist hafði verið við, og Jack Straw situr enn í stóli utanríkisráðherra. Mark Seddon, þingmaður Verkamannaflokksins, sem tilheyrir vinstri armi flokksins, segir stöðuna sýna að Blair verði að miðla málum á nýju þingi. Blair hefur heitið róttækum umbótum heimafyrir í heilbrigðismálum, menntamálum og málefnum innflytjenda. Varðandi utanríkismálin telur hann fátækt í Afríku og deilur Ísraelsmanna og Palestínumanna meðal þess sem hann vill setja efst á forgangslistann.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Indland gerir árás á Pakistan Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Innlent Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Innlent Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Erlent Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Innlent Konan í Bríetartúni komin á götuna Innlent Fleiri fréttir Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Sjá meira