Miðaði hlaðinni haglabyssu í andlit konu 17. desember 2011 08:00 Við Kirkjusand Atburðarásin hófst á bifreiðaplaninu við Kirkjusand. fréttablaðið/vilhelm
Ríkissaksóknari hefur ákært tuttugu og þriggja ára mann fyrir að ráðast á fyrrum unnustu sína og svipta hana frelsi í allt að tvær og hálfa klukkustund í febrúar á þessu ári. Jafnframt að hafa miðað hlaðinni haglabyssu í andlit hennar. Atburðarásin hófst með því að maðurinn hindraði konuna sem var farþegi í bíl sem hann ók í að yfirgefa bifreiðina, sem hann hafði lagt á bílaplani við Kirkjusand í Reykjavík. Hann greip í handlegg konunnar og læsti hurðinni, að því er segir í ákæru. Maðurinn ók bifreiðinni í kjölfarið að athafnasvæði Eimskipa við Klettagarða og lagði henni þar upp við gámavörubifreið þannig að ómögulegt var fyrir konuna að komast út. Nokkru síðar hleypti hann henni þó út en þegar honum varð ljóst að hún hafði hringt í Neyðarlínuna þvingaði hann hana aftur inn í bifreiðina. Við það sló hann höfði hennar í tvígang utan í bílinn. Maðurinn reyndi jafnframt að þvinga hring af fingri hennar og kom henni svo fyrir á gólfi við aftursæti bifreiðarinnar. Maðurinn ók að Bláfjallaafleggjaranum þar sem hann stoppaði um stund en ók loks að heimili konunnar. Við líkamsárásina hlaut hún áverka á höfði og líkama. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa í mars á bifreiðastæði í Kópavogi stofnað lífi og heilsu sömu konu í augljósa hættu, með því að miða hlaðinni haglabyssu að bifreið hennar og að andliti hennar á meðan hún steig út úr bifreið sinni. Maðurinn var með fjaðurhníf, sem lögregla fann við leit á honum. Konan krefur manninn um ríflega 3.4 milljónir í skaða- og miskabætur.-jss
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira