Fréttir vikunnar: Eldingar, jarðskjálftar og vatnsflaumur 16. október 2011 21:00 Það rauk upp úr jörðinni. Leitað er að orsök lekans.
Vikan hófst á harðri gagnrýni gegn blaðinu Boston Globe sem greindi frá nafni Önnu Björnsdóttur, sem tilkynnti lögreglunni hvar glæpaforingjanna James „Whitey" Bulger væri að finna. Það var fyrrverandi saksóknari í Boston auk þingmanns sem gagnrýndu uppljóstrun uppljóstrarans. Dagblaðið Boston Herald fjallaði um málið eins og raunar flestir miðlar heimsins en Bulger var um tíma eftirlýstasti maður Bandaríkjanna og voru tvær milljónir dollara settar til höfuðs honum. Hann var handtekinn í sumar og fljótlega var greint frá því að ábending um dvalarstað hans hefði komið frá Íslandi. Nú hefur Boston Globe greint frá því að sú sem benti lögreglu á Bulger hafi verið Anna Björnsdóttir, sem bjó um tíma í sama húsi og Bulger og kærasta hans. Bandaríska Alríkislögreglan hafði heitið því að nafn Önnu yrði ekki gefið út en blaðamaður Boston Globe komst hinsvegar að því og greindi frá því síðustu helgi.Nýtt póstnúmer Og Vísir hefur að sjálfsögðu brennandi áhuga á heilsu og holdafari formanns Framsóknarflokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Þannig skýrðum við frá því að formaðurinn væri kominn undir 100 kíló og er nú 99,6 kíló. Á Facebook-síðu sinni segist hann hættur að vera póstnúmer. Sigmundur Davíð byrjaði í megrun í lok ágúst en hann var þá 108 kíló. Síðan þá hefur hann eingöngu borðað íslenskan mat en hann hefur gefið megrunarkúr sínum nafnið „Íslenski kúrinn." Hann hefur þó gert einhverjar undanþágur, til að mynda þegar hann fór í vinnuferð til Finnlands fyrir nokkrum vikum síðan. Hann fékk matareitrun í ferðinni. Það var svo stjörnufans í vikunni enda nóg um að vera. Kvikmyndaleikkonan Liv Tyler kom hingað til lands. Þá var einnig stofnandi Napster, Sean Parker, á ferðinni. Fyrir þá sem muna ekki eftir tónlistarforritinu Napster þá kannaðist kannski fleiri við kauða úr kvikmyndinni The Social Network, en það var Justin Timberlake sem lék hann snilldarlega.Réttað yfir meintum njósnara Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Þorsteini Húnbogasyni, fyrrum sambýlismanni Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudaginn. Hann er grunaður um að hafa njósnað um Siv með því að hafa komið ökurita fyrir í bifreið hennar. Þau voru í sambúið í tuttugu og sex ár. Við þingsetningu málsins þann 9. september síðastliðinn sagðist Þorsteinn vera saklaus af ákærunni. Hann var ákærður í júní síðastliðnum en hið meinta eftirlit stóð yfir á síðari hluta ársins 2010. Rannsókn málsins stóð yfir hluta síðasta vetrar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og var Þorsteinn meðal annars boðaður í skýrslutöku og samkvæmt upplýsingum fréttastofu sóttu á heimili sitt af þó nokkru liði lögreglumanna. Á miðvikudaginn greindi Vísir frá því að umsækjendur um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins hefðu óskað eftir rökstuðningi fyrir ráðningu Páls Magnússonar í stöðu forstjóra stofnunarinnar. Páll Magnússon, fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var ráðinn í starfið en hann er með BA próf í guðfræði og meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Aðrir umsækjendur höfðu menntun sem var sérsniðnari að störfum í bankakerfinu. Á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar á miðvikudaginn var Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra spurður út í viðbrögð hans við ráðningunni. Stofnunin heyrir undir hann. Steingrímur sagði að ákveðið hefði verið að skrifa Bankasýslunni á grundvelli almennrar eftirlitsskyldu ráðuneytisins. Því var svo svarað og varði Bankasýslan ráðninguna. Það mál er þó enn óleyst, en í kvöld greindi RÚV frá því að hann tæki ekki við starfinu. Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins kannaðist þó ekki við það þegar Vísir hafði samband við hann.Gunnar Rúnar dæmdur Árlega greinast 10 karlar og 8 konur með krabbamein í munnholi og vör samkvæmt fimm ára meðaltali áranna 2005 til 2009. Þessu greindi Vísir frá á fimmtudaginn. Þar kom fram að tilvikin hafa aldrei verið fleiri frá upphafi mælinga en þeim hefur fjölgað um 20 prósent á milli tímabilanna 2000 til 2004 og 2005 til 2009. Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir hjá Krabbameinsskrá Íslands, segir að orsök myndunar krabbameins í munnholi sé vissulega ekki alveg á hreinu. „Hinsvegar eru þekkt sterk tengsl milli tóbaksnotkunar sérstaklega en einnig tengsl við alkóhólnotkun og einkum ef þetta tvennt fer saman, þá aukast líkur að sama skapi að fá þessa tegund krabbameins," segir Jón Gunnlaugur. Svo snéri Hæstiréttur Íslands sýknudómi yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni á fimmtudaginn. Gunnar Rúnar skal sæta fangelsi í 16 ár en hann hafði áður verið dæmdur ósakhæfur. Gunnar Rúnar játaði að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana á heimili sínu í Hafnarfirði á síðasta ári. Héraðsdómur Reykjaness hafði fyrr á þessu ári dæmt Gunnar Rúnar ósakhæfan og til vistunar á viðeigandi stofnun. Hæstiréttur dæmdi hinsvegar Gunnar Rúnar í 16 ára fangelsi. Fjölmargir voru mættir í dómsal á fimmtudaginn til að hlusta á dómarann lesa upp dómsorð. Fjölskylda Hannesar Þórs klappaði og fagnaði þegar dómarinn hafði lokið við að lesa upp dóminn. Dagurinn var erfiður fyrir fjölskylduna en móðir Hannesar var kistulögð samdægurs.Eldingar, jarðskjálfti og vatnsflaumur Það var svo á föstudagskvöldið sem eldingu laust niður í flutningslínu Landsnets á Mosfellsheiði og olli það rafmagnstruflunum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Páll Pálsson, starfsmaður kerfisstjórnar Landsnets sagði í viðtali við Vísi að vel hafi verið sloppið frá óhappinu. „Framleiðsla í stóriðju á suðvesturhorninu fór út um skamma stund, en hinn almenni viðskiptavinur varð bara var við smá spennuflökt. Það fóru einhverjir sjónvarpsafruglarar út sem fólk varð að endursetja, en þetta veldur yfirleitt aldrei nokkrum varanlegum skaða," sagði Páll. Það var hinsvegar ekki notaleg að vakna í Hveragerði á laugardagsmorgninum því þá skóku manngerðir skjálftar bæinn. Báðir jarðskjálftarnir reyndust vera fjórir á richter samkvæmt upplýsingum jarðvísindamanna á Veðurstofu Íslands. Fyrri skjálftinn mældist klukkan 09:03 og sá seinni klukkan 09:46. Sem sagt á innan við klukkustund. Íbúar Hveragerðis fundu vel fyrir skjálftanum en það gerðu einnig íbúar á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akranesi. Jarðvísindamenn töldu nær öruggt að skjálftarnir hefðu verið af mannavöldum. Bæjarbúar voru allt annað en hrifnir af þessu jarðbrölti en Orkuveita Reykjavíkur er ábyrg fyrir skjálftanum. Orkuveitan verið er að dæla heitu vatni niður í jörðina við Hellisheiðarvirkjun, sem veldur skjálftunum. Orkuveita Reykjavíkur hefur boðað til fundar á Hótel Örk í Hveragerði annað kvöld eftir að Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, gagnrýndi Orkuveituna harðlega fyrir aðgerðir sínar, og sagði það ólíðandi að búa við manngerða jarðskjálfta. Það var svo eldsnemma á sunnudagsmorgninum sem slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um að það læki heitt vatn í kjallara heilsugæslunnar í Drápuhlíð. Slökkviliðsmenn mættu á svæðið um klukkan fimm um morguninn og hreinsuðu kjallarann sem var ansi illa farinn. Það kom þeim því á óvart þegar þeir fengu svo annað útkall síðdegis í dag og þá hafði aftur lekið niður í kjallarann. Og aftur var það heitt vatn. Þá kom í ljós að lögn virðist hafa sprungið í götunni með þeim afleiðingum að það flæddi í kjallarann. Ekki er enn séð fyrir endann á þessu því starfsmenn Orkuveitunnar, sem virðast ætla eiga annasama viku, eru enn að leita að sprungna rörinu þegar þetta er skrifað. Þangað til verður ýmist heitavatnslaust í hlíðunum eða kraftur með minna móti. Þess má geta að húsnæðið sem lak inni í var eitt skinn höfuðstöðvar Orkuveitunnar.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Sjá meira