Innlent

Fá ekki upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag að mikil þrautarganga hefði verið að fá aðila á fundi viðskiptanefndar til þess að upplýsa um stöðu mála. Hann sagði meðal annars að í morgun hefðu aðilar á vegum Fjármálaeftirlitsins sagt á fundi að ekki væri ein einasta leið að upplýsa háttvirta þingmenn um hver staðan væri varðandi gömlu bankanna.

Hann spurði hvernig þingmenn gætu tekið ákvarðanir í þessu stóra máli án þess að hafa upplýsingar um málið. Hann sagði það hafa komið hreint og klárt fram í morgun að þingið fengi ekki upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu.

Álfheiður Ingadóttir formaður viðskiptanefndar kom upp á eftir Guðlaugi og sagði það rétt sam fram hafi komið í máli hans. Hún sagði fundi efnahags- og skattanefndar annarsvegar og viðskiptanefndar hinsvegar frá því í morgun líklega komast á spjöld sögunnar.

„Það kemur kannski að því að þingmenn þurfi að berja búsáhöld í þessum sal til þess að kalla fram upplýsingar," sagði Álfheiður sem undraði sig mjög á stöðu mála.

Hún sagði umrædda fulltrúa Fjármálaeftirlitsins hafa upplýst að þeir hefðu gengið svo frá samningum síðasta haust að ómögulegt væri að þessum tilteknum nefndum yrðu veittar upplýsingar varðandi mat á eignum og skuldum gömlu bankanna. Hún sagði formenn þessara beggja nefnda hinsvegar ætla að þrýsta á að þessar upplýsingar yrðu veittar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×