Erlent

Blóðbað í Írak

MYND/REUTERS

Tugir létust og enn fleiri slösuðust í fjölmörgum árásum í Írak á páskadag. Hinn kristni minnihluti íröksku þjóðarinnar gerði þó sitt besta til að halda daginn hátíðlegan.

Benedikt Páfa varð ekki að ósk sinni á Páskadag. Hann bað fyrir friði í Írak, en dagurinn einkenndist frekar af ófriði í landinu. Um hádegisbilið sprakk bílsprengja nærri bænahúsi Sjíja. Ellefu féllu og tugir slösuðust.

Fyrr um morguninn létust fjórir í bílsprengjuárás við mosku í austurhluta höfuðborgarinnar. En ofbeldinu var hvergi nærri lokið. Strætisvagnaferð breyttist í martröð rétt norður af Baghdad eftir hádegið, þegar byssumenn hófu skothríð á vagninn með þeim afleiðingum að fimm óbreyttir borgarar týndu lífi.

En dagurinn var ekki slæmur fyrir alla Íraka, því að sextíu föngum var sleppt úr Abu Ghraib fangelsinu illræmda, eftir að hafa verið hreinsaðir af ásökunum um aðild að hryðjuverkasamtökum.

Þau þrjú prósent Íraka sem aðhyllast kristna trú gerðu sitt besta til að halda daginn hátíðlegan. Í Kirikju maríu meyjar í Baghdad var fullt út úr dyrum, en viðstaddir fóru þó ekki varhluta af öryggisvörðum og hermönnum í nágrenni kirkjunnar, enda óttinn mikill við aðgerðir árásarmanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×