Innlent

Segist hafa gott fylgi sem bæjarstjóraefni

Kópavogur. Í hádeginu í dag kemur í ljós hverjir taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar í maí.Fréttablaðið/GVA
Kópavogur. Í hádeginu í dag kemur í ljós hverjir taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar í maí.Fréttablaðið/GVA

„Vegna þeirrar stöðu sem er uppi í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi ætla ég ekki að taka þátt," segir Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, sem gefur ekki kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna bæjarstjórnarkosninga í maí.

Gunnar I. Birgisson, forveri Gunnsteins í bæjarstjórastólnum, býður sig hins vegar fram í efsta sæti sjálfstæðismanna og þar með til að verða bæjarstjóraefni flokksins. Gunnar vék úr bæjarstjórastólnum í fyrra eftir deilur um viðskipti fyrirtækis dóttur hans við bæinn. Hann tók sér síðan einnig leyfi sem bæjarfulltrúi eftir að rannsókn hófst á störfum hans og fleiri bæjarfulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.

Gunnar hafnar því að hafa unnið gegn Gunnsteini sem hafi staðið sig vel sem bæjarstjóri og náð að sætta ólík sjónarmið. „Ég kannast ekki við einhvern ágreining eða flokkadrætti inni í flokknum. Við höfum ekkert orðið vör við það við hin að minnsta kosti," segir Gunnar sem hefur aðrar skýringar á því hvers vegna Gunnsteinn tekur ekki þátt í prófkjörinu.

„Það var gerð skoðanakönnun fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi og hún sýnir yfirgnæfandi fylgi við mig innan raða sjálfstæðismanna, og líka hjá Kópavogsbúum, sem bæjarstjóra eftir næstu kosningar. Ég hef grun um að það hafi átt einhvern þátt í þessu."

Framboðsfrestur í prófkjöri sjálfstæðismanna rennur út á hádegi í dag. Þá skýrist hvort einhverjir aðrir en Gunnar sækist eftir fyrsta sætinu. Sjálfur kveðst hann bjartsýnn á gott gengi í prófkjörinu sem fram fer 20. febrúar.

„Ég finn ekkert nema góða strauma í minn garð varðandi prófkjörið."

Gunnsteinn segir hins vegar alla sem fylgjast með vita að Gunnar hafi unnið gegn honum og öðrum bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Hann sé svartsýnn fyrir hönd sjálfstæðismanna með Gunnar í leiðtogasætinu.

„Ég sé ákaflega litla möguleika. Gunnar hefur staðið í illdeilum við forystumenn Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins og er í málaferlum við bæjarfulltrúa bæði Samfylkingar og Vinstri grænna. Ég sé engin líkindi til þess að hann geti farið að starfa með þessu fólki," segir Gunnsteinn sem kveðst sjálfur hafa átt gott samstarf við alla innan bæjarstjórnar.

„Það sést best á því að fjárhagsáætlun var samþykkt af öllum bæjarfulltrúum," bendir hann á. gar@frettabladid.is




Tengdar fréttir

Formaður fulltrúaráðsins vísar orðum bæjarstjórans á bug

Formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi vísar á bug orðum Gunnsteins Sigurðssonar, bæjarstjóra og oddvita sjálfstæðismanna, um að togstreita og óróleiki sé meðal sjálfstæðismanna í Kópavogi. Ekkert sé fjærri sannleikanum.

Gunnar: Fullyrðingar Gunnsteins rangar

Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, segir að fullyrðingar Gunnsteins Sigurðssonar, núverandi bæjarstjóra, um óróleika, togstreitu og flokkadrætti í röðum sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu séu rangar.

Bæjarstjórinn stígur til hliðar vegna óróleika meðal sjálfstæðismanna

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Ástæðan er óviðunandi togstreita og óróleiki í röðum sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu sem hefur verið viðvarandi síðan í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×