Lentu fimmtán sinnum í Evrópu á síðasta ári 27. nóvember 2005 08:45 Frank-Walter Steinmeier utanríkisráðherra Þýskalands vill fá svör við orðrómi um að flugvöllurinn í Frankfurt hafi verið notaður í fangaflugi bandarísku leyniþjónustunnar.
Þotur á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, með grunaða hryðjuverkamenn innanborðs, hafa lent að minnsta kosti fimmtán sinnum á evrópskum flugvöllum á síðasta ári. Þetta kemur fram í dagblaðinu Berliner Zeitung. Segir þar að hugsanlega hafi slíkar vélar lent á flugvellinum í Frankfurt. Til að mynda sagði austurríski herinn nýverið að þota frá CIA, sem líklega hefði verið með fanga um borð, hefði flugið yfir landið á leið frá Frankfurt til Aserbaídsjan árið 2003. Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands, hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessa. "Sem utanríkisráðherra þarf ég að vega og meta staðreyndir í málinu, ekki það sem stendur í blaðagreinum," sagði Steinmeier í viðtali við Bild. "Það sem stendur í blaðinu er engu að síður eitthvað til að hafa áhyggjur af. Þess vegna tel ég að það væri gott fyrir Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, að grennslast fyrir um málið fyrir hönd Evrópusambandsins," sagði hann. Í greininni í Berliner Zeitung kemur einnig fram að Rammstein-flugstöðin í Þýskalandi sem er í eigu Bandaríkjamanna hafi verið notuð fyrir flug CIA á árunum 2002 til 2004. Steinmeier mun á þriðjudag funda með bandarískum ráðamönnum, þar á meðal utanríkisráðherrandum Condoleezzu Rice. Ekki er vitað hvort hann muni taka fangaflugið fyrir á fundinum. Bandaríkjamenn hafa viðurkennt að til séu leynileg fangelsi á þeirra vegum. Flest lönd í Austur-Evrópu hafa neitað því að slík fangelsi sé þar að finna, eins og orðrómur hefur verið uppi um. Talið er að Bandaríkjamenn hafi flutt grunaða hryðjuverkamenn í fangelsi út fyrir landsteinana þar sem lög gegn pyntingum eru ekki við lýði. Fyrir vikið hafi þeir þurft að millilenda vélum sínum í hinum ýmsu Evrópulöndum, þar á meðal í Þýskalandi og á Íslandi.
Erlent Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira