Aðalmeðferð í njósnamálinu í dag 11. október 2011 12:45 Siv Friðleifsdóttir, til vinstri, og fyrrum sambýlismaður hennar, Þorsteinn Húnbogason, til hægri. Mynd/Samsett-Vísir.is
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Þorsteini Húnbogasyni, fyrrum sambýlismanni Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, fer fram eftir hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er grunaður um að hafa njósnað um Siv með því að hafa komið ökurita fyrir í bifreið hennar. Þau voru í sambúið í tuttugu og sex ár. Við þingsetningu málsins þann 9. septemer síðastliðinn sagðist Þorsteinn vera saklaus af ákærunni. Hann var ákærður í júní síðastliðnum en hið meinta eftirlit stóð yfir á síðari hluta ársins 2010. Rannsókn málsins stóð yfir hluta síðasta vetrar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og var Þorsteinn meðal annars boðaður í skýrslutöku og samkvæmt upplýsingum fréttastofu sóttu á heimili sitt af þónokkru liði lögreglumanna. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Þorsteinn haldið því fram að hann hafi ekki notið sanngjarnrar málsmeðferðar hjá lögreglu. Samkvæmt ákæru er Þorsteinn ákærður fyrir brot á lögum um fjarskipti með því að hafa komið staðsetningarbúnaði fyrir í ólögmætum tilgangi og án vitundar umráðamanns bifreiðarinnar, sem er fyrrum sambýliskona hans, Siv Friðleifsdóttir. Einnig segir í ákærunni að hann hafi komið búnaðinum fyrir í bifreiðinni í þeim tilgangi að fylgjast með ferðum hennar á tímabilinu 21. september 2010 til og með 18. nóvember 2010. Þá segir að Þorsteinn hafi haft aðgang á internetinu þar sem öllum upplýsingum úr búnaðinum er safnað saman á læstan aðgang hans. Saksóknari krefst þess að Þorsteinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar, en samkvæmt lögum um fjarskipti varða brot á þessum lögum sektum, fangelsi allt að sex mánuðum ef sakir eru mildar eða brot ítrekuð. Aðalmeðferðin fer fram í dag, eins og fyrr segir, í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira